Dagur - 14.04.1983, Qupperneq 9
Valgerður Sverrisdóttir:
Gera þarf mark-
vissa áætlun
um aukningu
loðdýraræktar
Nú eru liðin rneira en 3 ár síðan
fyrstu blárefimir komu til
landsins. Það verður ekki annað
sagt, en að þessi búskapur henti
ágætlega hér á landi og ætti það
einnig að gilda um minkarækt.
Það var í ráðherratíð Stein-
gríms Hermannssonar sem land-
búnaðarráðherra að loks feng-
ust heimildir í lögum er gerðu
bændum kleift að hafa stjórn á
framleiðslunni. Ráðherrann
gerði sér grein fyrir þörfinni á
framleiðslubreytingu í landbún-
aði og voru bændur hvattir til
þess að setja á stofn refabú, sem
fyrst í stað voru rekin sem nokk-
urs konar tilraunabú.
Nú þegar þetta er skrifað eru
refabúin í landinu orðin yfir 80
talsins og heilt yfir má segja að
vel hafi tekist til. Það sem sér-
staka athygli vekur er að hér eru
að meðaltali 6,7 hvolpar á læðu,
sem er 2 hvolpum yfir meðaltali í
Noregi.
Bæði þetta og eins það, að hér
höfum við mikla möguleika á að
vera með ódýrara fóður, gerir
loðdýraræktina virkilega áhuga-
verða fyrir ísland. Það er bara
þannig með fóðrið, að þótt það
geti verið ódýrt í fóðurstöð
ræður flutningskostnaður miklu
um hið endanlega verð þess, og
því er loðdýraræktin ekki jafn
heppileg hvar sem er á landinu.
Það sem gerir okkur erfitt
fyrir hér hvað snertir uppbygg-
ingu er hinn hrikalegi fjár-
magnskostnaður, sem er öllum
kunnur. Það hefur nokkuð vant-
að á það að undanförnu, að veitt
hafi verið fé til framkvæmda í
loðdýrarækt í samræmi við yfir-
lýsingar stjórnvalda. Mér segir
svo hugur, að betur hefði verið
staðið að þessum málum í nú-
verandi ríkisstjórn ef Steingrím-
ur Hermannsson hefði farið með
landbúnaðarmál.
í ályktun um atvinnumál frá
18. flokksþingi framsóknar-
manna segir m.a. í kaflanum um
landbúnaðarmál: „Þingið leggur
sérstaka áherslu á að nú verði
unnið að eftirfarandi: Að ötul-
lega verði unnið að eflingu nýrra
búgreina þannig að ekki þurfi að
koma til röskun byggðar vegna
samdráttar í hefðbundnum
greinum.
Af nýjum búgreinum virðist
loðdýrarækt líklegust til að hafa
góða vaxtarmöguleika á næstu
árum og ber að leggja áherslu á
þróun hennar sem samkeppnis-
atvinnuvegar við loðdýrarækt í
nálægum löndum. Fjármagn
þarf að tryggja til uppbyggingar
hennar með lánum til nægilega
langs tíma þannig að loðdýra-
ræktun njóti svipaðra kjara og í
samkeppnislöndunum.
Tryggja þarf loðdýrarækt og
öðrum nýbúgreinum sem fram-
leiða til útflutnings í öllu svipuð
starfsskilyrði og gerast í nálæg-
um löndum.
Stórefla þarf rannsóknir, kennslu
og leiðbeiningaþjónustu á sviði
loðdýraræktar og annarra ný-
greina, þannig að árangri af upp-
byggingarstarfemi á þessum svið-
um sé ekki stefnt í tvísýnu vegna
ónógrar þekkingar og þjálfunar.
Gera þarf markvissa áætlun um
fyrirhugaða aukningu loðdýra-
ræktar næstu árin þannig að hún
verði sem arðbærust og að þróum
hennar falli að breytingum á öðr-
um sviðum búskapar, treysti bú-
setu og atvinnulíf þar sem þess er
mest þörf, jafnframt því sem
stuðlað er að sem hagkvæmastri
nýtingu þess loðdýrafóðurs sem
fellur til frá landbúnaði og sjávar-
útvegi.“
Að síðustu langar mig til að
fara nokkrum orðum um minka-
ræktina sem segja má að sé auð-
veldari viðureignar en refaræktin.
