Dagur - 20.04.1982, Side 10
Samþykkt
friðar-
fundarins
Á friðarfundinum á sunnudag-
inn var borin upp eftirfarandi
ályktun og hún samþykkt ein-
róma:
Stofnfundur Friðarsamtaka á
Akureyri samþykkir að skora á ís-
lensk stjórnvöld að taka skýra af-
stöðu til kjarnorku og vígbúnaðar
í heiminum og þá einkum á ís-
landi og í hafinu umhverfis
ísland. Fundurinn skorar á Al-
þingi að taka þingsályktunartil-
lögu Guðmundar G. Þórarins-
sonar og fleiri alþingismanna til
afgreiðslu og bendir á að alþjóð-
Ieg ráðstefna um afvopnun á N.-
Atlantshafi geti verið spor í þá átt
að vekja til umhugsunar um hvert
stefnir í vígbúnaðarmálum heims-
ins.
Hin nýstofnuðu Friðarsamtök á
Akureyri hvetja íslendinga til að
rísa upp og mótmæla því að réttur
fólks til að lifa er fótum troðinn af
herveldum.
Friðarsamtökin á Akureyri lýsa
yfir fullum stuðningi við friðar-
hreyfingar hvar sem er og van-
þóknun sinni á þeim einstakling-
um og stjórnvöldum sem með víg-
búnaði stuðla að tortímingu lífs á
jörðinni. Jafnframt lýsa þau yfir
samúð sinni með öllum sem þjást
vegna ófriðar og annars ranglætis
í heiminum.
Friðarsamtökin á Akureyri
heita á íslendinga að skotast ekki
undan þeirri ábyrgð sem á hverj-
um einstaklingi hvílir að stuðla að
friði og réttlæti.
Úrslit í vél-
sleðakeppni
í Mývatns-
sveit
Laugardaginn 3. apríl varhaldin
vélsleðakeppni í Mývatnssveit,
skammt frá Kröfluvirkjun.
Agætis veður var, stillt en sólar-
laust. 22 keppendur mættu til
leiks, frá Akureyri, Húsavík og
Fnjóskadal, auk heimamanna.
Keppt var í 3,2 km. langri
þrautabraut með 50 hliðum,
einni stökkþraut, einni blöðru-
þraut og einni hemlunarþraut.
Refsitími var gefinn fyrir að fella
stiku og svo í þrautunum. Að-
umferðir og gilti samanlagður
tími.
Verðlaun voru veitt fyrir sex
bestu tímana í þrautabrautinni
auk þess fékk sigurvegarinn
nafn sitt áletrað á bikar, sem
varðveittur er í sveitinni.
Auk keppni í þrautabrautinni
var keppt í spyrnu (’/4 míla) í
þremur stærðarflokkum: Fl. A
66 hö. og stærri, fl. B 50-65 hö.
og fl. C 49 hö. og minni.
eins var keppt í einum flokki í hér segir:
þrautabrautinni og farnar tvær
í þrautabraut: hö. tími:
1. JónlngiSveinsson PolarisCenturion 82 7.56.5
2. IngvarGrétarsson PolarisTXL-Indy 56 7.56.7
3. KarlGrant ArticCat ElTiger 85 8.15.0
4. IngvarJónsson ArticCat ElTiger 85 8.15.6
5. HörðurSigurbjörnsson YamahaSR-V 55 8.22.1
6. Björgvin Þórðarson PolarisCenturion 82 8.24.2
I spyrnubraut
A-flokkur:
1. Jón Ingi Sveinsson Polaris Centurion 82 14,6 sek.
2. Ingvar Grétarsson Polaris Centurion 82 14,7 sek.
3. KarlGrant Arti Cat El Tiger 85 15,1 sek.
B-flokkur:
1. ÁrniGrant PolarisTX-440 54 16,4sek.
2. Viðar Eyþórsson PolarisTXL-340 56 16,6 sek.
3. Marinó Steinarsson PolarisTXL-340 56 17,0
C-flokkur:
I. Stefán Jóhannesson PolarisCobra 45 18,5 sek.
2. KristjánSteingrímsson Kawasaki Drifter 46 18,8
3. Helga SigurbjörnsdóttirPolaris Cutlass 42 18,9 sek.
Keppnin var haldin á vegum aðilar þakka öllum sem aðstoð-
Iþróttafélagsins Eilífs og Björg- uðu við undirbúning og fram-
unarsveitarinnar Stefáns. Þessir kvæmd mótsins.
Mikið úrval fylgihluta fyrir
hjólreiðamenn
Barnastólar, verð aðeins kr. 215 • Rafhlöðuluktir * Hanskar
4. teg, ■ Hjálmar ■ Húfur ■ Bætur ■ Hjólreiðabækur (á ensku) ■
Buxur • Bolir • Skór • Bjöllur • Standarar • Pumpur • Útvörp •
Stýrisvafningar • 5 teg. • Kílómetrateljarar • Luktir og ljós • Gíra-
og bremsubarkar • Lásar
Nýkomið
Reiðtygi Leðurstallmúlar Skeifur
3 sendingar væntanlegar nú í vikunni.
KAUÐ\NGI
Kveðjum vetur á KEA
BINGÓ
Ferðakynning - Dansleikur - Tískusýning
á Hótel KEA, miðvikudaginn 21. apríl.
Frábært Bingó: Spilaðar verða 8 umferðir
og meðal vinninga er mokkajakki og ferð til
Mallorka með ferðaskrifstofunni Atlantik
Ferðakynning: Kynntar verða hinar óviðjafnanlegu
Mallorkaferðir ferðaskrifstofunnar Atlantik.
Tískusýning: Vortískan frá Vöruhúsi KEA
#
Dansleikur: Dansað til kl. 02.00,
Astró Tríó og Inga Eydal leika fyrir dansi.
Matar- og borðapantanir í síma 22200.
Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.00.
Bingó hefst kl. 21.00.
Framsóknarfélag Akureyrar.
FIMM NATTA VORFERÐ TIL
Beint þotuflug frá Akureyri (með viðkomu í frihöfninni)
Brottför: 27. april kl. 09.00 - Heimkoma: 2. maí kl. 24.00
Gisting: Clifton Ford Hotel, afbragðsstaðsetning, öll herbergi með
baði og litasjónvarpi - Fararstjóri: Pétur Jósefsson. Verð kr. 4.950.
Moguleikar a skoðunarferðum, knattspyrnuleikjum, söngleikjum. leikhusmiðum o.s.frv.
FA-Sími 25000
liB
FA-kjör: Utborgun kr. 1.650- Eftirstöðvar á 3 mánuðum i'.i lDAíjí\íÍlFS I OFA Al/'Ui -t?: Yi
í b-DAÚt/R-20/ &pÍrYtÍ982