Dagur - 25.07.1983, Blaðsíða 6
4. deild:
Óvenju I ítið skorað
Svarfdælir
mörðu sigur
Svarfdælir - Árroðinn 1:0
Svarfdælir áttu meira í leiknum
strax frá upphafi og skoruðu
mark sitt snemma í fyrri hálfleik.
Þar var að verki Hilmar Baldurs-
son. Þegar flautað var til seinni
hálfleiks versnaði knattspyrnan
heldur og mikið varð um þóf og
Kvennaknattspyrna:
Þórs-
stúlkurnar
í 1. deild
„Þetta var Ijúfur sigur. Stelp-
urnar eru ánægðar, þær skil-
uðu sínu hlutverki með sóma
og uppskáru nákvæmlega það
sem til var sáð,“ sagði Guð-
mundur Svansson, þjálfari
kvennaliðs Þórs í knattspyrnu,
þegar Dagur átti við hann orð
að loknum leik Þórs við Isfírð-
inga. í þeim leik sigruðu Þórs-
stúlkurnar með tveim mörkum
gegn einu.
Þórsarar voru betri aðilinn í
leiknum og réðu lögum og lofum
á vellinum. Það var því eiginlega
gegn gangi leiksins þegar ísfirð-
ingar taka forystu í leiknum með
marki úr vítaspyrnu.
En stúlkurnar í Þór voru held-
ur betur snöggar að snúa við
blaðinu, tóku miðju, spiluðu
skemmtilega gegnum undrandi
vörn ísfirðinga og voru búnar að
jafna metin áður en mínúta var
liðin. Þar var að verki Anna Ein-
arsdóttir.
Áfram var haldið í seinni hálf-
leik, Þórsarar voru heldur meira
með boltann, en ísfirðingar áttu
einnig sín færi þótt ekki tækist að
nýta þau. Það var svo um miðjan
hálfleikinn að Anna Einarsdóttir
skoraði aftur fyrir Þórsstelpurn-
ar. Og forskotinu héldu þær allt
til loka.
Þar með eru Þórsstúlkurnar
orðnar nokkuð öruggar um sigur
í riðlinum og þar með sæti í 1.
deild að ári. Þær eiga eftir að
leika þrjá leiki og þurfa að sækja
sér fjögur stig úr þeim. Þær eiga
m.a. eftir lið Hvergerðinga, sem
þær sigruðu fyrir sunnan með sex
mörkum gegn einu, fyrr í sumar.
kýlingar. Þrátt fyrir að Árroðinn
ætti sín færi í leiknum náðu þeir
aldrei að skora og Svarfdælir
hirtu því bæði stigin.
Enn sigrar Leiftur
Leiftur - Reynir 3:0
Þeir Ólafsfirðingarnir í Leiftri
hafa verið duglegir við að sanka
að sér stigum að undanförnu.
Þeir eru nú á toppi E-riðilsins í 4.
I deildinni og sigruðu sína helstu
keppinauta um það sæti, Reyni,
á laugardaginn. Leiftur átti leik-
inn svo til allan tímann og press-
aði mikið á vörn Reynismanna.
Þeir skoruðu tvisvar í fyrri hálf-
leik og í seinni hálfleiknum bættu
þeir þriðja markinu við.
Tíðindalítið á Sigló
Skytturnar - Hvöt 0:0
Leikur Skyttnanna við Hvöt var
heldur tíðindalítill. Ef eitthvað
var, átti Hvöt meira í leiknum,
en Skytturnar náðu upp góðum
köflum af og til. Bæði liðin áttu
nokkuð af færum en í netið vildi
boltinn ekki. Þarna var því stig-
um bróðurlega skipt.
Haustlauf
Vorboðinn - Vaskur 1:2
Galvaskir renndu þeir Vaskarar
innan af Akureyri og fram á
Laugaland þar sem Árroðinn
beið þeirra. Strax á fyrstu mínút-
unum sýndu Vaskir að þeir ætl-
uðu sér stóra hluti og ekki var
lengi leikið þegar þeir höfðu
Akranes
á toppinn
Akurnesingar nældu sér í tvö
stig til Breiðabliks með sigri á
þeim Kópavogsmönnum, þrjú
mörk gegn tveimur. Þar með
eru Akurnesingar á toppi
fyrstu deildarinnar, þó ekki sé
hægt að segja að þeir séu þar
einir í kulda og myrkri, heldur
er þar þröngt setinn Svarfaðar-
dalur. Vestmannaeyingar,
Brciðablik, Kr-ingar og Þórs-
arar eru þar allir í hnapp auk
Akurncsinganna.