Hún hefur þó orðið nokkuð út-
undan í allri umræðu um loðdýra-
rækt. Eins og menn vita þá voru
sett á stofn nokkur stór minkabú
fyrir 10-15 árum þegar loðdýra-
rækt var heimiluð að nýju. Rekst-
ur þessara búa hefur gegnið erfið-
lega og eru aðeins 3 þeirra ennþá í
fullum rekstri. Árið 1980 voru
fluttar inn frá Skotlandi 250
hvolpafullar minkalæður og var
það liður í þeirri tilraun sem land-
búnaðarráðuneytið gekkst fyrir.
Þetta voru að sjálfsögðu heilbrigð
dýr hvað varðar „plasmacytosis",
en hafa þrátt fyrir það reynst illa
miðað við þær vonir sem voru
bundnar við þau.
Nú á næstunni verða fluttar til
landsins 2000 hvolþafullar minka-
læður frá Danmörku sem fara á 4
bú. Það veltur mikið á hvernig
þessi dýr reynast hver framtíð
minkaræktar verður og því mjög
áhugavert að fylgjast með þeim á
næstu misserum.
Þar sem flest bendir til að þessi
atvinnugrein geti styrkt mjög bú-
setu í strjálbýli er orðið mjög
brýnt að flytja inn kynbótadýr í
refarækt og fleiri afbrigði af ref á
næstunni svo að við íslendingar
verðum viðurkenndir skinna-
framleiðendur á heimsmæli-
kvarða.
Valgerður Sverrisdóttir
Unglingameistaramót íslands á skíðum:
Gleði og sorg
í Hlíðarfjalli
Unglingameistaramót íslands á
skíðum fór fram í Hlíðarfjalli á
Akureyri dagana 8.-11. apríl.
Til mótsins voru mættir hátt á
annað hundrað keppendur víðs
vegar að af landinu. Skíða-
íþróttin er sú grein íþrótta sem
hvað mest er háð veðri. Móts-
dagana er óhætt að segja að
veðurguðirnir hafi leikið við
þátttakendur og mótshaldara.
Þegar áhugasamir og dugandi
starfsmenn, er leggja ómælda
sjálfboðavinnu á sig, eru sam-
ankomnir ásamt liprum eftirlits-
manni mótsins og góðu veðri þá
ganga skíðamót vel fyrir sig.
Unglingameistaramótið var Ak-
ureyringum og aðstandendum
þess til mikils sóma.
Eins og venjulega voru Ólafs-
firðingar og Siglfirðingar mjög
sterkir í norrænu greinunum og
þeir, ásamt ísfirðingum, hirtu
nánast öll verðlaun í þeim grein-
um.
Á Akureyri voru allir bestu
skíðamenn í unglingaflokkum
mættir til leiks, margir þeirra
ætluðu sér fyrstu sætin og lögðu
allt í sölurnar til að svo gæti
orðið. Stundum var áhættan sem
tekin var of mikil og þurftu þá
ýmsir að bíta í það súra epli að
falla úr keppni. Það var því
hvofutveggja gleði og sorg sem
ríkti í Hlíðarfjalli dagana 8.-11.
apríl.
í lokin hélt bæjarstjórn Akur-
eyrar glæsilegt hóf til handa
starfsmönnum, keppendum og
fararstjórum í Sjallanum. Þar
voru allir orðnir sólbrúnir og
brosandi svo líklegt er að þó
skipst hafi á skin og skúrir í leik
þá var það gleymt í mótslok.
KEA var styrktaraðili mótsins
og gaf öll verðlaun.
Einstaklingskeppni í flokki
stúlkna 13-15 ára og flokkum
drengja 13-14 ára og 15-16 ára
fór fram við Skíðastaði laugar-
daginn 9. apríl. Keppendur voru
komnir frá Dalvík, ísafirði, Ól-
afsfirði og Siglufirði auk Akur-
eyringa. Vegna samgönguerfið-
leika tókst Fljótamönnum ekki
að mæta til leiks.
í flokki stúlkna, en þær gengu
2,5 km, áttu ísfirðingar 3 fyrstu
sætin. Stella Hjaltadóttir sigraði
stöllur sínar með nokkrum yfir-
burðum. í flokki drengja 13-14
ára, sem gengu 5 km, sigraði
Ingvi Óskarsson frá Ólafsfirði.
