Dagur - 15.06.1982, Síða 5
ólfur í Baldursheimi, Sigurður á
Arnarvatni, Jón Gauti Péturs-
son á Gautlöndum og Pétur í
Reykjahlíð. í Bárðardalnum
kynntist ég fólki í Víðikeri, á
Bjarnastöðum og Kálfborgará
svo að dæmi séu tekin af merk-
um heimilum.
En hin volduga hreyfing, sem
kallaði fólk til dáðríkra starfa
um land allt á síðustu áratugum
liðinnar aldar og á nú 40 þúsund
skráða félaga, snart vöggu þess
fólks, er hér var nefnt og þá
kynslóð alla.
Allar búa sveitir Þingeyjar-
sýslu yfir fjölbreyttri náttúrufeg-
urð, hver með sínum hætti og er
auðvelt að njóta hennar, þegar
blítt lætur, hvort heldur sem er
út við sjó eða inn til dala. En
Laxárdalinn hlýt ég að nefna
sérstaklega, því að hann hreif
mig mest. Heilladísir dalsins
hafa lílega gefið mér næmleika
til að nema töfra hans. Þar er hin
fagra Laxá, blómstóð í hólmum,
hrauntungur, vallgrónir bakkar
og fuglafjöld. Algrónar heiðar
rísa upp af dalbotninum. Á þeim
tíma, sem ég dvaldi meðal Þing-
eyinga, bjó glæsimennið Hall-
grímur Porbergsson á Halldórs-
stöðum í Laxárdal og rak allan
drunga ýt í hafsauga og lengra,
ef hægt var. Á sömu jörð bjó
söngkonan Elísabet Þórarinsson
eða Lissy, skoskættuð kona,
sem ung flutti í dalinn með
manni sínum og átti ást og hrifn-
ingu sveitunga sinna og sýslunga
í svo ríkum mæli, að sumir töldu
hana vart af þessum heimi. Á
sama bæ voru fram að þeim tíma
reknar á Halldórsstöðum tó-
vinnuvélar Magnúsar Þórarins-
sonar í 38 ár, og var það stórt
skref stigið í ullariðnðinum. Á
næsta bæ, Þverá, bjó Jónas
Snorrason, hreppstjóri Reyk-
dælahrepps. í baðstofunni á
þeim bæ var elsta kaupfélag
landsins stofnað fyrir einni öld.
Er þess nú minnst með margvís-
legum hætti á hinu merka afmæl-
isári.
Stofnendur höfðu víðan
sjóndeildarhring og áttu nægj-
anlegt hugrekki til að takast á
við rótgróið verslunarvald í hér-
aðinu. Þeir brutust móti
straumnum, sem á þessum
árum, hörðum og vonlitlum, lá
vestur um haf. Miskunnarlaust
harðæri í veðurfari, verslunar-
ánauð, menntunarskortur,
vöntun á samvinnu, erlend
stjórn og landflótti efldu hina
bjartsýnu samvinnumenn, sem
komu saman á Þverá í Laxárdal
20. febrúar 1882 og voru svo-
hamingjusamir, að samvinnu-
hreyfingin festi rætur í félagi
þeirra.
Þegar ég læt hugann reika til
þeirra ára, er ég dvaldi með
Þingeyingum og meðan ég rita
þetta, koma mér í hug orð og
atvik um þau mál. Nær undan-
tekningarlaust var samvinnu-
hreyfingunni treyst til mikilla og
góðra verka, mönnum var mjög
annt um kaupfélag sitt, Kaupfé-
lag Þingeyinga á Húsavík. Það
var sem það væri kaupfélag
hvers og eins, og svo sterk ítök
átti það í hugum fólks, að mér
virtist félag sem það og í þess að-
stöðu geta gert kraftaverk á
hvaða sviði sem var. Aðrar
raddir um samvinnumál heyrði
ég, en þær voru fáar og virtust
hjáróma, líklega vegna þess hve
fáar þær voru.
