Dagur - 07.01.1983, Page 8

Dagur - 07.01.1983, Page 8
BARNA VA GNINN Heiðdís Norðfjörð ■ Bréf frá Kanada mm ií 0 \ Halló krakkar. Gleðilegt nýár og þakka ykk- ur það liðna. Hér kemur bréf frá þremur bræðrum frá Akureyri sem búa í London, Ontario í Kan- ada. Þeir heita Oddur Ólafs- son 11 ára, Sigfús Ólafsson 8 ára og Lýður Ólafsson 6 ára. Komið þið sælir krakkar. Við fáum Dag sendan til okk- ar og þykir okkur alltaf gaman að lesa Barnavagninn. Kanada er stórt land. Þið get- ið ef til vill fundið það á landa- kortinu ykkar. íbúafjöldi er um 23 milljónir. Okkur þótti margt skrítið fyrst þegar við komum hingað, til dæmis að það var orðið dimmt fyrsta kvöldið sem við háttuðum hér og þó var sumarkvöld. Bestu vinir okkar hér eru frá Kína, Indónesíu, Afríku og Kanada. Þegar við heimsækj- um Kínverjana, borðum við með prjónum. Það var erfitt að byrja í skóla- num því að við kunnum enga ensku og skildum ekkert af því sem sagt var. En nú þykir okkar gaman í skólanum. Við förum kl. 9 á morgnana og komum heim kl. 3.30. Eitt af því skemmtilegasta sem við höfum gert hér er að taka þátt í „Halloween“. Það er eitt kvöld á ári, 31. október. Þessu kvöldi eru tengdar margar þjóðsögur og mikil hjátrú. Flestir kaupa sér Pumpkin, eða grasker, og hola það að innan. Skera þarf andlit á graskerið, setja það svo út í glugga og hafa í því logandi kerti. Þetta er gert til að halda óvættum frá húsinu. Logandi grasker í glugga, á að minna á Jakob með fjóslugt- ina, en það er þjóðsaga mjög gömul. Þegar fer að skyggja á Hallo- ween er sannarlega hægt að eiga á ýmsu von á götunum hér í Kanada. Síðast á Hallo- ween klæddumst við öll ís- lensku bömin hér grímubún- ingum. Við fóram fyrst á nokkurs konar grímuball hér í hverfinu. Þegar fór að skyggja, lögðum við af stað til að ganga í hús, hvert með sinn poka. Hér þarf ekki að syngja KATIR KRAKKAR TggWJ" VUU,N‘ l-L'J O JL\!1 5755 <T t "* JH * . 3 1 i:£l'IjL • J •• v FORNIOG FÉLAGAR Kxri hcrrn Alvitur! Kxrastinn minn hefur leidinlegan úvnnu. Hann er alltaf ad vinda upp ú hálsinn ú sér. Hvað ú ég ad gera ? Hvað ú égað gera ? Kæra ungfrú'. Gefðu honum húlsbindi úr sandpappír og hnýttu það fast ú hann. LALLILIRFA Hallowen I Kanada. Nokkurskonar þeirra. til að fá góðgæti, heldur segja allir krakkarnir eitthvað á þessa leið við þann sem til dyra kemur: „Ef þú gefur mér ekki eitthvað, skaltu hafa verra af“ eða „þá hrekki ég þig.“ Við knúðum dyra hjá mörgum. AUir tóku okkur vel og settu eitthvað í pokana okkar. Mamma og pabbi voru heima og höfðu varla við að fara til dyra og gefa góðgæti. Við söfnuðum svo miklu sæl- gæti að við verðum lengi að Ijúka við það, því við fáum það skammtað á föstudags- kvöldum. Okkur þykir dálítið furðulegt að hér er bara einn einasti jólasveinn. Hann kemur í bæ- inn 13. nóvember. Þá rak grímuball. íslensk böm og vinir hann lestina í langrí og mjög skrautlegri skrúðgöngu með trúðum og trommum, og mörgum skreyttum vögnum. Okkur þykir gaman að vera hér en hlökkum samt mikið til þess að koma heim aftur. Okkur þykir best að eiga heima á Islandi. Við biðjum að heilsa öllum vinum okkar og frændfólki og óskum ykkur öllum gleðilegs nýárs. Verið þið blessuð og sæl, Oddur, Sigfús og Lýður, Kan- ada. Við þökkum þeim bræðrum kærlega fyrir bréfíð. Ef til vill fáum við seinna að heyra meira frá þeim. Og við send- um þeim okkar bestu kveðjur. Bömin em, talið frá vinstri: Anna Guðmundsdóttir (prinsessa). Krist- ín Guðmundsdóttir (draugur). Kolbrún Kristjánsdóttir (galdranorn). Guðmundur Kristjánsson (bleiki pardusinn - sá litli fyrir miðju). Oddur (ófrýnilegur karatemaður). Lýður (kúreki - Lone Ranger). Sigfús (kúreki). Fremst á myndinni er „Pumpkinið“ eða Graskerið. - Hvers vegna ertu meö þessa kúlu á enninu? - Hann Gummi skvetti á mig vatni! - Ekki hefur komiö nein kúla undan því? - Jú, þaö var sko flaska utan um vatnið...! ☆ ☆☆ Tveir drengir voru að tala um ýmsa sjúkdóma og slys, sem þeir höfðu lent í. - Einu sinni gat ég ekki gengið í heilt ár! sagði annar. - Hvenær var það? spurði hinn. - Þegar ég var smábarn ... ☆ ☆☆ ☆ ☆☆ Óli: Nú hafa vísindamennirnir sannað að William Tell hafi alls ekki verið til. Petra: Nú? Og hver hefur það þá verið sem skaut eplið af höfði sonar hans... ☆ ☆☆ Mamman við dótturina: - Sérðu betur með nýju gleraugunum þinum? - Já, pabbi...! ☆ ☆☆ Morgun einn varð Gunni litli að þola miklar skammir frá föður sínum. Þegar pabbi hans kom úr vinnunni um kvöldið kallaði Gunnar til mömmu sinnar: - Mamma, maðurinn þinn er að koma heim úrvinnunni! 8-DAGUR -7.janúar 1983

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.