Dagur - 26.10.1982, Síða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SÍMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON •
ÐLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Aðhald án misræmis
í kjördæmismálaályktun sem samþykkt var á
kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra, sem haldið var á Húsa-
vík 15.-16. október segir meðal annarsáþessa
leið:
„Kjördæmisþing. . . leggur áherslu á þann
grundvallarboðskap Framsóknarflokksins að
tryggja öfluga landsbyggðarstefnu sem hefur
að markmiði jöfnuð með landsmönnum, hvar
sem þeir búa og að treysta jafnvægi í byggð
landsins. Þannig séu fólki búin skilyrði til þess
að lifa og starfa í því umhverfi sem það kýs sér.
Á áratugnum 1971-1981 sem oft hefur verið
nefndur „Framsóknaráratugurinn“ hefurnán-
ast átt sér stað bylting í uppbyggingu
atvinnulífsins. Samvinnuhreyfingin hefur ver-
ið burðarásinn í atvinnuuppbyggingunni í eitt
hundrað ár og er nú kjölfestan í atvinnulífi
kjördæmisins.
Á þessum áratug hafa einnig orðið miklar
framfarir á sviði mennta-, heilbrigðis- og fé-
lagsmála.
í kjölfar þessarar uppbyggingar snérist bú-
setuþróunin landsbnyggðinni í hag.
Þingið skorar á ríkisstjórn og Alþingi að
fylgja landsbyggðarstefnu fast eftir og minnir
á að þó mikið hafi áunnist skortir enn verulega
á að allir þegnar þjóðfélagsins búi við sömu
lífsskilyrði og mörg samfélgsleg verkefni eru
enn óunnin.
Kjördæmisþingi er ljóst að aðgátar er þörf í
ríkisfjármálum en aðhald má ekki auka mis-
ræmi í þjóðfélaginu. “
Samgöngumál
Varðandi samgöngumál segir síðan í kjör-
dæmismálaályktuninni: „Góðar samgöngur
er ein meginundirstaða öflugrar landsbyggð-
arstefnu og forsenda fyrir traustri búsetu og
efnahagslegum framförum í kjördæminu.
Því fagnar þingið þeim mikilvægu áföngum
sem náðst hafa í vegamálum kjördæmisins.
Þingið lýsir stuðningi við þá stefnu sem fram
er sett í þingsályktun um langtímaáætlun í
vegagerð. Þingið leggur áherslu á að jafnframt
því sem stofnbrautir verða byggðar upp og
lagðar bundnu slitlagi sé haldið áfram upp-
byggingu þjóðbrauta í kjördæminu.
Kaupstaðir og kauptún í kjördæminu byggja
afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi.
Því er það mjög brýnt hagsmunamál íbúa
þessara staða að hafnarskilyrði verði bætt og
leggur þingið áherslu á áframhaldandi fram-
kvæmdir á því sviði en mikilla úrbóta er þörf.
Áfram verði haldið framkvæmdum við flug-
velli í kjördæminu. Þingið leggur megin-
áherslu á bættan og aukinn örygisbúnað og
lagfæringu flugbrauta en jafnframt verði lag-
fært hið bágborna húsnæði sem farþegum er
boðið upp á víðast hvar. “
89 iðnaðarmenn
hafa fenqið
uppsagnarbréf
- „Munum halda áfram að þrýsta á stjórnvöld
um meira framkvæmdafé,“ segir Jón Sigurðarson
formaður atvinnumálanefndar Akureyrar
„Það sem hægt er að segja á
þessu stigi er það að atvinnu-
horfur virðast vera nánast
óbreyttar frá því sem var er.
við gerðum okkar könnun í
sumar,“ sagði Marinó Jóns-
son hjá Meistarafélagi bygg-
ingamanna á Akureyri í sam-
tali við Dag er hann var spurð-
ur um niðurstöður atvinnu-
málakönnunar þeirrar er
Landssamband iðnaðar-
manna og Meistarasamband
byggingamanna hafa staðið
fyrir að undanförnu.
