Dagur - 03.06.1982, Blaðsíða 12
MONROE
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
í FLESTA BÍLA
Velti
stolnum
bílá
Vaðla-
heiði
Um helgina var LADA-bifreið
stolið frá bænum Nesi í
Fnjóskadal.
Bifreiðin fannst fljótlega upp á
Vaðlaheiði þar sem henni hafði
verið velt, og hún talsvert
skemmd. Sökudólgurinn hefur
verið handsamaður, og reyndist
þar um ungan Akureyring að
ræða.
Nýr meiri-
hluti á
Raufarhöfn
Tveir fulltrúar Framsóknar-
flokksins og einn fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins hafa myndað meiri-
hluta í hreppsnefnd Raufarhafn-
arhrepps. Fulltrúar Framsóknar-
flokksins eru þeir Þórarinn
Stefánsson, sem jafnframt er
oddviti, og Gunnar Hilmarsson.
Fulltrúi Alþýðubandalagsins er
Þorsteinn Hallsson. í minnihluta
eru Sjálfstæðisflokkurinn og
Óháðir borgarar. Helgi Ólafsson
er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
hreppsnefnd en fulltrúi Óháðra er
Kolbrún Stefánsdóttir. Gunnar
Hilmarsson er sveitarstjóri Rauf-
arhafnarhrepps.
Skagafjörður:
Sauðburður
hefur
gengið
vel
Varmahlíð 1. júní.
Það er furðu gott hljóð í bænd-
um þrátt fyrir erfitt tíðarfar, en
við höfum þó ekki legið eins illa
í því í Skagafirði og þeir fyrir
austan - hér hefur verið snjó-
iaust og tún eru farin að
grænka. Að sögn bænda hefur
sauðburður gengið þolanlega,
enda hefur verið þurrt og upp
úr miðjum maí grænkaði. Það
var því hægt að láta út á eitt-
hvað og heygjöf minnkaði.
Eftir því sem ég best veit er
hvergi farið að láta út naut-
gripi.
Fyrir nokkru síðan var heimilis-
iðnaðarsýning í Miðgarði. Það
voru heimamenn sem sýndu, en í
vetur var hér tilsögn í myndlist og
hnýtingum og ýmsu öðru. Fólk
sýndi þarna hannyrðir, málverk
og smíðisgripi og ýmislegt fleira.
Það er óhætt að fullyrða að þarna
hafi margir komið á óvart, sýnt
hæfileika sem ber að þroska.
Sýningaraðstaða er orðin góð í
Miðgarði. í vetur var keyptur og
settur upp ljósabúnaður, sem
gerir það að verkum að sýning
sem þessi getur notið sín. GT.
Mikill hiti í mönnum í Svínavatnshreppi:
Hóta að flytja úr sveit-
inni ef l-listinn vinnur
Tveir listar verða boðnir fram
í hreppsnefndarkosningunum
í Svínavatnshreppi, en eins og
kunnugt er fara þær kosningar
fram síðar í mánuðnum. Á H-
lista eru andstæðingar
Blönduvirkjunar, en stuðn-
ingsmenn hennar eru á I-lista.
Tveir listar hafa einnig komið
fram til sýslunefndar og þar
skiptast menn einnig eftir því
hvort þeir eru með eða á móti
Blönduvirkjun. Rúmlega 100
eru á kjörskrá.
„Ég tel að þessir tveir flokkar
hafi ákaflega svipað fylgi. Það er
slegist um hvert einasta atkvæði
og það er með öllu ómögulegt að
segja nokkuð til um úrslitin, að
mínu mati er afskaplega mjótt á
mununum," sagði einn viðmæl-
enda blaðsins fyrir vestan í gær.
„Það er mikill hiti í mönnum og
ég tel að það séu átök framund-
an.“
Annar viðmælandi sagði að
hitinn væri e.t.v. ekki svo mikill
á yfirborðinu, en ljóst væri að
báðir aðilar ynnu kappsamlega
að framgangi síns málsstaðar.
„Það er búið að æsa fólk upp,“
sagði sá hinn sami.
Sumir andstæðinga virkjunar-
innar hafa látið hafa það eftir sér
að þeir muni flytja á brott úr
sveitinni ef I-listinn nær meiri-
hluta í hreppsnefndinni. Stuðn-
ingsmenn virkjunarinnnar hafa
aftur á móti áhyggjur af því að
andstæðingar virkjunarinnar
muni ekki láta staðar numið þó
þeir tapi í kosningunum. „Ég
held að þeir muni vinna gegn
Blönduvirkjun með öllum til-
tækum, löglegum ráðum. Muni
reyna að tefja fyrir framkvæmd-
um og hefna sín á þann hátt,“
sagði annarviðmælandi. „Það er
búið að binda fólk niður með
þessum undirskriftalistum, fólk
sem í hjarta sínu er með virkjun
Blöndu, en það telur sig tæplega
getað snúið við eftir að hafa
skrifað sig á lista gegn henni. Og
andstæðingar Blöndu báðu um
þessa listakosningu til þess að
geta haldið betur utan um sitt
fólk.“
Á H-lista eru: Þorsteinn Þor-
steinsson Geithömrum, Sigur-
geir Hannesson Skekkjardal og
Sigurjón Lárusson Tindum. ÁI-
lista eru: Ingvar Þorleifsson Sól-
heimum, Jóhann Guðmundsson
Holti og Guðmundur Sigurjóns-
son Rútsstöðum. Sigurgeir og
Sigurjón voru í minnihluta í
hreppsnefndinni er hún sam-
þykkti virkjunartillögun I. Nú
eru hrepparnir, sem hagsmuna
gæta á virkjunarsvæðinu, búnir
að samþykkja tilhögun I. Síðast
kom samþykki Bólstaðarhlíðar-
hrepps.
