Dagur - 27.05.1983, Side 2
Lauganemar
halda nemendamót
Nemendur Laugaskóla í Reykja-
dal veturinn 1932-1933 hafa
ákveðið að halda nemendamót á
Laugum 12. júní nk.
Fyrir skömmu skaut þeirri hug-
mynd upp hjá nokkrum hálfrar
aldar Lauganemum, að þeirra
tímamóta yrði minnst með því
að heimsækja gamla skólann
okkar 12. júní og miða heim-
sóknina við það að vera komin í
skólann fyrir klukkan 12 á hádegi
nefndan dag. Þá kom okkur einn-
ig saman um að útvega 100 falleg-
ar „garðplöntur" og setja þær
niður á fögrum stað á Laugum
þennan sama dag til minningar
um dvöl okkar og nám í Lauga-
skóla fyrir hálfri öld, veturinn
1932-1933 og sem lítinn þakklæt-
isvott við skólasetrið.
Kostnaðinum við plönturnar
jöfnum við niður þegar þar að
kemur. Hinum gömlu nemend-
um er hjartanlega velkomið að
taka með sér gesti. En allir þurfa
að tilkynna þátttöku sína fyrir 5.
júní nk. Erlingi Davíðssyni, Ak-
ureyri í síma 23856 eða til undir-
ritaðs.
Einarsstöðum í Reykjadal
18. maí 1983
Sigfús Jónsson
Þessi grein átti að birtast í síð-
asta blaði en því miður féll hún út
fyrir misgáning. Blaðið biður
hlutaðeigandi afsökunar á þeim
mistökum.
VIÐ----
FLYTJUM
N.T. umboðið h.f. (áður Norðlensk trygging
h.f.), Ráðhústorgi 1 (2. hæð), er flutt og opnar
föstudaginn 27. maí n.k. í Verslunarmiðstöð-
inni Sunnuhlíð.
Við bjóðum:
(1) Vátryggingar. Umboð: ÍP2Slf(G<GSÍNl<3"
Veitum fyrirtækjum og einstaklingum al-
hliða vátryggingaþjónustu.
REYNIÐ OKKAR ÞJÓNUSTU.
Enn fremur:
(2) Ljósritunarþjónustu.
Ljósritum í stærðunum A-4 og A-3 auk
smækkunar.
Ljósritum á venjulegan pappír, löggiltan
skjalapappír eða glærur.
(3) Skattskilaþjónustu fyrir einstaklinga.
ÖMBOÐIÐ HF
Sunnuhlíð Pósthólf 383
602 Akureyri Sími 2 18 44
Nafnnr. 6594-5312 _
Garðyrkjustöðin
Laugarbrekka Eyjafirði
Plöntulisti 1983
SUMARBLÓM:
Stjúpur blandaðar
“ bláar
“ hvítar
“ gular
“ rauðar
“ dökkbláar
“ appelsínugular
gularm.dökkamiðju
hvítar með dökka miðju
Stjúpurstórb!. rauðar
“ gularmeðauga
“ hvítarmeðauga
Ljónsmunni blandaður
“ rauður
“ hvítur
Fiðrildablóm (nemesía)blandað
Morgunfrú appelsínugul
“ lág blönduð
Hádegisblóm blandað
“ guit
Nellika blönduð
“ rauð
Flauelsblóm gult
“ rautt
llmskúfur (levkoj)blandaður
“ rauður
“ hvítur
“ gulur
“ bleikur
“ fjólublár
Eilífðarblóm blandað
“ rautt
hvítt
“ guit
Sumarstjarna (aster) blandaður
Skrautnál (alyssum) hvít
Skrautnál rauð
Skrautnál
Tóbakshorn
Fingurbjargarbl
Fagurf ífill
Kornblóm
Silfurkambur
Lóbelía
Hengilóbelía
Meyjarblómi
Prestakragi
Regnboði
Sveip kragi
Snækragi
Daggarbrá
Paradísarblóm
Eilífðarblóm
blá
(petunia) blandað
fyllt blandað
blandað
(bellis)
rauður
hvítur
blátt
silfurgrá blöö
blá
hvít
blámeðhvítu auga
blandaður
bleikur
blandaður
blandaður
blandaður
hvitur
gul
hvít
blandað
(acroclinium)
FJÖLÆR BLÓM:
Sporasóley blönduð
Fjaðurnellika bleik
Dvergnellika rauð
Riddaraspori blandaður
Hjartaklukka blá
Skarlatsfífill rauður
Lúpínur blandaðar
“ rauðar
Bergnál gul
Iberis hvítur
Risavalmúi rauður
Valmúi blandaður
Höfuðklukka grá
Hjartaf ífill gulur
POTTABLÓM:
Aster
Nellika
Petunia
Flauelsblóm
Salvia
Skrautkambur
Áralía
Philodendron
Schefflera
Skógarhár
MATJURTIR:
Hvítkál
Blómkál
Grænkál
Rauðkál
Rófur
Höfuðsalat
íssalat
Rauðrófur
Spergilkál
Rósakál
Hnúðkál
VERÐ:
Sumarblóm (4 st. í
búnti) kr. 38.
