Dagur - 15.06.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM,: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Krafaum fríð
Krafan um afvopnun og frið gerist nú æ hávær-
ari. Um helgina efndu fjölmörg bandarísk sam-
tök til mótmælafundar gegn kjarnorkuvígbún-
aði í New York og talið er, að fundarmenn hafi
verið hátt í eina milljón, sem er það mesta sem
um getur í sögu borgarinnar. í síðustu viku var
annar mótmælafundur í Bonn og áður hefur
kjarnorkuvopnum verið mótmælt á mjög
fjölmennum fundum í London og Róm. Ýmsir
stjórnmálaskýrendur telja, að þessi hreyfing
muni hafa veruleg áhrif á stjórnmálamenn á
Vesturlöndum, en vara jafnframt við of mikilli
bjartsýni. Það ber líka að hafa í huga, að sam-
bærilegar friðarhreyfingar eru ekki leyfðar
austan járntjalds.
Hreyfing eins og sú, sem sprottið hefur upp
á Vesturlöndum er ekki ný undir sólinni. Það
eru aðeins 32 ár síðan fréttir bárust af ráð-
stefnu í Stokkhólmi, en þar var eftirfarandi
ávarp samþykkt: □ Vér heimtum skilyrðis-
laust bann við kjarnorkuvopnum, vopnum til
að skelfa og myrða með friðsaman almúga. □
Vér heimtum að komið sé á ströngu alþjóðlegu
eftirliti til tryggingar því, að þessu banni sé
framfylgt. □ Vér lítum svo á, að hver sú ríkis-
stjórn, sem fyrst beitir kjarnorkuvopnum gegn
hvaða þjóð sem er, fremji brot gegn mannkyn-
inu og geri sig seka um stríðsglæpi. □ Vér heit-
um á alla góðviljaða menn hvarvetna um heim
að undirrita þetta ávarp.
Þetta ávarp er enn í fullu gildi og sorglegt til
þess að vita, að mannkynið er enn í sömu spor-
um og fyrir rúmum þremur áratugum. Ef eitt-
hvað er, þá er það statt nokkuð aftar. Vopna-
búr heimsins er orðið mun fullkomnara og
nógu stórt til að eyða heiminum nokkrum
sinnum. Kenningin um takmarkað kjarnorku-
stríð á sér ekki stoð í raunveruleikanum, en
enn eru til þeir menn, sem halda dauðahaldi í
hana.
íslendingar mega ekki láta sitt eftir liggja,
þegar rætt er um afvopnunarmál, þeim koma
þau við ekki síður en öðrum. Og þeir geta tekið
sér í munn orð Alberts Einsteins sem sagði
þegar hann ræddi um vetnissprengjur: „Vér
getum ekki hætt að vara menn við án afláts og
hvað eftir annað. Vér getum ekki slegið slöku
við tilraunir vorar að fá þjóðir heimsins og
framar öllu ríkisstjórnir þeirra til að gera sér
grein fyrir þeirri óumræðilegu ógæfu, sem þær
munu vissulega kalla yfir sig, ef þær breyta
ekki afstöðu sinni hver til annarrar og viðhorfi
sínu til framtíðarinnar. “
Nú er haldið annað afvopnunarþing Sam-
einuðu þjóðanna í New York og sækja það fjór-
ir íslenskir þingmenn. Sameinuðu þjóðirnar
virðast vera sá vettvangur, sem einna helst er
hægt að treysta á í sambandi við lausn á hern-
aðarkapphlaupi stórveldanha. En öflugt al-
menningsálit gegn kjarnorkukapphlaupinu
mun flýta fyrir jákvæðri niðurstöðu og þagga
niður raddir stríðsæsingamanna. Af þeirri
ástæðu meðal annars, verða íslendingar að
fylkja sér ákveðið í hóp þeirra þjóða, sem berj-
ast hvað harðast gegn hernaðarbrölti og vít-
isvélum. Áskell Þórisson
c4—'ÐAGliIR- -tS.: j únf ;1982
Eriingur Davíðsson:
Kveðja til KÞ
Atvikin höguðu því svo, að fyrir
fimmtíu árum dvaldi ég við nám
í héraðsskólanum að Laugum í
Reykjadal, og litlu síðar var ég
þar nokkur ár ráðsmaður eða
bryti, eins og það var nefnt. Var
starf mitt meðal annars í því
fólgið að sjá fjölmennasta heim-
ili héraðsins fyrir fæði og ýmsum
öðrum nauðsynjum, en í mötu-
neyti skólans voru á annað
hundrað manns. Mjólk og
mjólkurvörur keypti ég í ná-
grenninu, en aðrar vörur flestar
hjá Kaupfélagi Pingeyinga eða
KÞ á Húsavík.
