Dagur - 07.01.1983, Blaðsíða 12

Dagur - 07.01.1983, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 7. janúar 1983 Það hefur snjóað í Reykjavík! 31. janúar. Síðastliðinn sunnudag gerði stórhríð í Reykjavík og næsta nágrenni - fyrstu stórhríð vetrarins - og hefur ekkert náttúrufyrirbrigði hér á landi fengið nákvæmari né orðfleiri lýsingar í útvarpinu en þessi stórhríð, (minnir þetta ekki á eitthvað sem hefur verið að gerast síðustu daga?) Um Norðurland og Austurland hef- ur snjóað í allan vetur, þar hafa gengið stórhríðar dögum saman, samgöngur allar teppast. . . en fátt hefur verið sagt frá þessum atburðum í „ríkisútvarpinu". Má af þessu sjá að það eru engar smáfréttir þegar snjóar í Reykjavík. Óskilamenn á vinnuhæli 7. febrúar. Á fundi bæjarráðs 2. þ.m. var enn rætt um vangoaldin barnsmeðlög og fjárútlát bæjarins af þeim sökum svo og ráðstafanir til þess að koma óskilamönnum á vinnuhæli. Samþykkt var að reyna að tryggja bænum vist fyrir tvo menn á vinnuhæli sem fyrirhugað er að koma á fót í Reykjavík. Mun þessi samþykkt þýða að bærinn ger- ist aðili að stofnun heimilis af þessu tagi. Bandaríkjamenn hræddir 7. mars. Eitt víðlesnasta blað veraldar, ameríska tímarit- ið Life, birtir hinn 12. febrúar grein um loftvarnir Banda- ríkjanna og hugsanlegar loftárásir á helstu borgir þar í landi. í greininni kemur skýrt fram að af teikningum og skýringamyndum óttast Bandaríkjamenn fallhlífarliðsár- ás Rússa á íslandi og Alaska og bendir ritið á að frá þess- um stöðum megi ná til allra Bandaríkjanna á flugvélum. Þessi grein hins ameríska tímarits sýnir Ijóslega að vestan hafs óttast menn meira um öryggi íslands en íslenskir valdamenn sem virðast una því allvel að landið er óvarið með öllu og opið hvaða landræningja sem er ef hann hefur nokkrum liðsstyrk á að skipa . . . Dalvíkingar vondaufir 14. mars. Dalvíkingum hafði enn ekki borist endanlegt svar frá ríkisstjórninni um það hvort hún vilji selja þeim einn togara (ásamt Ólafsfirðingum), er síðast fréttist, en líkur fyrir því að svarið yrði jákvætt voru taldar heldur litl- ar á mánudaginn. Dalvikingar höfðu tryggt nægilegt fjár- magn til þess að leggja fram til kaupanna og ríkti almenn- ur áhugi á málinu. Munu þessi málalok valda miklum von- brigðum á Dalvík og Ólafsfirði sem eiga við erfitt atvinnuástand að búa og vildu gera þetta stóra átak til þess að efla atvinnulífið á þessum stöðum. Hætt að skammta 14. mars. Skömmtun á sykri verður afnumin næstu daga segir í fregn frá Reykjavík. -Fara skömmtunarvörurnar þá að týna tölunni og munu fáir harma það. Eftir er þá aðeins smjörlíki og smjör á hinum venjulega matvælaseðli. Ríðandi inn í skólann! 14. mars. Aðfaramótt sl. sunnudags var hringt til lög- reglunnar úr Menntaskólanum og sagt að maður á hest- baki væri kominn upp á útidyratröppur skólans og virtist ætla að ríða inn í húsið! Lögreglan brá við og sótti mann- inn og er mál hans í rannsókn. Skólameistari mun sjálfur hafa tekið á móti riddaranum í anddyrinu. Bautinn - Smiðjan Erum farnirað taka á móti pöntunum í árshátíðir og þorrablót bæði í Smiðju og úti í bæ „Ég er búln að sauma ansi 44 marga búninga - SpjaUað við Freygerði Magnúsdóttur búmngahönniið L.A. Fyrir mörgum árum var mér sagt að leikhúslífi fylgdi spenna, glens og gaman. Það fylgdi sögunni að annar eins letingi og ég í tiltekt ætti heima á slíkum stað - leikhús- fólk væri nefnilega ekki stöð- ugt að laga til og setja hlutina á sinn stað. Svei mér ef þessi gamla kenning var ekki stað- fest á dögunum þegar ég hnaut um Freygerði Magnús- dóttur, búningahönnuð LA, í Samkomuhúsinu. í herberg- inu sem hún hefur aðsetur í var allt á hvolfi, kassar hér og kassar þar, hattar uppá hillu og peysur á gólfinu. I einum kassanum voru sallafípir svartir hattar. Þeir voru merktir með gylltum stimpli: KEA. Auðvitað var ég svolít- ið imponeraður að sjá merki kaupfélagsins míns á þessum stað og innan í svörtum hatti. Raunar hef ég ekki enn séð þann flöt sem KEA-merkið fer ekki vel á. Annars var ég kominn tölu- vert útfyrir efnið. Freygerður var þarna fyrir framan mig og auðvitað spurði ég hana fyrst hvernig stæði á öllu þessu dóti. Hún Freygerður var ekki lengi að upplýsa það. Leikarar LA voru fyrir sunnan á dögunum, sýndu Atómstöðina í Þjóðleik- húsinu og það hafði ekki gefist tími til að taka upp úr kössunum og látið dótið á rétta staði. Með öðrum orðum þá var þetta ekki eðlilegt ástand. Þvert á móti. Hún Freygerður er búin að vera fastráðin hjá LA í sex ár. „Jú, ég er búin að sauma ansi marga búninga. Ég hef ekki tölu á þeim.“ - Er til spjaldskrá yfir þá muni sem eru í eigu Leikfélags- ins? - Við erum ekki búin að gera slíka skrá, en ég er búin að fá sæmilega aðstöðu fyrir búning- ana og það sem þeim tilheyrir. Það kostar óskaplega mikla vinnu að halda þessu öllu í röð og reglu, það tekst eiginlega aldrei að halda þessu í nógu góðu lagi. Plássið er ekki nógu gott en samt miklu betra en ég hef haft áður, en ég fékk heilt herbergi hérna norðurí. - Teiknarþúogsaumarlíka? - Ég geri það nú ekki oft en það kemur fyrir. - Hvernig gengur að fá efni í búningana? - Það er svolítið erfitt en ein- hvern veginn gengur það nú samt. - Takk fyrir spjallið Frey- gerður. -áþ. Freygerður Magnúsdóttir. ; ' Roadrunner (nylon) Waffle Trainer (nylon) Dynasty Lo (leather & mesh) ÆE^ Það besta er ódýrast Merkið sem tryggirgæðin .. .r.'l.’ l'‘ A 1 . . Centre Court (leather) Lady Killshot (nylon mesh) Player (leather & mesh)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.