Dagur - 20.06.1983, Page 11
Aðalfundur Sambandsins að Bifröst:
29 milljón króna
rekstrarhalli 1982
Aðalfundur Sambandsins var að þessu sinni haldinn að Bif-
röst en rétt til fundarsetu áttu 117 fulltrúar, 43 Sambands-
kaupfélaga. Það voru því umbjóðendur 45.281 félagsmanna
í kaupfélögunum sem mættu á fundinn en að venju sátu einn-
ig fundinn, stjórnarmenn Sambandsins, framkvæmdastjór-
ar og nokkrir aðrir starfsmenn. Aðalmál fundarins að þessu
sinni voru „fjárhagsmál Samvinnuhreyfingarinnar“ en þess
má geta að nú varð í fyrsta skipti um margra ára skeið halli
á rekstrarreikningi Sambandsins og nam hann alls 29 milljón-
um króna.
Velta Sambandsins.
Heildarvelta Sambandsins árið
1982 nam 3.627 milljónum króna
og jókst hún á milli ára um 1.244
milljónir eða 52,2%. Veltan
skiptist þannig niður á deildir,
talið í þúsundum króna:
Eins og sjá má af ofangreindri
töflu varð veltuaukningin hlut-
fallslega mest hjá Iðnaðardeild
og Innflutningsdeild, en sam-
kvæmt Sambandsfréttum nam út-
flutningurinn af þessari veltu
1.519 milljónum kr. og jókst um
49,1%. Langmest af þessum út-
flutningi er hjá Sjávarafurða-
deild, eða 1.203 milljónir króna
og jókst hann um 49,2% miðað
við cif-verðmæti þrátt fyrir það
að útflutningur sjávarafurða frá
landinu hafi aðeins aukist um
24,3% á síðasta ári. Hlutdeild
Sjávarafurðadeildar í útflutningi
landsmanna á sjávarafurðum
jókst úr 14,6% árið 1981 í 17,3%
á árinu 1982. Þá jókst útflutning-
ur Iðnaðardeildar um 74,6% sem
þýðir að deildin hefur aukið hlut-
deild sína í útflutningi iðnaðar-
vara. Útflutningur Búvörudeild-
ar jókst hins vegar aðeins um
17,5% sem endurspeglar þá þró-
un sem orðið hefur undanfarin ár
í kjötútflutningi hér á iandi. f»á
telst það til nýjunga að Innflutn-
ingsdeild er með útflutning að
fjárhæð 177 þús. kr. og er það
sala á kexi frá Kexverksmiðjunni
Holt til Færeyja.
Hlutdeild útflutnings í heildar-
veltu Sambandsins var 41,9%,
samanborið við 42,7% árið 1981.
Hefur hann lækkað um 0,8 pró-
sentustig, sem stafar af samdrætti
í útflutningi landsmanna á árinu.
Innanlandssala Sambandsins
nam 2.024 milljónum króna á ár-
inu 1982 og jókst um 55,3%. Iðn-
aðardeild er með mestu veltu-
aukninguna annað árið í röð, en
innanlandssala hennar jókst um
67,0%. Skipadeild var með
55,6% aukningu þrátt fyrir nokk-
urn samdrátt í flutningum. Nánar
til tekið var því þannig háttað að
innflutningur í tonnum jókst um
4,5% en verulegur samdráttur
varð á útflutningsmagninu, eða
um 28,1%, sem stafar af sam-
drætti í útflutningi á lýsi og mjöli.
Aukning innanlandssölu hjá Inn-
flutningsdeild er nokkru minni en
heildarinnflutnings á neysluvör-
um til landsins, án bifreiða, en
hins vegar jókst innflutningur
deildarinna á byggingavörum ail-
mikið og virðist deiidin hafa auk-
ið hlutdeild sína á þeim vöru-
flokkum. Hjá Véladeild var veru-
leg aukning hjá Rafmagnsdeild,
eða um 79,5%.
Af heildarveltunni nam um-
boðssala 2.061 milljón króna og
hækkaði hún um 47,7%. Lang
veigamesti hluti umboðssölunnar
er sala á sjávar- og landbúnaðar-
afurðum. Mesta aukning um-
boðssölu var að þessu sinni hjá
Véladeild, eða 161,8%. Ástæða
fyrir þessari mikli aukningu er
veruleg söluaukning Rafmagns-
deildar en einnig var umtalsverð
aukning umboðssölu hjá Bíl-
adeild.
Starfsmenn Sambandsins voru
1.827 í árslok 1982.
Rekstarniðurstaða
Á síðasta ári hafði hin óhagstæða
þróun efnahagsmála mjög nei-
kvæð áhrif á rekstur og afkomu
Sambandsins og olli hún því að
halli er nú á rekstrarreikningi
þess. Nánar til tekið er þessu
þannig háttað að heildartekjur
Sambandsins urðu 1.693,2 millj.
kr. og jukust um 61,6%. Brúttó-
tekjur urðu 751,4 millj. og tekjur
eftir rekstargjöld og fyrningar
152,6 millj. Fjármagnsgjöld, að
frádregnum fjármagnstekjum
urðu hins vegar 174,4 millj. og
hækkuðu milli ára um 188,4%.
Ástæður þessarar miklu hækkun-
ar eru fyrst og fremst tvær. Ann-
ars vegar varð gengistap af er-
lendum lánum mikið, m.a. vegna
þess hve dollarinn hækkaði mikið
í verði á árinu gagnvart íslensku
krónunni, eða um 103%. Hins
vegar hefur vaxandi hluti inn-
lendra lána farið á vísitölulán og
vegna þess hve verðbólgustigið
var hátt þá urðu verðbætur á vísi-
tölulánin háar að sama skapi.