Þegar ég hóf þarna starf, árið
1935, hvarf Sigurður Bjarklind,
maður þingeyskrar ættar, frá
kaupfélagsstjórastörfum á
Húsavík, en við tók næstu miss-
eri Karl Kristjánsson, síðar al-
þingismaður, en 1937 tók við
kaupfélagsstjórastörfum Aust-
firðingurinn Þórhallur Sig-
tryggsson og hafði þau á hendi til
ársins 1953. Kynntist ég þarna
ofurlítið þrem kaupfélagsstjór-
um KÞ og mörgum öðrum
starfsmönnum á skömmum tíma
og til viðbótar hafði ég dvalið
með þeim fjórða í Laugaskóla,
þar sem við vorum báðir við nám
og það var Finnur Kristjánsson
frá Halldórsstöðum í Kinn, er
tók við af Þórhalli og var samtals
kaupfélagsstjóri í fjóra áratugi,
fyrst hjá Kaupfélagi Svalbarðs-
strandar. Um sama leyti kynnt-
ist ég, og einnig í Laugaskóla,
þeim manninum sem síðar átti
eftir að verða stjórnarformaður
KÞ um langt árabil og er enn, en
það er Teitur B jörnsson, bóndi á
Brún í Reykjadal. Báðir voru
piltar þessir greindir vel, rólynd-
ir og rökvísir í besta lagi.
Við kaupfélagsstjórastarfi af
Finni Kristjánssyni tók Hreiðar
Karlsson frá Narfastöðum í
Reykjadal 1979. Hann var, þeg-
ar ég dvaldi meðal Þingeyinga,
enn í húfu Guðs. En foreldra
hans þekkti ég þess betur, hjón-
in Karl Jakobsson frá Narfastöð-
um og Herdísi Sigtryggsdóttur,
systur Björns á Brún.
Ég man það vel, að eitt sinn
veiktist ég og var fluttur á spítala
á Húsavík. Þangað flutti Karl
Jakobsson mig á vörubíl sínum.
Snjór var nokkur en færi gott.
Ekki held ég mér hafi verið hlát-
ur í hug á leiðinni. Þó vék alvara
lífsins frá mér, þegar ökumaður
allt í einu hélt á hinni löngu og
miklu gírstöng í hendi sér. Án
þess að stöðva bi'linn reyndi
hann að koma stönginni í sitt
fyrra far í bílgólfinu, en það
gekk illa. Bráðlega rann þó sú
óskastund upp, að það tókst.
Á Húsavíkurspítala heimsótti
mig nokkrum sinnum hinn
kunni samvinnufrömuður og
gáfumaður, Benedikt Jónsson
frá Auðnum í Laxárdal, þá
bókavörður á Húsavík, og bauð
mér góðar bækur, var einstak-
lega alúðlegur, vakandi og skor-
inorður. Þótt hann stæði stutt
við í hvert sinn, mátti búast við
snjöllum og bragðmiklum setn-
ingum í samræðum við hann.
Vel sé þessum aldna heiðurs-
manni fyrir hugulsemina.
Vegna dvalar minnar á fjöl-
mennum skólastað, Laugum, og
starfa minna, kynntist ég mörgu
fólki, kom á allmörg heimili og
eignaðist vini og kunningja.