Það voru þeir Sigurður Lárus-
son, Sveinbjörn Hákonarson og
Sigþór Ómarsson sem skoruðu
fyrir Akurnesinga í leiknum gegn
UBK, en þeir Sigurður Grétars-
son og Hákon Gunnarsson skor-
uðu fyrir Breiðablik.
skorað sitt fyrra mark. Og áður
en upp var staðið höfðu Vaskir
skorað í tvígang, reyndar sá
Bergur Gunnarsson um þá hlið
mála í bæði skiptin, en Árroðinn
náði aðminnka rnuninn, þar var
að verki Sigursteinn Vestmann.
Strandamenn
hirtu tvö
HSS - Glóðafeykir 2:1
Leikur Strandamanna við Glóða-
feyki var allskemmtilegur á að
horfa. HSS átti öllu meira í leikn-
um, margar sóknir þeirra voru
hættulegar og í fyrri hálfleik náðu
þeir forystunni með einu marki.
Glóðafeykir átti ágætar skyndi-
sóknir sem tókst þó ekki að nýta.
Strandamenn juku við forskot
sitt í seinni hálfleiknum. Þá var
Glóðafeykir farinn að verða öllu
aðgangsharðari, og uppskar eitt
mark.
Barátta við mark Árroðans. Vaskur sótti tvö stig í greipar Árroðans í fjórðu deildinni. Sjá umsögn annars staðar á
síðunni. Mynd: KGA
Norðurlandsmót í frjálsum
íþróttum fór fram í Arskógi
nú um helgina. Mótið fór
ágætlega fram, í veðri sem
hefði að skaðlausu mátt vera að-
eins betra, vindbelgingur var
nokkur en þó vart svo mikill að
það háði keppendum. UMSE
fór af vettvangi með flest stig,
eða 187,5; næst kom USAH
með 165 stig; í 3. sæti varð
HSÞ með 98 stig; 4. UMSS með
70,5 stig; 5. UÍÓ með 21 stig;
þá kom í 6. sæti UNÞ með 19
stig; USVH með 14 og KA
með 5 stig. Að öðru leyti urðu
úrslit sem hér getur.
Konur:
100 m hlaup: sek
1. Kristín Halldórsdóttir UMSE 12,5
2. Halldóra Gunnlaugsdóttir UMSE 12,9
3. -4. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 13,0
3.-4. Katrín Kristjánsdóttir UMSE 13,0
200 m hlaup: sek
1. Kristín Halldórsdóttir UMSE 26,0
2. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 26,6
3. Halldóra Gunnlaugsdóttir UMSE 27,5
400 m hlaup: sek
1. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 62,3
2. Drífa Matthíasdóttir UMSE 64,6
3. Halldóra Gunnlaugsdóttir UMSE 64,8
800 m hlaup: mín
1. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 2.32.0
Stórgott mót í Árskógi
2. Laufey Hreiðarsdóttir UMSE 2.33,5
3. Laufey Kristjánsdóttir UMSE 2.39,1
1500 m hlaup: mín
1. Laufey Hreiðarsdóttir UMSE 5.29,1
2. Laufey Kristjánsdóttir UMSE 5.30,6
3. Hulda Stefánsdóttir HSÞ 5.51,5
100 m grindahlaup: sek
1. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 16,1
2. Kristín Halldórsdóttir UMSE 17,0
3. Halldóra Gunnlaugsdóttir UMSE 18,0
4x100 m boðhlaup: sek
1. UMSE-A 53,0
2. HSÞ 55,4
3. USAH 59,2
1000 m boðhlaup: mín
1. UMSE 2.28,8
2. HSÞ 2.35,8
3. USAH 2.51,2
Hástökk: m
1. Drífa Matthíasdóttir UMSE 1,50
2. Guðrún Gísladóttir HSÞ 1,45
3. -4. Sólveig Árnadóttir HSÞ 1,40
3.-4. Þórunn Snorradóttir UMSS 1,40
Langstökk: m
1. Ragna Erlingsdóttir HSÞ 5,17
2. Drífa Matthíasdóttir UMSE 5,01
3. Kristín Halldórsdóttir UMSE 5,00
Kúluvarp: m
1. Soffía Gestsdóttir HSK
(keppti sem gestur) 12,64
2. Guðrún Magnúsdóttir USVH 9,50
3. Sigríður Gestsdóttir USAH 9,50
