Dagur - 06.04.1982, Page 15
Páska-jass
á Hótel KEA
Undirbúningshópur um stofn- beðnir að mæta meo mjoouci...
un Jass-klúbbs á Akureyri sín og að sjálfsögðu eru allir
ætlar að efna til jass-kvölds velkomnir.
laugardaginn 10. aprfl næst- Húsið verður opnað klukkan
komandi að Hótel KEA og í 19 fyrir matargestí og mun þá
samvinnu við hótelið. Ingimar Eydal leika létta tónlist,
Hér verður um að ræða svo- en um klukkan 21 hefst sveiflan
kallaða „jamsession“ og dagskrá og verður henni haldið gangandi
er ekki fastákveðin. Eru menn til miðnættis.
Jass í Smiðjunni
um páskana
Jasstríó Guðmundar Ingólfs- Reyndar koma þeir félagar
sonar sem skipað er honum fyrst fram þar á skírdagskvöld,
sjálfum, Pálma Gunnarssyni og og síðan verða þeir þar við leik í
Sigurði Karlssyni mun leika fyrir hádeginu og á kvöldin fram á
matargesti í Smiðjunni á Akur- annan dag páska.
eyri um páskana.
Guðmundur
Oddur
í Rauða
húsínu
Laugardaginn 10 þ.m. opnar
Guðmundur Oddur Magnús-
son sýningu í Rauða húsinu.
Á sýningunni verða seldar
milli tuttugu og þrjátíu teikn-
ingar teiknaðar á liðnum
vetri.
Þetta er fyrsta einkasýning
Guðmundar. Hann var í Mynd-
og handíðaskóla íslands árin
1976 til 1989 og lagði hann sig
einkum eftir grafik og nýlist
undir handarjaðri margra nafn-
frægra listamanna. Síðast liðin
tvö ár hefur Guðmundur lagt
gjörva hönd á margt en einkum
látið sig listir varða og stuðlað að
framgangi þeirra hér í bæ.
Sýning Guðmundar stendur
til sunnudagsins 18. april og er
opin daglega milli kl. 16 og 20.
Hlíðarfjall um páskana
MikiII og góður snjór er nú í
Hlíðarfjalli og horfur á að
páskahelgin verði skíða-
iðkendum og öðrum sem vilja
stunda útivist í fjallaloftinu
hagstæð.
Lyfturnar í Hlíðarfjalli verða
opnar alla dagana frá klukkan 9
að morgni til 17.45. Áætlunar-
ferðir eru úr bænum frá klukkan
9, 10, 11, 13, 14, 15, 16 og 17.
Frá Skíðastöðum eru áætlunar-
ferðir klukkan 9.30, 10.30,
11.30, 13.30, 14.30, 15.30,
16.30, 17.30 og 18.
Skíðamót: Á fimmtudag kl.
11 er Flugleiðamót í svigi fyrir 12
ára og yngri, föstudag kl. 13
para-
keppni 12 ára og yngri, laugar-
dag kl. 11 Flugleiðamót í svigi
fyrir 13-16 ára, sunnudag kl.
13.30 Flugleiðatrimm 4ra eða 8
km ganga, mánudag kl. 12 brun
12 ára og yngri. Öllum er heimil
þátttaka í skíðamótum um pásk-
ana.
Flugleiðatrimmið á sunnudag
er göngumót. Menn geta valið
um hvort þeir vilj a ganga 4ra eða
8 km hring. Veitt verða þrenn
verðlaun á hvorri vegalengd.
Auk þess verða dregin út úr
nöfnum þátttakenda tvær helg-
arferðir til Reykjavíkur og ein
ferð til útlanda. Skráning fer
fram á skrifstofu Skíðastaða.
Þátttakendur þurfa að láta skrá
sig fyrir kl. 12 á föstudag. í hinar
keppnirnar fer skráning fram
samdægurs á mótsstað.
í vetur hafa lyfturnar verið
opnar til klukkan 21.45 á þriðju-
dögum og fimmtudögum, en því
hefur nú verið hætt. Vakin er at-
hygli á því að vélsleðar eru
bannaðir á skíðasvæðunum,
einnig á göngusvæðum. For-
ráðamenn Skíðastaða óska eftir
að fólk komi ekki með hunda í
Hlíðarfjall.
Akureyrarprestakall: Skírdagur:
Messað verður í Akureyrarkirkju
kl. 10.30 f.h. (Ferming). Sálmar:
504 - 256 - 258 - Leið oss 1 j úfi fað-
ir-Blessun yfir. B.S.
Messað verður í Akureyrarkirkju
kl. 1.30 e.h. (Ferming) Sálmar:
504 - 256 - 258 - Leið oss Ij úfi fað-
ir-Blessunyfirbarnahjörð. B.S.
Föstudagurinn langi: Messa í
Akureyrarkirkju kl. 2e.h. Altar-
isganga. Sálmar: 143, 145, 139,
241,532. Þ.H.
Messað verður á Dvalarheimilinu
Hlíð kl. 4. B.S.
Páskadagur: Hátíðaguðsþjón-
usta kl. 8 árdegis. Athugið messu-
tímann. Sálmar: 148, 156, 155,
147. Þ.H.
Hátíðaguðsþjónusta á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu kl. 10 árdegis.
Þ.H. Hátíðarguðsþjónusta í Ak-
ureyrarkirkju kl. 2 e.h. Sálmar:
147-155-154-252-156. B.S.
Annar páskadagur: Guðsþjón-
usta í Akureyrarkirkju kl. 10.40.
