Dagur - 20.04.1982, Qupperneq 16
I
VIFTUREIMAR
I FLESTA BÍLA
Um síðustu helgi \oru „ Vaugham Williams tónlcikar“ í íþróttaskemmunni, en eins og nafnið ber með sér voru ein-
göngu leikin tónverk eftir fyrrnefnt tónskáld. Það var 63 manna hljómsveit úr Tónlistarskólanum á Akureyri og í
Reykjavík sem lék, en stjórnandi varMark Reedman. Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, lék einleik. Tónleikarnir
heppnuðust prýðilega og áheyrendur nutu þess sem listafólkið hafði fram að færa. Mynd.: áþ.
Verður ráðist í byggingu
heimavista fyrir 120 nem.?
— gæti þjónað sem hótel á sumrin
Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að reistar skuli heimavistir
fyrir nemendur framhaldsskólanna á Akureyri. Menntaskólinn er
eini framhaldsskóli bæjarins, sem hefur getað boðið nemendum
sínum upp á heimavist, en hún hefur verið fullnýtt undanfarinn ár
og fólki vísað frá. Bæjarstjórn fól framhaldsskólanefnd að taka
upp viðræður við menntamála- og fjármálaráðherra um fyrir-
komulag nýrra heimavista, rekstur og kostnaðarskiptingu.
Tryggvi Gíslason, formaður
framhaldsskólanefndar, sagði að
hann hefði nú þegar rætt við
starfsmenn umræddra ráðuneyta,
en næsta skref koma á fundi
menntamálaráðherra, fjármála-
ráðherra og framhaldsskóla-
nefndar. „Nú eru nær 1200 nem-
endur á framhaldsskólastigi á Ak-
ureyri - þar af er einn þriðji að-
komumenn. Á Akureyri eru
heimavistarrými fyrir 150 nem-
endur - hinir verða að búa víðs-
vegar um bæinn. Með stofnun
verkmenntaskóla og auknum
nemendafjölda, verður þörfin
fyrir heimavistarrými enn brýnni.
En mikilsverðara er þó að koma á
fót öflugum verkmenntaskóla á
Akureyri og það er að sjálfsögðu
fyrsta skrefið.“
Tryggvi sagði að heimavistirnar
þyrftu að geta hýst um 120 nem-
endur. „Það verður að teljast
mjög gott ef hægt er að hýsa um
helming þeirra nemenda sem hér
eru. Hinn helmingurinn vill og
getur búið á annan hátt.“
Bæjarstjórn hefur óskað eftir
því og lagt á það áherslu að þessar
heimavistir og hótel ættu vel
saman, enda hefur það sýnt sig
t.d. í sambandi við Eddu hótelið í
heimavist M.A.
HUNAVAKA:
Fjölbreytt
dagskrá
alla daga
fram að helgi
Nýjung hjá
hrossabændum
Hagsmunasamtök hrossa-
bænda í Skagafiröi stóðu í dög-
un fyrir sölusýningu á hrossum.
Að sögn Einars Gíslasonar,
Skörðugili, mun þetta vera í
fyrsta sinn sem haldinn er
markaður af þessu tagi. „Þetta
var ekki uppboð, heldur var
varan sýnd og kynnt. Þeir sem
höfðu áhuga á hrossum urðu
síðan að hafa samband við eig-
endur þeirra.“ sagði Einar.
„Mér fannst þetta takast vel.
Við vorum með þetta við Grófa-
gilsrétt og ég held að um 2-300
manns hafi komið. Þarna er gam-
all vegur sem við sýndum hrossin
á, en alls voru sýnd 23 hross.
Skagfirðingar komu þarna ríð-
andi í flokkum og ég geri fastlega
ráð fyrir að eitthvað af þeim
hrossum hafi verið seld.“
Einar sagðist ekki vita hvort
hross hafi farið á háu verði, en
menn höfðu einkum áhuga fyrir
rauðstjörnóttum fola frá Melstað.
