Dagur


Dagur - 07.05.1982, Qupperneq 6

Dagur - 07.05.1982, Qupperneq 6
„Gekk ekki saman með kjörin“ - Þú hefur semsagt veríð búinn að fást við ýmis störf áður en kom ioks að því starfi sem átti í rauninni eftir að verða þitt lífsstarf. „Já, ég var búinn að starfa bæði til sjós og lands. Árið 1930 hóf ég iðnnám á Akureyri hjá Sigfúsi Elíassyni rakarameist- ara, sem nú er látinn. Þetta var snemma árs og svo fór að það gekk ekki saman með okkur með kjörin. Hann vildi einungis greiða mér fæði og húsnæði. Það var auðvitað ekki nóg fyrir tví- tugan pilt sem var auk þess far- inn að reykja, svo ég hætti hjá honum og fór á sjóinn, var á síld- veiðum eitt sumar og hafði gagn og gaman af.“ - Þótt ekki hafi samist um kaup og kjör á milli Jóns og Sig- fúsar í upphafi, fór samt svo að lokum og næsta vor fór Jón á samning hjá honum. Var það alltaf ætlun þín að verða rakari og sóttir þú það fast að komast á samning? „Það var nú raunar tilviljun að ég fór í þessa iðn, því að fyrst þegar ég fór til Akureyrar var ætlunin að læra pípulagningar. Ég fékk hinsvegar snert af lungnabólgu og varð að hætta í pípulögnunum. Hinsvegar hafði ég kynnst Sigfúsi og farið að spjalla við hann um rakaraiðn- ina. Pá sagði hann mér að hann hygðist taka nema og því varð það úr að ég hóf nám hjá „Foreldrar mínir voru fátækir“ - Áttir þú skemmtileg bernsku- árá Húsavík? „Ætlaði að læra pípulagnir“ honum. Ég útskrifaðist frá hon- um með sveinsbréf upp á vasann þann 13. janúar 1935.“ - Eftir það fór Jón til Siglu- fjarðar, ísafjarðar, Reykjavíkur og Vestmannaeyja þarsem hann klippti menn. 1937lá leiðin hins- vegar aftur til Akureyrar. „Ég var búinn að vinna hjá ýmsum mönnum, en var nú far- inn að langa til að vinna fyrir sjálfan mig, sjálfstætt, enda var ég búinn að festa ráð mitt, þá trúlofaður Ingibjörgu Sigurðar- dóttur frá Siglufirði sem síðar varð eiginkona mín. Við giftum okkur þetta ár, 17. júní, en 2. október þetta ár opnaði ég rak- arastofu í Hafnarstræti 93, í gömlu húsi sem nú er brunnið. Þar var ég til 1945 er ég fór í Skipagötuna, en 1961 keypti ég húsnæðið að Strandgötu 6 og þar hef ég verið síðan. „Mannlífið öðruvísi“ - Það hlýtur að hafa verið frá- brugðið því sem það er í dag að vera rakari á þessum árum, hvað geturþú sagt um það? „Jú það var það nú. Reyndar var það ekki mjög frábrugðið hvað iðnina sjálfa snertir. Raf- magnsklippumar voru komnar til sögunnar. Reyndar var engin stórbreyting við tilkomu þeirra því þær vinna á sama hátt og gömlu handklippurnar. En það var klippt miklu styttra og snöggt í vöngum og hnakka. Það hafa því ekki orðið svo miklar breytingar á iðninni sjálfri, en lífið á rakarastofunni var frá- brugðið í þá daga. Mannlífið var öðruvísi. Menn þekktust miklu betur í litlum bæ og rakarastofan var oft sá staður sem menn sóttu til þess að hittast og rabba saman. Það komu ekki allir til þess að fá klippingu eða rakstur. Það var oft skemmtilegt og notalegt að hlusta á masið í körlunum á meðan þeir létu dæl- una ganga. Þá var ekki útvarp á hverjum stað, ekki umferðar- gnýrinn utan af götunni eins og nú er og menn töluðu meira saman og kynntust betur. Það var allt annar blær á mannlífinu en í dag eins og eðlilegt er. Þá var algengt að ýmsir fínir menn kæmu í rakstur á hverjum degi, | embættismenn og skrifstofu- | menn, enda kostaði raksturinn j ekki nema 40 aura. Þetta hefur breyst því í dag má segja að | raksturinn sé nær alveg úr sög- f unni, menn raka sig sjálfir nú- * orðið.“ „Það þætti ekki mikið 1 hár í dag“ - Þú sagðir áðan að iðnin sjálf hafi ekki breyst svo mikið síðan þú fórst að klippa menn. En hafa ekki tískusveiflur alltafgert vart við sig af og til? „Jú, þær hafa alltaf skotið upp kollinum, sérstaklega þegar kom fram á 6. áratuginn. En með Bítlunum upp úr 1960 kom mesta breytingin. Bítlarnir hneyksluðu allan heiminn með síða hárinu sínu, en það þætti ekki mikið hár í dag sem þeir skörtuðu. En hvað um það, síða tískan hélt innreið sína og þá var „Þau voru það að mörgu leyti. „Föðurafi minn var Baldvin Sigurðsson „hómópati" og smáskammtalæknir, en hann var þekktur