Dagur - 25.07.1983, Qupperneq 5
— Spjallað við unga skagfirska hestamenn
„Þessi er alveg ofsalega
fljótur að hlaupa og hann er
sérstaklega góður í start-
inu,“ sagði Valgarður Ingi
Ragnarsson, sem blaða-
maður Dags hitti á förnum
vegi í Skagafirði á dögunum.
Valgarður Ingi var í reiðtúr
ásamt Ólafi Gunnari, bróður
sínum. Valgarður er 9 ára en
Ólafur 13. ára. Þeir eiga heima í
Hátúni í Seiluhreppi. Valgarður
Ingi var að tala um hestinn hans
Ólafs, sem heitir Stormur, enda
er hann „dálítið" viljugur að sögn
þeirra bræðra. Hestur Valgarðs
heitir Lúkas, en af hverju?
„Bara, mér datt þetta nafn í
hug og fannst það ágætt,“ svaraði
Valgarður.
- Er hann góður?
„Já, já, það er allur gangur í
honum nema skeiðið.“
- Hefur þú dottið af baki?
„Bara einu sinni. Það var bara
vegna þess að ég gleymdi að setja
á hann nasamúlinn."
Þeir bræður sögðust fara í reið-
túra tvisvar til þrisvar í viku, eftir
því hvernig stæði á. En hvernig
skyldi Ólafi hafa gengið að tolla
á baki?
„Ég hef flogið 11 sinnurn,"
svaraði Ólafur kíminn. „Þetta
gerðist nær allt sama daginn þeg-
ar ég var í göngunum í fyrra. Þá
var ég á Stormi og hafði annan í
taumi. Þegar við komum að lækj-
um og dýjum stökk Stormur allt-
af óhikað yfir en hinn stóð í sömu
sporunum. Og ég var ekki alltaf
nógu fljótur að sleppa taumnum,
þannig að ég pompaði aftur af
hestinum. Þannig datt ég oftast,"
sagði Ólafur og hló við.
- Þú hefur ekki meitt þig?
„Nei, ég var með hjálm,“ sagði
Ólafur og Valgarður Ingi, bróðir
hans, bætti við: „Blessaður vertu,
það var bara hlegið af honum.“
Dalvík:
Bændur
Eigum til afgreiðslu strax
heyþyrlur
sláttuþyrlur
sláttuþyrlur
heyhieðslu-
vagna
Véladeild KEA
Óseyri 2 - símar 21400 og 22997.
LETTIR
l AKURCYRlj
% Léttisfélagar
Hagar télagsins a Kaupangsbökkum veröa smal-
aöir þriöjudagskvöldiö 26. júlí og veröa hrossin í
réttinni frá kl. 20-22.
Húsbyggjendur - Verktakar
LOKAÐ
vegna sumarleyfa 1.-7. ágúst.
MÖL&SANDUR HP.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - BD2 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
(VIÐ EIGUM
SAMLEIÐ
Hitaveituvatn
í atvinnurekstur
„Staðan er í reynd sú að það er
ekkert vatn til nota í atvinnu-
rekstri sem krefst verulegs
magns af vatni,“ sagði Stefán
Jón Bjarnason, bæjarstjóri á
Bjarnason, bæjarstjóri á
Dalvík, en upp komu umræður
um möguleika á að nota vatn
frá Hitaveitunni til atvinnu-
reksturs.
Hitaveitunefnd lýsti sig reiðu-
búna til athugana á þessu máli, ef
óskað væri, t.d. ef fyrir lægju
ákveðnar hugmyndir um stærð,
staðsetningu eða annað. Ekki
væru nein áform um nýtingu af-
fallsvatns á vegum veitunnar,
þannig að þessar hugmyndir gætu
komið til greina. Gjaldtaka yrði
að ráðast af magni og kostnaði
við að safna vatninu saman. „Ef
einhver aðili ætlar sér að fara út í
einhverjar framkvæmdir af þessu
tagi, verður að taka afstöðu til
þess hreinlega að afla meira
vatns,“ sagði Stefán Jón. „Slíkt
fyrirtæki gæti vart staðist sam-
keppni hér við t.d. Hveravelli
eða hvert annað svæði sem hefur
sjálfrennandi vatn. Þannig að ég
held að þetta sé borin von þótt
hugmyndin sé ekki svo slæm.“
2S?júH‘f9ð3 - ÓAÖUR - S