Fjölær blóm frá
kr. 20.
Pottablóm frá kr. 35.
Kál kr. 6.
Aðrar matjurtir kr. 5
Opið mánud. til föstud. kl. 9-12 og 13-21.
Laugardaga og sunnudaga kl. 9-12 og 13-18.
Sölustaðui' á Akureyri auglýstur síðar.
Kalaar
Kveojur
Egill Jónasson, skáld á Húsa-
vík, sendir mér talsvert kalda
kveðju í blaðinu Degi á Akur-
eyri föstudaginn 20. maí þ.á.
Ber hann mér þar á brýn að ég
hafi breytt vísu eftir Steingrím
Baldvinsson í Nesi er birtist í
vfsnaþætti Dags þann 6. maí.
Þetta er alrangt og skal ég nú
finna þessu stóryrði mínu stað.
Á síðastliðnum vetri skrifaði ég
Pétri Steingrímssyni, frá Nesi,
er nú býr að Laxárnesi. Vissi
ég að hann er hagorður vel og
bað ég hann að senda mér
nokkrar vísur til birtingar í
vísnaþættinum. Brást Pétur vel
við og hef ég þegar birt þrjár
vísur hans. Hinar koma síðar. í
leiðinni sendi hann mér eina
vfsu er faðir hann hafði ort og
fylgdu henni eftirfarandi orð:
- Stundum kemur fyrir að vfs-
ur brcytast í meðförum oggetur
þetta breytt merkingu þeirra.
Sem dæmi er hér ein vísa eftir
Steingrím, föður minn. Margir
hafa vísuna svona:
Hefst nú skeid hins skamma dags,
skuggar leiðir fíakka.
Vindur greidir t'anna fax
fram af heiðar makka.
Sern barn heyrði ég föður minn
hafa þessa vísu nokkuð á annan
veg. Þá var hún þannig:
Styttist skeið hins skamma dags,
skuggar i leiðum fíakka.
Vindur greiðir fanna fax
fram af heiðar makka.
í ljóða bók Steingríms Bald-
vinssonar, Heiðmyrkri, er enn
ein „útgáfan“ af fyrstu hend-
ingu nefndrar vísu, eins og Egill
Jónasson bendir réttilega á.
Ekki bað Pétur mig að birta vís-
una en mér fannst sem hann
ætlaðist til þess fyrst hann sendi
hana ásamt sínum eigin vísum
er áttu að fara í þáttinn.
Það er sannfæring mín að
Pétur hefur lært vísuna ná-
kvæmlega rétta af vörum föður
sfns og því birti ég hana í hinni
upprunalegu mynd.
Hverjir hafa svo orðið til þess
að umturna vísunni síðar eftir
sínu höfði skiptir mig engu
máli. Skæting Egils í minn garð
tel ég tæpast svaraverðan. Þó
skal á það bent að hafi mér ver-
ið tjáð með réttu að mér hafi
orðið á í messunni í einhverri
bók minni, hef ég leiðrétt það í
næstu bók. Að lokum lætur
Egill að því liggja að ég leitist
við að gera umbætur á vísum
Steingríms Baldvinssonar.
Þetta er ijótur áburður og ekki
samboðinn Agli Jónassyni.
Jón Bjarnason.
heldur víst
að hann
vlti allt og
lioiium sé allt
leyfilegt
Fyrirsögnin á athugasemd Egils Jónassonar.
Plastgróðurhús
frá Plastprent hf.
frá 4,8 fm til 39 fm og jafnvel enn stærri.
Umboðsmenn:
Valdemar Baldvinsson sf.
Tryggvabraut 22, sími 21344
Akureyri.
2 - DAGUR - 27. maí.1983