Engin verkefni
„Það hafa engin verkefni bæst
við síðan í september. Það sem
hefur fyrst og fremst gert það að
verkum að atvinna hefur haldist
þessa mánuði er sú góða tíð er
verið hefur. Mest hefur hún þó
haft áhrif á vinnu múrara er litla
sem enga vinnu hefðu ella haft
sumir hverjir.
Á fundi á miðvikudagsmorg-
un með atvinnumálanefnd Ak-
ureyrarbæjar skýrðum við Ing-
ólfur Jónsson formaður Meist-
arafélagsins frá niðurstöðum
þessarar könnunar hvað varðar
Akureyri. Hér á Akureyri er um
mikinn samdrátt að ræða, sér-
staklega hjá pípulagninga -
mönnum og múrurum og ekki
sýnileg batamerki þar á.
Það er svo í höndum atvinnu-
málanefndar og bæjarstjórnar
hvaða stefna verður tekin, við
erum einungis að gera þessa
könnun til þess að þessir aðilar
fái skýra mynd af ástandinu eins
og það er. Við teljum það skyldu
okkar að láta atvinnumálanefnd
vita af slíku.“
Vandanum
velt áfram
Skýrsla frá Landssambandi
iðnaðarmanna um horfur í bygg-
ingariðnaði á Norðurlandi mun
væntanlega líggja fyrir áður en
langt um líður. En samkvæmt
því sem liggur nú fyrir og varðar
Akureyri þá virðist það einungis
staðfesta það ástand sem var að
skapast í sumar, vandanum er
einungis velt áfram.
„Það eru hvorki fleiri eða
færri en 89 iðnaðarmenn á Ak-
ureyri sem hefur verið sagt upp
vinnu, og eru þetta menn sem
hafa unnið hjá stærri verktökun-
um. Þar að auki eru svo minni
verktakar sem segja ekki upp
vegna þess að oft eru þetta tveir
eða þrír menn sem vinna saman
og eiga viðkomandi fyrirtæki.
Þessir menn geta einfaldlega
ekki annað en hætt eins og
átt hefur sér stað hjá pípulagn-
ingamönnum. Það eru fimm
pípulagningamenn hættir nú í
haust og farnir í annað. Þrír
hættu á síðasta ári og þremur er
búið að segja upp nú í haust. Fái
þeir ekki vinnu í sinni iðngrein
þá þýðir þetta 40% fækkun í
þessari einu iðngrein á tæpum
tveimur árum. Og því miður er
ekkert sem bendir til þess að
þetta ástand sé að breytast,“
sagði Marinó. —
Gerum allt
sem við getum
„Niðurstöður þessarar könn-
unar virðast staðfesta að veru-
legu leyti það sem um var rætt í
sumar þótt að vísu virðist hafa
orðið breyting á vegna góðrar
tíðar í haust. Það hefur eitthvað
tínst til af verkefnum, en alls
ekki nægjanlegt til að tryggja
atvinnuöryggi þeirra manna sem
í byggingariðnaði vinna,“ sagði
Jón Sigurðarson formaður
atvinnumálanefndar Akureyr-
arbæjar.
„Atvinnumálanefndin mun
halda áfram að vinna því skiln-
ing og þrýsta á stjórnvöld um að
við þurfum , meira fram-
kvæmdafé til að halda uppi
atvinnu fyrir þá sem við þetta
starfa hér á Akureyri. Atvinnu-
málanefndin hefur þegar haft
samband við Forsætisráðuneyt-
ið og málin eru í athugun þar.
Undirbúningur fyrir fjárlög
næsta árs stendur yfir og við höf-
um upplýst okkar þingmenn um
hvað er hér á seyði og þeir munu
fá upplýsingar um þessa
könnun. Það er óhætt að segja
að við gerum allt sem við getum
til að þrýsta á þá aðila sem ráða
skiptingu þessa fjármagns og að
þeir geri sér ljóst við hvaða
vanda er hér að eiga,“ sagði Jón.
4 - DAGUR - 26. október 1982