Dagur - 07.05.1982, Page 12

Dagur - 07.05.1982, Page 12
wmm gömliini Degi árid 1971 Að þessu sinni verður ekki skyggnst iangt aftur í tímann. Arið 1971 er um margt merki- legt, en við skulum nú athuga nokkrar fréttir sem birtust í blaðinu umrætt ár. Fótamennt í Hrísey Þann fimmta janúar voru Hrís- eyingar á kafi í vörutalningu. Fréttaritari Dags segir þó: „Um jól og nýár voru fimm dansleikir hér og þeir fjörug- ustu brugðu sér á sjötta dans- leikinn upp á Árskógsströnd. Þrjár stúlkur, hér hjá útibúi KEA eru allar að festa ráð sitt, ýmist giftar eða trúlofaðar. Eldri menn eru svo að hugsa um hrognkelsin.“ Sumir hafa þó e.t.v. litið í áttina til stúlkn- anna í útibúinu, svona þegar gafst tækifæri til þess frá amstr- inu í sambandi við hrognkels- in. Góður fundur ungra framsóknarmanna Þeir voru ekki síður pólitískir árið 1971 en í dag. I febrúar efndu ungir framsóknarmenn til fundar í Borgarbíói og var umræðuefnið staða og framtíð vinstri hreyfingarinnar á ís- landi. Frummælendur voru þeir Ólafur Ragnar Grímsson, Baldur Óskarsson og Hákon Hákonarson. Fundarstjóri var Hákon Eiríksson. Þetta var í þá daga er Ólafur og Baldur voru sannir framsóknarmenn! Snjórinn eins og dúnsæng Hann var góður snjórinn sem féll í Ólafsfirði, en svohljóð- andi fréttabréf barst þaðan 15. febrúar: „Hér hefur kyngt niður snjó síðan á föstudags- kvöld og er nú jafnfallinn snjór orðinn á annan metra. Veður hefur verið kyrrt og snjórinn því hrúgast upp eins og þykk dúnsæng yfir jörðina.“ Fallbyssuhlaupin í Degi frá því í mars er mynd af manni er hugar að bryggju- polla. Undir myndinni stendur: „Þegar Akureyrar- kirkja hin eldri var reist 1963 var því fagnað með fallbyssu- skotum, ásamt veifum á hverri stöng og siglutré. Og fyrrum voru leiksýningar á Akureyri tilkynntar með fallbyssu- skotum. En hvað varð af fall- byssunum? Sagt er, að við hlaup þeirra séu skip bundin við ytri Torfunefsbryggjuna.“ Og nú spyr Dagur árið 1982: Er ekki ástæða til að tryggja það að þessar fallbyssur verði ekki eyðilagðar þegar vegurinn verður lagður yfir Torfunefs- bryggjurnar? Mótmælfu æskulýdshúsi Bæjarstjóm kom saman um miðjan aprfl og var þá m.a. lagt fram mótmælabréf frá ca 30 íbúum við sunnanverða Brekkugötu, þar sem lýst er eindreginni andstöðu við þá hugmynd að íbúðarhúsið Brekkugata 4 verði gert að æskulýðshúsi og áskilji þeir sér rétt til að krefjast skaða- bóta af bæjarráði. Ekkert varð úr æskulýðshúsi við Brekkugötu. í bland við tröllin Smátt og stórt var til árið 1971 og þar stóð þessi klausa: „Lár- us Jónsson birtir í blaði sínu hlýlega grein um hina gömlu heimabyggð sína, Ólafsfjörð, og hefur að einkunnarorðum kvæðið góða, eftir Jón Helga- son, „Ærið er bratt við Ólafs- fjörð, ógurleg klettahöllin o.s.frv“. Þykir honum þá jafn- framt hlýða, að minna á það skilningsleysi, sem hann telur Eyfirðinga hafa sýnt Ólafsfirð- ingum fyrir 30 árum. En nú þegar Lárus er kominn til Ak- ureyrar og vill verða Jring- maður Eyfirðinga, mun Ólafs- firðingum að líkindum koma í hug það sem einnig stendur í kvæðinu góða: „Ein er sú kona krossi vígð, komin í bland við tröllin.“ Breskir sjómenn í steininn „Svangur þjófur, sem enn hef- ur ekki hafst upp á, fór á föstu- daginn inn í fjárhús og hænsna- hús og tók með sér poka af heilfóðri. Á sunnudagsnótt voru breskir sjómenn af skuttogara, sem hér var staddur, á ferð um bæinn. Varð einum laus höndin og sló niður mann, sem var síðan lagður inn á sjúkrahúsið. Sjómaðurinn var handtekinn. Þegar togarinn var að fara á mánudaginn, stökk háseti á land og neitaði að fara með togaranum. Var hann settur inn hjá félaga sínum.“ Fyrsti áfangi Glerárskólans í júlí segir í Degi að fyrsti áfangi Glerárskólans verði boðinn út einhvern næstu daga. Bautinn og Emmessís, bjóða öllum krökkum, 12 ára og yngri, sem borða í Smiðjunni eða Bautanum, frían íspinna eða klaka, eftir matinn. „Maðurþekkt marga en kynnist fáum náið“ „Mér hefur líkað ágætlega hér á Akureyri. Auðvitað er ýmis- legt sem maður saknar og hér á maður fáa eða enga. Það er ekki erfitt að kynnast Akureyr- ingum, en mér fínnst eins og að þegar maður hefur kynnst þeim sé ekki hægt að komast mikið lengra. Það fer því þannig að maður þekkir mjög marga, en kynnist fáum náið. Það er eins og fólk hér lifi meira út af fyrir sig, það gerir minna af því að skreppa í heimsókn til hvers annars, drekka kaffi saman og spjalla. Það er Guðjón Guðmundsson, 22 ára Hafnfirðingur sem hefur orðið. Guðjón sem er að eigin sögn „Gaflari“ (það þýðir víst að hann er fæddur í Hafnarfirði) flutti til Akureyrar fyrir rúmu ári síðan, og hóf nám í rafvirkjun. „Ég var búinn að reyna í tvö og hálft ár að komast á samning fyrir sunnan en ekkert gekk. Þegar ég átti þess kost að komast á samning hér og auk þess að spila með Þór í 1. deildinni í knattspyrnu sló ég því til strax. Mér hefur líkað mjög vel í náminu og er fegin að mér tókst að komast á samning hjá Ingva Rafni Jóhannssyni." - Guðjón hefur, eins og margir sem stunda nám, orðið að reyna að auka tekjurnar með því að fá sér aukavinnu. Hann hefur að undanförnu starfað sem barþjónn 100. Hvernig hefur honum það starf?“ að getur verið mjög þreyt- starf að vinna innan um mis- ega mikið Ndrukkið fólk. í u starfi verður að sýna mjög ida þolinmæði. Kvöldin geta verið mjög misjöfn, það fer eftir því hvernig fólkið er innstillt hverju sinni, og einnig eftir því hvernig maður sjálfur er upplagð- ur til að takast á við starfið.“ - Nú hefur þú spilað með Þór eitt sumar í knattspyrnunni og einn vetur með félaginu í hand- knattleiknum. Ekki er hægt að segja að vel hafi gengið, fall í knattspyrnunni í 2. deild og ekki tókst að komast upp úr 3. deild í handknattleiknum. „Það var ergilegt að við skild- um falla í knattspyrnunni. Við vorum með mjög ungt lið, meðal- aldur er innan við 21 ár. Ég held því að reynsluleysi hafi orðið okk- ur að falli fyrst og fremst, en við sigrum bara í 2. deild í sumar og endurheimtum sætið í 1. deild- inni. Ég held hinsvegar að áhuga- leysi hafi orsakað það að okkur tókst ekki að komast upp úr 3. deildinni í handboltanum. Menn mættu að mínu mati á æfingar meira af skildurækni en áhuga, og höfðu ekki áhuga og ánægju af því sem verið var að gera. Slíkt kann auðvitað ekki góðri lukku að stýra, og því fór sem fór að mínu mati.“ _ . Guðjón Guðmundsson. 10% afmælisafsláttur ara í tilefni þessara merku tímamóta, veitum við 10% afmælisafslátt af öllum vörum verslunarinnar vikuna 10.-14. maí nk. Verið velkomin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.