Gunnar Dungal, eigandi Pennans
í Reykjavík, tók alla sýninguna
upp á videó og sagði Einar að
myndin yrði sýnd í versluninni
Ástund í Reykjavík.
Húnavaka, hin árlega
skemmti- og fræðsluvika Ung-
mennasambands A-Húnvetn-
inga hófst s.l. sunnudag, og
stendur yfir til laugardags-
kvölds. Mjög fjölbreytt
skemmti- og fróðleiksdagskrá
verður á boðstólum alla dag-
ana.
Af atriðum má nefna mál-
verkasýningu Péturs Behrends
sem sýnir í Hótel Blönduósi 35
teikningar, olíumálverk og vatns-
litamyndir. Pá er Textilfélagið í
Reykjavík með sýningu.
Leikfélag Blönduóss sýnir
Kristnihald undir Jökli fimmtu-
dagskvöld og á laugardagskvöld,
og Leikfélag Skagastandar sýnir
Olympiuhlauparann annað
kvöld. Fjölmargar kvikmynda-
sýningar verða, og m.a. frumsýn-
ing á Norðurlandi á kvikmyndinni
Rokk í Reykjavík.
Húsbændavika verður á föstu-
dagskvöldið og þar flutt blönduð
dagskrá. Páll S. Pálsson hæstar-
réttarlögmaður rabbar við sam-
komugesti og Ómar Ragnarsson
sem uppalinn er í Langadal flytur
skemmtiefni af sinni alkunnu
snilld. Margt fleira fróðlegt er á
dagskrá Húsbændavökunnar.
Á sumardaginn fyrsta verður
fjölbreytt dagskrá fyrir börn og
unglinga og einnig dansleikur.
Önnur barnaskemmtun verður á
föstudag, Ómar Ragnarsson
skemmtir og verðlaun verða af-
hent í skólamóti USAH svo eitt-
hvað sé nefnt.
Á laugardag kemur Söngfélag
Skaftfellinga í heimsókn og einnig
kór Rangæinga í Reykjavík.
Dansleikir verða öll kvöldin og
Húnavöku lýkur með dansleik að-
fararnótt sunnudags. Það verður
hljómsveitin Upplyfting sem sér
um fjörið.
Samræmdu prófin á Akureyri:
Nemendur grunn-
skólanna voru
vel yfir lands-
meðaltali
Akureyringar mega vera
hreyknir af nemendum og
kennurum 9. bekkjar grunn-
skólanna á Akureyri, en nú
liggja fyrir tölur um árangur
nemenda í samræmdu prófun-
um, sem voru þreytt fyrr í
vetur. Ljóst er að nemendurnir
voru vel yfír landsmeðaltali.
Níundi bekkur er í þremur
skólum á Akureyri, þ.e. í
Gagnfræðaskólanum, í Odd-
eyrarskólanum og í Glerár-
skóla.
Sverrir Pálsson, skólastjóri
Gagnfræðaskólans sagði að alls
hefðu 157 nemendur í Gagn-
fræðaskólanum þreytt samræmdu
prófin. Nemendur skólans eru
langt yfir landsmeðaltali í öllum
greinum. Efmiðið ervið einkunn-
irnar A, B, C kemur í Ijós að í ís-
lensku höfðu 80.25% nemendur
þær einkunnir, en landsmeðaltal
var 70.98%, í dönsku og sænsku
82.80%, landsmeðaltal 71.39%, í
ensku 75.16%, landsmeðaltal
70.07% og í stærðfræði 80.25%,
landsmeðaltal 70.74%. Að með-
altali er munurinn 8.9% Gagn-
fræðaskólanum í hag. „Alls hafa
84.08% ótvíræðan rétt til fram
haldsnáms, en 157 þreyttu sam-
ræmdu prófin í Gagnfræðaskól-
anum og 132 náðu umræddum ár-
angri. Hér var enginn með fjögur
A, en hins vegar fimm með þrjú A
og eitt B. Hópurinn virðist því
vera nokkuð jafn. Ég er að sjálf-
sögðu mjög þakklátur - bæði
nemendum og kennurum, því
svona árangur næst ekki nema
með góðum vinnubrögðum nem-
enda og kennara," sagði Sverrir.