Þegar síðan hefur verið tekið til-
lit til eignarskatta, tekjuskatta
o.fl. þá er halli á rekstarreikningi
29,0 millj. kr. Að því er hins veg-
ar að gæta að hefði hækkun fjár-
magnskostnaðar orðið hin sama
í prósentum og hækkun tekna,
þá hefði reksturinn batnað um
70,0 millj. kr.
Samkvæmt efnahafsreikningi
Sambandsins nema eigið fé og
sjóðir þess í árslok 1982 456,8
millj. kr. og hefur halli á reksti
ársins þá verið dreginn frá. í árs-
lok 1981 nam eigið fé 322,3 millj.
kr. í þessu sambandi er enn frem-
ur að gæta að því að eignar-
hlutar Sambandsins í samstarfs-
fyrirtækjum hafa ekki verið færð-
ir upp til samræmis við verð-
mætaaukningu og eru þeir van-
metnir um 224,4 millj. Afkoma
samstarfsfyrirtækja Sambandsins
á síðasta ári var yfirleitt góð.
Kaupfélögin
Kaupfélögin innan Sambandsins
voru 43 í árslok 1982. Félags-
menn þeirra voru samtals 45.281
um áramótin, samanborið við
42.882 í lok ársins 1981 og hefur
þeim því fjölgað um 2.399.
Fjölmennasta kaupfélagið er
eins og fyrri ár Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis með
14.591 félaga. Önnur félög með
fleiri en þúsund félagsmenn eru
Kf. Borgfirðinga í Borgarnesi,
1.360. Kf. Skagfirðinga á Sauð-
árkróki, 1.456, Kf. Eyfirðinga á
Akureyri, 7.567, Kf. Þingeyinga,
Húsavík, 1.860, Kf. Héraðsbúa
á Egilsstöðum, 1.003, Kf. Árnes-
inga á Selfossi, 1.970, Kf.
Suðurnesja í Keflavík, 3.248 og
Kf. Hafnfirðinga í Hafnarfirði,
2.168.
Búvörudeild 619.960 Aukning% 45,6
Sj ávarafurðadeild 1.293.370 49,9
Innflutningsdeild 745.282 55,2
Véladeild 236.207 51,4
Skipadeild 299.987 51,7
Iðnaðardeild 401.774 67,5
Annað 30.456 44,8
Samtals 3.627.036 52,2
Hagnaður
4.1 milljón
króna á
síðasta
ári
Samvinnutryggingum
Á aðalfundi Samvinnutrygg-
inga og Líftryggingafélagsins
Andvöku sem haldinn var á
Blönduósi kom m.a. fram að
hagur félaganna er góður og
reksturinn gekk vel á síðasta
ári.
Hjá Samvinnutryggingum
námu iðgjöld ársins 202,9 millj-
ónum króna og af heildariðgjöld-
um voru iðgjöld frumtrygginga
90,8% og endurtryggingaiðgjöld,
innlend og erlend, 9,2%. Iðgjöld
ársins jukust um 64,8% í frum-
tryggingum en um 105,6% í
endurtryggingum. Tjón ársins
námu 163,9 milljónum og hækk-
uðu um 57,4% frá árinu á undan.
Tjónaprósenta miðað við iðgjöld
ársins var 80,8%, en miðað við
eigin iðgjöld var hún 81,7%, sem
sýnir að óvenjumikill hluti tjóna
hefur lent á félaginu alfarið.
Nettó umboðslaun hækkuðu um
77,4% og skrifstofu- og stjórnun-
arkostnaður um 63,3%. Laun og
launatengd gjöld hækkuðu um
51,3% en annar kostnaður um
73,6%. Að frádregnu aðstöðu-
gjaldi og kirkjugarðsgjaldi er
kostnaðarprósenta 18,6%, eða
nokkru lægri en árið áður. Fjöldi
starfsmanna var 97 í árslok í 91V2
starfi.
Á árinu varð hagnaður af
rekstri Brunadeildar, Sjódeildar
og Ábyrgðar- og slysadeildar og
erlendum endurtryggingum,
samtals að fjárhæð 8,2 milljónir.
Bifreiðadeild og innlendar
endurtryggingar skiluðu hins veg-
ar tapi, samtals að upphæð 4,1
milljón. Samtals varð því hagn-
aður Samvinnutrygginga á árinu
4,1 milljón króna.
Hjá Andvöku námu iðgjöld
ársins 3,2 milljónum og hækkuðu
um 34,6% á milli ára. Tjón ársins
námu 1,6 milljón og jukust um
17,0%. Hagnaður varð af rekstri
allra tryggingagreina á árinu,
nema af hóplíftryggingum og inn-
lendum endurtryggingum og
hagnaður af rekstri félagsins varð
906 þús. kr.
Aðalfundur Samvinnutrygg-
inga ákvað að færa Krabbameins-
félagi íslands 100 þús. kr. að
gjöf. Einnig samþykkti hann að
gefa ungmennasamböndunum f
Vestur-Húnavatnssýslu og Aust-
ur-Húnavatnssýslu 50 þús. kr.
hvoru til starfsemi sinnar.
Stjórn tryggingafélaganna er
óbreytt, en hana skipa þeir Er-
lendur Einarsson formaður, Val-
ur Arnþórsson varaformaður,
Ingólfur Ólafsson, Ragnar Guð-
leifsson, Karvel Ögmundsson og
Þórir E. Gunnarsson fulltrúi
starfsmanna. Endurskoðendur
eru Kolbeinn Jóhannsson og Þór-
hallur Björnsson.
Góð afkoma hjá
20. júní 1983 - DAGUR -11