Laxveiði
að hefjast
Stangveiðimenn víða um land
eru farnir að huga að tólum
sínuni og tækjum fyrir all-
nokkru, en stangveiðin er nú
að hefjast eða er nýhafin.
Veiði í laxveiðiám hér á
Norðurlandi hefst á tímabilinu
1 .-20. júní og er veitt í þrjá mán-
uði í hverri á. Silungsveiði er
víðast hvar hafin fyrir nokkru,
en litlar fréttir hafa borist af
aflabrögðum.
Samkvæmt umsögnum fær-
ustu manna mun ástæða til að
búast við góðu laxveiðisumri, en
talið er fullvíst að kuldarnir að
undanförnu muni setja strik í
reikninginn til að byrja með. En
hvað sem því líður, þá eru stang-
veiðimenn bjartsýnir eins og
ávallt í upphafi vertíðar, full-
vissir um að sumarið muni færa
þeim marga stóra fiska og
skemmtileg augnablik við árnar.
Meirihlutaviðræður
í fullum gangi
Það standa yfir viðræður um
meirihlutasamstarf á milli
Framsóknarflokksins og Al-
þýðubandalagsins og það er að
vænta nánari frétta af þeim
viðræðum í lok vikunnar,“
sagði Magnús Sigurjónsson,
efsti maður á lista framsóknar-
manna á Sauðárkróki er Dagur
hafði samband við hann.
Þessir flokkar eiga samtals 5
fulltrúa af 9 í hinni nýkjörnu
bæjarstjórn á Sauðárkróki. Á síð-
asta kjörtímabili voru það Sjálf-
stæðisflokkur, Alþýðuflokkur og
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna sem fóru með meirihluta-
stjórn á Sauðárkróki.
„Vorvaka hófst á Akureyri fyrir nokkrum dögum og lýkur ekki fyrr en 19.
júní. Myndin var tekin af ungum tónlistarmönnum er léku á Ráðhústorgi þeg-
ar „Vorvaka“ var sett. Mynd: KGA.
# Tekinn fyrír of
hraðan akstur
Á dögunum skýrði blaðið frá
því að lögreglan hefði tekið
æði marga ökumenn fyrir of
hraðan akstur á götum bæjar-
ins. En skömmu síðar frétti
S&S af bæjarbúa sem var að
aka í Skagafirði sl. sumar,
hann var að fara í sumarfrí og
ætlaði suður. Bæjarbúinn var
á nýjum bíl og í Skaga-
firðinum bauð hann fjölskyld-
unni að fylgjast með hraða-
mælisnálinni, sjá hvernig hún
færðist æ ofar. Sjálfsagt hafa
kona og börn hrifist af krafti
vélarinnar og þeim hraða sem
bíliinn náði, rétt um 130
kílómetrum, en vegalögregl-
an var Ifka yfír sig hrifin,
stöðvaði ökumanninn og tók
af honum skírteinið á
staðnum. Eiginkonan ók bíln-
um næstu mánuðina.
• Góð
umgengni
Sem betur fer er alltaf eitthvað
jákvætt og skemmtilegt að
gerast í kringum okkur. Það
sést e.t.v. vel á þessari frétt
sem fréttaritari Dags á Dalvík
sendi blaðinu í gær: „Það er
oftar sem sagt er frá því sem
miður fer í fari og umgengni
unglinga, en því sem er til
fyrirmyndar. Það er mér þvf
sönn ánægja að gera sagt frá
mjög góðrí umgengni ung-
linga, sem aðsetur höfðu í
heimavist Dalvíkurskóla sl.
vetur. Að sögn húsvarðarins,
Gunnars Jónssonar, var um-
gengni „fram úr hófi góð“
eins og hann orðaði það og
sást ekki á nokkrum hlut eftir
veturinn. Sömu sögu hafði
bílstjóri skólabflsins að
segja. í heimavistinni höfðu
aðsetur yfir 20 unglingar á
daginn og á nóttunni ef veður
var slæmt og vegurinn ófær, 7
gistu þarað staðaldri. í sumar
mun heimavistin verða notuð
eins og áður, þar verður
sumar hótel og sér Víkurröst
um húsið.“
# Ögn um
Dallas
Dallas er sýndur í Færeyjum
við miklar vinsældir. Klukkan
8.50 á laugardagskvöldið 29.
maí var þátturinn á skjánum
og sagði svo f kynningu í
Dimmalætting: „Sjálft J.R. er
lammaður og líkamliga hjálp-
arleysur, er megi hansara ikki
brotin. Frá songini kan hann
enn hava eftirlit við öllum, og
Bobby leggur til merkis, at
stöða hansara sum leiðari av
Ewing Oil er í vanda. Sam-
stundis finnur Miss Ellie
skotvápnið, sum var brúkt at
skjóta J.R., so alt peikar á, að
gerningsmaðurinn er millum
tey nærmastu. Sue Ellen berj-
ist við marruna um, at tað er
hon, sum hevur skotið hann.“
Og þá vitum við þaö.