Dagur - 10.06.1982, Síða 8

Dagur - 10.06.1982, Síða 8
70 I ítrar af kakói Fyrir skömmu var haldið hér á Akureyri landsmót skóla- hljómsveita þar sem mættir voru ca. 360 hljóðfæraleikar- ar víðs vegar af landinu. Framkvæmd mótsins var í höndum blásarasveitar Tón- listarskólans, kennara og for- eldrafélagsins. Það gefur auga leið, að svona mót eru ekki hrist fram úr erminni og heilmikil vinna liggur í undirbúningi ýmis konar. Við hringdum I Arna V. Friðriksson, stjórnarfor- mann foreldrafélagsins, pott- inn og pönnuna í framkvæmd mótsins og báðum hann að fræða okkur nánar um málið. - Foreldrafélagið var stofnað eftir áramótin síðustu, samin lög, tilgreind markmið og kosin stjórn. Aðalverkefnið hefur síð- an verið að undirbúa þetta mót og hefur það tekist mjög vel. í fyrra var hér starfandi nefnd til undirbúnings Noregsferðar hljómsveitarinnar og kemur stofnun félagsins í beinu fram- haldi af störfum nefndarinnar. í félaginu eru ca. 100 manns og lögðu langflestir hönd á plóg við undirbúning mótsins. Við fengum styrk frá bænum, 25.000 kr., en auk þess var þátt- tökugjald kr. 100, sem hrökk reyndar ekki fyrir matnum sem Menntaskólinn útvegaði. Einn morguninn sáu þó félagskonur um morgunmatinn og var þá kveikt undir 70 lítrum af kakói í stórum þvottapotti og þótti það hinn besti drykkur. Þátttakend- ur gistu í skólum bæjarins. Hingað til hafa landsmót skólahljómsveita verið haldin á Stór-Reykjavíkursvæðinu og þá yfirleitt staðið aðeins yfir í einn dag. Mót sem þessi eru ekki síst hugsuð fyrir stjórnendur hljóm- sveitanna, að þeir hittist og kynnist og geti miðlað hver öðr- um af reynslu sinni og þekkingu. Einnig eru svona mót hugsuð til að halda áhuga krakkanna vak- andi yfir sumartímann. Þetta mót núna má segja að hafi tekist mjög vel. Það stóð lengur en venjulega, þannig að stjórnendur hljómsveitanna höfðu nægan tíma til að ræðast við og læra hver af öðrum og er nú stefnt að námskeiðum fyrir stjórnendur og meira samstarfi í framtíðinni. Húsavík: Varanlegt slitlag á margar götur að Skarðahálsi. Þá verður næstu daga boðinn út annar áfangi íþróttahússins. í fyrra tókst ekki að ljúka fyrsta áfanganum sökum þess hve vetur lagðist snemma að og er nú verið að Ijúka honum. Byrjað var á smíði dráttar- brautar og er þessa dagana verið að steypa neðansjávargarða hennar. Stefnt er að því að taka hana í notkun í sumar og með henni verður hægt að taka í slipp alla báta Húsvíkinga, allt að 200 lestum. I tengslum við dráttar- brautina munu Naustir h/f ráðast í byggingu verkstæðis við hana þar sem hægt verður að hlúa að báta- flota staðarins. Lokið verður í sumar við smíði síðasta hluta Dvalarheimilisinsen það eru 6 íbúðir sem væntanlega verða til um mitt sumar. í fyrra var byrjað á flugstöðvar- byggingu við flugvöllinn í Aðal- dalshrauni og er nú búið að opna tilboð í hana. Verður hún væntan- lega fokheld í haust. Egill sagði, að næg atvinna væri á Húsavík og frekar vantaði fólk en hitt. Þó væri alger ördeyða hjá netabátum en eitthvað hefði glæðst á línu að undanförnu. Nú eru allir þeir bátar sem fóru suður á vertíð komnir heim. Tveir bátar eru byrjaðir rækjuveiðar og afla sæmilega, einn er að búa sig á rækjuna. Rækjan er unnin hjá Fiskisamlaginu og tryggir hún unglingunum og skólafólki atvinnu. Togararnir eru báðir úti. Á Húsavík verður haldið áfram lagningu slitlags á götur í sumar eins og að undanförnu. Slitlag verður lagt á syðri hluta Stang- arbakka-Héðinsbrautar og tengist það því slitlagi sem vegagerðin leggur fram í Aðal- dal. Ásgarðsvegur verður lagð- ur slitlagi og í Gerðahverfi fá Heiðagerði, Litlagerði og Háa- gerði sömu meðferð. Langholt og Árholt verða slitlagðar, einnig barnaskólalóðin, og skipt verður um jarðveg í Upp- salavegi. Áfram verður unnið við lagningu gangstétta og annan frágang á þeim götum sem komnar eru undir slitlag. Aö sögn Egils Olgeirssonar á Húsavík veröur á vegum hitaveit- unnar tvöfölduð stofnæöin frá Hveravöllum og