Margir héraðsmenn áttu einnig
erindi að Laugum. Þar voru t.d.
margir fundir haldnir um hin
ýmsu félags- og menningarmál.
Auðvitað var það hin mesta til-
viljun, hverjum ég kynntist mest
og af þeim eru mér minnisstæðir
menn eins og Ketill á Fjalli í
Aðaldal, Þorgeir á Brúum í
sömu sveit, Jón Sigurðsson í
Ystafelli í Kinn, Kristján í
Fremstafelli, bróðir Jónasar frá
Hriflu, Baldur á Ófeigsstöðum
og Kristján á Halldórsstöðum,
allir í sömu sveit. í Reykjadaln-
um eru mér minnisstæðir Björn
Sigtryggsson á Brún, Jón Har-
aldsson á Einarsstöðum, skáld-
bóndinn Sigurjón Friðjónsson á
Litlu-Laugum og Guðmundur á
Sandi, bróðir hans, sem allir
kannast við og bjó í næstu sveit.
Þá komu oft að Laugum Þór-
Akureyrarbær:
Hverjir sitja í
nefndum?
Bæjarráð:
Aðalmenn: Sigurður Óli Brynjólfs-
son, Valgerður H. Bjarnadóttir,
Helgi Guðmundsson, Gunnar
Ragnars, Sigurður J. Sigurðsson.
Varamenn: Sigurður Jóhannesson,
Sigfríður Þorsteinsdóttir, Sigríður
Stefánsdóttir, Gísli Jónsson, Jón G.
Sólnes.
Hafnarstjóm:
Aðalmenn: Stefán Reykjalín,
Gunnlaugur Guðmundsson, Elín
Stephensen, Jón G. Sólnes, Vilhelm
Þorsteinsson.
Varamenn: Bjarni Jóhannesson,
Hilmir Helgason, Guðlaugur Ara-
son, Hjörtur Fjeldsted, Jónas Þor-
steinsson.
Rafveitustjórn:
Aðalmenn: Sigurður Jóhannesson,
Ragnhildur Bragadóttir, Gunnar
Helgason, Gunnlaugur Fr. Jóhanns-
son, Sigtryggur Þorbjörnsson
Varamenn: Ingvi R. Jóhannsson,
Svava Aradóttir, Jósef Sigurjóns-
son, Einar Bjarnason, Jóhannes
Kristjánsson.
Kjörstjórn:
(Gegni jafnframt starfi yfirkjör-
stjórnar við bæjarstjórnarkosninga).
Aðalmenn: Hallur Sigurbjörnsson,
Ásgeir Pétur Ásgeirsson, Sigurður
Ringsted.
Varamenn: Sólveig Gunnarsdóttir,
Bjarni Kristjánsson, Haraldur Sig-
urðsson.
Endurskoðendur bæjarreikninga:
Aðalmenn: Arngrímur Bjarnason,
Stefán Sigtryggsson.
Varamenn: Birgir B. Svavarsson,
Erling Einarsson.
Endurskoðendur Sparisjóðs Akur-
eyrar:
Aðalmenn: Gestur Ólafsson, Einar
Hafberg.
Varamenn: Jakob Björnsson, Ottó
Pálsson.
Kosning nefnda til 4ra ára:
Fuiltrúar á Fjórðungsþing Norð-
iendinga:
Bæjarstjóri sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, Helgi Guðmundsson, Gunn-
ar Ragnars, Stefán Stefánsson.
Varamenn:
Sigurður Óli Brynjólfsson, Valgerð-
ur H. Bjarnadóttir, Margrét Krist-
insdóttir, Bergljót Rafnar.
Launanefnd sveitafélaga:
Aðalmenn: Sigurður Jóhannesson,
Hólmfríður Jónsdóttir, Sigurður
Jóh. Sigurðsson.
Varamenn: Örn Gústafsson, Helgi
Guðmundsson, Sigurður Hannes-
son.
