Dagur - 25.06.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 25.06.1982, Blaðsíða 5
r Steikt á glódum MATUR Margrét Kristinsdóttir að þykkt salt og nýmalaður pipar 4 tsk. franskt sinnep 4 msk. púðursykur Kryddið kótiletturnar vel með salti og pipar. Smyrjið þær öðr- um megin fyrst með helmingin- um af sinnepinu og sykrinum og glóðið í 4-7 mínútur. Snúið þeim við og smyrjið þær hinum megin og glóðið álíka lengi. Bakaðar eða glóðaðar kartöflur með sýrðum rjóma bragðast af- bragðs vel með. Hamborgarar með kornflögum og osti 500 g nautahakk 50 grifinn ostur 1 laukur, fínt saxaður 4 msk. gróft muldar korn- flögur (corn flakes) nokkrir dropar af Worchest- ershire-sósu salt og nýr pipar Blandið öllu saman, mótið 8 kökur úr deiginu, kælið þær vel og glóðið svo. Penslið e.t.v. með ögn af olíu. Hamborgarana má svo setja í volga brauðhnúða eða setja ostsneið ofan á þá, þegar þeim er snúið við og bera þá fram með hrásalati. Bragðsterk sósa með glóðuðum kjötréttum 25 gsmjör 1 laukur, saxaður 1 hvítlaukshólf, saxað 2 msk. vínedik 1 'k dl soð 1 msk. sinnep 2 msk. púðursykur 1 sítrónusneið 1 lárviðarlauf ögn af cayenne-pipar 2 msk. Worchestershire-sósa 6msk. tómatsósa 2msk. tómatpuré salt, pipar Látið laukana krauma í smjör- inu um stund. Bætið ediki, soði, sinnepi, sykri, sítrónusneið, lárviðarlaufi og cayenne-pipar í og látið malla í 15 mín. Bætið þá því sem eftir er út í og sjóðið áfram í 5-10 mín. Veiðið sítr- ónusneiðina og lárviðarlaufið upp úr áður en sósan er borin fram. Á blíðviðrissumardegi jaínast ekkert á við ilm af mat, sem steiktur er á glóðum utan dyra. Hvort sem við höfum stóran garð eða aðeins svalirnar, má nýta sér stór eða smá glóðar- tæki. Sumir eru meistarar við útiglóðina, aðrir hafa fengist lít- ils háttar við hana og enn aðrir eru byrjendur. Það gildir með þetta verk sem svo mörg önnur, að æfingin skapar meistarann og oft er það svo, að enginn verður óbarinn biskup. Það er alltaf heldur leiðinlegt að þurfa að læra af mistökum sínum. Byrj- endum til sáluhjálpar eru því hér nokkur almenn ráð. 1) Gáðuað, við kaup á glóðar- tæki, að loftrásir séu í eld- holinu og að ristin sé færan- leg. Þú þarft nefnilega að geta haft þynnri stykki nær glóðinni, en þykkri fjær henni - engar brunarústir að utan og hrámeti að innan! 2) Lestu vel leiðbeiningar, sem fylgja glóðartækinu, kolunum og kveikileginum. 3) Kveiktu í kolunum um það bil tuttugu mínútum áður en þú ætlar að glóða, þvf að þú byrjar ekki fyrr en glóð er komin í kolin og þau orð- in öskuhrímug að utan. 4) Smyrðu ristina með olíu fyrir notkun, þá festist síður við hana og auðveld- ara er að þrífa hana á eftir. 5) Hafðu vatn í könnu hjá þér til að slökkva loga, sem stundum blossa upp, þegar feiti lekur úr kjötinu niður á glóðina. 6) Notaðu svuntu og leppa úr bómull, ekki gerviefni, svo að þú standir ekki í björtu báli, ef vindgustur feykir neista á þig! 7) Gáðu vel að því, að allt frost sé farið úr hráefninu, því að annars getur þú ekki búist við góðum árangri. 8) Byrjaðu með einfaldar uppskriftir og færðu þig svo smátt og smátt upp á skaftið - það er nóg til af upp- skrifta- og leiðbeininga- bæklingum á þessu sviði. 9) Fylgstu vel með matnum á glóðinni, færðu hann til og snúðu við eftir þörfum, not- aðu góða töng, aldrei gaffal, frekar þá spaða eða skeið. 10) Kolin eru orðin dýr, en minnstu þess, að ef eitthvað er eftir óbrunnið, þegar þú ert búin að glóða, getur þú slökkt í með vatni, þurrkað og notað afganginn seinna. Nokkrar uppáhalds- uppskriftir Kryddlögur: 4 msk. soyasósa 2 msk. hunang 4 msk. sherry 'k tsk. kanell (4 tsk. negull 4 msk. kalt te 1 hvítlaukshólf, saxað Blandið öllu saman og leggið t.d. svínarif, svínakótilettur eða sneiðar í löginn í 2-8 klst. eftir þykkt. Fleiri kjöttegundir koma til greina, svo sem kálfakjöt, lambakjöt og nautakjöt. Yeislumatur úr ungkálfakjöti Kryddlögur: 4 msk. olífu- eða salatolía 4 msk. soyasósa 2pressuð hvítlaukshólf 2 msk. tómatsósa 1 msk. edik 'A tsk. nýmalaður pipar Skerið teningslaga bita úr kálfa- kjöti og leggið í löginn í 6-8 klst. Stráið salti yfir, þræðið kjötbit- ana upp á teina með ferskri papriku í bitum. Penslið með kryddleginum öðru hverju. Gott er að bera soðin hrísgrjón og heitt brauð með. Algjört sælgæti er að setja saffran saman við grjónin og láta það sjóða með, en það gerir réttinn mun dýrari. Hér kemur ein fyrir meistarana til að spreyta sig á: Fylltar útbeinaðar kj úklingabringur 40 gsmjör 1 lítill laukur, saxaður 125 g hrísgrjón 1 tsk. turmerik eða 'A tsk. saffran 1 lárviðarlauf 3 negulnaglar 2 heilar kardemommur salt 3 dl vatn 4 kjúklingabringur, útbein- aðar og barðar til með buff- hamri Látið laukinn krauma í smjör- inu, bætið öðrum efnum í og sjóðið, þar til vatnið er horfið. Setjið dálitla fyllingu á hverja bringu, vefjið saman og stingið teini í gegn. Penslið með dálítilli olíu, salti og pipar og glóðið. Reynið að snúa teinunum ekki nema einu sinni til þess að ekki hrynji of mikið af fyllingunni út. Það sem afgangs var af fylling- unni er svo borið með ásamt sal- ati og heitu brauði. Óvenjulegar lambakótilettur 4 þverkótilettur 2V2-3ja cm 25. júní 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.