verður hún aö því verki loknu orðin tvöföld út Frá Húsavík. Laugaskóla í Þingeyjarsýslu slitið: Arangur nemenda var yfirleitt heldur góður Laugaskóla í Þingeyjarsýslu var slitið laugardaginn 22. maí. Fjölmenni var á skóiaslitunum. Þau fóru fram í Þróttó, hinu gamla íþróttahúsi skólans, sem breytt hefur verið í kvikmynda- og leikhússal með hallandi gólfi og föstum bíóbekkjum. Á meðal gesta viö skólaslitin voru margir af 10 og 20 ára nem- endum skólans. Fulltrúar þessara nemenda tóku til máls og færðu skólanum góöar gjafir, sem þeir eiga hlýjar þakkir skyldar fyrir. Lions-klúbburinn Náttfari veitti tveim nemendum viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í íslensku og skólinn verðlaunaði nokkra úr nemendahópi fyrir góða ástundun og framfarir. Síðastliðinn vetur voru í skól- anum 119 nemendur. Þar af voru á framhaldsskólastigi 48 en aðrir nemendur í 8. og 9. bekk. Á framhaldsskólastigi kennir skólinn eftir áfangakerfi því, sem framhaldsskólar á Norðurlandi fylgja. Á umliðnum vetri voru við skólann fornámsdeild, mála- braut, verknámsbraut tréiðna, uppeldisbraut og viðskiptabraut. Skólinn hefur góð tök á að veita fræðslu á þessum brautum. Þann- ig er vinnuaðstaða tréiðna góð og aðstaða til annarrar sérkennslu einnig. Miklu skiptir í sambandi við viðskiptabrautina, að við- skiptafræðingur starfar við skólann. Vetrarstarfið gekk vel. Þar skiptir mestu, að árangur nem- enda var yfirleitt heldur góður. Félagslífið var með blómlegasta móti og samvinna nemenda inn- byrðis og nemenda og kennara í langflestum tilfellum í ágætu lagi. Á komandi vetri hyggst skólinn auka nokkuð kennsluframboð sitt. Boðið verður upp á tvær nýj- ar brautir, íþróttabraut og mat- vælatæknibraut. Einnig verður kennsla á 3. og 4. önn uppeldis- og verslunarbrautar. íþróttabrautin er tveggja ára braut. Hún á að gefa réttindi til þjálfunarstarfa hjá íþróttafélög- um og einnig er gert ráð fyrir því, að nemendur, sem lokið hafa námi á brautinni, geti haldið áfram til stúdentsprófs, t.d. í Menntaskólanum á Akureyri, eða menntað sig frekar í sam- bandi við íþróttir. Nemendur munu taka almenn- an kjarna framhaldsskólanámsins og auk þess sérgreinar brautar- innar, s.s. íþróttafræði, íþrótta- greinar og önnur fög, sem lúta að íþróttastarfi._ Matvælatæknibrautin verður starfrækt í samvinnu við Hús- mæðraskólann á Laugum, en þar er hin ákjósanlegasta aðstaða til þessa náms. Brautin er tveggja ára nám í skóla og þar að auki 34 vikna starfsþjálfun, sem er skil- yrði fullra starfsréttinda sem mat- vælatæknir. Nemendur taka almennan kjarna framhaldsskóla á svipaðan hátt og iðnbrautir. Auk þess er lögð áhersla á matreiðslu, vinnu við matargerð, störf í mötuneyt- um og á veitingastöðum og starf- rækslu og forstöðu mötuneyta. Verkleg þjálfun er mikill þáttur í þessu námi, en hún mun fara fram í kennslueldhúsi húsmæðraskól- ans og í mötuneyti Laugaskóla. Einnig verður leitað út fyrir skól- ana. Til tals hefur komið að fella inn í námið námskeið í framreiðslu. Þetta námskeið felur í sér tilsögn í störfum í veitingasal, við herberg- isþjónustu á hótelum, gestamót- töku og fleira viðkomandi veit- inga- og gistihúsastarfi. Nám á matvælatæknibraut auk starfsþjálfunarinnar á að gefa réttindi til starfa í mötuneytum, sem kokkur t.d. með vinnuflokk- um og til þess að standa fyrir og reka mötuneyti. Verði af því, að framreiðslu- námskeið verði fellt inn í námið á matvælatæknibraut, eiga nem- endur að eiga greiðari aðgang en ella að störfum við sumarhótel, veitinga- og gistihús. Héraðsskólinn á Laugum er gróin stofnun. Hann hefur ætið leitast við að fylgja þróun menntamála í landinu og svo er enn. Skólinn hefur engan veginn lokið hlutverki sínu. Hann er stofnun í þróun, samstiga sinni samtíð og þannig mun hann halda áfram að starfa um ófyrirsjáan- lega framtíð. Haukur Ágústsson, skólastjóri. Séð heim að Laugum. 8 - DAGUR -10.! júní' 1982

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.