Dagur - 02.10.1980, Side 16
Hefur þú spurt á
Húsavík?
Við eigum nánast allt sem þú þarfnast til húsbygginga,
jafnt áhöld sem efni.
w byggingarvörur
Husavík. Sími 06) 41444
HafnaraðstaAan stórbatnar á Grcnivik þcgar framkvæmdum lýkur. Mynd: á.þ.
Reka niður stálþil
Fyrír skömmu var hafist handa
við að reka niður 60 m langt
stálþil á Grenivík. Vonir standa
til að vcrkinu geti lokið í nóv-
ember. Þegar hægt verður að
leggja bátum við þilið má segja
að stórum áfanga í hafnarmál-
um á Grenivík sé náð. Hafnar-
garðurinn var lengdur í fyrra,
höfnin dýpkuð í vor og nú er
unnið viö stálþilið.
Stefán Þórðarson, sveitarstjóri í
Grýtubakkahreppi, sagði að hér
væri um mikla hafnarbót að ræða.
Nú verður t.d. hægt að leggja skip-
um innan á garðinn, en þar er
jafnan betra sjólag. Má segja að
Grenvíkingar séu nú að verða til-
búnir til að taka á móti togara, sem
sjálfsagt kemur fyrr eða síðar.
Nú eru gerðir út 3 stórir dekk-
bátar frá Grenivík. Einnig eru
gerðir út 5 litlir dekkbátar og
margar trillur. Atvinna hefur verið
mikil á Grenivík að undanförnu.
PÓLK VARAÐ VIÐ
HEIMASLÁTRUDU
hann, en það er með öllu bannað
að selja hann.
I fréttatilkynningu frá heilbrigð-
isfulltrúa segir m.a. að kjöt-
stimplun sé vottorð dýralæknis um
að uppfylltar hafi verið settar kröf-
ur um heilbrigði sláturgrips og
hreinlæti við slátrun og tryggir
þannig neytendur gegn því að fá
sýkta vöru. Sé kjötið óstimplað
hafa neytendur enga tryggingu
fyrir heilnæmi þess.
„Heimaslátrun fer einnig oft
fram við mjög lélegar aðstæður, t.d.
í skítugum gripahúsum, og er því
boðið heim hættu á mengun kjöts-
ins. Neytendur eiga líka heimtingu
á því að eftirmengun eigi sér ekki
stað.
Því er verslunum, kjötvinnslu-
stöðvum og veitingastöðum
óheimilt að saga óstimplað kjöt eða
taka það til vinnslu fyrir fólk og
óhreinka þannig vélar fyrirtækisins
sem notaðar eru fyrir hinn almenna
neytanda. Frystihúsum er einnig
óheimilt að geyma afurðir sem ekki
hafa hlotið heilbrigðisskoðun og
stimplun."
Loðnu dælt úr Grindvfkingi GK. Mynd: á.þ.
Mikil loðna
Á þriðjudagsmorgun voru komin
rösklega 7 þúsund tonn af loðnu
á land í Krossanesi, sem er
hærra hlutfall af veiðinni en
oftast áður. Þegar búið var að
veiða 25 þúsund tonn höfðu 5
þúsund tonn borist til Krossa-
nessverksmiðjunnar.
Fyrsti loðnuaflinn barst til
Krossaness 11. september. Vertíðin
hófst fyrr á síðasta ári og þá var á
sama tíma búið að landa um 10
þúsund tonnum hjá verksmiðjunni.
Hráefnið er nú orðið mjög gott,
fitan um 17,5%, en hefur minnkað
nokkuð frá fyrstu förmunum.
Fyrstu farmarnir voru hins vegar
gamalt hráefni, sem skipin fengu á
nokkuð löngum tíma.
„Við höfum ekki orðið varir við
óstimplað kjöt, en sá orðrómur
hefur komist á kreik að það verði
mcira uni hcimaslátrun i bænum en
oft áður. Sérstaklega á þetta við uni
þá sem stunda fjárbúskap í tóm-
stundum. Þeir fá ekki fullt verð fyrir
sitt fé. Ef skepnu er slátrað við
ófullnægjandi aðstæður er hætta á
að kjötið óhreinkist og komist í það
allskonar saurgerlar. Einnig er sú
hætta fyrir hendi að gripurinn sé
sjúkur. Slíkir gripir eru teknir til
hliðar og athugaðir af dýralækni
þegar slátrað er í sláturhúsi" sagði
Valdimar Brynjólfsson, heilbrigðis-
fulltrúi í samtali við blaðið. „Þcgar
slátrað er heima er engin trygging
fyrir því að gripurinn sé heilbrigð-
ur.“
Valdimar sagðist hafa staðfestan
grun um að kjötiðnaðarmenn
hefðu verið beðnir um að saga nið-
ur kjöt sem hefur verið slátrað
heima. Það getur enginn bannað
manni að slátra eigin grip og eta
Sauðárkrókur:
Nýtl íþróttahús
Einhvern næstu daga verða
hafnar framkvæmdir við
íþróttahús á Sauðárkróki. Áætl-
aður kostnaður við þann áfanga
sem á að byggja er 600 milljónir
króna. Ef áætlun um byggingar-
hraða stenst verður hægt að
Bfl stolið
Skömmu fyrir klukkan sex sl.
laugardagsmorgun fann lög-
reglan Volvo fólksbíl í
Lönguhlíð. Þegar bíllinn
fannst var hann þversum á
götunni og stórskemmdur.
Að sögn lögreglunnar hafði
ökumaður m.a. ekið um Kletta-
borgarveg. Þar var bílnum ekið á
jarðfasta steina og ijósastaur.
Billinn er mjög mikið skemmdur
-—jafnvel ónýtur.
Við rannsókn á bílnum kom í
ljós að framrúðan var brotin og
sömuleiðis baksýnisspegill inni i
bílnum. Ef að likum lætur hefur
þjófurinn kastast fram í sætinu
og meitt sig á höfði. Allir þeir
sem einhverjar upplýsingar geta
gefið um ferðir A 5005, sem er
brúnsanseraður Volvo fólksbíll,
eru beðnir um að láta lögregluna
tafarlaust vita.
taka húsið í notkun eftir rúm tvö
ár.
Ástvaldur Guðmundsson, sem
sæti á í byggingarnefnd hússins,
sagði í samtali við Dag að stærð
hússins alls væri 15 þúsund rúm-
metrar eða rúmir 2600 fermetrar. í
þeim áfanga sem verið er að hefja
og á að verða lokið eftir rúm tvö ár,
verða byggðir tæpir 9 þúsund rúm-
metrar sem jafngildir tæpum 1700
fermetrum. Eins og fyrr sagði er
áætlaður kostnaður við fyrri áfanga
um 600 milljónir, en á verðlagi 1.
október er gert ráð fyrir að húsið
fullbyggt muni kosta 980 milljónir.
Nú er verið að semja við tvö fyr-
irtæki á Sauðárkróki um vinnulið
vegna framkvæmda við grunn
hússins. Gert er ráð fyrir að búið
verði að koma upp grunnveggjum,
en ekki plötu, fyrir 15. nóvember.
Strax á næsta ári er ráðgert að
bjóða a.m.k. út uppsteypun húss-
ins. I fyrri áfanganum verður
byggður hálfur íþróttasalur, en
þegar húsinu verður lokið geta
Sauðárkróksbúar boðið upp á full-
kominn keppnissal í handbolta. Á
þessu stigi málsins er ekkert hægt
að segja um hvenær lokið verður
endanlega við húsið.