Dagur - 15.06.1982, Síða 12
Alltaf vex vöruúrvalið «
Vinsamlegast komið og skoðið
Þrír
Pólverjar
til Akur-
eyrar
Þrír pólsku flóttamannanna,
sem komu til íslands á dögun-
um, eru nú fluttir til Akureyr-
ar.
Hér er um að ræða einhleypa
konu, sem er sjúkraþjálfari að
mennt, og hefur hún þegar hafið
störf við Fjórðungssjúkrahúsið.
Þá komu hjón hingað um helgina,
hún er hjúkrunarfræðingur og
mun starfa á Kristneshæli, en
hann er sagnfræðingur. Þegar haft
var samband við Rauða kross-
skrifstofurnar í Reykjavík, var
sagt að ekki væri endanlega frá
því gengið, hvar hann myndi
starfa.
Sjálfs-
björg
vill selja
Fyrir nokkrum dögum samþykkti
stjórn Sjálfsbjargar áskorun til
bæjaryfirvalda um að selja bílinn,
sem keyptur var fyrr á árinu og
átti að flytja fatlað fólk á Akur-
eyri. Stjórnin óskaði einnig eftir
því að keyptur yrði í staðinn sams
konar bíll og notaður er á vegum
Sjálfsbjargar í Reykjavík. Bíliinn
sem er í notkun á Akureyri hentar
ekki fyrir fatlaða.
Nýir fiski-
kassará
markaðinn
Eins og kunnugt er hóf Plast-
einangrun h.f. á Akureyri
framleiöslu á 70 lítra fiskiköss-
um á síöasta ári. Þá voru fram-
leiddir og seldir 50 þúsund
kassar og má segja að byrjunin
lofi góðu um framhaldið.
í ljósi þeirrar reynslu sem
fengist hefur á þessum tíma hafa
nú verið gerðar breytingar á köss-
unum. Lögun endagafls hefur
verið breytt verulega sem gerir
það að verkum að burðargetu-
aukning í stöflun vex verulega og
einnig verður mun auðveldara að
beita lyftingargripkló á kassana.
Þá hefur botni kassanna verið
breytt til þess að fá meiri stöðug-
leika í stöflun og frárcnnslis-
götum á botni hefur verið fjölgað.
Síðar á árinu er áformað að
hefja framleiðslu 90 lítra kassa en
fram til þessa hafa einungis verið
framleiddir 70 lítra kassar. Stefnt
er að því að bæði 90 og 70 lítr.
kassarnir verði ávallt til á lager.
90 lítra fiskikassinn frá Plasteinangr-
un hf., sem framleiðsla verður hafin
á síðar á árinu.
Húsið logaði stafnanna á milli þegar slökkviliðið kom á staðinn, en þegar hér var komið sögu hafði að mestu
tekist að ráða niðurlögum eldsins.
Fullorðnu svínin
snerust gegn okkur
Slökkvilið Akurey rar var kall-
að út aðfararnótt föstudags-
ins, en þá hafði kviknað í úti-
húsi á Hamraborg, sem er bær
sunnan og ofan við Akureyri.
Húsið var alelda þegar slök-
kviliðið kom á staðinn. í hús-
inu voru 20 fullorðin svín og
um 200 grísir. Samkvæmt
upplýsingum slökkviliðsins
tókst að bjarga öllum dýrun-
um nema einum grís.
„Skepnurnar voru ekki svo
órólegar, en það var verst að
koma þeim út. Fullorðnu svínin
snerust gegn okkur þegar við
vorum að reyna að ýta þeim út
og ég var alveg búinn að vera
þegar því verki var lokið,“ sagði
slökkviliðsmaður í samtali við
Dag. „Við stungum grísunum út
um glugga og dyr og þeir sýndu
engan mótþróa.“
Það er ekki búið í Hamraborg
og voru það vegfarendur sem til-
kynntu um eldinn til lögreglunn-
ar. Þegar slökkviliðið kom á
vettvang logaði útihúsið stafn-
anna á milli. Eldsupptök eru
ókunn. Að sögn slökkviliðs-
mannanna er húsið ónýtt.
Slökkvistarf tók u.þ.b. tvær
klukkustundir.
Eigandi svínanna er Kristinn
Björnsson.
Lögreglumenn á Akureyrí:
Fjöldaupp-
sagnir koma
til greina
„Laun lögreglumanna í dag
teijast vart mannsæmandi og
aðferðir undanfarandi ára í
kjarabaráttunni virðast lítt
vænlegar til árangurs, þannig
að fjöldauppsagnir lögreglu-
manna virðast vera það örþrifa-
ráð, sem helst kemur til greina,
Fáist ekki viðunandi kjarabætur
eftir hefðbundnum leiðum,“
segir í samþykkt, sem gerð var
á fundi í Lögreglufélagi Akur-
eyrar.
Fundurinn lýsti yfir stuðningi
við framkomnar tillögur Lands-
sambands lögreglumanna um að-
gerðir í launamálum, en síðan
sagði í samþykktinni: „Launakjör
lögreglumanna hafa farið síversn-
andi undanfarin ár og nú er svo
komið, að eigi verður við unað
lengur. “
Leikir frá HM
Knattspyrnuáhugamenn þurfa
ekki að sitja aðgerðarlausir
þessa dagana því íslenska sjón-
varpið mun sýna fjöldann allan
af leikjum frá HM á næstunni,
þótt ekki verði þar um beinar
sýningar að ræða.
í kvöld kl. 22.30 er leikur Ítalíu
og Póllands á dagskrá. Á mið-
vikudag kl. 18 Skotland - N-Sjá-
land og Ungverjaland - E1 Salva-
dor. Á miðvikudagskvöld er leik-
ur Brazilíu og Sovétríkjanna.
