Dagur - 02.10.1980, Blaðsíða 13

Dagur - 02.10.1980, Blaðsíða 13
Sláfurtíð og loðnuvertíð á Siglufirði — Karlmenn vantar en konur fá ekki atvinnu við sitt hæfi Siglufirði 30. september Sláturtíð er nú komin í fullan gang, en það er nú liðin rúm vika síðan slátrun hófst. Hér á Siglufirði er þó nokkuð um fjárbændur — t.d. er heilt þorp fyrir ofan kaupstaðinn, sem nefnt er Rollubúðir. Bændur úr Fljótunum og Siglunesi hafa einnig komið með fé hingað svo þetta tínist til. Stöðugt er loðna brædd í SR. Það Þórshöfn Níundi bekkur grunnskóla í fyrsta sinn Gunnarsstöðum í Þistilfirði 1. október Nú er verið að taka í notkun allstóra viðbyggingu við grunn- skólann á Þórshöfn, sem var settur í dag. Það eru þrír hreppar sem standa að þessari viðbygg- ingu. í vetur verður 9. bekkur grunnskóla í fyrsta sinn á Þórs- höfn. Skólastjóri grunnskólans á Þórshöfn er Pálmi Ólason, en hann hóf störf við skólann haustið 1956; kom beint frá prófborðinu. Pálmi tók við starfi skólastjóra af föður sínum Óla Möller sem hafði verið skólastjóri á Þórshöfn líklega I ein 30 eða 40 ár. Pálmi á nóga stráka, en það er ekki séð enn hvort em- bættið gangi í erfðir eins og í kóngsríkjunum. Annars lýst mér best á yngsta soninn sem heitir Óli — rétt eins og ég og afi hans. Ó.H. Nýtt starfsár hjá Skákfélagi Akur- eyrar Aðalfundur S.A. var haldinn í Félagsborg 24. september s.l. Á honum var kjörin ný stjórn undir forsæti Karls Steingrímssonar eins og síðast liðið starfsár. Ýmsar tillögur voru bornar fram á fundinum og margar samþykktar. M.a. var tillaga þess efnis að reykingar séu óæskilegar á kapp- skákmótum félagsins samþykkt. Nú er að hefjast nýtt starfsár hjá S.A. og fyrsta mótið er svo- kallað Startmót, sem haldið verð- ur mánudaginn 6. okt. n.k. kl. 20.00 í Félagsborg. Miðvikudag- inn 8. október er 15 mín. mót á dagskránni. Verður það haldið í Hvammi og hefst kl. 20.00. Haustmót S.A. hefst síðan miðvikudaginn 15. okt. kl. 20.00, einnig í Hvammi, en þar mun S.A. hafa starfsemi sína a.m.k. framan af vetri. Keppnisfyrirkomulag á haustmótinu ákvarðast af fjölda keppenda. Jakob. Hver fékk ferð til vinabæjar? I gær var dregið hjá bæjarfógeta í happdrætti vinabæja Akureyrar á Norðurlöndunum. Upp kom númer 22660 — tveir tveir sex sex núll. Vinningur er ferð fyrir 2 full- orðna og 2 börn til þess vinabæjar á Norðurlöndum, sem vinningshafi óskar. Gert er ráð fyrir að vinning- urinn verði notaður næsta sumar. Handhafi vinningsnúmersins er beðinn um að snúa sér til bæjar- stjórans á Akureyri. Hefilbekkir Fyrir heimili eða skóla r r AUGLYSIÐIDEGI TEIKN V STOFAN STILLr AUGLÝSINGAR-SKILTAGERÐ TEIKNINGAR-SILKIRRENT SÍMi: 2 57 57 Einingarfélagar Eyjafirði Ferðakvöld verður haldið í Alþýðuhúsinu á Akur- eyri 4. okt. n.k. og hefst kl. 20.30. Sýndar verða myndir úr ferðalögum félagsins í sumar, kaffiveitingar og fleira veröur til skemmtunar. Allir Einingarfélagar eru velkomnir, en sérstaklega er þess vænst, að þeir mæti sem voru þátttakendur ísumarferð félagsins og taki með sér myndir er þeir kynnu að hafa tekið. Ferðanefnd Einingar. eru væntanlegir bátar hingað í dag. Síðast var landað loðnu í fyrradag. Hafin er útskipun á loðnumjöli. Laxá er hér og á að skipa um borð einum 1100 tonnum. Það er því nóg atvinna á Siglu- firði um þessar mundir — raunar vantar okkur fleiri karlmenn í vinnu, en kvenfólkið fær ekki vinnu við sitt hæfi enda er Sigló síld ekki farin af stað aftur. Ég var að frétta að þeir hefðu verið að kaupa 30 tonn af frystri loðnu og sjálfsagt ætla þeir að láta pota henni niður í dósir og þá fá konurnar vinnu á ný. Menn hafa veitt síld í reknet frá