Dagur - 07.01.1983, Blaðsíða 3

Dagur - 07.01.1983, Blaðsíða 3
MYNDLIST Ólafur H. Torfason ... einhver nýr og óþekktur Ragnar Lár Ragnar Lár er þjóðkunnur teiknari og hafa skopmyndir hans og bókaskreytingar birst víða um árabil. Fyrstu sjálf- stæðu myndlistarsýningu sína hélt hann í Reykjavík 1956 og hefur alltaf annað veifið rifið sig upp úr daglegu léttmetinu og spreytt sig á viðureigninni við alvarlegri myndverk. En því miður skirrðist Ragnar alltof lengi við að segja sig afdráttar- laust úr lögum við hroðvirkni- lögmál fjölmiðlamarkaðarins. í 10-15 ár hefur hann verið óopin- bert dæmi um staðnaðan mynd- listarmann. Hornóttur teikni- stíllinn hefur viljað undirstrika vafasöm hlutföll og óþróskað formskyn. Of sjaldan birtist nostur og úrvinnsla. Ég viðurkenni hreinskilnis- lega, að fordómar af þessum sökum ollu því að það var með hálfum huga sem ég læddi mér inn á sýningu hans í Reykjavík. Lesendur geta vart ímyndað mér undrun mína er ég skyggnd- ist um í Galleríinu. Þar blasti við einhver nýr og áður óþekktur Ragnar Lár. Parna var ekkert klunnalegt og kæft í lit. Engu hrækt upp í flýti. Á drifhvítum veggjunum ómaði vorsöngur litaglaðs náttúrubarns sem hyllti bjúgform og milda skugga. Hví- lík leysing í einum listamanni! Hvílíkar falsanir eru verk þau sem hann hefur áður fóðrað al- menning á! Ragnar Lár hefur að þessu leyti söðlað um. Hann hefursagt skilið við truflandi þætti sem lögðust yfir einkalíf hans og uppsker nú árngurinn, leysingu, endurfæðingu. I litnum er heið- ríkja, í teikningunni spenna. Myndefni hans eru ýmisskonar tarvegir og skorningar, eða þá krossfiskættuð sprengiform sem teygja sig burt frá köggli í miðju. Á sýningunni voru bæði klippi- myndir, pennateikningar, go- uache-myndir og olíuverk. Enn þá er Ragnar dálítið flæktur í net harðrar teikningar og lokaðra heilda, sem er arfur frá brauð- striti pennans. Framtíð hans gæti legið í andhverfingunni: Mýkt dempaðra blæbrigða sem renna saman eða mætast á ið- andi samskeytum. Þetta fannst fleirum en mér gleðilegur atburður framan við Stjórnarráðið: 30 myndirseldust og lofleg ummæli birtust í Reykjavíkurmálgögnum. Akur- eyringar eru að ríkari Brand- arar Greifi einn hafði þaðfyrirfastavenju að koma daglega á sama barinn til að fá sér kvöldhressinguna. í fylgd með honum voru tveir risavaxnir úlf- hundar sem hann hafði í bandi. Þennan sið, að mæta daglega klukkan sjö á barnum, hafði greifinn haldið óslitið í fjölmörg ár og var bareigandanum farið að finnast þessi venja nánast ómissandi þátt- ur í rekstrinum. Svona gekk þetta fyrir sig dag eftir dag og ár eftir ár. Greifinn mætti með hundana tvo, keypti sér viskí- sjúss og hundarnirfengu sína bjór- kolluna hvor. Dag nokkurn brá heldur betur út af venjunni. Hundarnirkomueinir. Þeir settust á rassin fyrir framan bar- borðið og mændu vonaraugum á bareigandann. „Vesalingarnir," hugsaði bareig- andinn með sér. „Best að ég gefi þeim bjórinn, greifinn hlýtur að standa mér skil á því, þótt síðar verði." Hundarnir fengu bjórinn sinn, löptu hann af bestu lyst og fóru síðan að því búnu. Allt fór á sömu leið daginn eftir. Hundarnir komu einir, fengu bjórinn sinn og fóru síðan. En þriðja daginn var greifinn aftur í för með þeim. Hann gekk inn á barinn, virðulegur í fasi og með lít- inn kassa undir handleggnum. Hann ávarpaði bareigandann og sagði: „Voruð það þér, sem voru svo vin- samlegur að gefa hundunum mín- um bjórinn sinn, þegar þeir komu einir?“ „Jú vissulega, var það ég,“ sagði bareigandinn stimamjúkur. „Hins vegar er það ekkert til að hafa orð á, aðeins sjálfsagður greiði við fastan viðskiptavin." „Ég er hér með dálitla gjöf, til að launa þér greiðann," sagði greifinn og setti litla kass ann á borðið. Bareigandinn varð að vonum glaður við tók kassann og opnaði hann. Kom þá í Ijós, að í kassanum var kjúklingur, rétt mátulega gamall til slátrunar. „Þakka yður kærlega fyrir,“ sagði bareigandinn. „Ég tek hann með mér heim í kvöldmatinn strax í kvöld." „Nei,“ sagði greifinn. „Það er hrein- asti óþarfi. Hins vegar þætti honum mjög vænt um það, ef þú skryppir með hann í bíó, svona stöku sinnum, hann er svo mikið fyrir kvik- Sjáðu alla vnnmqana eru í boðL $r. ^ "kX.4 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS HEFUR VINNINCINN

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.