Dagur - 08.07.1983, Síða 11
HVAÐ ER AÐ GERAST?
Gunnar Gíslason verður illa fjarri góðu gamni þegar KA fær Njarðvík í heimsókn í 2. deildarkeppninni í kvöld.
Gunnar meiddist á æfingu á dögunum og verður því frá keppni um nokkurt skeið.
Leikir um helgina
Tveir leikir verða í 2.
deild íslandsmótsins í
knattspyrnu í kvöld hér
á Norðurlandi.
Á Akureyri mætast
KA og Njarðvík kl. 20 og
á sama tíma eigast við lið
Völsungs og Einherja á
Húsavík.
Þrír leikir eru einnig í
3. deild, B-riðli í kvöld
og hefjast þeir allir
klukkan 20. HSÞ fær
Magna í heimsókn og
síðan eigast Þróttur og
Austri við á Neskaupstað
og Huginn og Valur á
Seyðisfirði.
Á morgun leika Þórs-
arar gegn Skagamönnum
á Akranesi og verður
róðurinn vafalaust þung-
ur fyrir Þórsara þar. Sigl-
firðingar bregða sér
suður í Garð og leika
gegn Víði í 2. deildinni
og í þriðju deildinni taka
Tindastóismenn á móti
Sindra á vellinum á Sauð-
árkróki.
Þá má nefna að þrír
leikir verða í 4. deild E-
riðli og eigast þar við
Reynir og Vaskur, Svarf-
dælir og Vorboðinn og
Leiftur og Árroðinn.
Golfkennsla
og golfmót
Söngskemmtun
í Borgarbíói
Á morgun laugardaginn
9. júlí heldur Páll Jó-
hannesson söngskemmt-
un í Borgarbíói á Akur-
eyri.
Páll hefur tvö undan-
farin ár stundað söngnám
úti á Ítalíu auk þess sem
hann var við nám hér
heima, bæði hér á Akur-
eyri hjá Sigurði Dementz
Franssyni og í Reykjavík
hjá Magnúsi Jóhanns-
syni. Hann er nú heima
og hefur haldið söng-
skemmtanir víða um
Norðurland að undan-
förnu og er þetta síðasta
söngskemmtun hans að
þessu sinni.
Blaðamaður hafði
samband við Pál og
spurði um framtíðaráætl-
anir.
„Það er kannski erfitt
að spá í framtíðina sem
söngvari sérstaklega hér
heima, enda á ég ekki
von á að fá mikið að
gera, en ég set frekar
stefnuna á útlönd og ætla
að reyna fyrir mér þar.
En þetta er ekkert nema
vinna og erfiði en er þess
virði þegar áhuginn er
svona mikill. Það er líka
með sönginn eins og svo
margt í þessum flokki
það sem gildir er að mað-
ur þekki mann sem aftur
þekkir mann og þar fram
eftir götunum,“ sagði
Páll að lokum.
Þessir síðustu tónleikar
Páls Jóhannessonar á
Norðurlandi eru í Borg-
arbíói eins og áður sagði
og hefjast kl. 17.00. Það
er ekki að efa að marga
fýsir að heyra í þessum
unga manni sem hefur
lagt á sig mikla vinnu við
að koma í framkvæmd
framtíðaráætlunum
sínum.
Meistaramót Akureyrar
í golfi hefst nk. miðviku-
dag á Jaðarsvellinum.
Keppt verður í öllum
flokkum karla og kvenna
og stendur mótið yfir í
fjóra daga. Allir bestu
kylfingar Akureyrar
verða meðal þátttakenda
og er víst að keppni verð-
ur bæði spennandi og
jöfn.
☆
Á morgun hefst Saab -
Toyota-mótið í golfi á
Jaðarsvelli. Leiknar
verða 36 holur með og án
forgjáfar.
Saab - Toyota-mótið
er opið golfmót og verður
leikið laugardag og
sunnudag. Það er Bláfell,
umboðsaðili Saab og
Toyota bifreiða sem gef-
ur verðlaun á mótið en
verðlaun verða veitt fyrir
besta árangur með og án
forgjafar og auk þess
Hafnarstræti og hafa
hljóðfæraleikarar leikið
þar af fingrum fram
undanfarna föstudaga.