(Ferming) Sálmar: 504,256,258-
Leið oss ljúfi faðir - Blessun yfir
barnahjörð. Messað verður í Ak-
ureyrarkirkju kl. 1.30 (Ferming)
Sálmar: 504 - 256 - 258 - Leið oss
ljúfi faðir - Blessun yfir
barnahjörð. B.S.
Skrifaði ekki greinina. Vegna
ítrekaðra fyrirspurna vil ég taka
það skýrt fram að það var ekki ég
sem skrifaði grein í Dag þann 26.
mars sl. undir nafninu „Rósa“.
Rósa V. Guðmundsdóttir.
AKUREYRARBÆR
Byggingalánasjóður Akureyrar
Lánaumsóknir
Auglýst er eftir umsóknum um lán úr Bygginga-
lánasjóöi Akureyrar.
Samkvæmt reglugerö sjóösins er megintilgangur
hans að veita lán til kaups, viöhalds og endurbóta
á gömlum húsum á Akureyri. Að jafnaði skal ekki
lána til yngri húsa en 35 ára.
Skilyrði fyrir lánveitingu eru:
a) Að lánbeiðandi hafi verið búsettur í bænum
síðastliðin þrjú ár.
b) Að uppdráttur að íbúð eða húsi hans hafi
verið samþykktur af bygginganefnd.
c) Að lánbeiðandi geti veðsett viðkomandi
eign fyrir láninu.
d) Að fyrir liggi umsögn byggingafulltrúa um
ástand hússins.
Sé um aö ræöa umsókn til viðhalds eða endurbóta
á gömlu húsi, skal umsækjandi gera grein fyrir 1)
aö hvaða endurbótum skal vinna, 2) hver áætlaður
kostnaöur viö endurbæturnar er og 3) hve langan
tíma áætlaö er að endurbæturnar taki. Þegar
endurbótum á fasteigninni er lokið, skal lántaki til-
kynna um þaö til byggingafulltrúa.
Lán úr sjóönum eru verðtryggð en bæjarráö
ákveöur lánsupphæð og lánskjör að öðru leyti.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni og
skal skila umsóknum þangað fyrir 25. apríl.
Akureyri, 2. apríl 1982.
Bæjarstjóri.
Ingvar Þorvaldsson.
Ingvar sýnlr
í Mynd-
listarskólanum
Ingvar Þorvaldsson listmálari
frá Húsavík mun sýna í list-
sýningarsal Myndlistaskólans
á Akureyri um páskana. Sýn-
ing hans hefst á skírdag, og
lýkur á 2. dag páska.
Á sýningu Ingvars eru 40
vatnslitamyndir og eru þær allar
til sölu. Þetta er 12. einkasýning
Ingvars, hann hefur haldið sýn-
ingar á Akureyri, Húsavík og í
Reykjavík auk þess sem hann
hefur tekið þátt í samsýningum
víða um land. Sýningin í Mynd-
listarskólanum verður opin frá
15-22 daglega.
Ingvar Þorvaldsson hefur
skipað sér í hóp bestu vatnslita-
málara íslenskra, og er full
ástæða til að hvetja Akureyringa
til þess að láta ekki þessa sýn-
ingu hans fram hjá sér fara.
Páskasýning 1982
Myndhópurinn efnir til páska- myndlistarmenn, búsettir á Ak-
samsýningar í Iðnskólanum. ureyri eða nágrenni. Nokkrir
Sýningin verður opnuð kl. 14 á höfundanna hafa myndsköpun
skírdag og lýkur henni kl. 22 á af starfi, en flestir stunda list
annan á páskum. Sýningin verð- sína með öðrum störfum. Sýn-
ur opin daglega milli kl. 14 og ingin verður mjög fjölbreytt.
22. Áðgangseyrir er kr. 10.00. Þar verða myndir unnar í olíu,
pastel og vatnslitum og einnig
Þetta er þriðja samsýningin, þrívíð myndverk. Ætti sýningin
sem myndhópurinn efnir til. að gefa nokkurt innsæi í þá
Sýna nú bæði félagar Mynd- myndlist, sem nú þróast í hérað-
hópsins og aðrir eða samtals 20 inu.
BORGARBÍÓ
Páskamyndin í Borgarbíó er bræðurna Jón Odd og Jón
enska myndin „Spegilbrot“ sem Bjarna, en hún verður sýnd kl. 3
er hyggð á sögu eftir Agöthu og 5 og síðan áfram í næstu viku
Christie. í aðalhlutverkum eru kl. 18.
Angela Landsbury, Geraldine í kvöld og fram að páskum
Chaplin og Tony Curtis. Þessi sýnir Borgarbíó bandarísku
myndverðursýndá2. ípáskum. myndina um þau skötuhjú
Bonnie og Clyde, en hún verður
Önnur mynd sem Borgarbíó sýnd kl. 23.
sýnir um páskana er myndin um
NÝJA BÍÓ
Nýja bíó á Akureyri sýnir um
páskana bandarísku kvik-
myndina „Stjörnustríð 2.
Myndin verður sýnd kl. 5 og 9
á skírdag og á sama tíma á 2.
dag páska.
Allir vita að Stjörnustríð var
og er mest sótta kvikmynd sög-
unnar, en nú segja gagnrýnend-
ur að Stjörnustríð 2 sé bæði betri
og skemmtilegri mynd.
Eitt af furðuverkunum sem
koma fram í myndinni er hinn
alvitri Yoda, en maðurinn að
baki honum er enginn annar en
Frank Oz, einn af höfundum
Prúðuleikaránna.
Aðalhlutverk leika Mark
Hammel, Carrie Fisher og
Harrison Ford.