Dagur - 10.06.1982, Side 2
Atvinnul íf
í lamasessi
LETTIH
'Í% Léttisfélagar
Hagar félagsins verða opnaðir næstkomandi
mánudag, 14. júní.
Á miðnætti sl. skall á tveggja
daga verkfall eins og boðað
hafði verið. í dag og á morgun
liggur því atvinnulíf í landinu í
lamasessi. Samninganefndir
hafa setið á löngum fundum
daga og nætur og virtist um
tíma sem eitthvað væri að
þokast i átt til samkomulags.
Þá strandaði á því að ekki var
tryggt að byggingarmenn
semdu ekki um meiri kaup-
hækkanir eftir á, þar eð
Meistarasamband byggingar-
manna er ekki innan VSI og
gæti því samið um hærra kaup
en aðrir við Samband bygg-
ingarmanna.
I samtali við Dag sagði Sævar
Frímannsson hjá Einingu að
undanfarna daga hefðu streymt
inn beiðnir til undanþágu og var
haldinn fundur í félaginu á
þriðjudagskvöld þar sem afstaða
var tekin til beiðnanna. Niður-
staða fundarins var sú að starfs-
fólk sjúkrahúss og elliheimila
skyldi undanþegið verkfalli en
aðrir ekki.
í dag og á morgun er því unnið
á spítalanum og elliheimilunum
en annars eru allir félagsmenn í
Einingu hér í nágrenninu í
verkfalli.
Tekiö veröur á móti hrossum milli kl. 20-21.30,
mánudaginn 14., þriðjudaginn 15. og miðvikudag-
inn 16. júní að Kífsá.
Greiðsla krónur 250 pr. hross, greiðist við haga-
hlið.
Tekið skal fram að öll hross
skulu vera vel merkt.
Upplýsingar um haganúmer gefur Jón Ólafur Sig-
fússon í síma 23435 næstu kvöld.
Með ómerkt og óskilahross verður farið með sem
óskilafé.
Haganefnd Léttis.
„Mér eru gerðar
upp skoðanir“
„Mér eru þarna gerðar upp
skoðanir, sem ég kannast ekki
við,“ sagði Sigurgeir Hannes-
son í Stekkjardal í Svínavatns-
hreppi um frétt er birtist í Degi
fimmtudaginn 3. júní, en þar er
fjallað um hreppsnefndarkosn-
ingar í Svínavatnshreppi og
þess getið að Sigurgeir sé á H-
lista. Einnig er sagt að Sigur-
geir og annar til hafi verið í
minnihluta í hreppsnefnd, þeg-
ar hún samþykkti virkjunartil-
högun I. Síðast en ekki síst er
sagt i fréttinni að H-listinn sé á
móti Blönduvirkjun en I-listi
með henni.
„Ég vil mótmæla því að ég hafi
verið á móti Blönduvirkjun eða
að nú sé tekist á um það, hvort
menn vilja virkjunina eða ekki.
Ég veit ekki um neinn mann og
allra síst mig, sem hefur verið á
móti Blönduvirkjun. Hér eru allir
meðmæltir Blönduvirkjun og
átökin hafa verið um það hvort
menn vilji forða eins miklu landi
eins og hægt er, eða eyðileggja
eins mikið og kostur er. Um þetta
standa átökin. Og hvað kosning-
arnar varðar þá er spurningin sú
hvorum listanum fólk treystir til
að fara með stjórn sveitarinnar
næstu fjögur árin,“ sagði Sigur-
geir.
Listakosningar
í Mývatnssveit
Dömukjólar verö frá kr. 525.-
Kápur verð frá kr. 973.-
Pils verö frá kr. 240.-
Blússur.......verö frá kr. 290.-
Stutterma bolir verð frá kr. 86.-
Tveir listar hafa verið boðnir fram
til hreppsnefndarkosninga í Mý-
vatnssveit sem fram fara 26. júní
nk., L-listi og K-listi.
í síðustu hreppsnefndarkosn-
ingum í Mývatnssveit buðu fram 3
listar og eru því listakosningar þar
ekkert nýnæmi.
Eftir því sem Dagur kemst næst
mun K-listinn vera soðinn upp úr
öllum þessum listum og var það
ætlun aðstandenda hans að hann
yrði einn í framboði. Svo fór þó
ekki, K-listinn var settur fram og
verða því Mývetningar að kjósa á
milli þeirra 26. júní.