Kringlukast:
1. Soffía Gestsdóttir HSK
(keppti sem gestur) 32,04
2. Guðrún Magnúsdóttir USVH 32,30
3. Sigríður Gestsdóttir USAH 29,92
Spjótkast: m
1. Marín B. Jónasdóttir USAH 32,10
2. Rannveig Hjaltadóttir UMSE 28,38
3. SigfríðurValdimarsdóttirUMSE 28,14
Samtals stig:
1. UMSE
2. HSÞ
3. USAH
Karlar:
100 m hlaup:
1. Kays van Diven USAH
2. Bjarni Jónsson UMSS
3. Aðalsteinn Bernharðsson UMSE
200 m hlaup:
1. Kays van Diven USAH
2. Bjarni Jónsson UMSS
3. Hjörtur Guðmundsson USAH
400 m hlaup:
1. Aðalsteinn Bernharðsson UMSE
2. Bjarni Jónsson UMSS
3. Kári Einarsson USAH
800 m hlaup:
1. Sverrir Jónsson UMSE 2.15,0
2. Friðrik Steinsson UMSS 2.15,4
m 3. Hjörtur Guðmundsson USAH 2.15,7
1500 m hlaup: mín
1. Bjöm Halldórsson UNÞ 4.37,7
2. Jón Stefánsson KA 4.41,9
3. Sverrir Jónsson UMSE 4.42,1
3000 m hlaup: mín
1. Bjöm Halldórsson UNÞ 9.49,1
2. Páll Jónsson UMSE 10.05,5
3. Magnús Óskarsson UMSS 10.36,4
118,5 110 m grindahlaup: sek
80,0 1. Kays van Diven USAH 16,8
43,0 2. Hjörtur Guðmundsson USAH 23,6
4x100 m boðhlaup: sek
1. USAH-A 47,5
sek 2. UMSE-A 48,0
11,0 11,3 3. UMSS 48,1
11,6 1000 m boðhlaup: mín
1. USAH-A 2.11,3
2. UMSS 2.17,5
sek 23,7 3. USAH-B 2.18,2
24,0 Hástökk: m
25,4 1. Gunnar Sigurðsson UMSS 1,85
2. Guðni Stefánsson UMSE 1,70
sek 3. Trausti Traustason UMSS 1,70
54.6 55.7 55.8 Langstökk: m
1. Kays van Diven USAH 6,64
2. Árni Snorrason UMSE 6,37
3. Kristján Þráinsson HSÞ 6,22
mín Stangarstökk: m
Staðan í deildunum:
1. DEILD:
2. DEILD:
ÍA 12 7 14 22:9 15 KA 10 5 4 1 17:9 14
UBK 12 4 5 3 14:10 13 Fram 10 6 2 2 16:10 14
ÍBV 11 4 4 3 20:13 12 Völsungur 11 6 2 3 15:11 14
Þór 11 3 5 3 12:12 11 Víðir 11 5 3 5 11:9 13
ÍBK 10 5 14 14:13 11 FH 11 4 4 3 18:14 12
KR 11 2 7 2 10:13 11 UMFN 12 5 2 5 13:11 12
Þróttur 11 3 4 4 10:18 10 KS 11 2 6 3 10:11 10
ÍBÍ 11 2 5 4 11:15 9 Einherji 8 3 3 2 5:5 9
Valur 11 3 4 4 16:18 9 Fylkir 11 1 3 7 8:22 5
Víkingur 10 2 4 4 9:18 8 MARKAHÆSTU MENN:
MARKAHÆSTU MENN:
Ingi Björn Albertsson, Val 8
Hlynur Stefánsson, ÍBV 7
Guðjón Guðmundsson, Þór 6
Kári Þorleifsson, ÍBV 6
Hinrik Þórhallsson, KA 8
Pálmi Jónsson, FH 7
Jón Halldórsson, UMFN 5
1. Kristján Sigurðsson UMSE 3,62
2. Karl Lúðvíksson USAH 3,00
Kúluvarp: m
1. Helgi Þ. Helgason USAH 15,98
2. Jón S. Þórðarson UMSE 12,22
3. Jón Arason USAH 11,58
Kringlukast: m
1. Helgi Þ. Helgason USAH 45,62
3. DEILD: 4. DEILD E: 2. Hjörtur Guðmundsson USAH 3. Þórður Pálsson UÍÓ 35,44 34,24
Tindastóll 9 8 10 34:9 18 Leiftur 7 6 10 29:3 13
Austri 10 6 2 2 20:9 14 Reynir 7 5 0 2 10:7 10 Spjótkast: m
Huginn 10 6 13 14:11 13 Árroðinn 7 3 13 7:12 7 1. Helgi Þ. Helgason USAH 51,08
Þróttur N. 9 6 12 18:10 12 Vorboðinn 8 3 0 5 13:7 6 2. Sigurður Gunnlaugsson UMSS 43,40
HSÞ-b 10 4 0 6 12:6 8 Vaskur 7 2 0 5 10:13 4 3. Ingibergur Guðmundsson USAH 42,42
Magni 9 3 15 11:15 7 Svarfdælir 8 2 0 6 10:19 4
Valur 10 2 17 10:22 4 Þrístökk: m
Sindri 10 0 0 10 5:32 0 1. Kristján Þráinsson HSÞ 13,29
Hinrik Þórhallsson er nú marka-
hæstur í annarri deild.