- Það var fyrirhugað
að Baraflokkurinn kæmi
fram í dag en af því gat
því miður ekki orðið,
sagði Sigbjörn og bætti
því við að hann myndi
ekki láta deigan síga
heldur finna einhverja
góða tónlistarmenn til að
hlaupa í skarðið.
Uppákoman hefst að
öllum líkindum kl. 16.
verða veitt aukaverðlaun
fyrir besta árangur á ein-
stökum fyrirfram
ákveðnum brautum.
Golfkennsla Þorvalds
Ásgeirssonar, golf-
kennara, byrjar á Jaðars-
vellinum í dag.
Þorvaldur Ásgeirsson
'er líklega sá maður sem
mest hefur fengist við
golfkennslu hér á landi
hin síðari ár og hafa Ak-
ureyringar jafnt sem aðr-
ir notið leiðsagnar hans.
Þeir eru því orðnir marg-
ir kylfingarnir sem slegið
hafa fyrstu höggin og elt
hvíta boltann undir hand-
leiðslu Þorvaldar.
Þorvaldur Ásgeirsson
mun dvelja hér um viku-
skeið á vegum Golf-
klúbbs Akureyrar og þeir
sem áhuga hafa á að
panta tíma geta haft sam-
band við golfskálann.
- Ég stefni að því að hér
verði boðið upp á létta
skemmtun og líklega
verður það jazz sem
verður ofan á, sagði Sig-
björn í Sporthúsinu er
hann var inntur eftir því
hvort hann hyggðist
standa fyrir uppákomu af
einhverju tagi í Hafnar-
strætinu síðar í dag.
Sigbjörn hefur að
undanförnu lagt sitt af
mörkum til þess að létta
örlítið yfir mannlífinu í
Uppákoma
í Hafnarstræti
Melgerðismelar
Þeir sem unnu aö undirbúningi Fjórðungsmótsins á
Melgerðismelum eru boðnirtil „smáveislu", kaffi, gos og
kökur kl. 16.00 laugardaginn 9. júlí á Melgerðismelum.
Börn og makar velkomin.
Dregið verður í starlsmannahappdrættinu.
Melgerðismelastjorn.
íbúð - Bílskúr
Til sölu er íbúð í Höfðahlíð 3, einnig tvöfaldur bíl-
skúr sem nýr, einangraður og upphitaður með
afrennsli frá hitaveitu. Stærð 6 x 8 m.
Upplýsingar gefa: Eignamiðstöðin sími 24606
og eigandi í símum 25842 og 26842.
Bændur!
Helgarþjónusta Véladeildar hefst
laugardaginn 9. júlí.
Opið verður frá 10-12 laugardaga og sunnudaga.
Véladeild KEA
Óseyri 2 sími 22997
Einingar
félagar
Almennur félagsfundur verður haldinn mánu-
daginn 11. júlí og hefst hann kl. 20.30 í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri.
Fundarefni:
1. Kjaramálin.
2. Uppsögn samninga.
3. Önnur mál.
Björn Björnsson, hagfræðingur ASÍ, kemur á
fundinn. Félagar. Sýnið málum ykkar og félags-
ins áhuga og fjölmennið stundvíslega.
Verkalýðsfélagið Eining.
-4!=
I I r ■ '
Faðir okkar,
BJÖRN JÓNSSON,
frá Mýrarlóni,
Skarðshlíð 6i,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. júlí sl.
Börn hins látna.
Faðir okkar,
EBENHARÐ JÓNSSON,
Hamragerði 4, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12. júlí kl.
13.30.
Ásta, Unnur og Ebba Ebenharðsdætur,
Ingvi Ebenharðsson.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför,
SIGURLÍNU GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR,
Dvalarheimilinu Hlíð.
Þóra Björnsdóttir, Aðalsteinn Halldórsson,
Jón Ágúst Aðalsteinsson, Halla Sveinsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir, Sigurður Ákason,
Sigrún Aðalsteinsdóttir, Stefán Geir Pálsson,
Stefán Aðalsteinsson, Halldór Aðalsteinsson,
Hlynur Aðalsteinsson, Anna Björg Jónsdóttir
og barnabörn.
8. júlí 1983 - DAGUFt - 11