Dagur - 07.09.1982, Side 8
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Hafnarstræti 86, 1. hæð, Akureyri, þingl. eign Jó-
hönnu Jóhannesdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu bæjarsjóðs Ak-
ureyrar, veðdeildar Landsbanka Islands, Gunnars Sólnes hrl.,
Hilmars Ingimarssonar hrl. og Guðmundar Markússonar hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 10. september nk. kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Hafnarstræti 37, kjallari, Akureyri, þingl. eign
Steinars Marinóssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 10. september nk. kl.
13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 28. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Bröttuhlíð 9, Akureyri, þingl. eign Sævars Vigfús-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni
sjálfri föstudaginn 10. september 1982 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982á
fasteigninni Einholti 8g, Akureyri, þingl. eign Davíðs Þ. Krist-
jánssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á
eigninni sjálfri föstudaginn 10. september 1982 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 83. og 87. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á
fasteigninni Hafnarstræti 88, Akureyri, talin eign Pálma Björns-
sonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka Islands veðdeild, bæjar-
gjaldkerans á Akureyri og Tryggingastofnunar ríkisins á eign-
inni sjálfri föstudaginn 10. september nk. kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Vallargerði 2f, Akureyri, þingl. eign Haraldar Árna-
sonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands á
eigninni sjálfri föstudaginn 10. september 1982 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
KARTELL
nýtt á íslandi
Örkin hans Nóa hefur hafið
innflutning á nýrri tegund hús-
gagna. Þau eru frá ítalska fyrir-
Bifhjóli stolið
Á laugardagskvöldið á milli kl.
21 og 24 var léttu bifhjóli stolið
frá Utvegsbankahúsinu í Hafn-
arstræti á Akureyri. Þetta er
rautt Yamaha hjól, skrásetn-
ingarnúmer A-383.
Ekkert hefur spurst til hjólsins
síðan, og eru allir þeir sem geta
gefið einhverjar upplýsingar
varðandi þennan þjófnað beðnir
um að láta rannsóknarlögregluna
á Akureyri vita.
tækinu Kartell, og hafa ekki
verið flutt til íslands áður.
Húsgögnin eru úr plasti, bæði
stólar, borð, fatahengi, kommóð-
ur, klappstólar, öskubakkar,
pennabakkar, barnahúsgögn -
t.d. fyrir barnaheimili - blóma-
pottar, speglar, bókastoðir og
margt fleira. Stólarnir eru ekki
bólstraðir heldur formaðir fyrir
líkamann þannig að vel fer um
þann sem í þeim situr. Sumum
tegundum stólanna er hægt að
stafla saman svo að lítið fer fyrir
þeim. Húsgagnaeiningum, t.d.
kommóðum, má raða saman á
marga mismunandi vegu. Hús-
gögn þessi henta vel á sjúkrahús
og sambærilegar stofnanir. Miðað
við aðrar húsgagnategundir er
verð þessarar nýju tegundar í
meðallagi.
Kálfaslátrun
Frá og með föstudeginum 24. september nk. verð-
ur smákálfum slátrað á föstudögum þar til annað
verður ákveðið. Síðustu mánudags- og þriðjudags
slátranir verða 13. og 14. september.
Sláturhús KEA
Frá Tónlistarskólanum
á Akureyri
Haustinnritun fer fram í Tónlistarskólanum, Hafnar-
stræti 81, dagana 8.-10. september kl. 13-17.
Kennt verður á allar tegundir blásturshljóðfæra, ásláttar-
hljóðfæri, strokhljóðfæri, píanó, orgel, gítarog harmonikku.
Auk þess verður kenndur söngur og forskóladeild starfar.
Nemendur eru beðnir að hafa með sér stundaskrár úr öðr-
um skólum og umsóknir frá vorinu óskast staðfestar.
Skólasetning ferfram í Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 23. september.
Skólastjóri.
