Dagur - 15.06.1982, Side 1
GULLKEÐJUR
8 K. OG 14 K
ALLAR TEGUNDIR
VERÐ FRÁ
KR. 234,00
GULLSMIÐIR
i SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 15. júní 1982
63. tölublað
Slökkvilið Blönduóss:
Ekkert útkall
í rösklega ár
Frá 7. desember 1980 til 6. mars
1982 var slökkvilið Blönduóss
aldrei kallað út vegna elds.
Þorleifur Arason, slökkviliðs-
stjóri, sagði að á hverjum bæ á
svæði Brunavarna Austur-
Húnavatnssýslu væru til hand-
slökkvitæki og reykskynjarar.
„Það er margsannað mál, að
þessi tæki hafa komið í veg fyrir
stórtjón,“ sagði Þorleifur í
samtali við blaðið.
Fyrir nokkrum árum gekkst
björgunarsveit Slysavarnarfélags-
ins Blöndu fyrir dreifingu á
handslökkvitækjum og reyk-
skynjurum á svæði Brunavarn-
anna. Þorleifur sagði, að tækin
væru hlaðin á slökkviliðsstöðinni
á Blönduósi. „Ég ræð það af við-
tölum við fólk, að tækin séu búin
að koma í veg fyrir óhemju mikið
tjón. í>að er ljóst, að slökkviliðið
á Blönduósi hefði oft verið kallað
út á undanförnum mánuðum, ef
þau hefðu ekki verið til staðar,“
sagði Þorleifur.
Þorleifur var fastráðinn
slökkviliðsstjóri í nóvember á sl.
ári. Umsvif þess embættis hafa
aukist mikið á síðustu árum, en
Þorleifur gegnir m.a. brunavörslu
á flugvellinum, annast eldvarna-
eftirlit í fyrirtækjum, og hann
sagðist hafa í hyggju að feta í fót-
spor félaga í björgunarsveitinni
og fara á sveitabæi. Áður en Þor-
leifur var ráðinn slökkviliðsstjóri,
gegndi hann því starfi með öðru.
Þess má geta, að þann 15. apríl
sl. var tekið upp neyðarnúmer á
Blönduósi. Númer þetta er 4111
og er eingöngu ætlað til notkunar,
ef um neyðartilfelli er að ræða.
Með því að hringja í þetta númer,
er hægt að kalla út slökkvilið,
sjúkrabíl eða lögreglu.
Verkföll
á föstudag?
Meistarar og sveinar í bygging-
ariðnaði hafa samið og sátta-
semjari er búinn að kalla samn-
inganefndir ASÍ og VSÍ á fund.
Jón Helgason, formaður Ein-
ingar, sagði að á þessu stigi væri
ómögulegt um það að segja,
hvort umræddur samningur
létti róðurinn fyrir ASÍ og VSÍ.
„Ef þessi samningur er eitthvað
svipaður þeim sem reifaður var
um daginn milli meistara og
sveina þá er ég ekki viss um, að
hann auðveldi okkur starfið.
Vinnuveitendur voru ekki til-
búnir til að ræða við okkur á
þeim nótum um daginn, þóttu
þær of háar.“
Jón sagði, að hátt í þrjú þúsund
manns á félagssvæði Einingar
myndu leggja niður vinnu nk.
föstudag, ef samningar hefðu ekki
tekist fyrir þann tíma. Félagar í
Iðju og Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks munu einnig leggja
niður vinnu. Með öðrum orðum
mun allt athafnalíf lamast við
Eyjafjörð frá og með nk. föstu-
degi.
A verkaiýðsskrifstofu Húsavík-
ur fengust þær upplýsingar, að á
föstudag myndi ganga í gildi yfir-
vinnubann og hafnarvinnubann.
Athafnalíf í Þingeyjarsýslu mun
því ganga sinn vanagang að mestu
leyti. Starfsemi Kaupfélags Sval-
barðseyrar mun stöðvast, nema
hvað útibú þess á Fosshóli verður
opið þar sem starfsmenn þess eru
í Verslunarmannafélagi Húsavík-
ur.
Það kom fram í viðtölum við
félaga verkalýðsfélaga á Akur-
eyri, að þeir eru óánægðir yfir því,
að verkalýðsfélög í Þingeyjar-
sýslu og víðar skuli ekki grípa til
sams konar aðgerða og þeir.
%
Séð yfir Sauðárkrókshöfn.
dýptar.
Örin bendir á þann hluta viðlegukantsins, sem ekki nýtist togurunum sökum ónógrar
(Mynd: KGA.)
