Dagur - 05.10.1982, Side 7

Dagur - 05.10.1982, Side 7
ög vel iér“ þetta rólegra og hægt að veita sér þann munað að sofa leneur.“ - Hafa orlofshúsin ekkert verið leigð út yfir vetrarmánuð- ina? „Húsin eru leigð út um helgar og aðsókn er að aukast. F>á er t.d. alltaf yfirfullt um páskana í þeim 16-18 húsum sem við leigj- um út á þeim tíma. Hér er líka endalaust hægt að finna sér eitt- hvað að gera hvort sem er um vetur eða sumar. Hér er kjörið gönguland í allar áttir, náttúru- fegurð mikil, og á veturna er til- valið að ganga hér um á skíðum eða renna sér í brekkunum hér fyrir ofan.“ Þau hjónin reka verslun á staðnum yfir sumartímann. Það hefur aðallega komið í hlut Hlíf- ar að sjá um þann þátt, og ber hún því titilinn verslunarstjóri í þessu útibúi Kaupfélags Sval- barðseyrar. Þar er reynt að hafa á boðstólum allar nauðsynjar sem fólk í orlofshúsunum gæti þarfnast. Og þá er aðeins eftir að minn- ast á son þeirra hjóna. Hann er 9 ára og heitir Guðmundur Örn. Hann unir sér greinilega vel að Illugastöðum, en hann var eins árs er foreldrar hans fluttu þangað. Skóla sækir hann að Stóru-Tjörnum og kemur skóla- bíll eftir honum þrisvar í viku. Að lokum spurðum við þau hjón hvort þau væru nokkuð að hugsa um að breyta til og flytja burt. „Við erum alls ekki tilbúin til þess. Við höfum kunnað mjög vel við okkur hér þótt starfið sé bindandi. Við getum t.d. ekki farið frá yfir sumarið án þess að fá einhvern fyrir okkur sem get- ur litið eftir hlutunum, og það þarf helst að vera maður sem þekkir eitthvað til á staðnum. Við tökum bæði þátt í féiagslífi sem er blómlegt hér í sveitinni, og ég er t.d. í stjórn Ungmenna- félagsins Bjarma," sagði Jón Óskarsson að lokum. Unnur og Geirþrúður í eldhúsinu. „Aðstaðan til fyrirmyndar“ í eldhúsi „Kjarnahússins" að Illugastöðum hittum við þær Unni Björnsdóttur og Geir- þrúði Brynjólfsdóttur þar sem þær voru í óða önn að hafa til kaffí og meðlæti fyrir þátttak- endur í námskeiði trúnaðar- manna á vinnustöðum sem haldið var í síðustu viku. „Þetta er annað námskeiðið sem hér hefur verið haldið," sagði Unnur en hún veitir eld- húsinu forsöðu. „Aðstaðan hér er mjög góð og á enn eftir að batna þegar öll tæki verða komin. Eins og þú sérð er ákaf- lega rúmgott hér og öllu hagan- lega fyrir komið og er óhætt að segja að aðstaðan sé til fyrir- myndar.“ - Munið þið starfa hér þegar farið verður að nýta þetta hús meira en verið hefur til þessa? „Málið er nú ekki komið á það stig en ætli það verði nokkur vandræði með að fá fólk til starfa hér, ég get ekki ímyndað mér það,“ sagði Unnur. „Það hefur ekkert verið ákveðið varðandi það.“ Það kom fram í spjalli okkar við þær Unni og Geirþrúði að þær hafa báðar starfað lengi í verkalýðshreyfingunni. Báðar hafa þær setið í stjórn Einingar og eru nú í trúnaðarráði félags- ins. 5. október 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.