Dagur - 26.01.1982, Side 12
ÞJONUSTA
FYRIR
HÁÞRYSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Hjólin
snúast
á ný
Dalvík, 25. janúar.
Eins og á öðrum útgerðarstöð-
um er atvinnulífið að fara aftur
í fullan gang, eftir verkfall sjó-
manna. Fyrsti togarinn er
væntanlegur með um 100 tonn
af þorski í dag.
Vinnsla hefst þá þegar í frysti-
húsinu af fullum krafti, því annar
togari er væntanlegur síðar í vik-
unni. Dalborg, togari Söltunar-
félags Dalvíkur, er væntanlegur
til löndunar seinni part vikunnar,
og munu þá hjölin fara að snúast á
fullu þar líka. Hjá fiskverkunar-
stöövum og vertíðarbátum höfst
vertíðin á venjulegum tíma, en
afli er tregur eins og oft í vertíðar-
byrjun. A.G.
Rösklega 70 skólabörn frá Grenivík:
Leikhúsferðin tók
hálfan sólarhring
Grenivík, 25. janúar.
í síðustu viku fóru 73 börn frá
Grenivík ásamt 4 kennurum
inn til Akureyrar til að sjá leik-
ritið Dýrin í Hálsaskógi. Það
var ögn farið að renna þegar
þau fóru inn eftir, en í bakaleið-
inni var vegurinn á Svalbarðss-
trönd ófær og komu börnin og
kennarinn ekki heim fyrr en
hálf fimm næsta morgun. Þau
voru því hálfan sólarhring í
ferðinni. Engum varð meint af
volkinu og rúturnar sem fluttu
börnin voru hlýjar. Skóli var
felldur niður næsta dag fram til
klukkan 14, en þá mættu
yngstu börnin.
Rúturnar fóru frá Akureyri um
níu um kvöldið og var þá komin
talsverð ófærð í Varðgjárbrekk-
unum. Þegar kom að Þórsmörk á
Svalbarðsströnd um miðnætti
blasti við skafl sem náði allt
norður fyrir Garðsvík. Þessi at-
burður átti sér stað á þriðjudags-
kvöldið og á þriðjudögum er ekki
mokað, en snjómoksturstæki
voru kölluð til. Það tók þau röska
þrjá tíma að komast í gegnum
skaflinn. Erfitt var að aka það
sem eftir var leiðarinnar vegna
ófærðar.
Þar sem öllum leið vel í rútun-
um var ekki talin ástæða til að fara
heim á bæi, enda erfitt fyrir fólk
að taka á móti tæplega 80 gestum
án nokkurs fyrirvara. Ekki var
heldur talið rétt að snúa við því
færðin í Varðgjárbrekkunum var
slæm, en síðast en ekki síst átti
enginn von á því að það tæki
svona langan tíma að komast í
gegnum skaflinn.
Ég kom að rútunum um mið-
nætti. Þá voru sumir farþeganna
orðnir ansi slæptir og margir
þeirra steinsváfu enda er aldurinn
ekki hár.d „ .
m m m
Korn til skepnu-
fóðurs athugað
— en kom til manneldis ekki, segir
Birgir Snorrason bakarameistari
„Ef litið er á síðustu lykiltölur,
sem sýna útkomuna á rekstrin-
um 1980, kemur í Ijós að um-
talsverður munur er á afkomu
einstakra bakaría. . . Al-
mennt eru fyrirtæki ekki búin
að gera upp nýliðið ár, en búast
má við að afkoman sé heldur
betri en hún var 1980. í Ijósi
þess má segja að bakarar þurfi
ekki að kvarta, áhugi, framfarir
og þokkaleg afkoma eru fyrir
hendi í iðngreininni,“ sagði
Birgir Snorrason bakarameist-
ari, á fundi Landssambands
iðnaðarmanna, sem haldinn
var á Akureyri um helgina.
Blikur eru þó á lofti, að sögn
Birgis, og nefndi hann í því sam-
bandi innflutning á kökum og
brauðum. Á sínum tíma streymdu
slíkar vörur inn í landið, enda
voru þær ódýrari en sambærilegur
innlendur varningur. í september
1980 var sett sérstakt tímabundið
innflutningsgjald á þær og rennur
það út I. mars nk. „Bakarar
höfðu þvi'^18 mánuði til frekari
undirbnúnings gegn óheftum inn-
flutningi." Þessi tími var notaður
til að setja af stað markaðs- og
vöruþróunarverkefni í brauð- og
kökugerð. R.ð.nn
var t.d. mat-
vælafræðingur, verkefni hans er
m.a. að hjálpa bökurum til að
gera sér grein fyrir ástandi hráefn-
is. „Það er hlálegt til þess að vita,
að við innflutning á korni til
skepnufóðurs eru alltaf tekin sýni
og gæði þess athuguð. En ef verið
er að flytja inn korn til manneldis
eru engar athuganir gerðar."
