Dagur - 20.06.1983, Side 16
ONY-FLEX
VATNSKASSAHOSUR
i
s
s
Á föstudaginn kom Boeing 727 þota Flugleiða til Akureyrar í fyrsta beina áætlunarfluginu hingað frá Kaupmanna-
höfn. Farþegar voru um 60 talsins og sættu að sjálfsögðu tollskoðun við komuna. Einn af löggæsluUðinu var hass-
hundurinn og á myndinni má sjá hann að störfum. Flugið gekk vel og flugstjóri var Ingimar Sveinbjömsson.
Mynd: KGA.
Undirboð í Verka-
lýðshöllina
Garðshorn
þarf
ekki að
flytja
Verslunin Garðshorn að Byggða-
vegi 114 þarf ekki að víkja úr
húsnæði sínu á þessu eða næsta
ári. Þetta var samþykkt í bæjar-
ráði Akureyrar er ákveðið var að
veita eiganda verslunarinnar
áframhaldandi bráðabirgðaleyfi
til verslunarreksturs á þessum
stað.
Að sögn Stefáns Stefánssonar,
bæjarverkfræðings þá var ákveð-
ið á bæjarráðsfundinum að fram-
lcngja verslunarleyfið til eins árs
í senn og verður því að fjalla sér-
staklega um það á hverju ári
hvort leyfið verður framlengt til
Iengri tíma. Ef ákveðið verður að
draga þetta bráðabirgðaleyfi til
baka þá gildir þriggja mánaða
uppsagnarfrestur. Þessi uppsagn-
arfrestur miðast þó við áramót,
þannig að versluninni ætti að
vera tryggt húsnæðið á Byggða-
veginum a.m.k. fram til 31. des-
ember 1984.
Framkvæmdir við byggingu 14
íbúða fjölbýlishúss á Sauðár-
króki munu hefjast á næstu
dögum. Útboð hafa verið opn-
uð og útboðsgögn send Hús-
næðismálastofnun til endur-
skoðunar.
Reiknað er með að búið verði
að ganga frá samningi verktaka
og framkvæmdalánasamningi
innan hálfs mánaðar og geti
framkvæmdir þá hafist. Nýmæli
er að í þessari byggingu verður
kjallari með bifreiðageymslu en
það hefur ekki þekkst áður í
íbúðabyggingum á Sauðárkróki.
Framkvæmd þessi er á vegum
stjórnar verkamannabústaða.
Fjölbýlishúsið mun standa við
nýja götu, Víðimýri, sem tengist
nýjum miðbæ á Sauðárkróki og
er fyrsta íbúðarhús sem reist
verður eftir skipulagningu hans.
ÓJ.
Vilmundur
Gylfason
látinn
Vilmundur Gylfason, alþingis-
maður, lést í Reykjavík í gær 34
ára að aldri.
stofunni sagði okkur að þetta
blíðuveður héldist áfram. „Það
verður suðlæg átt hjá ykkur, hlýtt
og úrkomulaust,“ sagði Þóranna.
Nýlega voru opnuð tilboð í
byggingu verkalýðsfélaganna
við Skipagötu. Er þar um að
ræða mikið verk sem sam-
kvæmt áætlun hljóðar upp á
15.897.212 kr.
Fjögur tilboð bárust og voru
þau öll frá byggingaraðilum hér í
bæ. Lægsta tilboðið barst frá
Smáranum sem var upp á
10.695.000 kr. og er það 67,3%
af áætluðum kostnaði. Aðalgeir
og Viðar voru með tilboð upp á
11.686.776 kr. sem eru 73,5%
kostnaðar. Þriðja lægsta tilboðið
var frá Norðurverki upp á
13.580.587 kr. sem eru 85,4% og
í sumar er fyrirhugað að gera
flugstöðvarbygginguna í Aðal-
dal við Húsavík fokhelda að
sögn Hauks Haukssonar, að-
stoðar-flugmálastjóra.
Þá sagði Haukur að unnið væri
að undirbúningi lengingar á flug-
brautinni á Siglufirði, úr 700
metrum í 1000 metra. Ennfremur
á að Ijúka uppsetningu ljósa við
Híbýli var með tilboð upp á
13.600.647 kr. sem eru 85,4%
kostnaðaráætlunar.
Að sögn Sævars Frímanns-
sonar hjá Einingu er ekki búið að
taka ákvörðun í málinu en verið
er að vinna úr tilboðunum og
ákvörðun tekin mjög fljótlega og
þá byrjað af fullum krafti. En nú
er verið að vinna við að fjarlægja
lagnir sem liggja í lóðinni, en um
leið og því verki er lokið verður
hafist handa um framkvæmdir.
Samkvæmt áætluninni á að
vera búið að steypa upp húsið og
ganga frá að utan og glerja fyrir
1. desember, en þá er hugmyndin
flugbrautina á Þórshöfn þannig
að hægt yrði að fljúga þangað
næturflug.
