Dagur - 14.01.1983, Side 9
STÆLT OG STOLIÐ
Hvað gerir einsetumaður sem
lifað hefur meinlætalífi fjarri Öll-
um mannabyggðum, þegarhon-
um tæmist skyndilega arfur upp
á hvorki meira né minna er hálfa
aðra milljón króna? Það er von
að spurt sé.
Einsetumaðurinn Herbert
Hotz, 65 ára gamall, sem bjó í
kofaskrifti í Astralíu, varð heldur
betur undrandi þegar hann
heyrði að faðir hans væri dáinn
og hefði ánafnað honum einni
og háifri milljón. Fyrst og fremst
var Herbert undrandi vegna
þess að hann var búinn að
steingleyma að hann ætti föður,
en þegar hann tók til við að rifja
fortíðina upp kom í ljós að hann
hafði hlaupist að heiman sem
unglingur eftir mikið fjölskyidu-
rifrildi og síðan þá, eða f tæp
fimmtíu ár hafði hann hvorki
heyrt né séð fjölskyldu sína.
Ein og hálf milljón króna beið
nú Herberts og það eina sem
hann þurfti að gera var að rétta
út hendina og grípa krónurnar.
Nei, en það vildi Herbert alls
ekki. Hann hafði komist bæri-
lega af án þess að nota peninga
fram að þessu og eini munaður-
inn sem hann lét eftir sér var að
láta tengja kofaskriflið nær-
liggjandi vatnslögn og síðan
keypti hann sér baðkar, sem
hann getur svo væntanlega
svamlað í til æviloka. Af-
gangnum af arfinum gleymir
Herbert svo væntanlega eins og
hann gleymdi fjölskyldunni
forðum.
Pað var svo sannariega óvænt Ekki var þó allt sem sýndist. þessu gríni var sú að kunningjar
sjónsemmættiPhilipsfjölskyld- Fljótlega kom í ljós að þarna Hr. Philips vildu koma honum
unni þegar hún kom heim úr höfðugrallararveriðaðverkiog rækilega á óvart. Peter Philips,
sumarfríinu. Pýsk sprengju- höfðu þeir útbúið „móttökurn- sem búsettur er í Woodcote í
flugvél frá fyrri heimstyrjöld ar“ kvöldið áður en fjölskyldan nágrenni ReadingíEnglandi,er
hafði greinilega gert sér dælt við kom heim úr fríinu. Svo vel var ákafur flugvélahlutasafnari og
húsið og var engu líkara en ,)Slysið“ sviðsett að gárungarnir hvað var þá betra en að færa
framhluti hennar væri á kafi í höfðu meira að segja málað honumþýskasprengjuflugvélalla
svefnherbergi Philipshjónanna. sprungur á húsið út frá flugvélar- leiðina inn i svefnherbergið og
Auk þess hengu líkin af tveim skrokknum. Ástæðan fyrir áhöfnina að auki?
flugmönnum utaná húsinu.
Pað er vitað að það er margt
skrýtið í henni veröld, en fæstir
hat’a þó heyrt getið um sektir
fyrir of hraðan róður.
Þessi saga er frá Málmey í
Svíþjóð. Pað var haft samband
við lögregluna og henni bent á
að alltof mikil ferð væri á fleyum
Kajak-klubbsins á tilteknum
skurði í borginni. Lögreglan brá
skjótt við og skundaði á staðinn
með radartæki sín og mældi
hraða kajakanna, sem þarna
tóku þátt í hinum árlega kapp-
róðri klúbbsins. Jú mikii ósköp,
allir kaj akarnir voru brotlegir og
á alltof miklum hraða. Yfir-
maður lögreglusveitarinnar
stöðvaði því þetta ólöglega at-
hæfi og sektaði alla ræðarana
fyrir of hraðan róður, en mörkin
sagði hann vera fimm hnúta.
Ekki leið þó á löngu áður en yfir-
maðurinn varð að éta þetta allt
ofan í sig aftur því að f reglu-
gerðinni var einungis fjallað um
vélknúin fley. Gátu því ræðar-
arnir róið öllum árum fram og
aftur um skurðinn, en hraða-
mælingadeildin og sektarmið-
arnir fengu að róa sinn sjó
Útsala
20-35% aísláttur
Útsala á barnafatnaði hefst mánudag-
inn 17. janúar nk. í verslun okkar í
Sunnuhlíð. Allt góðar og nýlegar vörur.
Ath. Einungis í versluninni í SUNNUHLÍÐ.
Stærsta blaðið sem gefið
er út utan Reykjavíkur
Allt undir sama þaki:
Ritstjórn ★ Afgreiðsla ★ Auglýsingar ★ Prentsmiðja
14. janúar 1983 - DAGUR - 9