Birgir ræddi einnig um verð á
mjólkurdufti. Það kom fram hjá
honum að hvert kg. af mjólkur-
dufti kostar hér 51 krónu til baka-
ría en heimsmarkaðsverð er 11 til
12 krónur, egg kosta hér 38 krón-
ur hvert kg., á meðan norrænir
keppinautar greiða 12 til 13
krónur. „Á meðan þetta ástand
varir er ekki hægt að búast við að
innlend framleiðsla sé sam-
keppnishæf í verði,“ sagði Birgir.
Borun lokið
Borun með Narfa á Glerárdal
er iokið. Borað var niður á tæp-
iega 800 metra dýpi og fást nú
úr holunni um 15 sekúndulítrar
af 63° heitu sjálfrennandi vatni.
Nú er verið að ganga frá hol-
unni og í beinu framhaldi af því
verður farið að virkja holuna.
Gera má ráð fyrir að vatn úr
henni verði leitt inn á kerfi
Hitaveitu Akureyrar í mars.
Ekki er vitað með vissu hve
mikið holan getur gefið með
dælingu, en gert er ráð fyrir að
það verði á bilinu 20 til 40 lítrar.
Á Glerárdal eru fjórar
rannsóknarholur og dýpkaði og
víkkaði Narfi eina þeirra. Vilhelm
Steindórsson hitaveitustjóri,
sagði að áður en ákvörðun yrði
tekin um frekari borun á Glerár-
dal yrðu rannsóknarholurnar, og
sú sem Narfi boraði, athugaðar
gaumgæfilega. Hitaveitustjóri tók
fram að ekki væri búist við um-
talsverðu vatnsmagni úr holum á
Glerárdal. „Síðastliðið sumar var
unnið við yfirborðsrannsóknir á
Glerárdal og þær benda til, að
ekki sé umtalsvert magn af vatni á
Glerárdal, né heldur háum hita.“
Snjókoman undanfarna daga hefur svo sannarlega sett svip sinn á Akureyri. Fólk hefur fetað sig eftir þröng-
um troðningum eða leitað út á göturnar og gengið eftir þeim. Börnin hafa fagnað snjónum og má víða sjá lag-
leg snjóhús og snjókarla. Mynd: á.þ.
T mt -JL— ] 'T' 'e ® r’ ll DÍ1
ílll /Ul ia S LJu.
# Bílastæðivið
samkomu-
húsið
Á dögunum áttí einn af starfs-
mönnum Dags leið fram hjá
Samkomuhúsinu. Leiksýning
var rétt umþað bil að hefjast
og mikill fjöldi bíla og fólks 1
næsta nágrenni og því tók
það nokkuð langað tíma að
komast fram hjá Samkomu-
húsinu. Starfsmaðurinn vildi
koma því á framfæri við rétta
aðila hvort ekki væri athug-
andi að útbúa bílastæði á
sléttunni austan Samkomu-
hússins, nánar tiltekið þar
sem áður var ekið. Til að auð-
velda fólki að komast í Sam-
komuhúsið yrði að smíða
veglegan stiga upp brekkuna,
beint austur af aðaldyrum
hússins.
# Húsnæðið
hefur áhrif á
aðsóknina
Fyrirsögnin á þessari klausu
er fullyrðing, en hún er af-
skaplega Ifkleg til að standa
óhögguð hvað svo sem hver
segir. í blaðinu fyrir skömmu
var haft eftir Oddi Thoraren-
sen, einum af eigendum Nýja
bíós, að aðsóknin að bíóinu
hefði dalað og kenndi eigand-
inn myndsegulböndum um,
hvernig farið hefði. Eflaust er
þetta rétt, en til að auka að-
sóknina, verða kvikmynda-
húsin að taka til sinna ráða.
M.a. væri ekki út í hött að
endurnýja innréttingar Nýja
bíós, en þær eru svo sannar-
lega hrörlegar svo ekki sé
fastar að orði kveðið. Fólk
kemur ekki eingöngu í bíó til
að horfga á hvita tjaldið, þó
svo það sé að sjálfsögðu
aðalástæðan, það kemur til
að láta sér líða vel i þægileg-
um sætum og vill geta notið
myndarinnar. Hátalarakerfi
hússins verður því Ifka að
vera í góðu lagi. Forráða-
menn umrædds kvikmynda-
húss verða að huga að endur-
bótum ef þeir vilja í raun og
veru rétta hlut sinn gagnvart
sjónvarpinu.
# Lesendurláti
í sér heyra
Á blaðsíöu tvö í Helgar-Degi
er gert ráð fyrir að blrtist þau
bréf sem lesendur senda
blaðinu. S&S vill hvetja les-
endur blaðsins til að senda
því línu um þau mál sem þeím
eru hugleikin. Því er ekki að
leyna að helst vilja starfs-
menn Dags frá vélrituð bréf,
því merking getur skolast til
ef illa gengur að ráða í skrift
bréfritara. Til að flýta fyrir birt-
ingu, er best að bréfin séu
stutt og gagnorð. Vinsamleg-
ast merkið umslagið: Dagur,
lesendasíða, pólsthólf 58-
602, Akureyri.