Ýr hf. og Ðarði hf.
byggja fyrir Sjöfn
í síöustu viku var undirritaöur
sanmingur milli forráöamanna
Sjafnar annarsvegar og Yr hf. og
Barðs sf. hins vegar um byggingu
fyrsta áfanga nýs húss fyrir Efna-
verksmiðjuna Sjöfn. Þrjú tilboð
bárust í verkið, frá Ýr hf. og Barði
sf. kr. 8.888.364, Aöalgeir og
Viðar hf. kr. 8.991.492 og Híbýli
og Norðurverk hf. kr. 9.333.029.
Kostnaöaráætlun hönnuða hljóð-
ar upp á kr. 11.090.928.
Símanúmer
Véladeildar KEA er
22997 og 21400.
Nýja húsið verður reist í Gler-
árhverfi, nánar til tekið milli
Frostagötu og Síðubrautar. í
fyrsta áfanga verður öll jarðhæð
hússins steypt, auk hluta af ann-
arri hæð. Jarðhæðin er um þrjú
þúsund fermetrar, en önnur hæð
nokkruminni. í útboði ergert ráð
fyrir að verktakinn skili bygging-
unni fokheldri, að hluta til í haust
og að hluta til eftir eitt ár.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu er mjög gott iðnaðarhúsnæði á Óseyri.
Stærð ca. 300-400 fm. Á húsinu eru stórar að-
keyrsludyr. Húsnæðið er laust nú þegar. Tilboð
leggist inn á afgreiðslu Dags merkt: „Iðnaðar-
húsnæði“.
Einbýlishús Til sölu er á Akureyri ca. 120 fm einbýlishús. Upplýsingar í síma 22313 eftir kl. 19.
Keramikstofan
Eigendaskipti hafa orðið á Keramikstofunni. Við
undirritaðar höfum selt Önnu Steinsdóttur og Ás-
geiri R. Bjarnasyni, Kleifargerð 3, Akureyri. Gefa
þau jafnframt allar upplýsingar um starfsemina.
Síminn er 22789.
Við viljum nota tækifærið og þakka öllum við-
skiptavinum í gegnum árin gott samstarf.
Dröfn Friðfinnsdóttir,
Oddný Friðriksdóttir.
2-DAGUR-10. júní 1982
!• ■- J1Ui..; ■
.íít
r
SIMI
25566
Ásöluskrá:
Hrísalundur:
2ja herb. íbúð í fjölbýlis-
húsi ca 55 fm.
Byggðavegur:
3ja herb. risíbúð i tvíbýlis-
húsi ca. 70 fm.
Þórunnarstræti:
3ja herb. tbúð í kjallara ca.
70 fm. Laus fljótlega.
Grenivellir:
Efri hæð og ris í parhúsi
ca. 140 fm. Bílskúr. Skipti
á 3ja herb. raðhúsi eða
3ja-4ra herb. neðri hæð
hugsanleg.
Kringlumýri:
Einbýlishús ca. 110 fm
ásamt 40-50 fm plássi í
kjallara. Bílskúrsréttur.
Skipti á 3ja-4ra herb. rað-
húsi æskileg.
Kjalarsíða:
4ra herb. endaíbúð, rúm-
lega 100 fm. Selst máluð
með inníhurðum og
gluggaáfellum.
Reynivellir:
5 herb. ef ri hæð ca. 130 f m.
Eign í góðu standi.
Okkur vantar á skrá
2ja herb. íbúðir,
3ja herb. íbúðir,
4ra herb. íbúðir,
raðhús, stór og lítil
með og án bílskúrs,
svo og einbýlishús
af öllum stærðum
og gerðum.
Hafið samband.
Verðmetum
samdægurs.
FASTEIGNA& (J
SKIPASAUSsI
NORDURIANDSO
Amaro-húsinu II. hæð.
Síminn er 25566.
Benedikt Ólafsson hdl.,
Sölustjóri Pétur Jósefsson.
Er við á skrifstofunni alla virka
dagakl. 16.30-18.30.
Kvöld- og helgarsími 24485.
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst,
þegar þið akið.
Drottinn Guö, veit mér
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgöar minnar
er ég ek þessari bifreið.
í Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjufelli, Reykja-
vík og Hljómveri, Akur-
eyri.
Til styrktar Orði dagsins
-.4 ‘