Það kom fram í viðtölum við þá
Vilberg Alexandersson, skóla-
stjóra í Glerárskóla og Indriða
Úlfsson, skólastjóra í Oddeyrar-
skóla, að þeir voru mjög ánægðir
með árangur sinna nemenda.
Eins og fram kemur í upphafi
voru nemendur beggja skólanna
vel yfir landsmeðaltali í sam-
ræmdu prófunum.
# Gustur
Vestur í henni Ameríku ergef-
ið út blað sem ber nafnið
Gustur, rltstjóri er tónlistar-
maðurinn góðkunni Jakob
Magnússon. Blaðið er að
mestu leyti ritað á ensku og
um margt skemmtilegt. í síð-
asta tölublaði er m.a. bréf frá
Þóri S. Gröndal, ræðismanni í
Suður-Flórída. Þórir segir
m.a. í bréfinu: „Blaðið sjálft
finnst mér hressilegt og fróð-
legt og eiga þeir aðilar, sem
að því standa, skilið mikið lof
fyrir framtakið. Þykist ég viss
um að útgáfan muni blómgast
og dafna.“ Og vilji menn ger-
ast áskrifendur er bent á að
heimilisfang blaðsins er
Gustur, 3200 Oakshire Drive,
Los Angeles, California
90068, USA. Blaðið kemur út
ársfjórðungslega og kostar
$5 á ári.
# Skattamálin
í febrúar
„Skattamálin (febrúar" nefn-
ist Ijóð eftir Guðmund Har-
aldsson, sem birtist ( um-
ræddu tölublaði Gusts.
Guðmundur yrkir á ákaflega
sérstakan hátt eins og sjá má:
Skattalögreglan komst á legg/
að fara i hirzlur heildsalanna,/
bókhaldið mun hafa laskast
mjög,/ skipti það undir og yfir
milljónir,/ sem á vantaði til
skattstjóra.
# Góðviðbrögð
Skömmu fyrir páska hafði
starfsmaður Dvalarheimilis-
ins Hlíðar samband við eig-
endur tveggja verslana á Ak-
ureyri og bað þá um að hjálpa
sér og öðrum starfsmönnum
dvalarheimilisins við að gera
páskana ánægjulegri fyrir
(búana. Forráðamenn versl-
ananna brugðu skjótt við og
frá Akri komu páskaliljur og
páskagreinar, en frá Amaro
komu gul kerti. Páskaborðið (
Hlíð varð mun hátíðlegra en
ella. Sumir sátu lengi við
borðið - sögðu að það væri
svo fallegt að það væri synd
og skömm að fara frá því.
# Margthægt
að gera
Starfsmaðurinn sagði í sam-
tali við S&S að hann gæti
seint fullþakkað eigendum
Amaro og Akurs fyrir þann
hlýja hug sem þær bæru til
íbúanna í Hlíð. Hann bætti við
að það þyrfti ekki alltaf ákaf-
lega dýrar gjafir eða marg-
háttaðan undirbúning til að
gleðja þá, sem búa í dvalar-
heimilinu Hlíð eða í Skjaldar-
vík. S&S er þess fullvisst að
það yrði tekið vel á móti
kórum, einleikurum og upp-
lesurum ef þeir sýndu áhuga
á að koma og stytta íbúunum
stundir. Sem dæmi má nefna
að krakkar í barnaskólanum á
Svalbarðseyri lögðu leið sína
í Hlíð fyrir skemmstu og
fengu mikið lof (búanna.