víða í sýslunni og reyndar hefur mér verið tjáð að „hómópatar“ í Englandi hafi þekktafaminn. Égsáhann hins- vegar aldrei því ég var mjög ung- ur þegar hann dó, en ömmur mínar sá ég báðar og kynntist nokkuð. Móðurafi minn var hinsvegar Benedikt Jónsson á Auðnum í Laxárdal, en hann var þekktur maður á sínum tíma. Hannvareinnafstofnend- um Kaupfélags Þingeyinga, frömuður innan Samvinnu- hreyfingarinnar og bókavörður í áratugi. Hann má telja skapara Bókasafns Þingeyinga sem var lengi eitt af merkari bókasöfn- um á landinu. Það var ekki nóg með það að hann væri bóka- vörður þar í áratugi, heldur var hann bókmenntalegur ráðu- nautur sýlunga sinna, valdi þeim lesefni og sendi þeim, hverjum eftir sínum þroska. hann var merkiskarl, þótt ég segi sjálfur frá.“ „Ég v^r fimm ára þegar ég fór fyrst í sveit“ „Ég er nú búinn að standa við stólinn í 52 ár og ætli ég standi ekki bara áfram þar til ég dett dauður niður,“ sagði Jón Eð- varð Jónsson rakarameistari á Akureyri, þegar við spurðum hann hvort hann væri ekki orðinn þreyttur á því að klippa hár Akureyringa. Ak- ureyringar mega því sennilega vænta þjónustu hans lengi enn, því þótt maðurinn sé orð- inn 74 ára er hann enn hress og kátur og lætur ekki á sjá. Jón Eðvarð er greinilega maður sem nýtur lífsins, enda kom það í Ijós er við héldum áfram spjalli okkar við hann, að alltaf hefur verið nóg að starfa og áhugamálin hafa ver- ið mörg og átt hug hans allan í frístundum. / aprílmánuði leit hann fyrst dagsins Ijós á Húsavík, en Jón er sonur hjónanna Jóns Baldvins- sonar, sem var ættaður frá Garði í Aðaldal og Aðalbjargar Bene- diktsdóttur. „Það var kallað að standa á tipp“ Foreldrar mínir voru þó ekki efnað fólk og má segja að þau hafi verið fátæk. Við vorum 9 systkinin sem móðir mín ól í þennan heim, en þrátt fyrir það höfðum við í okkur og á og lið- um ekki skort. En auðvitað langaði okkur krakkana í ýmis- legt sem ekki var hægt að kaupa, peningar lágu ekki á lausu til þess. Viðskipti manna voru í reikning, bæði hjá Kaupfélaginu og Guðjónsen kaupmanni og ef einn maður þurfti að greiða öðr- um skuld, þá varð að gera það í innskrift á öðrum hvorum staðnum, því peningar sáust varla eða alls ekki. Þrátt fyrir að við værum mörg í heimili leið okkur afskaplega vel. Foreldrar mínir voru bæði mjög listhneigð, mikið fyrir bækur og tónlist. Þau spiluðu bæði tvö nokkuð á orgel og það má segja að við krakkarnir höf- um alist upp við dýrkun á tónlist og bókmenntum, það er ekkert ofsagt." - Á svo stóru heimili hafa auðvitað allir orðið að taka til hendi og hjálpa til við lífsbarátt- una. Hvað varstþú gamall þegar þú byrjaðir að vinna ? „Ég var fimm ára gamall þeg- ar ég fór í sveit að Glaumbæ í Reykjadal og þar var ég í 9 sumur. Ég var eins og gefur að skilja ekki mikill bógur til vinnu fyrstu árin, en tók þó fljótt þátt í því að snúast í kringum fólk og skepnur í sveitinni og kynntist sveitabúskapnum og sveitalíf- - inu.“ - Eftir 9 sumur að Glaumbæ fór Jón eitt sumar í sveit að Þverá í Laxárdal, en síðan lá leið hans til Húsavíkur aftur og þar starfaði hann að mestu næstu 13 árin. Faðir hans var þá rafstöðv- arstjóri þar og þrír synir hans unnu þar á vöktum með honum. „I vegavinnu á Vaðlaheiði“ „Ég vann auðvitað við ýmislegt annað á þessum árum, ég var í byggingavinnu í bænum og í vegavinnu. Sumarið 1927 var ég t.d. við vegavinnu í Vaðlaheið- inni, en þá var vegurinn kominn rétt útfyrir Vegastaði. Þetta sumar voru veittar 50 þúsund krónur til Vaðlaheiðarvegarins og það tókst að leggja 5 km veg fyrir þessa upphæð. Við höfðum enga bíla, allt var unnið upp á gamla móðinn, með hestum og kassakerrum til að aka mölinni í. Það var kallað „að standa á tipp“ að taka við mölinni og dreifa úr henni þegar búið var að sturta úr kerrunni og „að vera í grúsinni" að moka mölinni í kerruna, hvorttvegja dönsku- slettur. Þetta var erfitt, en ákaf- lega heilnæmt líf. Við lágum þarna í tjöldum á nóttinni en fórum inn á Akureyri um helgar að skemmta okkur. Við vorum ungir og nutum lífsins." 6- DAGUR-7. maí 1982

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.