Viðtalstímar á
miðvikudögum
Ákveðið hefur verið að viðtals-
tímar bæjarfulltrúa verði á mið-
vikudögum frá klukkan 20-22.
Fyrsti viðtalstíminn verður á mið-
vikudag 15. september. Þóknun
til bæjarfulltrúa verður eins og
fy rir almenna nefndarfundi.
Hvítabjörn
í heimsókn
Danska eftirlitsskipið Hvid-
björnen kemur í heimsókn til
Akureyrar 9. sept. nk. og mun
dvelja hér í 3 daga.
Yfirmaður skipsins er komm-
andörkaptajn S. Broberg.
Nýja símanúmerið mitt er
24550.
Dansskóli Sigvalda.
Opið í
hádeginu.
Passamyndir.
Tilbúnar strax.
nonðun
mynd
LJÓIMVN DASTOM
Sfmi 96-22807 ■ Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri
mmmmmmmmm^—m—m
Sjötugur:
Jóhann Salberg Guðmundsson
Sýslumaður Skagfirðinga, Jóhann
Salberg Guðmundsson, stendur nú á
sjötugu. Jóhann hóf feril sinn ungur
maður, sem sýslumaður Stranda-
manna. Sýslumaður Skagfirðinga
varð hann 1956, þegar Sigurður Sig-
urðsson, sem lengi hafði verið sýslu-
maður Skagafjarðarsýslu lét af
störfum. Starfsferill Jóhanns Sal-
bergs er einstakur. Hann hefur helg-
að sitt starf að vera í forystu fyrir sín
héruð, fyrst á Ströndum og síðan í
Skagafirði. Með Jóhanni hverfur
einn af hinum gömlu og gegnu sýslu-
mönnum, sem miklu frekar er hér-
aðshöfðingi og mannasættir, sem
lætur sig öllu varða velferð héraðs og
íbúa þess, frekar en að helga sig vél-
rænum verkefnum dómarans ög fó-
getans. Ekki þarf að undra þótt
skarð verði fyrir skildi hjá Skagfirð-
ingum, þegar jafn ástsæll og gróinn
héraðshöfðingi sleppur umsýslu
sinni. Klukkan er komin og taflið er
búið í tímatali því, sem ákvarðar
starfsaldurembættismanna. Þetta er
kaldur dómur og engan veginn sárs-
aukalaus, en lög eru lög og regla er
regla, sem kveður á um leikslok, án
tillits til einstaklingsins.
Við Jóhann Salberg Guðmunds-
son munum hafa kynnst fyrir tilvilj-
un á biðstofu í Stjórnarráðinu á ár-
inu 1956. Veruleg kynni tókust ekki
með okkur fyrr en ég tók við störfum
hjá Fjórðungssambandi Norðlend-
inga 1971. Svo hagartil uppbyggingu
Fjórðungssambandsins, að sýslufé-
lög Norðurlands eiga aðild að sam-
bandinu. Þessi háttur hefur verið frá
upphafi. Segja má að sýslurnar hafi
alla tíð verið hjarl sambandsins, sem
voru frumkvöðlar að stofnun þess,
ásamt bæjarfélögum. Það hefur ver-
ið tvímælalaust styrkur fyrir sam-
bandið að sýslumenn hafa setið í
æðstu stjórn þess og haft afgerandi
áhrif á gang mála. Jóhann Salberg
Guðmundsson, sýslumaður Skag-
firðinga, er einn þeirra sýslumanna,
sem lagt hafa hér drjúga hönd á verk
að sameina byggðir Norðurlands í
einu slíku sambandi, þar sem byggð
stendur með byggð, á grundvelli
hinnar rótföstu héraðaskiptingar
Norðurlands. Hann hefur haldið
sinni sýslu fram til jafnræðis við önn-
ur héruð og látið sig miklu varða um
velferðarmál, sem héraðið hefur
staðið saman um. Sýslunefnd Skaga-
fjarðarsýslu hefur sameinað hrepp-
ana til samstarfs við Sauðárkróksbæ
um heilbrigðismálefni, um málefni
aldraðra og um brunavarnir. Á sviði
heilbrigðisþjónustu og í málefnum
aldraðra hafa bær og sýsla staðið
órofa að átökum, sem öllu Skaga-
fjarðarhéraði er til sæmdar og öðrum
héruðum til eftirbreytni. Eitt þeirra
málefna sem hvílt hefur á sýslunefnd
Skagafjarðar, og ekki síst á oddvita
hennar,er gamli draumurinn um hér-
aðsskóla Skagfirðinga í Varmahlíð.