Undanfari stofnunar Kaup-
félags Þingeyinga voru nokkur
eldri félög, sem urðu skammlíf,
en létu eftir sig reynslu. Þau
fengust öll við verslunarmál og
voru meðal annars, Félagsversl-
unin við Húnaflóa, Gránufélag-
ið, ennfremur félag bænda í
Hálshreppi og Ljósavatns-
hreppi.
Áldarafmælis Kaupfélags
Þingeyinga var minnst í vetur og
nú á afmælisárinu minnast sam-
vinnumenn þess eftir fáa daga,
hvar vagga samvinnuhreyfingar-
innar stóð, en þá verður tveggja
daga aðalfundur Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga haldinn
á Húsavík og síðan samvinnu-
hátíð að Laugum í Reykjadal í
tilefni hins merka afmælis og 80
ára afmælis Sambandsins, sem
stofnað var í Ystafelli í sama
héraði 1902.
Markmið fyrsta kaupfélagsins
og síðan annarra var í stórum
dráttum hið sama og eyfirskir
samvinnumenn færðu í letur og
samþykktu á fundi á Öngulstöð-
um á einu fyrsta ári samvinnu-
hreyfingarinnar og hljóðaði
meðal annars á þessa leið:
Að útvega félagsmönnum
góðar vörur og ná hagfelldum
kaupum á þeim.
Að efla vöruvöndun og koma
innlendum vörum í sem hæst
verð.
Að sporna við skuldasöfnun
og óreiðu í viðskiptum.
Að safna fé í sjóði til trygging-
ar fyrir framtíð félagsins.
Öll eru þessi atriði enn í fullu
gildi og sígild, þótt starfsgreinar
margra félaga spanni nú yfir
mörg önnur svið en verslun. Nú
eru 40 þúsund manns í íslensku
samvinnufélögunum, sem starfa
um land allt, frjáls og óháð,
hvert í sínu byggðarlagi. Að
baki þeirra er ótrúlegt afl og
framkvæmdamáttur. Samvinnu-
hreyfingin er án efa öflugasta
félagsmálahreyfingin hér á landi
fyrr og síðar.
Kaupfélög landsins eru stofn-
uð til þess að þjóna hagsmunum
fólksins, sem stofnaði þau og
starfar í þeim, fyrst og fremst
með bættri verslun, en verkefn-
um fjölgar. Samvinnufólk kýs að
fela samtökum sínum fram-
kvæmd þeirra verkefna, sem
einstaklingar ráða ekki við.
Lýðræði er eitt af leiðarljós-
um samvinnustefnunnar. Innan
samvinnufélaga eiga ríkir menn
og fátækir jafnan atkvæðisrétt í
öllum málum. Félagsfólkið kýs
sér fulltrúa og stjórn og árs-
reikningar eru opinberir. Eignir
samvinnufélaga, fastar og laus-
ar, eru staðbundnar, samkvæmt
lögum. Verðmætin, sem við
samvinnustarf skapast verða
ekki flutt úr héraði. Samvinnu-
félög eru ekki byggð upp sjálfra
sín vegna, heldur vegna fólksins
og fyrir það. Þess vegna eru þau
óskyld auðhringum.
Áður en ég lýk þessum orðum
leyfi ég mér að fullyrða, að engin
félagsmálahreyfing hefur bætt
lífskjör almennings hér á landi
eins mikið og samvinnuhreyf-
ingin. Mætti ég einnig minna á,
að Sameinuðu þjóðirnar hafa
staðnæmst við úrræði samvinnu-
stefnunnar í leit sinni að áhrifa-
miklum leiðum til hjálpar bág-
stöddum þjóðum. Þau úrræði
hafa reynst öðrum aðgerðum
varanlegri. Og enn vil ég minna
á orð dr. Halldórs Pálssonar,
fyrrverandi búnaðarmálastjóra
og gera að mínum. Hann sagði:
„Allt frá því ég man eftir mér
hefur fyrsta skilyrðið til að
byggðarlag blómstraði, verið
það, að kaupfélag fólksins væri
öflugt. Þetta hefur hvarvetna,
þar sem ég þekki til, fylgst að. Sé
kaupfélag byggðarinnar ekki í
lagi, er afkoma fólksins og bjart-
sýni það ekki heldur."
Megi hið aldna kaupfélag og
önnur samvinnufélög ávallt eiga
einarða og glögga gagnrýnendur
og búa við örvandi samkeppni.
Megi þau ætíð njóta víðsýnis og
djarfhuga forystumanna, á borð
við þá menn, sem stofnuðu elsta
kaupfélag landsins í baðstofunni
á Þverá í Laxárdal fyrir hundrað
árum.
Með samvinnukveðju frá
Eyjafirði,
Erlingur Davíðsson
grímsson, Birgir Marinósson
Varamenn: Stefán Jónsson, Jón Þor-
steinsson, Jónas Bjarnason, Pétur
Torfason
Krossanesstjórn:
Bæjarstjóri sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Valur Arnþórsson,
Hilmir Helgason, Franz Árnason,
Leó Sigurðsson
Varamenn: Jón E. Aspar, Kristján
Hannesson, Gísli Bragi Hjartarson,
Friðrik Þorvaldsson
Fulltrúar á iandsþing Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga:
Bæjarstjóri sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Sigurður Jóhannesson,
Sigfríður Þorsteinsdóttir, Sigurður
J. Sigurðsson, Freyr Ófeigsson
Varamenn: Sigfríður Angantýsdótt-
ir, Helgi Guðmundsson, Sigurður
Hannesson, Jórunn Sæmundsdóttir
Fjallskilastjórn:
Aðalmenn: BaldurHalldórsson, Ás-
geir Halldórsson, Kristbjörg Gests-
dóttir, Víkingur Guðmundsson,
Sverrir Hermannsson
Varamenn: Árni Magnússon, Háa-
lundi 2, Haukur Gíslason, Helga
Eiðsdóttir, Jónas Ellertsson, Áshlíð
17, Sigurður Gestsson
Iþróttaráð:
Formaður Í.B.A. sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Gísli Lórenzson, Hreið-
ar Jónsson, Páll Stefánsson, Einar
Pálmi Árnason
Varamenn: Svavar Ottesen, Sig-
ríður Haraldsdóttir, Hermann Har-
aldssson, Bergljót Rafnar
Framtalsnefnd:
Aðalmenn: Hallur Sigurbjörnsson,
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Björg
Guðmundsdóttir, Gísli Jónsson,
Sveinbjörn Vigfússon
Varamenn: Laufey Pálmadóttir,
Sólvéig Gunnarsdóttir, Reynir
Helgason, Óli D. Friðbjörnsson, Jón
Bjarnason
Leikvallancfnd:
Bæjarverkfræðingur sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Sigrún Höskuldsdóttir,
Halldóra Haraldsdóttir, Hrefna
Jakobsdóttir, Hulda Eggertsdóttir
Varamenn: Valgerður Bragadóttir,
Odda M. Júlíusdóttir, Sólveig Guð-
bjartsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir
Hússtjórnarskólancfnd:
Hússtjórnarfélagið tilnefnir 2 nefnd-
armenn og ráðherra skipar formann
til viðbótar.
Aðalmenn: Sigríður Jóhannesdóttir,
Guðný Pálsdóttir
Varamenn: Gunnhildur Þórhalls-
dóttir, Soffía Ófeigsdóttir
Náttúrugripasafnsnefnd:
Aðalmenn: Árni Jóhannesson, Elín
Stefánsdóttir, Rafn Kjartansson
Varamenn: Jóhann Sigurjónsson,
Minnie Eggertsdóttir, Jón Sigur-
jónsson
Náttúruverndarnefnd:
Bæjarstjórn kýs formann úr hópi
nefndarmanna.
Aðalmenn: Pétur Brynjólfsson,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Erlingur
Sigurðarson, Gunnar Arason, Lilja
Hallgrímsdóttir
Varamenn: Kristján Rögnvaldsson,
Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Áslaug
Magnúsdóttir, Aðalstr. 14, Þorgerð-
ur Hauksdóttir, Pétur Gunnlaugsson
Ein tilnefning kom fram við kjör
formanns: Erlingur Sigurðarson.
