Dagur - 22.07.1983, Page 11
Opiö hús
- tO heiðurs Sesselju Eldjárn
Kemst 2. deildar lið Þórs
í kvennaknattspyrnu upp
í 1. deildina um helgina?
Þeirri spurningu verður
svarað á ísafjarðarvelli á
laugardag er lið Þórs og
ÍBI mætast þar. Það lið
sem sigrar er öruggt um
sæti í 1. deild þar sem
ákveðið hefur verið að
fjölga í 1. deildinni.
Annars verður þó
nokkuð um að vera f
knattspyrnunni um helg-
ina. í kvöld mætast lið
ÍBA og ÍBK í flokki 30
ára og eldri og verður
margur kunnur kappinn
þar f eldlínunni.
í 3. deild B verða einn-
ig nokkrir leikir og t.a.m.
fá HSÞ-menn Sindra frá
Hornafirði í heimsókn og
Magnamenn bregða sér
til Neskaupstaðar. Báðir
leikirnir verða á laugar-
dag. Á sunnudag leikur
Tindastóll gegn Val á
Reyðarfirði.
I 4. deildinni verða
nokkrir leikir í Norður-
landsriðlum á laugardag
og t.d. keppa HSS og|
Glóðafeykir, Skytturnar1
og Hvöt, Svarfdælir og
Árroðinn og Leiftur og
Reynir en sá leikur gæti
orðið eins konar úrslita-
leikur f riðlinum.
Af öðrum íþróttavið-
burðum má nefna
Norðurlandsmót í frjáls-
um íþróttum í Árskógi en
þar verður flest besta
frjálsíþróttafólk Norður-
lands meðal þátttakenda.
Þriðjudaginn 26. júlí nk.
á Sesselja Eldjárn 90 ára
afmæli og verður hún þá
stödd hér í bænum af því
tilefni.
Svo sem alkunna er,
hefur Sesselja á langri
ævi markað spor á sviði
ýmissa félagsmála, og fór
þar saman einlægur áhugi
og óbugandi vilji.
En hæst ■ ber þar störf
hennar varðandi málefni
Slysavarna, ýmis upp-
bygging starfsemi þeirri
til stuðnings og heilla.
Var hún þar ávallt brenn-
andi í andanum svo sem
verkin sanna.
Um leið og Sesselja er
boðin velkomin norður
yfir heiðar til þeirra
stöðva sem eiga hug
hennar, og þar með
stærsti hluti ævistarfs
hennar hefur veriö
unninn, eru henni, á
merku afmæli færðar
góðar óskir og þökkuð af
alhug áratuga fórnfús og
gæfurík störf.
Á afmælisdaginn, nk.
þriðjudag, verður á veg-
um Kvennadeildar Slysa-
varnarfélagsins hér á Ak-
ureyri opið hús í Laxa-
götu 5, á milli kl. 4 og 7,
afmælisbarninu til heið-
urs.
Er þess vænst að sem
flest af vina-, frænd- og
samstarfsfólki Sesselju
sjái sér fært að mæta þar
til að heilsa henni og eiga
með henni ánægjustund.
Kvennadeild SVFÍ
Akureyri.
Möl og sandur
kynnír n\
einingahus
Möl og sandur hf. á Akureyri hefur hafið fram-
leiðslu á einingahúsum. Hús af þessari gerð hafa
verið framleidd hérlendis sl. 3 ár með góðum ár-
angri. Húsin hafa fengið viðurkenningu hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðarins. Framleiðend-
ur húsanna hafa myndað með sér samtök undir
nafninu Nýhús.
Verð á þessum húsum er hagstætt, en þau verða
kynnt í bækistöðvum Malar og sands hf. á laugar-
dag og sunnudag. Þar verður opið á milli 13 og 18
báða dagana. Sölustjóri hjá Möl og sandi er Lárus
Blöndal.
Húsmæðraskóli
Þingeyinga, Laugum
í haust veröa teknir inn nemendur á fyrsta og
annað ár matartæknibrautar. (Tveggja ára
námsbraut sem veitir réttindi.) Ætluö piltum og
stúlkum. 9. janúar 1984 veröa teknir inn nemend-
ur í hússtjórnarbraut.
Nánari upplýsingar í síma 96-43135.
Skólastjóri.
Tilboð óskast
i málun utanhúss svo og lagfæringar á múrverki
á fjölbýlishúsinu nr. 23, 25 og 27 við Skarðshlíð
á Akureyri.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurbjörn í síma
22638 eöa Kári í síma 25975.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
BJÖRNS JÓNSSONAR
frá Mýrarlóni, Skarðshlíð 6i
Hulda Björnsdóttir,
Pála J. Björnsdóttir,
Guðmundur Björnsson,
Jón Fr. Björnsson,
Kristín Björnsdóttir,
Tómas Þorvaldsson.
Gísli Sigfreðsson.
Sigríður Steinþórsdóttir.
Álfhildur Vilhjálmsdóttir.
Steingrímur Steingrímsson.
Sigurður Björgvin Björnss., Olína Aðalbjörnsdóttir.
Hörður G. Björnsson, Laufey Bragadóttir.
Björg Björnsdóttir.
Barnabörn og barnabarnabörn.
Við einangrum
innblásin steinull
einföld og géó lausn
Umboðsmaður
Akureyri: Magnús Ingólfsson
sími 21735-23248
Ólafsfjörður: Bjarki Sigurðsson sími 62362
Siglufjörður - Sauðárkrókur:
Örn Ólafsson sími 95-5946
Árskógsströnd:
Sveinn Jónsson Kálfsskinni sími 63165
Dalvík: Brynjar Friðleifsson sími 61214
Grenivík: Friðrik Þorsteinsson sími 33155.
Blönduós: Már Pétursson sími 95-4571
Hvammstangi - Húnavatnssysla:
Halldór Jóhannsson sími 95-1592
Hofsós:
Stefán Gunnarsson sími 95-6393
HUSA^^H
EINANGRUN
Klapparstíg 27 Rvík s=91 -15934
Póstur og sími
Akureyri
Starf skrifstofumanns er laust til umsóknar.
Upplýsingar á skrifstofu stöðvarstjóra Hafn-
arstræti 102 2. hæð.
Siglufjörður:
Blnnduós:
Sauðárkrókur:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Kópasker:
Kaufarhöfn:
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Guðrún Jóhannsdóttir, Garðabyggð 6, sími 4443.
Gunnar Pétursson, Dalatúni 6, sími5638.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Heimir Áslaugsson, Norðurvegi 10, sími 61747.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Kjartan H. Pálmarsson, sími 33112.
Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, sími 41765.
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Sólveig Tryggvadóttir, Akurgerði 5, sími 52145.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
22ɧm 1.983 r- OAGUR K-11