Akureyringar áttu þarna 2 full-
trúa, þá Rögnvald Ingþórsson
og Ásgeir Guðmundsson. Sigl-
firðingar höfðu algera yfirburði í
flokki 15-16 ára, sem gengu 7,5
km, en þeir skipuðu sér í 4 fyrstu
sætin. Steingrímur Hákonarson
varð þeirra fyrstur. Gunnar
Kristinsson frá Akureyri átti í
harðri baráttu við Garðar Sig-
urðsson, Reykjavík og Bjarna
Gunnarsson, ísafirði. Lyktir
urðu þær að Gunnar varð 7. en
þeir félagar komu í markið á
sömu 15 sekúndunum. Gunnar,
eini Akureyringurinn í þessum
flokki, hefur æft all vel frá því á
síðastliðnu sumri og árangurinn
er nú að skila sér.
Keppt var í boðgöngu sunnu-
daginn 10. apríl. Sveit Isfirðinga
sigraði sveit Siglfirðinga í boð-
göngu stúlkna, 3x2,5 km. Stella
Hjaltadóttir átti bestan braut-
artíma, 9:32. í boðgöngu
drengja 13-14 ára, 3x3,5 km,
sigraði A-sveit Ólafsfirðinga
sína eigin B-sveit sem varð 3. og
sveit Siglfirðinga sem varð
önnur. Bestum brautartíma
náði Ingvi Óskarsson, Ólafs-
firði, 10:00. í boðgöngu 15-16
ára drengja, 3x5 km sigruðu
Siglfirðingar með miklum yfir-
burðum. Bestan brautartíma
hafði Steingrímur Hákonarson
14:21. Aðrar sveitir voru frá ísa-
firði, Ólafsfirði og síðan blönd-
uð sveit Akureyringa og Fljóta-
manna.
Ólafsfirðingar, ísfirðingar og
Siglfirðingar skipta nú með sér
verðlaunum, nokkuð bróður-
lega að þessu sinni. Fróðlegt
verður þó að sjá hvort t.d. Akur-
eyringum og Dalvíkingum tekst
þó ekki að ógna veldi þessara
gamalgrónu „göngu-bæja“ á
næstu árum.
Svig stúlkna 13-14 ára:
1. Kristín Ólafsdóttir R 77.69
2. Helga Sigurjónsdóttir A 81.00
3. Kristín Jóhannsdóttir A 81.65
4. Þórdís Hjörleifsdóttir R 82.92
5. Guðrún Alfreðsdóttir S 83.43
Svig stúikna 15-16 ára:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir A 83.94
2. Guðrún J. Magnúsdóttir A 84.90
3. Bryndís Viggósdóttir R 85.43
4. Signe Viðarsdóttir A 86.46
5. Helga Stefánsdóttir R 88.87
Stórsvig drengja 13-14 ára:
1. Bjöm Brynjar Gíslason A 96.35
2. Brynjar Bragason A 96.99
3. Birkir Sveinsson Úí A 99.75
4. Þorsteinn Lindbergsson ÚÍA 99.86
5. Kristinn Grétarsson í 100.24
Stórsvig drengja 15-16 ára:
1. Ámi G. Árnason H 115.13
2. Atli Einarsson í 116.71
3. Guðjón Ólafsson f 119.91
4. Rúnar I. Kristjánsson A 119.94
5. Tryggvi Haraldsson A 120.77
Ganga stúlkna 13-15 ára:
1. Stella Hjaltadóttir í 9.42
2. Auður Ebenesardóttir í 10.49
3. Ósk Ebenesardóttir í 11.02
4. Sigurbjörg Einarsdóttir S 11.39
5. Harpa Jónsdóttir Ó 11.40
Ganga drengja 15-16 ára:
1. Steingrímur Hákonarson S 23.45
2. Baldvin Kárason S 24.16
3. Ólafur Valsson S 24.39
4. Karl Guðlaugsson S 24.54
5. Bjarni Gunnarsson f 25.02
