Dagur - 26.01.1982, Síða 3
Atriði úr leikritinu.
Tekið tillit
til óska
sveitakonu
„Vegna ábendinga sveitakonu í
iesendahomi Helgarblaðs
Dags sl. föstudag, höfum við
ákveðið að hafa sýningu á Dýr-
unum í Hálsaskógi nk. laugar-
dag kl. 14,“ sagði Guðbjörg
Hermannsdóttir hjá Leikfélagi
Akureyrar er hún hafði sam-
band við okkur í gær.
Guðrún tjáði okkur að þrjár
fyrstu sýningarnar á leikritinu hafi
verið kl. 15, en síðan var sýning-
artíminn færður aftur til kl. 17. En
nú á semsagt að flytja sýninguna á
laugardaginn til kl. 14.
Leikfélag Akureyrar hefur sýnt
Dýrin í Hálsaskógi 15 sinnum, og
hefur alltaf verið uppselt og kann
unga kynslóðin greinilega vel að
meta það sem boðið er upp á.
Fundu
kindurí
Keflavík
Fyrir skömmu var flogið yfir
afréttarlönd bænda við austan-
verðan Eyjafjörð. í flugvélimú
voru þeir Sveinn Jóhannesson,
fjallskilastjóri i Grýtubakka-
hreppi og Ásgeir Kristiaussoa,
■m Wnginiðiii var Jóhann
□urniaiMiu. rcir ieiagar ko»hi
tmg* é tvær kindur i Keflarik.
Þaer verða sóttar síðar í béti.
Fyrir jól fóru nokkrir véhdeða-
menn frá Grenivík út íFjörður og
sáu þtó fjórar kindur, sem þeir
gátu þó ekki haft með sér heim
enda böfðu þeir engan útbúnað tíl
slíkra flutninga. Mðji jóla og ný-
árs var aftur haldið af stað og þá
fundust tvær í viðbót. í Ijós kom
að þetta voru tvær fullorðnar ær
og fjögur lömb. Kindurnar voru
eign bænda í Höfða, Réttaritoití
ogGrýtabakka.
PA.
HMBIönduós:
SAH.með
hótelið
á leigu
Nú í haust yfirtók Sölufélag Aust-
ur-Húnvetninga reksturinn á
Hótel Blönduósi af Ferðaskrif-
stofu ríkisins. Að sögn Árna S.
Jóhannssonar kfstj. hefur félagið
hótelið á leigu til ársloka 1982, og
er gert ráð fyrir að það verði rekið
í svipuðu formi og verið hefur, en
þó reynt að brydda upp á ein-
hverjum nýjungum í starf-
seminni. Helstu eigendur hótels-
ins eru Blönduóshreppur, Húna-
vatnssýsla, Kf. Húnvetninga,
Arnarflug og Pólarprjón, en það
er rekið sem hlutafélag. Hótel-
stjóri er Sigurður Jóhannesson.
Iðnaðarráðuneytið:
Kanna stöðu iðnaðar og mögu-
leika á iðnþróun við Eyjafjörð
„Iðnaðarráðuneytið hefur að
höfðu samráði við eftirtalda að-
ila ákveðið að beita sér fyrir
myndun samstarfsnefndar, er
hafí það verkefni að kanna
stöðu iðnaðar og möguleika á
iðnþróun á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Við úttekt verði höfð hlið-
sjón af öðru atvinnulífi á svæð-
inu og samþykktum og
ályktunum sveitarstjórna og
annarra aðila varðandi
atvinnumál á Norðurlandi,“
segir í bréfi sem Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra,
hefur sent til ýmissa aðila við
Eyjafjörð.
í bréfi ráðherra kemur fram að
hvað varðar æskilega iðnþróun,
þá verði horft til sem flestra
greina almenns iðnaðar og smárra
og stórra fyrirtækja, sem talin eru
hafa vaxtarmöguleika og falla að
því atvinulífi og umhverfi sem
fyrir er.
„í sambandi við orkufrekan
iðnað, sem til álita kæmi, er mið-
að við íslensk fyrirtæki og virkt
forræði landsmanna yfir slíkum
rekstri. Lögð er sérstök áhersla á
að tekin verði til athugunar fé-
iagsleg áhrif slíkra stórfyrir-
tækja og að gerðar verði strangar
kröfur um umhverfisvernd. Jafn-
framt verði höfð í huga tengsl
þeirra við annað atvinnulíf, að
öðrum greinum iðnaðar meðtöld-
um, m.a. varð§ndi úrvinnslu
afurða frá orkufrekum iðnfyrir-
tækjum."
„Við áætlanir um atvinnuþróun
á svæðinu verði haft að markmiði
að tryggja sem besta atvinnu og
byggð á öllu Eyjafjarðarsvæð-
inu.“
Iðnaðarráðuneytið mun til-
nefna þrjá fulltrúa í nefndinni og
leitað er tilefningu eins fulltrúa
frá hverjum eftirtalinna: Alþýðu-
sambandi Norðurlands, Fram-
kvæmdastofnun ríkisins, byggða-
deild, Iðnaðardeild SÍS, Iðnþró-
unarfélagi Eyjafjarðar og Náttúr-
uverndarráði.
Ráðuneytið hefur fyrir sitt leyti
tilnefnt eftirtalda: Helga Guð-
mundsson bæjarfulltrúa á Akur-
eyri, Valdimar Bragason bæjar-
stjóra á Dalvík, Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóra á Akureyri og
gert er ráð fyrir að Pétur Eysteins-
son, iðnráðgjafi hjá Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga verði
nefndinni til aðstoðar.
Nefndinni er ætlað að skila til-
lögum eftir því sem þær mótast,
en óskað er eftir áfangaáliti fyrir
lok marsmánaðar og að nefndin
ljúki störfum fyrir áramót.
flmvötn, kœm, sjampooo.fi.
Einnig sokkabuxur í úrvatt.
Vaxdúkar og þunnt plast
Attt fyrir prjónaskapinn.
Ódýrar barnasmekkbuxur.
Allt fyrir góðan svefn,
\ Dúnn, fiður og lakastót
26.;janúar1982 - DAGUR - 3