4. DEILD D:
Hvöt 4 3 1 0 4:0 7
HSS 5 3 0 2 15:4 6
Skytturnar 6 1 2 3 3:16 4
Glóðafeykir 5 114 4:7 3
2. Gylfi Arnarson UNÞ 13,02
3. Gunnar Sigurðsson UMSS 12,91
Samtals stig:
1. USAH 122
2. UMSE 69
3. UMSS 66
Jónas með
„hat trick“
— Fram 3 : Völsungur 4
Völsungar fóru góða ferð
suður til Framaranna í gær-
kvöldi. Þar áttu sunnanmenn
stórafmæli, búnir að vera til í
75 ár, og hefur sennilega dottið
í hug að éta Völsunga í afmæl-
istertuformi. En það var nú
eitthvað annað. Þegar upp var
staðið höfðu Völsungarnir
bæði stigin með sér norður,
þeir sigruðu með fjórum mörk-
um gegn þremur. Jónas Hall-
grímsson skoraði hvorki fleiri
né færri en þrjú af fjórum
Völsun&a.
Einhvern veginn var sem Völs-
ungar kynnu ekki við sig á vellin-
um til að byrja með. Þeir virtust
bera of mikla virðingu fyrir af-
mælisbarninu og sýndu hreinlega
ekki það sem þeir gátu. Til að
.byrja með náðu Framarar forystu
Weð mörkum þeirra Kristins
Jónssonar og Steins Guðjóns-
sonar. Jónas Hallgrímsson sá um
að halda andliti norðanmanna og
minnka muninn fyrir leikhlé.
Semsé 2 mörk gegn 1 í hálfleik.
Húsvíkingar efldust í seinni
hálfleik og Framarar dofnuðu að
sama skapi. En þrátt fyrir stífa
sókn Völsunga náðu þeir ékki að
skora jöfnunarmarkið fyrr en að-
eins 10 mínútur voru eftir af
leiknum. Var þar að verki Sig-
mundur Hreiðarsson sem skoraði
með glæsilegum þrumuskalla
eftir hornspyrnu. Þótti mönnum
þá mörgum full seint í rassinn
gripið og jafnteflisfnykur lá í loft-
inu. En viti menn! Húsvíkingar
áttu heilmikið eftir og á þeim tíu
mínútum sem eftir lifðu skoruðu
þeir tvívegis og Jónas Hallgríms-
son rak endahnútinn á sóknina í
bæði skiptin.
Það var mál manna er leikinn
sáu að þetta hefði verið einn besti
leikur sem sést hefði nú um langa
hríð.
Jónas Hallgrímsson lét sig ekki
muna um að skora „hat trick“ í
leiknum við Framara.
Jaðarsmót á
„Stóra bola“
Golfldúbbur Akureyrar heldur
hið árlega Jaðarsmót dagana
30. og 31. júlí, eða um næstu
helgi. Leiknar verða 18 holur.
Eins og áður er mótið opið öll-
um kylfíngum.
Jaðarsvöllurinn, eða „Stóri
boli“, eins og margir kalla hann,
er að sjálfsögðu 18 holu völlur.
Vegna tíðarfars var völlurinn
seinna til í ár en oftast áður en
víst er að Jaðarsvöllurinn verður
í toppstandi um næstu helgi.
3. deild:
Tindastóll í stórræðum
Undarlegt mark
Huginn - Tindastóll 1:3
Tindastóll var betri aðilinn í þess-
um leik, enda virðist fátt geta
stöðvað stólinn á hraðri leið hans
uppúr deildinni. Gústaf Björns-
son kom þeim Sauðkrækingum á
bragðið með marki í fyrri hálf-
leik. Þá gerðist skrautlegt atvik.