Lýsti forseti hann réttkjörinn.
Skipulagsnefnd:
Aðalmenn: Jónas Karlesson, Sig-
urður Jóhannesson, Sigfríður Þor-
steinsdóttir, Sigurður J. Sigurðsson,
Tryggvi Pálsson
Varamenn: Aðalgeir Pálsson,
Brynjar I. Skaptason, Lára Elling-
sen, Björn Jósef Arnviðarson,
Margrét Kristinsdóttir
Heilbrigðisnefnd:
Bæjarstjórn kýs formann úr hópi
nefndarmanna.
Aðalmenn: Jóhannes Sigvaldason,
Snjólaug Aðalsteinsdóttir, Gunn-
hildur Bragadóttir, Eiríkur Sveins-
son, Karólína Guðmundsdóttir
Varamenn: Eva Pétursdóttir, Mar-
grét Emilsdóttir, Helga Eiðsdóttir,
Erna Pétursdóttir, Borghildur
Blöndal
Ein tilnefning kom fram við kjör
formanns: Jóhannes Sigvaldason
Umferðarnefnd:
Bílstjórafélag Akureyrar tilnefnir 1
mann. Lögreglustjóri sjálfkjörinn,
bæjarverkfræðingur sjálfkjörinn.
Aðalmenn: Þóroddur Jóhannsson,
Gísli Ólafsson
Varamenn: Árni V. Friðriksson,
Sveinbjörn Guðmundsson
Stjóm verkamannabústaða:
Aðalmenn: Þóra Hjaltadóttir, Þor-
gerður Hauksdóttir, Sigurður Hann-
esson
Varamenn: Björn Snæbjörnsson,
Jóhanna Júlíusdóttir, Óli D. Frið-
björnsson
Dvalarheimilastjórn Akureyrar:
Aðalmenn: Auður Þórhallsdóttir,
Svava Aradóttir, Annetta B. Jensen,
Freyja Jónsdóttir, Sigurður Hannes-
son
Varamenn: Heiðdís Norðfjörð,
Ragnhildur Bragadóttir, Geirlaug
Sigurjónsdóttir, Guðfinna Thorla-
cius, Birna Eiríksdóttir
Stjóm eftirlaunasjóðs:
S.T.A.K. tilnefnir 2 menn, bæjar-
stjóri er sjálfkjörinn formaður.
Aðalmenn: Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, Jón G. Sólnes
Varamenn: Þóra Hjaltadóttir,
Gunnar Ragnars
Jarðeignanefnd:
Sjálfkjörnir í nefndina eru lóða-
skrárritari, umsjónarmaður jarð-
eigna og bæjarverkfræðingur.
Aðalmenn: Ólafur Ásgeirsson, Vik-
ingur Guðmundsson
Varamenn: Ingvi Ólason, Stefán
Bjarnason
Forðagæslumaður:
Aðalmaður: Þórhallur Pétursson
Varamaður: Árni Magnússon, Háa-
lundi 2
Áfengisvarnamefnd:
Ráðherra skipar formann.