Siglufirði eins og víða annarsstað- ar, en þær veiðar eru farnar að tregast. Þeir fengu síldina bæði utarlega í firðinum og svo voru þeir komnir með netin út á Helluna og sitt hvoru megin við fjarðarkjaft- inn. Menn fengu þetta allt upp í 700 kíló í vitjun. Sumir söltuðu, en aðrir seldu hana til Reykhúss Egils Melsted. SB. Handboltinn byrjaður af fullum krafti Nú eru Akureyrarfélögin Þór verið ráðinn þjálfari meistara- og KA farin að æfa handbolta af fullum krafti. Nú um helg- ina fengu þau í heimsókn þriðju deildar lið Þórs úr Vestmannaeyjum. Á föstudagskvöldið léku Ak- ureyrar-Þór og Vestmanneyja— Þór og lauk leiknum með sigri Vestmanneyinganna, en þeir unnu verðskuldaðan sigur. Ak- ureyrar-Þór teflir nú fram gömlum refum eins og þeir eru stundum kallaðir, en það eru handboltamenn sem áður gerðu garðinn frægan, en höfðu að mestu lagt skóna á hilluna. Marga leikmenn sem léku með þeim í fyrra vantaði, en sumir munu vera hættir og aðrir farið til annarra félaga. Hreiðar Jónsson hafði verið ráðinn þjálfari fyrir þetta keppnis- tímabil, en að læknisráði varð hann að hætta við það. Aðal- steinn Sigurgeirsson hefur nú flokks. Á laugardaginn lék Vest- manneyja-Þór við K.A, en KA hefur nú mörg ný andlit í sínu liði. Alfreð Gíslason skilur eftir sig stórt skarð í KA liðinu, Gunnar bróðir hans mun verða við nám í íþróttakennaraskól- anum í vetur, og leika með KA eftir því sem hann kemur því við. Ekki var leikur KA sann- færandi á laugardaginn, og það fór fyrir þeim eins og Þór að þeir töpuðu fyrir þriðju deildar liðinu! Á sunnudaginn var svo hraðmót þessara aðila, og þar sigraði KA, Þór Akureyri varð i öðru sæti og Vestmanneyja-Þór í þriðja. íslandsmótið í hand- bolta, annarri deild byrjar um miðjan október, og fyrsti leikur KA er við Aftureldingu í Mos- fellssveit þann 18. okt. Þór leik- ursinn fyrsta leik við Ármann í Reykjavík helgina eftir. I /I Stærðir 120 og 140 cm. IHANDVÉRKI Strandgötu 23. Sími 25020. Thuletvímenningskeppni Bridgefélags Akureyrar hefst þriðjudaginn 7. októ- ber að Félagsborg. Spilaðar verða 3 umferðir og er allt spilafólk vel- komið. Stjórnin. Leiðrétting Rangt var farið með fæðingardag Halldórs Sveinbjörnssonar í minn- ingargrein sem Álfheiður Karls- dóttir skrifaði um hann. Halldór varfæddur 12. júlí 1959, en ekki 20. júlí eins og stóð í blaðinu. Vertuklár á nýju krónunni Bæklingur á hvern bæ Þessa dagana er verið að senda inn á hvert heimili í landinu upplýsingabækling sem Seðla- bankinn hefur látið gera um gjaldmiðilsbrcyt- inguna. Bæklingur þessi, sem er hinn aðgengilegasti, leitast við að svara skilmerkilega öllum þeim 'spurningum sem brýnt er að allir kunni svör við þegar nýja krónan tekur gildi 1. janúar næst- komandi. Nauðsynleg lesning -þvííyrr,þvíbetra " Hér gefst því kjörið tækifæri fyrir alla lands- menn, fjölskyldur sem einstaklinga, að kynna sér efni bæklingsins til hlítar í góðu tómi heima við og endurlesa eftir því sem nær drcgur breyting- unni. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Geymið á vísum stað Munið að hafa bæklinginn góða alltaf á vísum stað þar sem allir geta gengið að honum eftir þörfum. Oll þurfum við að vcra klár á nýju krónunni þcgar hún tekur gildi. Ekki satt? Bæklingur á ensku og dönsku Bæklingur í enskri og danskri útgáfu verður fáanlegur fyrir þá sem þess óska. Ýtarlegri bæklingur fyrir fyrirtæki Ytarlegri bæklingur sem miðaður er sérstak- lega við þarfir fyrirtækja og stofnana er einnig til reiðu og fæst gegn pöntun í bönkum og spari- sjóðum. pMÍMEaiM8« ; minni upphæóir-meira venógildi DAGUR.13

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.