17. júní á Akureyri:
Skátar sjá um
hátíðahöldin
Skátafélögin á Akureyri munu
annast hátíðahöldin á Akureyri
17. júní að þessu sinni, og hófu
þau undirbúning í febrúar að
sögn Harðar Karlssonar. Hann
tjáði Degi einnig að í tilefni af
ári aldraðra væri kjörorð dags-
ins „Aldamótakynslóðin“ og
bæri dagskráin þess merki að
nokkru leyti.
Hátíðahöldin hefjast kl. 9 um
morguninn með skrúðkeyrslu bif-
reiða um bæinn, en kl. 10 hefst
skemmtidagskrá á Akureyrar-
polli. Þarverðurkeppniásjóskíð-
um, keppt verður í róðri á bað-
kerum, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar sýnir björgun og trúðar verða á
svæðinu og skemmta fólki.
Kl. 14 hefst hátíðadagskrá á
túninu við Húsmæðraskólann og
verður hún með nokkuð hefð-
bundnum hætti. Þar verður guðs-
þjónusta, ávarp fjallkonu, ræða
dagsins. Þá verður brugðið upp
svipmyndum frá aldamótaárun-
um s.s. af garðveislu, af krambúð
frá þessum tíma, sett verður upp
götuhorn með aldamótasniði og
fieira í þeim dúr. Sýnt verður
fallhlífastökk og tívolí verður
rekið á staðnum.
Um kvöldið hefst skemmtun á
Ráðhústorgi kl. 21. Þar leikur
hornaflokkur nokkur létt lög, og
flutt verður revía. Að lokum leik-
ur hljómsveit Steingríms Stefáns-
sonar til kl. 01 um nóttina.
Loks má geta þess að merkja-
sala hefst þennan dag og er ágóð-
anum varið til málefna aldraðra.
Ferðamanna-
bæklingur um Akureyri
F erðaman nabæklingurinn
„Map of Akureyri“ en nú er
kominn út í 4. útgáfu. Út-
gefandi er Bernharð Stein-
grímsson en bæklingurinn er
prentaður í lit hjá Skjaldborg
úg upplag hans er 15 þúsund.
Ferðamannabæklingi þessum
er dreift á hótelum víðsvegar um
landið og hjá öðrum aðilum sem
hafa með fyrirgreiðslu við ferða-
menn að gera. Einnig er honum
dreift á söluskrifstofur Flugleiða
erlendis.
í bæklingnum er stórt kort af
Akureyri sem auðveldar ókunn-
ugum að ferðast um bæinn. Þáeru
einnig fjölbreyttar upplýsingar
um það markverðasta sem ferða-
menn gætu haft þörf fyrir að vita.
Upplýsingar eru um hótel, banka,
sögn, veitingastaði, opnunartíma
sundlaugarinnar og lengi mætti
telja. Allur texti bæklingsins er á
ensku.
jS
L' JL J
£=L
# Leikiðlausum
hala
„Þær stoppuðu í dyrunum,
hnusuðu út í loftið, stigu
fyrstu sporin hikandi líktog til
að prófa, hvort jörðin myndi
nokkuð láta undan eða fæt-
urnir ef til vill brotna. Það
brakaði og hrikti í þeim eins
og agúrkum. Alit í einu skrúf-
uðust upp á þeim halarnir og
eftir nokkrar sekúndur voru
þær komnar á glórulaust
stökk, lögðu kollhúfur, gáfu
frá sér sjaldgæf hljóð og
hlupu á eftir hænunum. Hund-
arnir, kötturinn og krakkarnir
forðuðu sér upp á hólinn og
horfðu gapandi á þessi tonn
sem venjuiega drattast áfram
með viðrekstrum, taka
þrístökk, langstökk og
flikkflakk."
# Þærnorð-
lensku líka
Þessa stórbrotnu lýsingu á
þeim merkisatburði, er kún-
um er hleypt út að vori, er að
finna í skáldsögu Péturs
Gunnarssonar, Punktur
punktur komma strik. Og
undanfarna daga hafa norð-
lenskar kýr ef laust farið margt
langstökkið, þrístökkið og
flikkflakkið, því að þær hafa
nú verið að sjá undir bert loft í
fyrsta sinn á þessu ágæta
vori. Guðmundur Steindórs-
son, hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar, sagði að á svæði
sambandsíns væru í allt á bil-
inu 6000-7000 kýr, svo að eitt-
111
hvað hefur nú verið spriklað.
Guðmundur bætti við, að
Norðlendingar væru heldur
með seinni skipunum að
sleppa kúm sínum, en nú
væru þær þó sennilega allar
komnar út. Og eru eflaust af-
skaplega hamingjusamar
með lífið og tilveruna.
# Fundu
650 grömm
af hassi
Morgunblaðið skýrir frá því
fyrir helgi, að f íkniefnahundar
rannsóknarlögreglunnar í
Reykjavík hafi þefað uppi 650
grömm af hassi í póstinum.
Karl og kona höfðu fyrir
skömmu farið til Amsterdam,
fest þar kaup á hassinu og
sent það síðan í pósti til
landsins, stílað á annan aðila.
Enn einu sinni hafa hundar
lögreglunnar sýnt hæfni sína
og ættu lögregluyfirvöld
landsins að fjölga þeim, þvf
að hundarnir eru mjög mikil-
vægt vopn gegn fíkniefna-
smyglurum.
# Næstkemur
blaðá
föstudaginn
Þar sem 17. júnf ber upp á
fimmtudag að þessu sinni,
kemur ekki blað út þann dag,
en Helgar-Dagur mun sjá
dagsins Ijós á föstudaginn.
Auglýsingar í það blað þurfa
að hafa borist auglýsinga-
deild Dags fyrir kl. 15 á mið-
vikudag.