Dagur - 15.06.1982, Blaðsíða 9
i
Hvernig
ferá
Spáni?
Dagur, Sporthúsið á Akureyri
og Adidas hafa ákveðið að
gangast fyrir getraun í sam-
bandi við Heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu sem
stendur yfir á Spáni þessa dag-
ana.
í blaðinu í dag og í næsta Helg-
arblaði sem kemur út n.k. föstu-
dag birtast getraunaseðlar, og er
leikurinn í því fólginn að fylla þá
út og segja til um hvaða lið koma
til með að leika til úrslita í
Heimsmeistarakeppninni og
hvernig þeirri viðureign lýkur.
Sporthúsið á Akureyri gefur
vegleg verðlaun til þess sem
spáir rétt til um úrslit loka- •
leiksins, og eru verðlaunin út-
tekt á Adidasvörum fyrir 1000
krónur. Ef fleiri en einn segja
rétt til um úrslitin á HM verður
dregið úr vinningsseðlum.
Lausnir þurfa að hafa borist
ritstjórn Dags fyrir 25. júní,
merktar „HM-getraun 1982.“
HM-GETRAUN
Þau lið sem leika til
úrslita eru:
Úrslit: ..................
Nafn: ....................
Heimili: .................
Sími: .....................
adidas w
Sporthúyd
Stórsigrar
hjá strákunum
Á sunnudaginn fóru yngri flokk-
ar KA til Sauðárkróks og léku í
íslandsmótinu. Að sögn Eiðs
Eiðssonar fararstjóra KA-strák-
anna, voru þetta góðir leikir og
KA sigraði í öllum flokkum
nokkuð auðveldlega.
í fimmta flokki sigruðu þeir
með sex mörkum gegn einu, í
fjórða tvö gegn einu og í þriðja
flokki varð sigurinn stærstur en
þar sigraði KA með átta mörk-
um gegn einu.
Vaskur tapaði
Á sunnudagskvöldið fór fram
einn leikur í fjórðu deildinni. Þá
léku saman Leiftur frá Ólafsfirði
og Va.skur frá Akureyri. Vaskur
skoraði fyrsta markið í leiknum
en Leiftur jafnaði í fyrri hálfleik.
í þeim sfðari bættu Leifturs-
menn þremur mörkum við án
þess að Vaski tækist að skora.
Leiftur sigraði því örugglega
með fjórum mörkum gegn einu.
Þriðja deildin
Á föstudagskvöldið léku HSf* og
Árroðinn í þriðju deildinni.
HSÞ sigraði í sæmilegum leik
með tveimur mörkum gegn
einu. Þá léku á Grenivík á laug-
ardaginn Magni og Austri. Eftir
að staðan hafði verið núll-núll í
hálfleik skóruðu báðir aðilar sitt
markið hvor í þeim síðari og
lauk leiknum með jafntefli.
Staðaní
1. deild
Að loknum fimm umferðum í
fyrstu deild er staðan mjög jöfn.
KA er eina liðið sem ekki hefur
tapað leik en hafa hins vegar
gert flest jafnteflin og aðeins
unnið einn leik. Stigataflan er
því svona.
1. UBK
2. Víkingur
3. KA
4. ÍBV
5. ÍBÍ
6. Valur
7. KR
8. Fram
9. ÍA
10. ÍBK
stig:
7
6
6
5
5
5
5
4
4
3
Besta tækifæri KA-manna í lyrri hálfleik. Ásbjöm Bjömsson á skot að marki Keflvíkinga úr þröngri aðstöðu.
Þorsteinn markvörður varði með tilþrifum
Mynd: K.G.A.
Enn eitt jafntefli
KA í 1. deildinni
Það var fátt, sem gladdi augu
áhorfenda sem mættu á leik
KA og ÍBK á föstudagskvöld-
ið. Eftir mjög góða byrjun í
mótinu hjá KA-mönnum áttu
flestir von á því, að Keflvík-
ingar yrðu þeim auðveld bráð.
Það fór hins vegar ekki svo,
því að þrátt fyrir það, að
íeiknum lyki með markalausu
jafntefli, voru Keflvíkingar
betri aðilinn í leiknum, þegar
á heildina er litið.
Þetta er fjórða jafntefli KA í
fimmleikjumogj afnframt þriðj i
leikurinn, sem endar án þess að
mark sé skorað.
