Dagur - 08.06.1982, Qupperneq 1
GULLKEÐJUR'
8 K. 0G14K.
ALLAR TEGUNDIR
VERÐ FRÁ *<*■
KR. 234,00
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 8. júní 1982
60. tölublað
Kennsla á
háskólastiai
á Akureyri?
Menntamálaráðherra hefur
ákveðið að skipa nefnd til þess
að gera tillögur um, hvernig
vinna megi að því að efla Akur-
eyri sem miðstöð vísinda og
mennta utan höfuðborgarinn-
ar.
í þessu sambandi ber að hafa í
huga margs konar menningar-
starfsemi, sem nefndinni er ætlað
að kanna nánar og meta, hvort
flokka skuli undir viðfangsefni
hennar, að höfðu samráði við við
ráðherra. Sérstaklega er nefnd-
inni ætlað að kanna, hverjir
möguleikar séu á að taka upp
kennslu á háskólastigi á Akur-
eyri.
í nefndina hafa verið skipaðir:
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri í menntamálaráðuneytinu,
og er hann formaður, dr. Guð-
mundur Magnússon, rektor Há-
skóla íslands og Tryggvi Gísla-
son, skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri.
Ríkisútvarpiö kaupir
hús á Akureyri
Fyrsta skrefið í áttina til útvarpsstöðvar utan Reykjavíkur
Rikisútvarpið hefur keypt hús
Pan hf. við Fjölnisgötu og verð-
ur þar framtíðaraðstaða
stofnunarinnar á Akureyri.
Húsið er um 520 fermetrar á
einni hæð. Kaupverðið er rösk-
ar tvær milljónir króna. Húsið
verður afhent Ríkisútvarpinu
ekki síðar en 30. september
n.k.
Hörður Vilhjálmsson fjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins sagði að
einhvern næstu daga yrði hafist
handa við að teikna innréttingar.
Hann vildi ekkert segja til um
hvenær nýja húsið yrði tekið í
notkun, enda væri mikið verk eftir
óunnið. ;)petta hús verður bæði
notað af útvarpi og sjónvarpi,
þarna verður gott talstúdíó og
stór upptökusalur fyrir útvarp og
sjónvarp,“ sagði Hörður. „í júlí
verður komið steriomerki til
Norður- og Austurlands. Um leið
sýnist mér óhjákvæmilegt að
opna steriorás frá Akureyri og
suður, svo flutningur á útvarps-
efni frá Akureyri verði jafn góður
og frá Reykjavík.“
Jónas Jónasson mun hefja starf
á Akureyri í byrjun ágúst. Hann
er nú á ferð um Norðurland og
safnar efni. Hörður sagði að Jón-
as hefði hafið ferð sína á Strönd-
um og ætlaði ekki að láta staðar
numið fyrr en á Langanesi. Ef að
líkum lætur mun Jónsa eiga mikið
af góðu efni þegar útsendingar
hefjast frá Akureyri. Áður hefur
komið fram í Degi að búið er að
ráða tæknimann til útibús Ríkis-
útvarpsins. Það var Björn Sig-
mundsson sem var ráðinn, og er
hann nú í þjálfun í Reykjavík.
Hörður sagði að allur tækja-
búnaður yrði endurnýjaður um
leið og flutt verður í nýja húsið.
„Já, það má segja það,“ sagði
Hörður að lokum, þegar hann var
spurður hvort þetta væri fyrsta
skrefið í áttina til sjálfstæðrar út-
varpsstöðvar utan Reykjavíkur.
Allar líkur á verkfalli
Þrátt fyrír stöðuga sáttafundi
með sáttasemjara milli VSÍ og
ASÍ, bendir enn fátt tU þess að
samningar takist fyrir boðaða
vinnustöðvun á fimmtudag og
föstudag. Einnig hefur verið
boðað tU allsherjarverkfalls frá
og með 18. júní hafí ekki samn-
ingar verið gerðir fyrir þann
tíma.
Ef til verkfalls kemur mun
atvinnulíf í landinu stöðvast að
miklu leyti, flugsamgöngur leggj-
ast niður innanlands, mjólkur-
dreifing stöðvast, stærri verslanir
lokast og öll sala og dreifing á
bensíni og olíu leggst niður, svo
að eitthvað sé nefnt.
Samningaviðræðum er haldið
áfram.
Unnið við að rífa leirinn upp.
Mynd: áþ.
Varanlegt
slitlag
í Reykja-
hverfi
Vegagerð Ríkisins hefur hafíð
undirbúning að lagningu
klæðningar á þjóðveginn gegn-
um Keykjahverfí í Mývatns-
sveit.
Verkið verður hafið austan við
byggðina, og vegurinn klæddur
nokkuð suður fyrir Voga - alls um
fimm kílómetrar.
Að undanfömu hefur verið
unnið að því að rífa upp leirofaní
burð sem verið hefur á veginum.
„Það má segja að með þessum leir
höfum við í dreifbýlinu komist
næst varanlegri vegagerð í þétt-
býli,“ sagði Arnaldur Bjarnason
sveitarstjóri í Mývatnssveit.
„Þessi leir er nokkuð góður, hann
er burðarþolinn og er víða not-
aður. En jafnast auðvitað engan
veginn á við klæðninguna sem
lögð verður.“
Fjölmenni í góða veðrinu
Hátíðahöld sjómannadagsins á
Akureyri fóru fram í eindæma
góðu veðri, að viðstöddum
fjölda manns, bæði við sund-
laugina og á Torfunefsbryggju.
Við sundlaugina fór : fram
stakkasund, björgunarsund,
boðhlaup og reiptog. í stakka-
sundinu sigraði Friðrik J. Frið-
riksson, í björgunarsundinu sigr-
aði Stefán Einarsson, og hlaut
hann jafnframt Atlastöngina, sem
er viðurkenning fyrir bestan
heildarárangur í íþróttagreinum á
Sjómannadaginn. Ávörp fluttu
Ásgrímur Hartmannsson fyrir
hönd útgerðarmanna, og Halldór
Hallgrímsson skipstjóri fyrir
hönd sjómanna. Tveir aldnir
sjómenn voru heiðraðir fyrir ára-
tuga störf á sjó, þeir Brynjólfur
Kristinsson og Stefán Snælaugs-
son.
Við Torfunef fór fram kapp-
róður, og var keppt í þremur
flokkum, sjómanna, landmanna
og kvenna.
Af sjómönnum varð sveit Kald-
baks sigurvegari, af landmönnum
urðu tækjamenn ÚA sigurvegar-
ar, og í kvennaflokki sigruðu
stúlkur úr vélasal ÚA.
Frá sundlauginni. Tveir kappar þreyta stakkasund, og eins og sjá má var 1 son og Stefán Snælaugsson, sem voru heiðraðir.
fjöldi fólks viðstaddur. Á innfelldu myndinni eru þeir Brynjólfur Krístms- |
Mynd: K.G.A.
Hátíðahöld Sjómannadagsins á Akureyri: