Dagur - 08.06.1982, Qupperneq 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Þróun, sem ber
aðfagna
Sveitarstjórnarkosningar eru nýafstaðnar. í
bæjarstjórn Akureyrar sitja nú fimm nýir
bæjarfulltrúar sem ekki áttu þar sæti síðasta
kjörtímabil. Það er mikil breyting þegar skipt
er um nær helming bæjarfulltrúa. Þá hefur orð-
ið mikil breyting í nefndaskipun. Hlutur
kvenna hefur stóraukist í bæjarstjórn og í
nefndum Akureyrarbæjar og munar þar ekki
aðeins um þátt kvennaframboðsins heldur
hafa allir flokkar aukið hlut kvenna í nefndum.
Þessari þróun ber að fagna. Gömlu flokkarn-
ir tóku við sér — allflestir — og juku hlut kvenna
en einnig má skýra þessa þróun með því að
konur gáfu nú fremur en áður kost á sér til
starfa, svo sem listarnir báru með sér, þótt
undantekningar væru til.
Nýafstaðnar kosningar sýna að æ fleiri
vakna til vitundar um möguleika sína til að
hafa áhrif. Fólk, sem áður reyndi að leysa
vandamálin í kunningjahópi eða yfir kaffibolla
við eldhúsborðið með litlum árangri, gengur
nú til liðs við pólitísk samtök. Þessu fólki er nú
ljóst að leiðin til að hafa áhrif í þjóðfélaginu
liggur uppi í gegnum flokkana - að árangurs
er frekar að vænta ef reynt er að hafa áhrif
innan frá, innan vébanda flokkanna. Konur,
sem töldu að þessi leið væri þeim ekki fær,
stofnuðu samtök sem urðu að sterku pólitísku
afli. ítök kvenna í stjórn Akureyrarbæjar hafa
aukist svo sem raun ber vitni að nokkru fyrir
tilverknað kvennaframboðsins. En þetta er
ekki pólitískt afl á landsvísu.
Framsóknarmenn á Akureyri reyndu nú
sem oft áður að auka hlut kvenna innan Fram-
sóknarflokksins með allgóðum árangri. Þá
gengur ungt fólk nú til liðs við flokkinn. Þetta
er fólk sem lætur sig einhverju varða hvernig
fé er ráðstafað úr sameiginlegum sjóðum,
hvernig atvinnumál og skipulagsmál eru leyst
o.fl. o.fl. Hver lætur sér annars á sama standa
um slíkt?
Ýmsar blikur eru á lofti í atvinnumálum,
slæmar horfur í sjávarútvegi og útlit fyrir
minnkun þjóðarframleiðslu. Enginn má láta
sitt eftir liggja að leysa þann sameiginlega
vanda sem að steðjar. Liðið er á kjörtímabil
núverandi ríkisstjórnar og tími alþingiskosn-
inga færist óðum nær. Minnug þess að það er í
gegnum flokkana sem áhrifum verður helst
beitt eru ungir menn og konur hvött til að
fylgja eftir þeirri hreyfingu sem nú verður vart
og ganga til liðs við Framsóknarflokkinn.
Sigfríður Angantýsdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson bæjarstjóri á Sauðárkróki:
„Fjölbreytt starf og í
mörg
„Það hefur ekki verið endan-
lega ákveðið, hvenær ég iáti af
störfum, það hefur verið taiað
um, að ég yrði hérna þar til
búið væri að mynda nýjan
bæjarstjórnarmeirihiuta og
nýr bæjarstjóri væri kominn
til starfa. Ég hef unnið mikið
að þessu svokallaða steinull-
armáli og það er í fullum
gangi. Sjálfsagt verð ég eitt-
hvað viðloðandi það mál
áfram,“ sagði Þorsteinn Þor-
steinsson, bæjarstjóri á Sauð-
árkróki, en Þorsteinn hefur
sagt starfl sínu Iausu og mun
láta af því innan skamms.
Þorsteinn er frá Hofsósi en
tók við bæjarstjórastarfinu á
Sauðárkróki 1978. Áður var
hann rekstarráðgjafi hjá Hag-
vangi í Reykjavík. Hann er
rekstrarhagfræðingur að mennt,
útskrifaður frá verslunarháskól-
anum í Kaupmannahöfn.
- Mér hefur fundist það mjög
skemmtilegt að fást við þetta
starf hér á Sauðárkróki, sagði
Þorsteinn. Þetta er fjölbreytt
starf, mikið um að vera og í
mörg horn að líta.
- Hvað kemur fyrst í hugann,
ef ég bið þig að nefna nokkur
þau helstu verkefni, sem glímt
hefur verið við á síðasta kjör-
tímabili?
- Steinullarmálið hefur auð-
horn
Þorsteinn Þorsteinsson.
vitað verið viðamesta verkefnið
og mikið af mínum tíma hefur
farið í það mál. Steinullarfélag-
ið, sem bærinn hefur meirihluta
í, hefur ekki ráðið sér formlegan
framkvæmdastjóra og ég hef
unnið að málum félagsins og
skrifstofan hér annast mál fyrir
það. Af öðrum málum mætti
nefna Fjölbrautaskólann, en
það hefur farið mikill tími í að
skipuleggja starf hans og sinna
þeirri uppbyggingu. Síðan eru
það þessi almennu fram-
kvæmdamál, byggingar- og
skipulagsmál, en hér hefurorðið
nokkuð mikil þróun í þeim
málum.
- En hvers vegna hættir þú
5 líta“
þessu starfi, sem þú segir mjög
skemmtilegt, eftir aðeins fjögur
ár?
- Það eru persónulegar og
fjölskyldulegar ástæður, sem
eru þar að verki að hluta til, sem
ég ætla ekki að fara að ræða
meira opinberlega.
- En ert þú búinn að ákveða,
hvað þú hyggst taka þér fyrir
hendur?
- Nei, ég er ekki búinn að
því. Það hefur verið talað um
það hér, að ég yrði mönnum
innan handar varðandi steinull-
armálin fram eftir árinu, þannig
að það yrði ekki um neitt fast
starf að ræða til að byrja með.
Ég afla mér hugsanlega ein-
hverra annarra verkefna á með-
an þetta millibilsástand varir,
þangað til búið verður að stofna
stóra steinullarfélagið og mynda
nýja stjórn með þátttöku ríkis-
ins og annarra aðila. Fram að
þeim tíma er um millibilsástand
að ræða, sem talað hefur verið
um, að ég brúaði. En þegar að
því kemur, reikna ég með að ég
muni fara suður til vinnu.
- En þú hefur kunnað vel við
þig á Sauðárkróki?
- Já. Hér eru prýðismenn
sem gott er að vinna með og
Sauðárkrókur er góður staður í
miklum uppgangi og nóg að
gera, sagði Þorsteinn að lokum.
Ingimundur Einarsson bæjarstjóri á Siglufirði:
„Hér er meiri ró
yfir mönnum“
„Ég er borinn og barnfæddur
Siglfirðingur og ólst hér upp
til 12 ára aldurs. Þá fluttist ég
til Reykjavíkur en kom svo
norður aftur fyrir tæpum
þremur árum og tók þá við
starfi bæjarstjóra. Mér hefur
líkað ágætlega hérna, hér er
ágætis fólk og gott að búa
hér,“ sagði Ingimundur Ein-
arsson bæjarstjóri á Sigluflrði
í samtali við Dag, en hann
mun láta af störfum bæjar-
stjóra á Siglufirði í þessum
mánuði.
Ingimundur er lögfræðingur
að mennt, og starfaði hjá bæjar-
fógetanum í Keflavík í eitt ár að
loknu námi áður en hann tók við
bæjarstjórastöðunni á Siglu-
firði.
„Stærsta verkefnið sem unnið
hefur verið að hér á þeim tíma
sem ég hef verið hér er varanleg
gatnagerð. Það hafa verið upp-
byggðar nokkrar götur og sett
varanlegt slitlag á þær. Þá hefur
verið komið hér upp miklum
vatnsmiðlunargeymi sem á
reyndar eftir að ljúka fram-
kvæmdum við. Þetta er gríðar-
lega mikið mannvirki. Ef ég
nefni aðrar framkvæmdir þá má
nefna að lokið hefur verið við að
ganga frá togarabryggjunni, og
áform eru uppi um frekari
bryggjusmíði. Auðvitað eru
miklu fleiri og smærri verkefni
sem unnið hefur verið að og hafa
Ingimundur Einarsson.
gripið hug manns.
Hér er eitt stærsta verkefnið
hinn svokallaði umhverfisþáttur
sem spannar að vísu nokkuð
stórt svið. Það má eiginlega
segja að í hnotskurn sé hér um
að ræða þrifnaðarmál sem tók
hug minn fyrst eftir komuna
hingað. Mér óaði við ástandinu
eins og það var þá, en það hefur
batnað og á vonandi enn eftir að
batna
- Nú eru tæp þrjú ár ekki
langur starfstími á einum og
sama vinnustað. Hvað kemur til
að þú hættir?
„Þetta er erfið spurning. Ég
fór út í þetta fyrst og fremst til
þess að reyna mig á nýjum svið-
um og kynnast sveitarstjórnar-
málum betur, en ég hafði
haft mikinn áhuga á þeim. Þessi
þriggja ára vera mín hér hefur
verið mjög ánægjuleg og
skemmtileg. En þótt ég hafi
sterkar taugar til Siglufjarðar þá
eru ýmsar ástæður sem valda því
að ég hverf aftur til Reykjavík-
ur. Eg vil þó fá að skjóta því að
hér að ég hef sérstaklega tekið
eftir því eftir að krakkarnir mín-
ir komust á legg hvað svona
staður er ákjósanlegur fyrir
börn, hreinasta Paradís má
segja. Hér er meiri ró yfir mönn-
um og lífið allt manneskjulegra
ef svo má segja. Börnin eru í
miklu meiri tengslum við um-
hverfið og atvinnuvegina og eiga
fleiri kunningja. Þau geta ráfað
hér um alla byggðina án þess að
maður þurfi nokkrar áhyggjur
að hafa af þeim.“
- Er mikill uppgangur á
Siglufirði um þessar mundir?
„Það er varla hægt að segja að
það sé mikill uppgangur, en þó
er enn rfkjandi bjartsýni hjá
mönnum um að hægt sé að koma
þessum stað vel á legg og skapa
hér góða byggð. En eins og
stendur horfir þó dálítið illa
varðandi atvinnumálin. Þótt við
séum ekki farnir að finna fyrir
því mjög enn, er uggur í mönn-
um varðandi næstu mánuði.“
- Hefur þú ákveðið hvað þú
tekur þér fyrir hendur er þú
kveður Siglufjörð?
„Nei, það er allt óákveðið,
enn sem komið er.“
4 -DAGUR - 8. júní 1982