Dagur - 03.06.1982, Blaðsíða 5
Útvegsmannafélag Norðurlands þingar á Akureyri:
Mörg útgeroarfyrirtæki
standa mjög illa
— segir Sverrir Leósson
Utvegsmannafélag Norður-
lands hélt fund á Akureyri í síð-
ustu viku þar sem fjallað var
um sjávarútvegsmál. Stein-
grímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, og Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ
komu á fundinn. Ýmis mál bar
á góma, svo sem friðuðu svæð-
in úti fyrir Norðurlandi, rekstr-
arstaða flotans og framtíðar-
horfur í þeim málum og sfld-
veiðarnar í haust. AIIs sóttu
fundinn 45 manns.
Sverrir Leósson, formaður fé-
lagsins, sagði að aflaleysið í vetur
hefði verið rætt á fundinum, auk
þess sem slæma afkomu togar-
anna hefði borið á góma. „Frá
áramótum hefur þorskur í afla
minnkað um 40%,“ sagði Sverrir.
„Það er ljóst að mörg útgerðarfyr-
irtæki standa mjög illa í dag.“
Fundarmenn ræddu einnig
óvissuna í samningamálum og
hvað væri framundan á þeim vett-
vangi, og þeir voru sammála um
að útlitið væri svart. Stærð flotans
kom til umræðu, en margir töldu,
að flotinn væri orðinn allt of stór.
„Það er talað um, að næsta haust
megi veiða 50 þúsund tonn af síld
og það eru líkur til þess að flotan-
um verði skipt í tvennt, annar
helmingurinn fær að veiða í haust
en hinn næsta haust. Að öllum
líkindum verður tekin endanleg
ákvörðun í málinu á næstunni og
að þetta verði niðurstaðan.
Nú er búið að skipa nefnd sem á
að endurskoða landhelgislögin og
fundarmenn ræddu hana og henn-
ar hlutverk. Hún mun m.a. fjalla
um hafsvæðið norðan við landið,
en hluti þess er lokaður fyrir tog-
veiðum og alfarið friðaður. Ég og
fleiri erum þeirrar skoðunar, að
þegar landhelgin var færð út í 200
mílur, hefði það m.a. verið gert til
þess að íslendingar nýttu sjálfir
landhelgina, við erum sem sagt
þeirrar skoðunar, að það þurfi að
athuga hvort ekki sé rétt að nýta
þessi hafsvæði fyrir togveiðar.
Það var gert hér áður fyrr með
góðum árangri. En það er ekki
eining um málið, Húsvíkingar og
Þórshafnarbúar eru til dæmis á
móti, og eru þá með hagsmuni
sinna netabáta í huga. Þessi atriði
mun landhelgisnefndin vega og
meta, en til þess er ætlast af út-
vegsmannafélögum að þau fjalli
um mál af þessu tagi og komi áliti
sínu til nefndarinnar," sagði
Sverrir að lokum.
Frá fundinum í Útvegsmannafélagi Norðoriands.
Sumarnámskei
7.-18. júní
Leikfimi -
2ja vikna námskeið hefst mánudaginn 7. júní.
Byrjenda og framhaldsflokkar fyrir konur á öllum
aldri. Sérstakir tímar fyrir unglinga. Kennt veröur
alla virka daga frá kl. 18. Kennslustaður er leikfimi-
salur M,A.
innritun í síma 21086 og (91)84727
Kennari Hafdís Árnadóttir.
Kennarar,
annað áhugafólk
Muniö „opié4w6“ á Furuvöllum 13 laugardaginn 5.
júníkl. 13.00-16.00
Fræðsluskrifstofa
Norðuriandsumdæmis eystra.
Lausstaða
Viö embætti bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík
og sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu er laus til um-
sóknar staöa skrifstofumanns.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrrí störf óskast sendar undirrituöum
fyrir 29. júní n.k.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 1. júní 1982.
Stórglæsilegur fatnaður
fyrir aUa fjölskylduna
rennur út.... eins og heitar lummur
Herrafatnaður
Gffurlegt úrval
sumarstakka og frakka.
Skyrtur í tonnatali.
Herradeild.
Reiðhjól, 3ja gíra.
Reiðhjól, 5 gíra.
Reiðhjól, 10 gíra.
Sportvörudeild.
Glæsilegur
sumar-kvenfatnaður
streymir inn þessa dagana.
Vortískan frá Gazella, kápur og stakkar.
Líttu viö, þaö borgar sig.
Fyrir saumaskapinn
Nýkomið
Mjög falleg gardínuefni
í milliþykkt, 3 m. breið.
Einnig röndótt og köflótt efni.
Vefnaðarvörudeild.
Táningaskór
ný sending, margir litir.
Skódeild.
World Carpets gólfteppin
ný sending komin.
Einnig plastdreglar og dreglar í forstofur og ganga.
Sníðum, leggjum og mælum. Teppadeild.
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400
3.‘júrií 1982 —ÖÁGUR - 5