Dagur - 07.09.1982, Síða 3

Dagur - 07.09.1982, Síða 3
Réttir að byrja Fyrstu réttir haustsins verða um næstu helgi, og síðan tekur hver réttardagurinn við af öðr- um víða um landið. Við hér á Degi höfum gert margar til- raunir til þess að fá uppgefna réttardaga á Norðurlandi, en því miður hefur árangurinn ekki verið sem skyldi. En þær réttir sem við vitum um með vissu eru þessar: Kennslu- gögn Jóns Júl. Þorsteins- sonar gefin út í ráði er að stofna minningar- sjóð um Jón Júlíus Þorsteins- son kennara, í þeim tilgangi að gefa út kennslugögn hans varð- andi lestrar-, tal- og söng- kennslu. Er þar um hljóðstöðu- myndir að ræða. Þeim er vilja gerast stofnendur sjóðsins er bent á að listar ásamt greinargerð liggja frammi á eftir- töldum stöðum: Barnaskóla Ak- ureyrar, Hótel Varðborg, Tón- listarskólanum, hjá Haraldi Sig- urgeirssyni á bæjarskrifstofunni, hjá Guðrúnu Sigbjörnsdóttur á Tryggingaumboðinu Akureyri og á bæjarskrifstofunni á Ólafsfirði. Framlög í sjóðinn eru frjáls og verða gíróseðlar sendir út síðar. Getrauna- salaKA Enn á ný hafa getraunir hafið starfsemi sína og sem fyrr er KA með útsölustaði í Shell v/Mýrar- veg, Sporthúsinu og Cesar auk þess sem einstaklingar selja á vinnustöðum. Alltaf vantar þó fleiri til að selja á vinnustöðum, og eru menn hvattir til að taka miða hjá Einari í Cesar sem er umboðsmaður KA. Getraunir hafa á undanförnum árum verið veigamikill tekjuliður fyrir KA, og margt smátt gerir eitt stórt. Hin óvæntu úrslit ensku knattspyrnunnar geta fært „imb- anum“ ekki síður en „sérfræð- ingnum“ verulegar fjárhæðir. Verið með og það strax. KA Undirfellsrétt 10.—11. septem- ber - Víðidalstungurétt 10.-11. september - Auðkúlurétt 10.—11. september - Hrútatungurétt 12. september - Laufskálarétt 12. september-Skarðaréttir 12. sept- • ember-Tungurétt 12. september - Reynisstaðaréttir 13. september - Stafnsréttir 16. september - Skrapatungurétt 19. september og Mælifellsrétt 19. september. Þá höfum við upplýsingar um eftirtaldar stóðréttir: Undirfells- rétt 6. september - Auðkúlurétt 19. september - Skarðaréttir 26. september - Laufskálarétt 2. október og Víðidalstungurétt 2. október. Tónlistarskólinn á Akureyri: 38. starfsárið er að hefjast Tónlistarskólinn er senn að hefja sitt 38. starfsár. Síðastlið- inn vetur stunduðu 460 nem- endur nám við skólann í hinum ýmsu tegundum hljóðfæraleiks og söngs. Kennarar voru 25, þar af 4 stundakennarar. Arangur nemenda á tónleikum vetrarins og vorprófum var yfirleitt mjög góður og þreyttu fjölmargir þeirra stigspróf, þar af 54 próf Assosiated Board. Við skólaslit sl. vor voru veittar viðurkenningar þeim nemendum, sem fram úr þóttu skara. Veittir voru 2 styrkir úr minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur, er Hulda Fjóla Hilmarsdóttir og Ólöf Jónsdóttir hlutu, en þær höfðu áður lokið 8»stigsprófi í fiðluleik með ágætum vitnisburði. Þrír píanónemendur Arnhildur Valgarðsdóttir, Hólmfríður Þór- oddsdóttir og Þórarinn Stefáns- son hlutu styrki er Martin Berkof- sky píanóleikari hefur veitt. Nokkrir af kennurum skólans létu af störfum, en í þeirra stað voru ráðin: Kristinn Örn Krist- insson píanókennari, Edvard J. Fredriksen blásturs og tónfræði- kennari, Lilja Hjaltadóttir fiðlu- kennari, Magna Guðmundsdóttir fiðlukennari og Sigurlína Jóns- dóttir forskóla og tónfræði- kennari, auk þess sem Michael J. Clarke fiðlukennari kemur aftur til starfa eftir eins árs leyfi. Stqersta breytingin í starfi skól- ans næsta skólaár verður fjarvera hjónanna Jóns Hlöðvers Áskels- sonar skólastjóra og Sæbjargar Jónsdóttur konu hans, sem gengt hefur skrifstofustarfi við skólann. Fengu þau ársleyfi til að hverfa að nýju starfi. Fylgja þeim góðar óskir frá starfsliði og nemendum skólans. Við starfi skólastjóra tekur einn af kennurum skólans, Atli Guðlaugsson, en Kristín Pét- ursdóttir var ráðin í skrifstofu- starfið. Aðstaða til tónleika og hljóm- sveitaæfinga stórbatnar í vetur, þar sem tekin verður í notkun rúmgóður salur, sem verið er að fullgera á 4. hæð Tónlistarskól- ans. Haustinnritun fer fram í skól- anum dagana 8.-10. september og skólasetning er áætluð 23. septemér í Akureyrarkirkju. Ekkert slor á boðstólum Nú gildir það ... austvörumar streyma inn Nýjar vörur í Vefnaðarvörudeild □ Tilbúnar eldhúsgardínur mjög faHegt og gott xírval. Einnig eldhúsgardínuefni í metravís. □ Tilbúnir dúkar og servíettur við, lífga upp á veisluborðið. □ Tilbúnir vaxdúkar. □ Tiíbúin sængurverasett. ... og fyrir saumaskapinn □ Dúkaefni í metrataíi, fállegir litir. □ Þykk og þunn gardínuefni í mjög miklu úrvali. □ Eldhúsgardínuefni í metravís □ Blómastórisar í öllum stærðum. □ Sængurveraefni, mörg munstur. □ Nýjar og hlýjar lálpur í skólann. Mjög gott verð. Peysur og buxur í glæsilegu úrvali. Eigum enn nokkrar ullarkápur á eldra verði. Vefnaðarvörudeild. Kuldaskór á bömin í skólann frá Duffys st. 35-40. Skódeild. Safnar þú postulíni? Vorum að fá nýja sendingu frá Bing og Gröndal m.a. árstíðarplattar, Böm að leik, styttur o.fl. Arabía pottar nýkomnir Jám- og glervörudeild. Badminton unnendur Vorum að fá Yonex- badmintonspaða. Og þá eru það skólavörurnar. Þið fáið allar skólavörumar hjá okkur. Töskur, ritföng, stílabækur og hvað annað sem þú þarft í skólann. Sportvömdeild. Ath. Skólavörurnar fást líka á neðri hæðinni í Hrísalundi 5 og ef þig vantar borð til að vinna heimaverkefnin við, þá em Combiflex raðsettin hagkvæm lausn á góðu verði. Minnum einnig á Selko-fata- skápana sívinsælu. Munið filmumóttökuna á neðri hæð í Hrísalundi 5. Filmur og flashperur á staðnum. Vöruhús KEA, Hrísalundi 5. (Vörumarkaður n.h.) HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96)21400 7. september 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.