Dagur - 25.07.1983, Side 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 120 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 15 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON,
ÓLAFUR JÓHANNSSON (SAUÐÁRKRÓKI) OG
ÞORKELL BJÖRNSSON (HÚSAVlK)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Er orkuiðnaður
lausnin
Nú um skeið hefur verið í gangi nokkur um-
ræða um orkuiðnað hérlendis. Nú er það svo
að öll opin umræða um þjóðmál er af hinu
góða, ef mál eru skoðuð frá öllum hliðum og
vegin og metin með hliðsjón af ríkjandi að-
stæðum. Hins vegar er ekki langt frá því að í
þessari umræðu gæti nokkurrar múgsefjunar
þar sem orkuiðnaður sé lausnarorð sem allan
vanda leysi.
Skoðum þetta aðeins nánar:
1. Forsenda orkufreks iðnaðar hlýtur að
vera sú að við fáum viðunandi verð fyrir ork-
una. Orkan er jú sú auðlind sem við erum að
koma í verð. Ekki virðist líklegt, að orkukaup-
endur standi í biðröðum við dyrnar hjá okkur
þegar lönd sem liggja nær aðalmarkaðssvæð-
um afurða orkuiðnaðar bjóða nú orku á meira
en helmingi lægra verði en við teljum okkur
þurfa að fá.
2. Hvert starf í orkuiðnaði krefst það mikill-
ar fjárfestingar (30 sinnum meira en í almenn-
um iðnaði) að íslendingar hljóta að fara var-
lega í þessum efnum ef þeir vilja ekki eiga oí
mikið undir erlendum lánadrottnum og auð-
hringum og stofna þannig efnahagslegu
sjálfstæði sínu í hættu.
3. Það er ljóst, að þó að ráðist verði í allar
þær stórvirkjanir sem nú eru á prjónunum og
sú orka, sem frá þeim kemur og ekki fer til
almennra nota, verði notuð til orkuiðnaðar, að
þá munu þau iðjuver ekki veita nema litlum
hluta þeirra sem koma út á vinnumarkaðinn
á umræddum tíma atvinnu.
4. Þá verður ekki horft framhjá því að orku-
iðnaði fylgir undantekningarlítið mengun. Að
vísu hefur mengunarvörnum fleygt fram á
síðustu árum, en engu að síður væri það
sjálfsblekking að halda fram að til séu meng-
unarlaus fyrirtæki á borð við álver. Þess
vegna verður öll ákvörðunartaka að byggjast
á undangenginni umhverfisrannsókn. Ef við
lítum okkur nær þá má ekki undir nokkrum
kringumstæðum stofna jafn varanlegri nátt-
úruauðsuppsprettu og Eyjafjarðarsvæðinu í
hættu vegna hverfulla stundarhagsmuna.
Með þetta í huga ætti að vera ljóst að orku-
sala og orkuiðnaður getur aldrei orðið neinn
töfrasproti í íslensku atvinnulífi. En ef haldið
verður á þessum málum með gætni og skyn-
semi þá geta þessar greinar rennt stoð undir
atvinnulíf okkar og þar er vissulega þörf meiri
fjölbreytni en nú er. Eftir sem áður hlýtur
grunnurinn að íslensku atvinnulífi að vera
hinar hefðbundnu atvinnugreinar með vaxt-
arbroddinn í almennum iðnaði, sem byggi
eftir föngum á íslenskum aðföngum og fyrst
og fremst á íslenskum dugnaði og íslensku
hugviti.
J.G.S.
„HITAVEITAN
STENDUR ,VEL
UNDIR SER“
- Rætt við Víglund Þorsteinsson, veitu-
stjóra á Húsavík
Víglundur Þorsteinsson, veitustjóri á Húsavík.
Víglundur Þorsteinsson heitir
hann og þótt Eyfirðingur sé að
uppruna, frá Blómsturvöllum
í Glæsibæjarhreppi, er hann
fyrir löngu orðinn Húsvíking-
ur. Hann kom hér 1962, lærði
rafvirkjun, og fór síðan til
Noregs, þar sem hann var í
tækniskóla í þrjú ár og útskrif-
aðist sem tæknifræðingur í fag-
inu. Síðan hefur hann unnið
hjá RARIK og Landsvirkjun
og núna nýlega kom það í hans
hlut að veita forstöðu einni
ódýrustu hitaveitu landsins,
Hitaveitu Húsavíkur. Jafn-
framt því er hann líka rafveitu-
og vatnsveitustjóri. Sem sagt,
allsherjar veitustjóri.
„Já, það var gerð skipulags-
breyting á rekstri allra veitnanna.