Aðalmenn: Ásta Sigurðardóttir,
Valgerður Jónsdóttir, Arnfinnur
Arnfinnsson, Magnús Jónsson, Lýð-
ur Bogason, Stefán Snælaugur
Varamenn: Jón Kristinsson, Guð-
finna Gunnarsdóttir, Gunnar Helga-
son, Jón Viðar Guðlaugsson, Jón
Oddgeir Guðmundsson, Anna Berg-
þórsdóttir
Atvinnumálanefnd:
Aðalmenn: Jón Sigurðarson, Val-
gerður Bjarnadóttir, Páll Hlöðves-
son, Gunnar Ragnars, Jón G. Sólnes
Varamenn: Hákon Hákonarson,
Jófríður Traustadóttir, Kristín
Hjálmarsdóttir, Aðalgeir Finnsson,
Valdemar Baldvinsson
Stjórn strætisvagna
Aðalmenn: Jóhannes Sigvaldason,
Jóhann Sigurðsson, Ragnheiður
Benediktsdóttir, Ingi Þór Jóhanns-
son, Hólmsteinn Hólmsteinsson
Varamenn: Pálmi Sigurðsson, Ás-
geir Arngrímsson, Helgi Már Barða-
son, Steindór Steindórsson, Gísli
Jónsson, Kolgerði 2
Stjórn Veiðifélags Eyjafjarðarár:
Aðalmaður: Karl Jörundsson
Varamaður: Jóhann Sigurðsson,
Stórholti 6
Fulltrúar Brunabótafélags íslands:
Aðalmaður: Stefán Reykjalín
Varamaður: Pétur Valdimarsson
Fulltrúar á aðalfund Minjasafnsins:
Aðalmenn: Erlingur Davíðsson,
Ragnhildur Jónsdóttir, Kristín
Helgadóttir, Hrefna Jóhannesdóttir,
Höskuldur Stefánsson, Gísli
Jónsson, Fríða Sæmundsdóttir,
Margrét Hallgrímsdóttir, Steindór
Steindórsson
Varamenn: Björn Þórðarson, Þor-
steinn Davíðsson, Ragna Eysteins-
dóttir, Þóranna Þórðardóttir, Jó-
hannes Hermundarson, Sverrir Her-
mannsson, Þóra Sigfúsdóttir, Ragn-
heiður Valgarðsdóttir, Jónas Stef-
ánsson
Hitaveitustjórn:
Aðalmenn: Hákon Hákonarson,
Pétur Pálmason, Brynjar I. Skapta-
son, Sigurður J. Sigurðsson, Einar
Tjörvi Elíasson
Varamenn: Sigurður Óli Brynjólfs-
son, Örn Gústafsson, Páll Hlöðves-
son, Ingi Þór Jóhannsson, Hjörtur
Fjeldsted
Stjórn Sparisjóðs Akureyrar:
Aðalmenn: Gísli Konráðsson, Jón
Kr. Sólnes
Varamenn: Páll H. Jónsson, Júlíus
Snorrason
Stjóm húsfriðunarsjóðs:
1 tilnefndur af Minjasafninu á Akur-
eyri.
Aðalmenn: Sigfríður Þorsteinsdótt-
ir, Gísli Jónsson
Varamenn: Helgi Guðmundsson,
Haraldur Sigurðsson
Skrúðgarða- og vinnuskólanefnd:
Fegrunarfélagið tilnefnir 1 mann og
Garðyrkjufélag Akureyrar tilnefnir
1 roann.
Aðalmenn: Hallgrímur Indriðason,
Ingibjörg Auðunsdóttir, Margrét
Kristinsdóttir
Varamenn: Þorgerður Guðmunds-
dóttir, Torfhildur Stefánsdóttir, Páll
A. Pálsson
Stjórn Heilsuverndarstöðvar:
Sjúkrasamlag Akureyrar skipar 1
mann og ráðherra skipar 1 mann og
skal hann vera formaður stjórnar-
innar.
Aðalmaður: Kristín Aðalsteinsdótt-
ir
Varamaður: Annette B. Jensen
Minjasafnsstjórn:
Aðalmenn: Páll Helgason, Jónína
Marteinsdóttir, Haraldur Sigurðs-
son
Varamenn: Árni Jóhannesson,
Hrefna Jóhannesdóttir, Haraldur
Sigurgeirsson
Menningarsjóðsstjórn:
Forseti bæjarstjórnar sjálfkjörinn
formaður.
Aðalmenn: Tryggvi Gíslason, Rósa
Júlíusdóttir, Kristinn G. Jóhanns-
son, Þorvaldur Jónsson
Varamenn: Hermann Sveinbjörns-
son, Soffía Guðmundsdóttir, Rut
Hansen, Freyr Ófeigsson
• 15.' júní 1982 - DAGUR - 5