Dagur - 07.05.1982, Page 2
-
Lesendahomið
Hafnarstræti göngugata
Vegfarandi skrifar!
Nú er sumarið komið og senn
fer að léttast brúnin á mörgum,
en hún hefur víða verið þung í
vetur vegnaótíðarogsnjóa. Það
líður óðum að því að maður geti
farið að labba niður í miðbæ
Akureyrar í þeim tilgangi einum
að spóka sig þar um og skoða
fólkið.
En það gæti verið mun
skemmtilegra að spóka sig þar ef
forráðamenn bæjarins létu
verða af því að hrinda einum
ákveðnum hlut í framkvæmd.
Mín tillaga er nefnilega sú að
Hafnarstrætið verði gert að
göngugötu, og það strax. Það á
bara að loka götunni frá Lands-
bankanum og inn að Kaup-
vangsstræti fyrir bílaumferð.
Komi gott sumar, sem ég efast
ekki um, þá er tilvalið fyir kaup-
menn að flytja sýnishorn af vöru
sinni út á gangstétt og þar á að
hafa bekki fyrir fólkið að sitja á.
Þetta gæti nægt í sumar, en síðar
yrði hafist handa um enn frekari
framkvæmdir til þess að glæða
Hafnarstrætið og miðbæinn
meira lífi.
ad kaupa nyjan Skoda
Nonni litli þarf ekki einu sinni að bijóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins
frá 62358 kr.
og greiðsluskilmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa
dagana nýi Skódinn og því betra að tryggja sér bíl strax.
Skúlaffell sf.
Draupnisgata 4F Akureyri Sími 22255
Eigendur húsa
í miðbænum
hvattir til að mála
- Bærínn breytisst til batnaðar
með nýja miðbæjarskipulaginu
Guðmundur skrífar:
Á hverjum degi á ég leið um
miðbæinn og sé því þau hús sem
mest hafa verið til umræðu á les-
endasíðu Dags. Víst eru þau ljót
sum hver og mætti vel mála þau
og laga, en ég held hins vegar, að
það megi ekki skella skuldinni
eingöngu á Akureyrarbæ því að
þessi hús eru í eigu einstaklinga.
Akureyrarbær hefur ekkert með
útlit þeirra að gera, enda er með
öllu ófært að bæjaryfirvöld séu
að kássast í öllum sköpuðum
hlutum.
Ég minnist þess að í Degi hef-
ur verið sagt frá því að miðbæ-
jarskipulagið svokallaða sé
komið í gagnið. Ef að líkum læt-
ur þá verður farið að vinna eftir
þessu skipulagi innan skamms,
og raunar er sú vinna byrjuð, því
að farið er að fylla upp í höfnina
og undirbúa nýjan veg. Ég trúi
og veit að þegar miðbæjarskip-
ulagið verður komið vel af stað
þá mun miðbærinn okkar líta
mun betur út.
Það er svo sem gott og blessað
að krefjast aðgerða af hálfu
bæjaryfirvalda, en hver bær er
ekki betri en þeir sem búa í
honum. Það skiptir mestu máli
að íbúarnir sjálfir séu þrifnir og
hirðusamir. Éf þeir mála hús sín
reglulega, bæði þau sem standa
við Hafnarstræti og annars stað-
ar í bænum, mun hann fá allt
annað yfirbragð.
Merkið hús
og dyrasíma
0713-2948 hringdi.
Mig langar að koma á fram-
færi ábendingu eða áskorun til
fólks hér á Akureyri.
Þannig er að ég starfa við að
keyra út vöru til fólks og ég rek
mig á það daglega í því starfi, að
fólk merkir ilia hús sín og dyra-
síma. Þetta veldur miklum
óþægindum því oft fer talsverð-
ur tími í það að leita uppi þá sem
sendingarnar eiga að fá.
Því vil ég koma þeirri ósk á
framfæri að fólk merki vel dyra-
síma og hús sín, það er ekki
mikill kostnaður því samfara en
kemur í veg fyrir vandræði er
leita þarf uppi hvar sá býr sem
maður á erindi við. Að sjálf-
sögðu gildir þetta sérstaklega
um fjölbýlishús og ný hús önnur.
Ekkl aWr
jafn ánægðlr
Bæjarstarfsmaður skrifar:
í síðasta tölublaði Dags birtir
Erlingur formaður STAK,
kauphækkanir úr sérkjarasamn-
ingum STAK. Hann segir að
meðaltalshækkun á laun hafi
verið 4.5%. Ekki fengu þó allir
þá hækkun og fengu t.d. fast-
ráðnir vélamenn enga hækkun.
Auðvitað voru það topparnir
sem fengu mesta hækkun, eða
þeir sem eru í hæstu launaflokk-
unum. Hefur heyrst að þeir hafi
sumir hverjir hækkað um allt að
7 launaflokkum í einu stökki.
Var þessi hækkun að sögn til
þess að samræma laun þeirra við
samninga BHM. En ekki mátti
hækka vélamenn og hina til að
halda jafnvægi við menn í hlið-
stæðum störfum hjá Einingu.
Við vitum hinsvegar að véla-
menn hjá öðrum fyrirtækjum
hafa allt að 150% hærra kaup en
samningar STAK gera ráð fyrir
og finnst sjálfsagt að vekja at-
hygli á þessu óréttlæti.
2 - DAGW - 7>'fnaM982