Dagur - 22.07.1983, Page 12
Ðautinn - Smiðjan augiýsa:
Afgreiðum heita og kalda veislurétti á Bauta
frá kl. 9.00-23.30 alla daga.
Smiöjan er opin alla daga í hádeginu og frá kl. 18.30 á kvöldin.
• • ^ __
Oskuhaugarnir á Olafsflroi:
,,Til skammar
„Umgengni er örugglega ekki
verri hér í Ólafsfirði en annars
staðar, enda hafa ferðamenn
sem hér hafa átt leið um sagt
við mig að þeim þyki Ólafs-
fjörður snyrtilegur bær,“ sagði
Jörgína Ölafsdóttir, sem er
formaður fegrunarnefndar
staðarins.
í nefndinni, sem hélt fund ný-
lega, var samþykkt að senda bréf
til vinnuveitenda og fleiri þess
efnis að hvetja þá til að hreinsa í
kringum hús og vinnustaði. Hægt
væri að tengja þessa hreinsun
unglingavinnu í bænum.
„Við eigum eitt mál sem alltaf
kemur upp á fundum hjá okkur
en það eru öskuhaugarnir sem
eru staðsettir við innkeyrsluna í
bæinn. Þeir eru hreint og beint til
skammar og verður að finna
lausn á því máli.
Pað er lfka nauðsynlegt að
koma upp aðstöðu fyrir ferða-
menn sem gista í tjöldum. Að-
staða fyrir þá er engin, en það er
verið að vinna að því máli,“ sagði
Jörgína Ólafsdóttir í lok samtals-
ins.
Farandsalar
þurfa leyfi
hjá fógeta
- Veit ekki til þess að slík leyfí hafí
verið veitt, segir Sigurður Eiríksson,
hjá Bæjarfógetanum á Akureyri
„Það er augljóst að þeir sem
stunda slíka farandsölu þurfa
leyfi yfirvalda á hverjum stað
til sölu í heimahúsum. En ég
kannast ekki við að sótt hafi
verið um slík leyfi til embættis-
ins,“ sagði Sigurður Eiríksson,
fulltrúi hjá bæjartogetanum á
Akureyri, er blaðið spurðist
fyrir um þetta mál.
Samkvæmt tilkynningu frá
Kaupfélagi Eyfirðinga og Kaup-
mannafélagi Akureyrar um þetta
í blaðinu í dag segir að slík sala
sé óheimil samkvæmt lögum.
Ennfremur eru íbúar Akureyrar
og nágrennis beðnir að láta lög-
regluyfirvöld vita ef þeir verða
varir við slíka sölu við húsdyr
heimila sinna.
„Það má segja að þessi sölu-
mennska sé alger plága í bænum.
Við erum einungis að verja okkar
hagsmuni og okkar fólks,“ sagði
Birkir Skarphéðinsson formaður
kaupmannasamtakanna á Akur-
eyri, „það er augljóst mál.“
Konur jafíiþung-
ar og karlar
Jafnréttisráð hefur haft útgáfu
nýs fréttabréfs sem ætlað er að
flytja fréttir af starfi ráðsins og
Veður
hjá ykkur fyrir norðan yfir
helgina,“ sagði Knútur vinur
okkar Knútsen, veðurfræð-
ingur, í morgun. „Þið fáið
hægviðri með suð-vestanátt
en það verða ekki eins miklir
hitar og að undanförnu en
þrátt fyrir það verður sæmi-
lega hlýtt. Það má segja að
þið fáið sólskin með köflum,“
sagði Knútur. „En það verð-
ur áfram vætutíð hér fyrir
sunnan,“ sagði hann einnig
og við sendum samúðar-
kveðjur.
málum sem tengjast jafnrétti
og jafnri stöðu kynjanna á ein-
hvern hátt, sgeir í fréttatil-
kynningu frá ráðinu.
Jafnréttisráð vill ennfremur
vekja athygli á nýju merki sem
ráðið hefur látið hanna fyrir sig.
Hönnuður merkisins er Brian
Pilkington, teiknari, og sýnir
merkið karl og konu á jafnvæg-
isvog.
Riffil-
málið
upplýst
Lögreglan á Húsavík hefur upp-
lýst hver skyldi riffilinn og hvít-
vínsflöskuna eftir skammt frá
sumarbúðunum að Ástjörn i
Kelduhverfi.
Mun þarna hafa verið um að
ræða ungan mann, tengdan eig-
anda riffilsins og mun ungi
maðurinn hafa tekið skotvopnið
ófrjálsri hendi. Hvað hann ætlaði
hins vegar að gera við það á þeim
stað sem það fannst hefur ekki
komið fram en maðurinn var ölv-
aður.
