Dagur - 20.07.1982, Side 6
Þórður sigurvegari Valdimarsson fer lipurlega
Ral lað þvers og kruss
Á sunnudaginn hélt bíla-
klúbbur Akureyrar rally-
krosskeppni í bæjarkrúsun-
um, og voru margir mættir til
leiks. Öruggur sigurvegari
keppninnar varð Þórður
Valdimarsson, og sýndi hann
umtalsverða yfírburði yfír
aðra keppendur.
Brautin var ekki eins og best
verður á kosið, og keppendur
náðu ekki að sýna sérstaka
takta. Þetta varð ekki mjög
harkalegt - engin velta og
árekstrar smávægilegir. Þórður
sýndi stórskemmtilegan akstur:
hann tók forystu strax í startinu í
öllum sínum ferðum, og hélt
henni allt til loka. Hann ók á
Fólsvagnbjöllu, en annars voru
bílarnir af ýmsum gerðum. Þó
eru bjöllurnar alltaf vinsælar í
keppni sem þessari. Meðal ann-
ars vegna þess að bílar með
„rassmótor" standa betur að vígi
í startinu, þar sem ekki er mal-
bikaður startkafli á brautinni.
Rykmökkurinn var nið-
dimmur, og augu urðu fljótt sár.
Bílaklúbbsmeðlimir hefðu að
skaðlausu mátt vökva brautina.
Keppendur voru ósköp hógvær-
Að mörgu er að hyggja áður en lagt er í harðan leik.
ir í akstri sínum, þótt einn tæki
upp á því að skvetta til afturenda
og sýna undir sig. Hávaðinn var
auðvitað mikill ekki hvað síst
þegar keppendur brutu gíra og
þöndu bílana í lágum gír. Slíkt
endaði „að sjálfsögðu“ með úr-
bræddri vél. Þórður sigurvegari
vakti nokkra athygli fyrir það
hversu „nett“ hann ók brautina.
Meðan aðrir keppendur voru
með nokkurn gassagang, hopp-
andi og vingsandi aftur og fram-
enda.
Annars skulum við skoða
myndirnar. KGA-.
Þórður fagnar sigri að lokinni keppni.
Eric kemur fljúgandi útúr rykmekkinum.
Pjglgg
Ljósmyndir: KGA.
6 - DAGUR - 20. júlí 1982