Árni markvörður Stefánsson
hugðist henda boltanum langt
fram á völl með glæstri sveiflu, en
hitti óvart Kristján Jónsson,
Huginsmann, í höfuðið og þaðan
sigldi boltinn rakleitt aftur í netið
að baki Árna. Að líkindum eng-
inn orðið jafn hissa og Kristján
sem skoraði þetta mark. Þrátt
fyrir þetta fengu Huginsmenn
ekki að komast upp með neinn
moðreyk í seinni hálfleik. Þeir
fengu fáein færi, sem þeir nýttu
ekki, en Tindastóll bætti við fleiri
mörkum. Fyrst var það að Gústaf
Björnsson skoraði sitt annað
mark í þessum leik og síðan bætti
Gunnar Guðmundsson þriðja
markinu við.
Stóllinn óstöðvandi
Valur - Tindastóll 2:4
Þetta var heldur rólyndisiegur
leikur, enda hafa Tindastóls-
menn haft nóg að gera þessa
helgina. Gárungarnir voru að
velta því fyrir sér hvort Gústaf
Björnsson væri lasinn, því hann
skoraði aðeins eitt mark í þessum
leik. Gunnar Guðmundsson
skoraði einnig fyrir Sauðkræking-
ana, en þeir Gústaf Ómarsson og
Elís Árnason svöruðu fyrir Vals-
ara. Þannig var staðan tvö mörk
gegn tveimur þegar um 10 mínút-
ur voru eftir af leiknum og allt
virtist ætla að leyast upp í tíð-
indalítið jafntefli. En viti menn.
Tindastóll tók hinn ágætasta
endasprett og skoraði tvö mörk
á þessum tíu mínútum. Og hirti
þar tvö stig og er orðinn einmana
á toppi deildarinnar.
Ekki nær Sindri stigi
HSÞ-b - Sindri 2:0
Þingeyingar fengu þá Hornfirð-
inga í Sindra í heimsókn á laugar-
daginn. HSÞ tók leikinn í sínar
hendur fljótlega og gáfu Sindra
aldrei möguleika á að komast í
góð færi. Leikurinn var líflegur
og hart var barist. Haukur Ragn-
arsson skoraði fyrra mark þeirra
Þingeyinga í fyrri hálfleik. I þeim
seinni dofnaði heldur yfir mann-
skapnum, þeir voru orðnir
þreyttir. Þingeyingar gáfu þá að-
eins færi á sér, en kom fyrir ekki,
Sindri náði ekki að skora. HSÞ
bætti hins vegar við öðru marki
og var þar að verki Þórhallur
Guðmundsson.
Sigur hjá Þrótti
Þróttur - Magni 3:1
Þróttarar fengu Magna í heim-
sókn. Úr því varð hinn ágætasti
leikur sem Þróttarar sigruðu í.
Það var í fyrri hálfleik að þeir
tóku forystuna með marki Páls
Freysteinssonar. í byrjun seinni
hálfleiks jafnar Magni, þar var að
verki Hringur Finnsson. En
Magni var ekki lengi í Paradís
fremur en Adam, Þróttarar bættu
við tveim mörkum áður en leik-
urinn var flautaður af, Páll skor-
aði aftur og Sigurður Friðjónsson
skoraði úr vítaspyrnu.
Tvö jafntefli
Á föstudaginn voru tveir ieikir
í annarri deild og báðir enduðu
þeir með jafntefli. FH - Víðir
2:2; Njarðvík - Fylkir 0:0.
FH-ingar áttu í vök að verjast
gegn gestum sínum í fyrri hálf-
leik. Víðismenn skoruðu eina
mark hálfleiksins og var þar að
verki Daníel Einarsson. FH-ing-
ar þóttust ekki geta verð þekktir
fyrir kveifarskapinn og tóku leik-
inn í sínar hendur í seinni hálf-
leik. Þeir skoruðu tvö mörk og
voru það þeir Jón E. Ragnarsson
og Pálmi Jónsson sem sáu það.
Undir lokin náðu Víðismenn að
jafna með marki Klemensar
Sæmundssonar.
í Njarðvík var rólegt í fyrri
hálfleik, liðin skiptust á um að
sækja og fátt var til tíðinda. í
seinni hálfleik tóku Njarðvíking-
ar af skarið og hófu stórsókn. En
allt kom fyrir ekki, boltinn vildi
ekki í netið hjá Fylki og uppsker-
an því jafntefli.
