Dagur - 02.10.1980, Síða 11

Dagur - 02.10.1980, Síða 11
Epal á Akureyri Nýlega opnaði Epal h.f. nýja verslun að Strandgötu 19 á Ak- ureyri. Verslunin hefur á boð- stólum mjög sérstæðar og vand- aðar vörur og lögð er megin- áhersla á ýmiss konar húsbúnað, þar sem góð hönnun og efnis- gæði ráða mestu. Að sögn Eyjólfs Pálssonar, inn- anhússarkitekts, sem er einn eig- enda fyrirtækisins, hefur Epal- verslunin í Síðumúla 20 í Reykja- vík sent mikið af vörum í póstkröfu til Akureyrar og annarra staða á Norðurlandi að undanförnu og var því ráðist í að setja á fót útibú á Akureyri. Meðal þess sem fæst í verslun- inni má nefna kókosteppi. ullar- teppi, Hewi-hurðarhúna og snaga o.fl., lampa, sérhönnuð húsgögn og sérsmíðaðar eldhúsinnréttingar, svo eitthvað sé nefnt. Þá fást í versluninni ný gerð húsgagna- áklæða og gluggatjaldaefna frá Gefjun, sem þykja mjög falleg og í háum gæðaflokki, auk þess að vera ódýr. Verslunin verður fyrst í stað opin frá kl. 13-18 og útibússtjóri er Ellen Pétursdóttir. Visitala byggingarkostnaðar Hagstofan hefur reiknað vísitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í fyrri hluta september 1980 og reyndist hún vera 539,18 stig, sem lækkar 1 539 stig (október 1975= 100). Gildir þessi vísitala á tímabilinu október-desember 1980. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn er 10.706 stig, og Orðsending Um þessar mundir munu vera að koma í hendur fólks happdrætt- ismiðar i landshappdrætti Nátt- úrulækningafélags íslands og eru þeir sendir í póstgíró. Þar sem oft hefur verið um það spurt, hvort ágóði af happdrættinu renni til hælisbyggingarinnar í Kjarna- landi, þá viljum við svara því til, að staðfesting er fengin frá stjórn gildir hún einnig á tímabilinu október-desember 1980, þ.e. til viðmiðunar við vísitölur á eldri grunni (l.október 1955 = 100). Samsvarandi vísitölur reiknað- ar eftir verðlagi 1 fyrra hluta júní 1980 og með gildistíma júlí-sept- ember 1980 voru 490 stig og 9735 stig. Hækkun frá júní til septem- ber 1980 er 10,0%. frá N.L.F.A. samtakanna í Reykjavík þess efnis að allur ágóði happdrættis- ins renni til framkvæmdanna hér á Akureyri. Það er því ósk okkar að fólk bregðist vel við er gíróseðillinn berst því í hendur. Með fyrirfram þökk. Stjórn N.L.F.A'. Hallgrímur Pétur Gunnlaugsson (t.v.) og Már Jóhannsson við skiltið í Glerárhverfi. Mynd: á.þ. Enn er hægt að bæta við í sumar voru sett upp skilti sitt hvoru niegin við Akureyri, en á þessum skiltum eru upplýsingar um 64 fyrirtæki í bænum. Að sögn Más Jóhannessonar, for- seta JC Akureyri, sem hafði forgöngu um uppsetninguna, hafa ferðamenn vel kunnað að meta þær upplýsingar sem eru á skiltunum. Hallgrímur Pétur Gunnlaugs- son, sem hefur umsjón með skilt- unum, sagði að enn væri hægt að bæta við nöfnum fyrirtækja og stofnana á skiltin. „Þetta eru einu skiltin á landinu þar sem fyrirtæki og stofnanir eru flokkuð niður", sagði Hallgrímur. „Það er auðvelt fyrir ókunnuga að átta sig á stað- setningu fyrirtækja eftir skiltunum og viðkomandi'getur farið beint á staðinn án mikillar fyrirhafnar". Innan tíðar yerður sett lýsing á skiltið hjá flugvellinum. en einhver bið verður á því að skiltið í Glerár- hverfi verði lýst upp. Ætlunin er að bæta möl í stæðin hjá skiltunum og koma þangað stöndugum rusla- tunnum. Hvað er klam? — Það