Markavörður:
Aðalmaður: Baldur Halldórsson.
Varamaður: Þórhallur Pétursson.
Bygginganefnd:
Aðalmenn: Gísli Magnússon, Sig-
fríður Þorsteinsdóttir, Helgi Guð-
mundsson, Margrét Kristinsdóttir,
Sigurður Hannesson.
Varamenn: Sigurður Jóhannesson,
Arnbjörg Þórðardóttir, Gunnar
Óskarsson, Halldór Rafnsson, Páll
Pálsson.
Félagsmálaráð:
Aðalmenn: IngimarEydal, Valgerð-
urH. Bjarnadóttir, Sigríður Stefáns-
dóttir, Bergljót Rafnar, Björn Jósef
Arnviðarsson.
Varamenn: Sólveig Gunnarsdóttir,
Ingþór Bjarnason, Soffía Guð-
mundsdóttir, Margrét Yngvadóttir,
Rut Ófeigsdóttir.
Bókasafnsncfnd:
Aðalmenn: Tryggvi Gíslason, Val-
gerður Magnúsdóttir, Ingibjörg Jón-
asdóttir, Gísli Jónsson, Ólafur Sig-
urðsson.
Varamenn: Fjóla Gunnarsdóttir,
Áslaug Axelsdóttir, Geirlaug Sigur-
jónsdóttir, Guðmundur H. Frí-
mannsson, Guðlaug Sigurðardóttir.
Leikhúsnefnd:
Leikfélag Akureyrar tilnefnir 1
mann í nefndina, húsameistari
bæjarins sjálfkjörinn.
Aðalmaður: Svanur Eiríksson
Varamaður: Kristjana Jónsdóttir
Æskulýðsráð:
3 aðalmenn og 3 til vara. Auk þeirra
eiga í ráðinu sæti 4 menn tilnefndir af
félagasamtökum.
Aðalmenn: Snorri Finnlaugsson,
Elín Antonsdóttir, Bjarni Árnason
Varamenn: Jóhann K. Sigurðsson,
Unnur Pálsdóttir, Margrét Yngva-
dóttir
Skóiancfnd:
Aðalmenn: Sigfríður Angantýsdótt-
ir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Sigrún
Sveinbjörnsdóttir, Nanna Þórsdótt-
ir, Þórunn Sigurbjörnsdóttir
Varamenn: Steinunn Sigurðardóttir,
Kristín Aðalsteinsdóttir, Helga
Frímannsdóttir, Guðmundur H.
Frímannsson, Rafn Hjaltalín
Vatnsveitustjórn:
Aðalmenn: Ingvar Baldursson,
Freyr Ófeigsson, Nanna Mjöll Atla-
dóttir, Aðalgeir Finnsson, Jónas
Þorsteinsson
Varamenn: Karl Steingrímsson,
Hákon Eiríksson, Björk Guð-
mundsdóttir, Róbert Árnason,
Baldvin Ásgeirsson
Sjukrasamlagsstjórn:
Ráðherra skipar formann til viðbót-
ar.
Aðalmenn: Sigfríður Ólafsdóttir,
Aldís Lárusdóttir, Magnús
Björnsson, Guðfinna Thorlacius
Varamenn: Kolbrún Guðveigsdótt-
ir, Þóranna Þórðardóttir, Jón Viðar
Guðlaugsson, Óli D. Friðbjörnsson
Sjúkrahússtjórn:
2 tilnefndir af starfsmannaráði
F.S.A.
Aðalmenn: Jón Sigurðarson, Konný
Kristjánsdóttir, Gunnar Ragnars
Varamenn: Jón S. Arnþórsson,
Gunnhildur Bragadóttir, Ingi Þór
Jóhannsson
Iðnskóianefnd:
Ráðherra skipar formann til viðbót-
ar.
Aðalmenn: Ingimar Friðfinnsson,
Áslaug Axelsdóttir, Stefán Hall-