í KVÖLD
Fjórir leikir verða í 1. og 2. deild
í kvöld. Þórsarar halda til ísa-
fjarðar og eiga þar leik við
heimamenn. Það verða án efa
ákveðnir Þórsarar sem mæta til
leiks á ísafirðinum og ekkert gef-
ið eftir. Þarna geta þeir orðið sér
úti um tvö ákaflega dýrmæt stig.
Vestmannaeyingar halda í
Laugardalinn til móts við
Valsmenn. Vér Norðanmenn
viljum fátt segja um leikinn
BSSÍKO.
þarna á Suðurlandinu, en það er
augljóst mál, að búast má við
ágætum leik og spennandi.
Siglfirðingar koma til Akureyr-
ar og hyggja á sigur gegn KA. En
Akureyringarnir eiga harma að
hefna og verða eflaust torsóttir.
Við skulum fjölmenna á völlinn
og sjá hvað gerist.
Á Vopnafirði fær Einherji
Reyni í heimsókn.
„Leikum
til
sigurs!“
- segir Nói Bjömsson
fyrirliði Þórs
„Ég held að þad geri sér allir grein fyrir því
hversu mikilvægur þessi leikur er fyrir okkur
og þess vegna leggst leikurinn við ísfírðinga
vel í mig,“ sagði Nói Björnsson, fyrirliði
Þórs, við Dag fyrir helgina um leik IBÍ og
Þórs í 1. deildinni sem fram fer á ísafírði í
kvöld.
„Ef við vinnum á ísafírði þá erum við laus-
ir við falldrauginn í bili a.m.k., skiljum þá ís-
firöingu og Þróttara cftir á botninum ef
Þróttur tapar í Kcflavík sem ég vona auðvit-
að. Það hefur gengið vel hjá okkur að und-
anförnu, menn hafa barist vel sem ein heild,
boltinn hefur verið látinn ganga og liðið virk-
að sem sterk heild. Við munum tefla fram
okkar sterkasta liði á ísafirði og það verður
leikið til sigurs.“
„Eigum
harma
að hefna“
- segir Guðjón Guðjónsson
fyrirliði KA
„Við eigum harma að hefna gegn Siglfírðing-
um og því kemur ekkert annað til geina en
sigur gegn þcim,“ sagði Guðjón Guðjóns-
son, fyrirliði KA, er við ræddum við hann
um leik KA og KS sem fram fer á Akurcyri
í kvöld í 2. deildinni. Liðin hafa leikið þrjá
leiki í sumar, gerðu jafntefli 0:0 í Vormóti
KRA, síðan jafnlefli 2:2 i fyrri umferð ís-
landsmótsins og loks sló KS lið KA út úr
Bikarkeppninni.
„Ef við ætlum okkur upp í 1. deild kemur
ekkert til greina nema sigur í þessum leik,“
sagði Guðjón. „Auk þess er þuð mikilvægt
móralskt fyrir okkur að leggja Siglfírðing-
ana. Það verður því ullt lagt i sölurnar til
þess að knýja fram sigur.“
Þess má geta að Gunnar Gíslason leikur
mí aftur með KA eftir að hafa verið í meiðsl-
um en óvíst er hvort Jóhann Jakobsson getur
verið með vegna meiðsla.
„Ætlum
að selja
okkur
dýrt
- segir Runólfur Birgison
formaður K.S.
„Það er létt yfír mannskapnum hér og við
ætlum að selja okkur dýrt gegn KA, svo
mikiö er víst,“ sagði Runólfur Birgisson, for-
maöur Knattspyrnufélags Siglufjarðar, um
leikinn gegn KÁ i kvöld.
„Leikirnir þrír gegn KA fyrr í sumar
skipta nú ekki lcngur neinu máli, en það er
auðvitaö stefnt að því að Ijúka leikjum
sumarins við KA án þess að tapa fyrir þeim.
það er alltaf mikið atríði aö standa sig vel
gegn liðunum frá Akureyri. Nú teflum við
frani okkar sterkasta liði, og eftir leikinn
erum við á förum í keppnisferð til Færeyja.
Það væri gamun að geta farið í þá ferð með
tvö stig frá KA og geta fært Færeyingum
þau,“ sagði hinn eldhressi Runólfur að
lokum.
i áí
6 - DAGUR - 25. júlí 1983
25. júlí 1983 - DAGUR - 7