Sauðárkrókshöf n:
Stöðug barátta við Ægi
„Höfnin er alls ekki nógu góð,
eins og hún er núna,“ sagði
Steingrímur Aðalsteinsson,
hafnarstjóri á Sauðárkróki, er
hann var inntur eftir hafnar-
málum á staðnum. „Höfnin er
ekki nógu djúp, og einnig er
mikill órói í henni - þegar er
norðan vitlaust veður, þeytast
skipin þetta 4-5 metra í bönd-
unum, en þá er erfitt fyrir menn
að vinna um borð.“
Fyrir um það bil mánuði hafði
rússneskt flutningaskip áætlað að
koma til hafnar á Sauðárkróki, en
varð frá að hverfa vegna þess að
það risti of djúpt. „Á stórstraums-
fjöru er dýpið hérna 17 fet,“ sagði
Steingrímur, „en þetta rússneska
skip, til dæmis, risti 21 fet.“ Árið
1980 var höfnin dýpkuð í 6 metra,
en Steingrímur sagði, að það
hefði alls ekki verið nóg. „Ef vel á
að vera, þarf höfnin að vera 8
metra djúp og útilokað annað en
það verði gert, ef hér á að rísa
steinullarverksmiðja. Það berst
fram óhemju mikið magn af sandi
með ánum og inn í höfnina. Á
nokkru svæði hérna yst hefur
höfnin grynnst um þrjá metra,
sökum þessa sandburðar, á þeim
tveim árum frá því hún var
dýpkuð." Sandfangari er við
höfnina, það er að segja grjót-
garður til að koma í veg fyrir að
þessi sandframburður ánna berist
inn í höfnina. „En það sem þarf
að gera er að fá straum- og öldu-
mælingu í höfninni. Þá fáum við
að vita, hvort þessi garður er til
gagns og hvernig hann þarf að
vera. Hér er sífellt barist við Ægi
með því að lengja þennan garð.
Viðlegukanturinn í höfninni er
alls um 200 metra langur, en
innstu 80 metrarnir nýtast að engu
leyti fyrir togarana og stærri skip.
„Vegna þess, að stálið í kantinn
var keypt of stutt, og varð að
steypa ofan á það tveggja metra
háan vegg til að hægt yrði að reka
það nógu langt niður. Hérna innst
tókst ekki að reka það nógu
djúpt, og því verður aldrei hægt
að dýpka þar nægjanlega fyrir
stærri skip. Þetta eru forkastanleg
vinnubrögð,“ sagði Steingrímur.
Aðalfundurá Húsavíkog
hátíðarsamkoma á Laugum
..v._c_i:_i.r;ill __„í.i.: i_c_í*_. •_* i_
,Nei, yfirvofandi verkföll munu ekki koma í veg fyrir að þessir
fundir verði haldnir, þó þau skapi að sjálfsögðu töluverða erfið-
leika,“ sagði Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri sam-
starfsnefndar um afmælishald Samvinnuhreyfíngarinnar í sam-
tali við Dag um aðalfund SIS og hátíðarfund samvinnumanna að
Laugum í Reykjadal. í tilefni af 80 ára afmæli Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og 100 ára afmæli Kaupfélags Þingey-
inga var ákveðið að halda aðalfund SÍS á Húsavík, en venjulega
er hann haldinn í Bifröst í Borgarfírði.
Haukur sagði, að aðalfundur- hreyfingarinnar aðalmál fundar-
inn hæfist kl. 13 á Hótel Húsavík ins og sagði Haukur, að væntan-
nk. föstudag. Fundarmenn lega yrði hún afgreidd á fundin-
verða um 150 talsins. Að þessu um.
sinni er stefnuskrá Samvinnu- „Mikil undirbúningsvinna
hefur átt sér stað í sambandi við
þessa stefnuskrá, sem verður sú
fyrsta, sem Samvinnuhreyfingin
hefur nokkru sinni átt. Það er
því vel við hæfi á 100 ára afmæli
hreyfingarinnar, að hún eignist
stefnuskrá sem þessa. Þau drög,
sem lögð verða fyrir aðalfund-
inn, eru vel unnin, enda hafa
þúsundir samvinnumanna átt
hlut að máli,“ sagði Haukur.
Sunnudaginn 20. júní verður
hátíðarsamkoma á Laugum í
Reykjadal. Samkoman, sem
haldin er sameiginlega af Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga
og Kaupfélagi Þingeyinga, verð-
ur í íþróttahúsinu. Fundarstjóri
er Valur Arnþórsson, formaður
stjórnar Sambandsins. Forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
kemur og flytur ávarp og Finnur
Kristjánsson, formaður afmæl-
isnefndar, flytur ræðu. Á
samkomunni verður sýnt
leikrit um stofnun Kaupfélags
Þingeyinga. Það heitir „ísana
leysir" og er eftir Pál H.
Jónsson. Sigríður Ella Magnús-
dóttir syngur og Robert Davies,
fulltrúi Alþjóðasamvinnusam-
bandsins flytur ávarp. Erlendur
Einarsson flytur hátíðarræðu
dagsins og Kirkjukórasamband
S.-Þingeyjarsýslu syngur. Á
undan hátíðinni leikur Lúðra-
sveit Húsavíkur undir stjórn Sig-
urðar Hallmarssonar.
„Þessi samkoma hefst kl. 15 á
sunnudag og ég hvet fólk ein-
dregið til að koma,“ sagði Hauk-
ur að lokum.