vafðist fyrir mönnum 1952, þegar blað með meðfylgjandi myndum var bannað Síðustu áratugir hafa verið ntiklir sviptingatímar í ís- lensku þjóðfélagi. Sér þess víða merki og má nefna mörg dæmi úr atvinnuháttum, sam- göngumálum, varðandi húsa- kost og margt fleira. Ekki eins áþreifanlegar eru breytingarn- ar, sem orðið hafa á hugsun- arhætti fólksins í landinu, en samfara þeim breytingum þyk- ir ýmis hegðun fólks nú sjálf- sögð, sem áður var fordæmd af fjöldanum. Meðal þess sem miklum breytingum hefur tek- ið i tímanna rás, er sú merking sem lögð er í hugtakið klám. Það sem áður þótti argasta klám, þykir það ekki lengur, og nú verður vart gengið svo inn í bókabúð í landinu, að ekki blasi við klámblöð af ýmsu tagi; blöð sem með góðri samvisku má kalla klámblöð, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að vera álit- inn unt of siðsamur og gamaldags í hugsunarhætti. En kveikja þessa greinastúfs er gamalt blað, sem rak á fjörur Hver skyidi þessi vera — hún er ekki úr nágrenninu. Óli! okkar. Það var gefið út á Akureyri árið I952 en komst aldrei í al- menningseign vegna þess, að em- bættismenn í andlegum efnum fengu liðsinni veraldlegra em- bættismanna til að stöðva út- komu ritsins. Það þótti klám- fengið og ósiðsamlegt, en þó einkum og sérilagi ein mynd, sem hér birtist og lesendur geta spreytt sig á að finna, áður en lengra er haldið. ■' Fógeti tók blaðið í sína vörslu og gerði það upptækt. Málaferli urðu hins vegar engin og ekki vitað annað en upplaginu hafi verið hent með öðru rusli. Dagur komst yfir eitt eintak þeirra örfáu blaða, sem ekki lentu í vörslu fógeta, og við skulum líta lítillega á það í þeirri von, að lesendur verði einhvers vísari um þá breytingu, sem orðið hefur á hugsunarhætti fólks. Blaðið hét ADAM og hafði skýringarfyrirsögnina „mynda- og gamanblað". Það var gefið út í mars 1952 og var 20 bls. að stærð. Nokkrar smásögur voru í blað- inu, ekki bersöglar í þeirri merk- ingu, sem flestir leggja í það orð í dag, nokkrar skrýtlur, og ljós- myndir af nöktum módelum, sem varla þættu djarfar í dag. En einnig voru myndaskrítlur í blað- inu og það var einmitt ein slik, sem fyrst og fremst olli hneykslan þeirra, sem fengu blaðið stöðvað. Eigum við ekki að fara. ég skil ekki orð i frönsku. Ekki skal fjölyrt nánar um efni blaðsinspenda eru myndirnar sem hér birtast líklega farnar að tala meira til lesenda heldur en text- inn, en eins og áður sagði var það einmitt ein þessara mynda, sem þótti sérstaklega dónaleg. Mynd- irnar eru úr fyrsta og eina tölu- blaði fyrsta og eina árgangs blaðsins „ADAM". Ef til vill eru lesendur þegar búnir að uppgötva hver þessara mynda þótti svo djörf, að áslæða þótti til að fá blaðið gert upptækt. Ef margir eru búnir að sjá hver myndin er, hefur hugsunarhátt- urinn e.t.v. ekki breyst svo ýkja mikið, eins og haldið er fram hér í upphafi, og hann hefur örugglega ekki breyst mikið ef myndin vek- ur enn hneykslan. Fyrir þá sem enn hafa ekki áttað sig á því hver Má ég velja úr bollunum? myndin er.fylgir hér til leiðbein- ingar. að það er sú, þar sem sést bæði ofan og neðan vatnsborðs og fiskur á sundi. Sú mynd var talin ósiðsamlegust myndanna í blaðinu sökum þess, að hún gaf eitthvað Ijótt í skyn. Sveiattan, Kalli! DA<aUR.’11

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.