í gær var kveikt á nýju umferðarljósunum í miðbæ Akureyrar. Hér ganga
nokkrir af ráðamönnum í umferðarmálum bæjarins yfir götu á splunku-
nýjum grænum kalli. Fremstir eru þeir Gunnar Jóhannsson og Guðmundur
Guðlaugsson, verkfræðingar bæjarins, aftar má kenna Elías Elíasson, fó-
geta, Gísla Ólafsson, fyrrv. yfirlögregluþjón, Bjarna Jóhannsson, leigubil-
stjóra og Þórodd Jóhannsson, ökukennara. Mynd: KGA
Akureyrartogarámir:
í efstu
sætum
„Það er ekkert sem kemur
okkur á óvart í sambandi við
þetta, við erum alltaf á
toppnum og getum þakkað
það góðu fólki og góðum
skipum,“ sagði Gísli Konráðs-
son hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa er blaðið hafði sam-
band við hann vegna skýrslu
sem komin er út og sýnir afla
og aflaverðmæti íslenska tog-
araflotans. í þeirri skýrslu
kemur fram að Akureyrartog-
ararnir fjórir eru í 2. til 5. sæti
hvað aflaverðmæti snertir.
Guðbjörg ÍS er í fyrsta sæti
með verðmæti upp á 15 millj. 273
þúsund, Svalbakur er í öðru sæti
með 14 millj. 903 þúsund, Harð-
bakur í þriðja sæti með 14 millj.
856 þúsund, Kaldbakur er í
fjórða sæti með 13 millj. 585 þús-
und og Sléttbakur í fimmta sæti
með 13 millj. 292 þúsund. Skip-
stjóri á Svalbak er Kristján Hall-
dórsson.
Útburðarmálið:
„Aldrei upplifað annað einsu
✓
- sagði lögfræðingur Olafs Rafns um vinnubrögð fógetafulltma
„Ég hef aldrei á ævinni upplif-
að þetta fyrr en í dag,“ sagði
Gissur Kristjánssón, lögmaður
Ólafs Rafns Jónssonar, þegar
fulltrúi bæjarfógeta, Sigurður
Eiríksson, hafði hafnað beiðni
hans um gagnaöflun og vitna-
leiðslur því til sönnunar að
birting Hæstaréttardómsins
hafi verið ólögmæt. Gissur
sagði að það væri furðulegt að
Sigurður hefði kveöið upp
þennan úrskurð áður en hann
hefði skoðað gögn þau og
greinargerð sem lögð var til
grundvallar beiðninni. Synjun-
in verður kærð til Hæstaréttar.
Eg athugaði gögnin þegar þau
voru lögð fram í upphafi réttar-
haldsins," sagði Sigurður Eiríks-
son. „Þannig að mér var fullkom-
lega ljóst hvað þarna var á ferð-
inni. Ég einfaldlega þurfti ekki
lengri tíma.“
Réttur var settur klukkan eitt
í gær og þá lagði lögmaður gerð-
arþola fram greinargerð og gögn
því til sönnunar að birting Hæsta-
réttardómsins hafi verið ólög-
mæt. Ástæðuna fyrir því að birt-
ingin hafi ekki verið lögmæt,
kvað lögmaðurinn vera þá að
samkvæmt blaðafregnum og
ljósmyndum sem segja frá því er
dómurinn var birtur Ólafi Rafni
þann 9. mars síðastliðinn, komi
ekki fram að aðrir stefnuvottar
en Gísli Ólafsson hafi birt „dóm
þann er til grundvallar er lagður
í máli þessu“. Samkvæmt lögum
ber tveim stefnuvottum að birta
dóminn. Gerðarbeiðandi hafði
ekkert við þessa beiðni gerðar-
þola að athuga. Rétti var þá
frestað í hálfa klukkustund til að
athuga gögnin sem voru lögð
fram og kveða upp úrskurð um
hvort orðið yrði við beiðninni.
En áður en hléið hófst lét Sigurð-
ur Eiríksson þess getið að beiðn-
inni yrði synjað. Á þeim forsend-
um að það væri ekki í verkahring
fógetaréttar að rannsaka þetta
mál. Þetta taldi Gissur Kristjáns-
son undarleg vinnubrögð hjá full-
trúa fógeta.
„Útburðarmálið“ er því aftur
farið til Hæstaréttar og að sögn
manna sem til þekkja er líklegt
að Hæstiréttur taki sér mánuð til
að kveða upp sinn úrskurð.
Ný sending
CLINIQUE
OG
ESTÉE
LAUDER
snyrtivörum.
Einnig fyrir herrann.
☆
Minnum á okkar
glæsilega
sumarfatnað.
Opið á laugardag
frá 10-12.