Nú hefur þessi hugmynd aðlagað sig
hinum nýja tíma. f Varmahlíð er
kominn barna- og unglingaskóli,
sem í senn er grunnskóli fyrir megin-
hluta héraðsins og neðstu bekki í
Jóhann Salberg Guðmundsson.
framhaldsskólakerfinu. Með
Varmahlíð hafa Skagfirðingar eign-
ast sitt höfuðból svei.tanna, sem er
hliðstætt við uppbyggingu Lauga í
Þingeyjarsýslu. Við Varmahlíð
liggja vegir til allra átta. Þar eru
krossgötur. Hefði ekki komið til
samstaða um Varmahlíð væri þar
ekki risið myndarlegt þorp og enginn
legði lykkju á leið sína af hinum
beina og breiða vegi yfir þveran
Skagafjörð. Ekki er vafamál að hér
sem oftar hefur oltið á forystu þess
manns, sem stöðu sinnar vegna var
oddviti Skagfirðinga. Málin hafa
verið leyst með friði og réttsýni, þar
sem gætt hefur verið sanngirni í sam-
skiptum sveitanna og hins ört vax-
andi bæjar, þannig að þrátt fyrir
deildar meiningar um staðsetningu
einstakra mannvirkja hefur skapast
vaxandi samstaða.
Jóhann Salberg Guðmundsson
hefur jafnan átt sæti í fjórðungsráði,
þau ár sem ég hefi starfað við Fjórð-
ungssamband Norðlendinga og verið
formaður þess. Hann hefur látið sér
annt um sambandið og staðið vörð
um það í hvívetna og átt drjúgan þátt
í að auka samheldni um það. Hann
hefur staðið vörð um hagsmuni sveit-
anna án þess að vera andstæður þétt-
býlinu. Hann er maður samstarfs og
sátta í samskiptum þéttbýlis og
sveita. Þetta markaði störf hans í
Fjórðungssambandinu. Það hefur
verið deilt á Fjórðungssambandið að
hefja sýslumenn, sem embættismenn
ríkisins, til hávega í samtökunum.
Það skal á engan hallað þótt sagt sé
hér afdráttarlaust, að án sýslumanna
Norðlendinga hefði Fjórðungssam-
band Norðlendinga verið svipminni
samtök en ella, og án þeirra hefði
ekki tekist sú samvinna, sem á sér
stað milli sveita og þéttbýlis, sem
einkennir norðlenskt sveitarstjóm-
arlíf.
Seta Jóhanns Salbergs Guð-
mundssonar í fjórðungsráði sannar
að sú stefna var heillavænleg að
saman færu í einum samtökum sýslur
og sveitarfélög. Hann var málsvari
þeirrar stefnu að saman starfi byggð
með byggð, bæði innan héraða og í
fjórðungnum í heild. Nú í leikslokin
vil ég færa Jóhanni Salberg Guð-
mundssyni bestu óskir á örlagaríkum
tímamótum ævinnar frá Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga. Persónu-
lega færi ég Jóhanni og fjölskyldu
hans hlýjar kveðjur mínar og minna,
með bestu óskum um framtíð alla á
nýjum vettvangi, að loknum löngum
starfsdegi.
Áskell Einarsson.
8-DAGUR—7.8eptember1^82;