Boðganga stúlkna 13-15 ára:
1. Sveit ísafjarðar 31.80
2. Sveit Siglufjarðar 34.59
Boðganga drengja 13-14 ára:
1. A sveit Ólafsfjarðar 31.25
2. Sveit Siglufjarðar 34.24
3. B sveit Ólafsfjarðar 37.16
Boðganga drengja 15-16 ára:
1. Sveit Siglufjarðar 43.50
2. Sveit fsafjarðar 46.57
3. Sveit Ólafsfjarðar 48.08
4. Sveit AkureyrarogFljótamanna
48.27
Svig drengja 13-14 ára:
1. Brynjar Bragason A 76.57
2. Sigurður Bjamason H 77.90
3. Aðalsteinn Árnason A 79.25
4. Gunnar Reynisson A 80.66
5. Stefán Gunnarsson D 81.16
Svig drengja 15-16 ára:
1. Árni G. Árnason H 84.98
2. Guðmundur Sigurjónsson A 87.08
3. Atli Einarsson í 88.04
4. Guðjón Ólafsson í 90.33
5. Tryggvi Haraldsson A 91.13
Stórsvig stúlkna 13-14 ára:
1. Snædís Úlríksdóttir R 105.89
2. Kristín Ólafsdóttir R 106.49
3. Gréta Björnsdóttir A 107.69
4. Hclga Sigurjónsdóttir A 107.76
5. Sigrún Sigurðardóttir í 108.85
Stórsvig stúikna 15-16 ára:
1. Guðrún J. Magnúsdóttir A 124.52
2. Signe Viðarsdóttir A 126.01
3. Guðrún H. Kristjánsdóttir A 126.80
4. Bryndís Viggósdóttir R 127.41
5. Anna M. Malmquist A 127.86
Stökk drengja 15-16 ára:
1. Randver Sigurðsson Ó
2. Hjalti Hafþórsson S
3. Ólafur Bjömsson Ó
4. Frímann Ásgeirsson Ó
Stökk drengja 13-14 ára:
1. Jón Árnason Ó
2. Hafþór Hafþórsson S
3. Þórir Hákonarson S
Norræn tvíkeppni drengja 13-14 ára:
1. Þórir Hákonarson S
2. Jón Árnason Ó
3. Hafþór Hafþórsson S
Norræn tvíkeppni drengja 15-16 ára:
1. Ólafur Bjömsson Ó
2. Frímann Ásgeirsson Ó
3. Randver Sigurðsson Ó
4. Hjalti Hafþórsson S
Flokkasvig stúikna 13-14 ára:
1. Sveit ísafjarðar 306.25
2. Sveit Dalvíkur 317.85
3. Sveit Akureyrar 362.95
Flokkasvig stúlkna 15-16 ára:
1. Sveit Akureyrar 382.30
2. Sveit Reykjavíkur 399.93
Flokkasvig drengja 13-14 ára:
1. Sveit fsafjarðar 309.61
2. Sveit Akureyrar 314.87
3. Sveit Dalvíkur 351.14
4. Sveit Húsavtkur 360.93
Flokkasvig drengja 15-16 ára:
1. Sveit Akureyrar 351.28
Aðrar sveitir féllu úr keppni.
Alpatvíkeppni stúlkna 15-16 ára:
1. Guðrún J. Magnúsdóttir A
2. Guðrún Kristjánsdóttir A
3. Bryndís Viggósdóttir R
4. Signe Viðarsdóttir A
5. Helga Stefánsdóttir R
Alpatvíkeppni stúlkna 13-14 ára:
1. Kristín Ólafsdóttir R
2. Helga Sigurjónsdóttir A
3. Þórdís Hjörleifsdóttir R
4. Guðrún Sigurðardóttir f
5. Svanhildur Svafarsdóttir Ó
Alpatvíkeppni drengja 15-16 ára:
1. ÁmiG.ÁmasonH
2. Atli Eincrsson f
3. Guðjón Ólafsson f
4. Tryggvi Haraldsson A
5. Þorvaldur Þorsteinsson S
Alpatvíkeppni drengja 13-14 ára:
1. Brynjar Bragason A
2. Sigurður Bjarnason H
3. Aðalsteinn Ámason A
4. Stefán Gunnarsson D
5. Gunnar Reynisson A
Í4Í. áþríf 19'83 - DAGOR- 9