Dagur - 02.03.1982, Síða 9
Allt unnið í
sjálfboða-
vinnu í Bögg-
visstaðafjalli
Þegar komið er að kveldi til
Dalvíkur blasa við upplýstar
skíðabrekkur í Böggvisstaða-
fjalli rétt ofan við bæinn. Því
þótti ástæða til að forvitnast
nánar um aðstöðu til skíða-
iðkana á staðnum. Haft var í
því sambandi tai af Hilmari
Daníelssyni, sem sýnt hefur
þessum málum mikinn áhuga.
Um uppbyggingu á skíðaað-
stöðu á Dalvík sagði Hilmar að
fyrir allnokkru hefðu nokkrir
áhugasamir menn tekið sig til og
stofnað skíðafélag. Fyrsta verk-
efni félagsins var kaup og upp-
setning á togbraut. Greiðslu á
kaupverði sá skíðafélagið að
mestu leyti um sjálft og sama er
að segja um alla aðra aðstöðu er
síðar hefur komið í fjallið. Að-
staðan er fyrst og fremst miðuð
við þarfir almennings og eru nú í
fjallinu 2 togbrautir, upplýstar
brekkur, snjótroðari og hús fyrir
skíðageymslur. Varðandi að-
stöðu til keppnishalds sagði
Hilmar að til væri sjálfvirk tíma-
tökutæki svo að sú aðstaða væri
góð enda hafi verið haldin mót í
fjallinu þ.á.m. punktamót ung-
linga.
Til reksturs og uppbyggingar
mannvirkja hefur félagið frá
upphafi fengið árlegan styrk frá
sveitarfélaginu, og framlag úr
íþróttasjóði en þau framlög
koma seint og illa og ekki í neinu
samræmi við það sem gert er ráð
fyrir í lögum um íþróttasjóð.
„Aðal fjármagnið liggur þó í
sjálfboðavinnu félaga sjálfra.
Oll vinna við uppbyggingu
mannvirkja hefur verið unnin af
félögum Skíðafélags Dalvíkur
endurgjaldslaust.“
- En hver er svo áhugi al-
mennings á að nota þessa að-
stöðu og hefur jafnframt verið
hugsað fyrir þörfum skíða-
göngufólks?
„Fullyrða má að þetta er lang-
vinsælasta íþróttagreinin sem
stunduð er hér á Dalvík. Á
kvöldin og um helgar eru margir
tugir fólks í fjallinu. Alltaf er
einnig þó nokkur fjöldi fólks
sem stundar skíðagöngu og er
þess jafnan gætt að þarna séu
troðnar göngubrautir," sagði
Hilmar að lokum.
Aðalfundur
Aðalfundur KA verður haldinn
í Félagsmiðstöðinni Lundar-
skóla n.k. mánudag, 8. mars kl.
20,30. Fundarefni verða venju-
leg aðalfundarstörf. Þá verður
sýning úr myndbandasafni KA
úr leikjum í fyrstu deild í knatt-
spymu og handknattleik. Félag-
ar eru hvattir til að fjölmenna.
Tap gegn Val:
KA neðst f
deildinni
Þrátt fyrir tap gegn Val á
sunnudaginn, sagði Þorleifur
Ananíasson eftir leikinn að
þetta væri ekki búið ennþá,
því þrír leikir væru ennþá eftir
í deildinni. Staða KA er nú
mjög slæm en þeir eru neðstir,
einu stigi á eftir HK og Fram.
KA á eftir að leika við Víking
og KR í Reykjavík og FH hér
á Akureyri, þannig að greini-
legt er að róðurinn verður
erfiður.
KA náði óskabyrjun í leikn-
um á móti Val er þeir komust í
fjögur gegn einu. Þá náðu Vals-
menn að jafna, og skömmu sðar
var aftur jafnt á markatöflunni
sjö gegn sjö. Pá gerðu Valsmenn
þrjú næstu mörk og í hálfleik var
staðan tíu gegn sjö.
í byrjun síðari hálfleiks náði
KA aðeins að minnka muninn,
en eftir það fór að síga á ógæfu-
hliðina fyrir þá og smám saman
náði Valur yfirburðastöðu.