Þegar litið er í minnisbókina
frá leiknum, eru bókuð þrjú
horn hjá hvoru félagi fyrsta hálf-
tíma leiksins. Á 32. mín. kom
besta marktækifæri leiksins. Þá.
myndaðist mikil þvaga við
Keflavíkurmarkið og Ásbjörn
náði að pota í boltann, en Þor-
steinn í marki Keflvíkinga varði
með tilþrifum. Það sem eftir var
hálfleiksins var steindautt og að-
eins bókaðar nokkrar horn-
spyrnur. Keflavík sótti mun
meira fyrsta hálftímann, en KA
hins vegar síðustu 15 mín. hálf-
leiksins. Menn bjuggust nú við,
að KA myndi ná yfirhöndinni,
þegar til síðari hálfleiks kom, en
allt kom fyrir ekki, Keflavík
sótti heldur meira og þau mark-
tækifæri, sem sköpuðust í síðari
hálfleik voru flest við KA-
markið. Á 23. mín. var skallað
að KA-markinu, en boltinn
hafnaði í stöng og þaðan í hend-
ur Aðalsteins markmanns, sem
náði að slá boltann út, en síðan
var bjargað í horn. Nokkrum
mín. síðar varði Aðalsteinn
hörkuskot frá Ólafi Júlíussyni.
Það var vörn KA, sem kom
best frá þessum Ieik, þ.e.a.s.
Guðjón, Haraldur, Erlingur,
Eyjólfur og Aðalsteinn. Hjá
Keflavík voru þeir Ólafur Júl-
íusson og Sigurður Björgvinsson
bestir, en Þorsteinn Bjarnason
varði auðveldlega þau fáu skot,
sem að marki hans komu.
„Dómaratríóið“ var frá Akur-
eyri, Rafn, Þóroddur og Kjartan
og áttu þeir mjög góðan dag.
Þórsarar
máttu
þakka fyrir
Öm skoraði fyrír Þór.
Stúlkurnar skoramikið
Þótt knattspyrnumönnum okkar
gangi illa að gera mörk, þá var
því ekki eins komið hjá stúlkun-
um nú um helgina. Á laugardag-
inn léku í annarri deild kvenna
Þór og Keflavík. Þórsstúlkurnar
unnu stórsigur skoruðu sjö mörk
gegn engu. Þarna var um algjör-
lega yfirburði Þórsstúlknanna
að ræða eins og markatölur bera
með sér. Mörkin gerðu Anna
Einarsdóttir3, Inga Pálsdóttir2,
Laufey Pálsdóttirl og Sigurlína
Jónsdóttir 1.
Á sunnudaginn léku síðan
KA stúlkurnar við stöllur sínar
úr Keflavík í sama móti. KA
stúlkurnar bættu um betur því
þær skoruðu tíu mörk gegn
engu. Eins og í fyrri leiknum var
þarna um yfirburði að ræða,
enda munu keflvísku stúlkurnar
vera byrjendur í þessari íþrótta-
grein.
Mörk KA gerðu Sigrún
Sævarsdóttir 3, Hrefna Magnús-
dóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir
og Sóley Einarsdóttir 2 hvor og
Borghildur Freysdóttir 1.
Á laugardaginn léku í annarri
deild í knattspyrnu Þór og
Reynir frá Sandgerði. Leikið
var á malarvelli Þórs í norðan
strekkingi. Eins og leikur KA,
olli leikur Þórs vonbrigðum.
Þeir voru ekki eins frískir eins
og búast mætti við af þeim og
máttu þeir þakka fyrir að ná
jafntefli í leiknum. Hvort Iiðið
skoraði eitt mark.
Á 11. mín. kom fyrsta mark-
tækifærið. Gefin var saklaus
bolti utan af kanti að Þórsmark-
inu. Einn leikmanna Reynis
náði að skalla boltann og hann
stefndi í bláhornið en á síðustu
stundu náði Eiríkur að verja í
horn.
í fyrri hálfleik fengu Reynis-
menn samtals fimm hornspyrnur
en Þór enga, og sýnir það nokk-
uð sóknarþunga þeirra.
Fyrsta mark leiksins kom á 41.
mín. Þá léku Reynismenn upp
miðjan völlinn, boltinn var gef-
inn út til hægri og síðan skotið
viðstöðulaust í hornið fjær. í
síðari hálfleik var búist við að
Þór myndi ná upp þungri sókn á
undan golunni, en það tókst oft
á tíðum illa. Þeirra besta sóknar-
aðferð var að fara upp hægri
kantinn hjá Bjarna, en hann
skilaði boltanum vel fyrir
markið. Þrátt fyrir það var
Bjarni oft á tíðum sveltur úti á
kantinum og mikið leikið upp
miðjuna en án árangurs.
Jöfnunarmark Þórs kom á 39.
mín. Þá fékk Bjarni stungubolta
upp hægri kantinn og fór alveg
upp að endamörkum og gaf
draumabolta fyrir markið og
Örn skallaði örugglega í netið.
Tveimur síðustu leikjum Þórs,
sem báðir voru á heimavelli,
lauk með jafntefli en Þórsarar
verða að vera grimmari, a.mk. í
heimaleikjunum.
a*5-fmí ;1 9 9 2.-*’P;AG -j ;9