Áður voru þessi embætti í hönd-
um nokkurra aðila, en eru sem
sagt komnar undir eina stjórn
nú.“
- Þrátt fyrir að hitaveitan sé
svo ódýr sem raun ber vitni,
skilar hún samt tekjuafgangi til
bæjarsjóðs. Hvernig má það
vera?
„Það er rétt, hitaveitan stendur
bærilega undir sér. Ætli það sé
ekki fyrst og fremst vegna þess að
það er ódýrt að sækja vatnið, það
er sjálfrennandi. Flestar hitaveit-
ur landsins þurfa að kosta tölu-
verðu fé til þess að dæla því upp
úr holunum. Nú, svo er ekki
því að neita að við vorum með
þessa framkvæmd á mjög góðum
tíma, en hitaveitan er lögð árið
1970.“
- Hverjar eru helstu fram-
kvæmdir hitaveitunnar?
„Þær eru aðallega í nýlögnum
og viðhaldi eldri lagna. Vatn það
sem við fáum frá Hveravöllum
kemur úr einni borholu, auk
tveggja hvera sem síðan tengjast
inn á sameiginlega æð. Nú er
bærinn orðinn það stór að þetta
vatn er að verða of lítið. Það ger-
ir ekki mikið betur en að endast
út veturinn. Næsta vor eru því
fyrirhugaðar framkvæmdir við
aðra borholu. Sú framkvæmd
mun trúlega endast okkur um all-
nokkur ár.“
- Hve mikið vatn er það sem
hitaveitan fær frá Hveravöllum?
„Það er um 70 sekúndulítrar,
þar af 44 úr holunni."
- Sumar hitaveitur hafa átt í
vandræðum með vatnið vegna
mikils súrefnis sem tærir ofna.
Hefur borið á því hér?
„Nei, við erum blessunarlega
lausir við það. Vatnið hér er
mjög gott og tæringarvandamál
þekkjum við ekki.“
- Hvað vinna margir hjá veit-
unum?
„Fastráðnir starfsmenn eru
sjö, en á sumrin eru þeir fleiri. í
sumar vinna hér ellefu menn.
- Eru bæjarbúar skilvísir við
veiturnar sínar?
„Já, mjög svo. Ef fyrir kemur
að menn trassa fram úr hófi
greiðslur, er ekki um annað að
ræða en loka fyrir hjá viðkom-
andi aðila. Það gerist ekki oft,
má heita undantekning ef svo
er.“
- Nú kemur fyrir að hitaveitur
eða vatnsleiðsla bilar, eða þá að
rafmagnskapall fer í sundur. Ég
mynnist þess að sl. aðfangadags-
kvöld sá ég hóp manna frá ykkur
bjástra niður í skurði á sama tíma
sem fólk var að koma heim frá
aftansöng.
„Já, svona lagað er nokkuð
sem við megum alltaf eiga von á,
óhöppin gera jú sjaldnast boð á
undan sér. Úr því að þú nefnir
þetta ákveðna dæmi þá var það
svo að klukkan að ganga sex á
aðfangadagskvöld fengum við
þau dapurlegu tíðindi að raf-
magnslaust væri á Reykjaheið-
arveginum. Það var því ekki um
neitt annað að ræða fyrir okkur
en að gera við þá bilun, sem átt
hafði sér stað. Ekki var hægt að
láta fólkið hýrast í myrkri á sjálf-
um jólunum. Þess vegna varð
það hlutskipti okkar að reyna að
tendra jólaljósin á ný. Auðvitað
tókst okkur það en kostaði það
að við fengum ekki jólamatinn,
sem var í seilingar fjarlægð þegár
óhappið varð, fyrr en að ganga
ellefu þetta aðfangadagskvöld.“
Ólafsfirðingar vilja aðgerðir í umhverfismálum:
FALLEGRI BÆR
Náttúruverndarnefnd Ólafsfjarð-
ar hefur sent bæjarstjórn Olafs-
fjarðar umsögn um nokkra staði
í bænum og utan hans, þar sem
framkvæmdir eru í gangi sem
tengdar eru mannvirkjagerð eða
efnistöku. Er m. a. átt við stað
sem notaður er til efnistöku sem
nýtt hefur verið til hafnargerðar.
Einnig hefur verið bent á ýmis-
legt fleira sem betur mætti fara,
svo sem slæman frágang við
Austurveg.
„Því miður virðist nefndin litlu
fá áorkað af því sem hún vill láta
færa til betri vegar. Þótt hún sjái
lítinn árangur verka sinna mun
hún áfram leitast við að rækja
hlutverk sitt samkvæmt 3. gr.
reglugerðar um náttúruvernd,"
segir í skýrslu frá nefndinni.
Sorphaugar Olafsfirðinga eru ekki til augnayndis við innkeyrsluna í bæinn.
4 - DAGUR - 25. júlí 1983