ÞÓR OG DALVÍK:
ÞÓR SIGRAÐI
ÖRUGGLEGA
Þór og Dalvík léku í þriðju
deild karla í handbolta á laug-
ardaginn. Fyrri Ieik þessara
aðila lauk með öruggum sigri
Þórs, og svo fór einnig í þess-
um leik að Þór sigraði örugg-
Iega með 26 mörkum gegn 23,
eftir að staðan í hálffleik hafði
verið 17 mörk gegn 11 Þór í
vil. Þórsarar eru í toppbaráttu
deildarinnar ásamt Armanni
og Gróttu.
Þórsarar gerðu fyrsta markið
en Dalvíkingar jöfnuðu og
þannig fór með fjögur fyrstu
mörkin hjá báðum liðum,
þ.e.a.s. Þór varð á undan að
skora en Dalvík jafnaði.
f>á gerðu þeir Siggi og Sig-
tryggur tvö mörk hver fyrir Þór,
og breyttu stöðunni á örfáum
mínutum í 8 gegn 4. Sá marka-
munur varð Dalvíkingum um
megn og smám saman sigu Þórs-
arar lengra framúr, og komust
mest í sjö markamun. Þrátt fyrir
sigur Þórsara unnu Dalvíkingar
síðari hálfleikinn markalega
séð, en í þeim hálfleik fengu allir
leikmenn Þórs að reyna sig. Sig-
urður Pálsson var í miklum ham
í þessum leik, og var bestur
Þórsara.
Hann var mjög frískur
og gafst aldrei upp. Marka-
maður Dalvíkinga Björn Ingi
Hilmarsson var þeirra bestur, en
annars hressir afturkoma Al-
berts Ágústssonar mikið upp á
markaskorun þeirra. Hann lék
áður fyrr með KA og fleiri liðum
og er geysilega skotfastur og
hann er örfhentur.
Flest mörk Þórs gerði Sigurð-
ur 10 (1 úr víti) Sigtryggur 9 (8 úr
víti) Árni Gunnars.3, Gunnar 2
og Einar og Árni St. 1 .hver.
Albert var markahæstur
Dalvíkinga með 12 mörk,
Magnús, Einar og Björn gerðu 3
hvor og Júlíus og Tómas 1 hvor
Dómarar voru Aðalsteinn Sig-
urgeirsson og Benedikt Guð-
mundsson og dæmdu þeir ágæt-
lega.
Þór og 3ja deildin:
Nú er spennandi staða komin
upp í þriðju deildinni í Hand-
knattlcik. Þrjú lið eru efst og
jöfn að stigatölu en þau eru
Þór, Grótta og Ármann. Sá
hængur er hins vegar á að að-
eins tvö þeirra fara upp í aðra
deild.
Innbyrðis markahlutfall í leik-
um þeirra ræður því hvaða lið
verða tvö efst í deildinni. Af
þessum þremur liðum stendur
Þór verst að vígi með eitt mark í
mínus bæði á Gróttu og
Ármann.
Eftir stórsigur Ármanns á Ak-
urnesingum á laugardaginn eru
miklar líkur á því að öll þessi lið
vinni þá leiki sem þau eiga eftir í
deildinni, en þau eiga eftir að
leika við neðstu lið deildarinnar.
Allir „innbyrðisleikir“ þeirra
eru búnir, og ekkert annað lið í
deildinni getur náð þeim að
stigatölu. Eina von Þórs í stöð-
unni er að eitthvert liðið í neðri
hluta deildarinnar steli einu stigi
af Gróttu eða Ármanni.
Sigurður Pálsson átti stórleik með Þór á laugardaginn, en hér sést hann stöðva einn rússneskan landsliðs-
mann, þegar Þór keppti við rússneskt félagslið í haust.
Erlingur Kristjánsson var mark-
hæstur KA-manna í leiknum.
Þegar flautað var til loka
leiksins var staðan 23 gegn 17 og
stórsigur Vals í höfn.
Þorleifur sagði að sér virtist
Valsliðið mun betra nú en fyrr í
vetur þegar KA lék við þá hér á
Akureyri. Þeir séu nú mikið
fljótari, og sérstaklega séu
hraðupphlaup þeirra vel útfærð.
Erlingur var markhæstur KA
manna með 5 mörk 2 úr víti,
Þorleifur og Friðjón gerðu 4
mörk hvor og Sigurður 2. Aðal-
steinn stóð í marki KA mest all-
an tímann og varði vel eða alls
20 skot sem þykir mjög gott. Að
lokum skal þess getið að KA
tókst ekki að skora nema úr
þeim fimm vítaskotum af þeim
sjö sem þeir fengu.
2, mars 1982-DAGUR-9
11 'i, ' • ') '■ l'lí .