Þessar framkvæmdir, ásamt
öðrum og meiri framkvæmdum
við flugvöllinn á Sauðárkróki,
eru helstu framkvæmdir sem
unnið er að við flugvelli á
Norðurlandi í sumar.
að bjóða út smíðavinnu innan-
dyra sem unnið verður við í
vetur.
Fjölbreytt
„sumar-
sælu-
vika“
Undirbúningur undir „Sumar-
sæluviku“ sem haldin verður á
Sauðárkróki dagana 16.-24.
júlí í sumar er nú í fullum
gangi.
Nefnd sem vinnur að undir-
búningi hefur ráðið sér fram-
kvæmdastjóra, Jónas Björnsson.
Að sögn Jónasar er uppröðun
dagskrárinnar langt komin og
verður hún mjög fjölbreytt.
Meðal efnis verður flugsýning,
jazzhátíð, frjálsíþróttamót, þjóð-
dansar, tónleikar og fleira. Einn-
ig verða á vegum ýmissa aðila
Drangeyjarferðir, útsýnisflug og
skoðunarferðir með bifreiðum
um héraðið. Knattspyrna mun
verða þar sem lið Tindastóls leik-
ur við lið úr 1. deild.
Á lokadegi vikunnar verður
sundmót, guðsþjónusta og mikið
fjölskylduhátíð í Grænuklauf.
Pallur til útihátíðahalda verður
settur þar upp. Reiknað er mað
miklum fjölda aðkomufólks á
„Sumarsæluvikuna“ og er að-
staða fyrir þá sem gista í tjöldum
mjög góð á Sauðárkróki. Vonast
Sauðkrækingar eftir góðu veðri
og verði veðurguðirnir hliðhollir
er víst að mikið fjör verður á
Króknum þá daga sem vikan
stendur yfir. ÓJ.
Flugstöðin í byggingu. Mynd: gk.-
# Urðoggrjót
Vegir í nágrenni Akureyrar,
sem eflaust vfðar, eru dæmi-
gerðir fslenskir vegir þessa
dagana; ekkert nema urð og
grjót, ellegar dúnmjúkar
drulluvilpur. Sýnir það best
þörf þess að gert verði átak f
vegagerð á Eyjafjarðarsvæð-
inu, þar sem vegir eru víða
gamlir og úr sér gengnir. Það
er af sú tfð, að aðkomumönn-
um blöskrl flottheitin í vega-
gerð við Eyjafjörð eins og
austf irðingnum forðum. Hann
hafði orð á þvf þegar heim
kom eftir heimsókn í Svarfað-
ardal að þar væri nú meira
bruðlið f mönnum, því ekki
hefði fyrr verið búið að leggja
veg upp daiinn að austan-
verðu en lagður var annar
vegur niður hann að vestan.
# Minkurinn
er enn að
Minkurinn, sem við sögðum
frá f blaðinu sl. mánudag að
hefðí aðstoðað sfmamenn
við að leggja kapal í rör í
brúna hjá Svarfaðardalsá, er
enn „að störfum". Hann tók
til fótanna í gegn um fleirl rör
í sl. víku og virðist nú vera
orðinn ómissandi við þetta
starf. Velta menn nú fyrir sér
hvort ekki sé hægt að nýta
minkastofninn til fleiri svíp-
aðra verka því þeir eru ekkí
kröfuharðir varðandi kaup og
þess háttar.
ma
# Golfvellir
og snjórinn
Golfleikarar á Húsavík, Ólafs-
firði, og sennilega vfðar á
Norðurlandi, sjá enn varla í
vellina sína og verða þvf að
láta sér nægja að „pútta“
heima f stofu. En vonandi
halda þelr geðhellsu sinnl
þótt tfðarfarið leiki þá grátt
og vfð viljum leggja okkar af
mörkum til að reyna að
hressa upp á þá. Því látum
við eftirfarndi golfsögu fylgja
þessum línum:
# Nicklaus
og sá blindi
„Hinn heimsfrægi golfleikari,
Jack Nicklaus, hafði engan
frið á golfmótum fyrir blind-
um manni sem var sífellt að
skora á hann að mæta sér í
keppni. Þegar Nicklaus var
teklð að leiðast þetta ákvað
hann að láta verða af því að
keppa við manninn, en með
hálfum huga þó. Ræddi Nick-
laus þetta við þann blinda og
voru reglur keppninnar fyrir-
huguðu ákveðnar. Að því
búnu kom að því að ákveða
stund og stað fyrir einvígið
og bauð Nlcklaus þeim
blinda að ákveða slíkt. Sá
blindi sagði þá: „Nei, Nick-
laus minn, þú mátt velja
hvaða nótt við spilum þessar
holur og svo skal ég sjá um
að vinna þig ...“
Flugstöðin í Aðaldal
fokheld á þessu ári