Dagur - 04.01.1984, Side 9
4. janúar 1984 - DAGUR - 9
Það er ekki alltaf tekið út með sitjandi sældinni að vera þjálfari í íþróttum,
og má oft sjá þjálfara rífa hár sitt á varamannabekk þegar illa gengur. En
það eru einnig bjartar hliðar á þjálfarastarfinu eins og sést á myndinni hér að
ofan. Hún er tekin af Birgi Bjömssyni þjálfara KA í handknattleik í leik KA
og FH á dögunum. Greinilega hafa lærisveinar Birgis gert eitthvað inn á vell-
inum sem hann hefur verið ánægður með ef marka má svip hans og tilþrif
önnur. mynd: kga
Enn setti
Kári met
Kári „Tígrisköttur“ Elíson
bætti enn einu íslandsmeti í
metasafn sitt á gamlársdag en
þá var sett npp kraftlyftinga-
mót í höfuðstöðvum lyftinga-
manna I Lundarskóla á Akur-
eyri.
Það var að sjálfsögðu í bekk-
pressu sem Kári setti þetta met
enda keppir hann ekki í þessari
grein án þess að setja met. Nú
keppti hann í 67 kg flokki eða
einum þyngdarflokki neðar en
undanfarið (hefur sennilega tekið
því rólega við matarborðið um
jólin) og upp fóru 160 kg.
Á sama móti keppti Jóhannes
M. Jóhannesson í 90 kg flokki og
setti nýtt Akureyrarmet í rétt-
stöðulyftu, lyfti þar 262,5 kg.
Faðir hans Jóhannes Hjálmars-
son reyndi einnig við íslandsmet
en festing á lóðastönginni gaf sig
í fyrstu tilraun og setti það þann
gamla út af laginu þannig að met-
ið féll ekki að þessu sinni.
KR-ingar bíða
eftir Gunnari
Gunnar Gíslason er nú hættur
að leika með þýska knatt-
spyrnuliðinu Osnabruck og er
væntanlegur til landsins nú í
vikunni.
Ekki er vitað hvað hann hyggst
taka sér fyrir hendur eða hvort
hann mun setjast að í Reykjavík
eða hér á Akureyri. Vitað er að
KR-ingar bíða þess með óþreyju
að hann komi til landsins og hafa
þeir boðið honum íbúð í Reykja-
vík ef hann vill spila handknatt-
leik með liðinu það sem eftir er
keppnistímabilsins. Er ekki talið
ólíklegt að hann muni taka til-
boði þeirra.
Þá er ekki vitað hvort hann
leikur knattspyrnu með KA í ár,
eða hvort hann leikur með ein-
hverju öðru félagi.
Svavar setti 6 met
Á Desembermóti Sundfélags-
ins Óðins sem haldið var á
dögunum var það unga fólkið
og þá sérstaklega keppendur í
meyjaflokki og sveinaflokki
sem gerði bestu hlutina.
Nokkur Akureyrarmet voru
sett á mótinu, Svavar Þ. Guð-
mundsson synti 800 metra skrið-
sund á 12:21,2 mín. - Silja Óm-
arsdóttir 800 metra skriðsund
kvenna á 15:00,0 mín. - Svavar
Þ. Guðmundsson 400 metra
skriðsund sveina á 5:40,1 mín.
Hann synti einnig 200 m baksund
sveina á 2:58,6 mín. 200 metra
skriðsund á 2:37,2 mín. - 200
metra fjórsund á 2:59,7 mín. - og
loksins 100 metra bringusund á
1:32,3 mín.
100 m bringusund stúlkna
1. Silja Ómarsdóttir 1:48,5
2. Linda Óladóttir 2:06,3
200 m fjórsund drengja
1. Svavar Þ. Guðmundsson 2:59,7
50 m flugsund meyja
1. Silja Ómarsdóttir 47,7
2. Aðalheiður Sigursveinsd. 68,6
50 m flugsund sveina
1. Svavar Þ. Guðmundsson 36,1
2. Magnús Amarson 47,3
3. Gunnar Ellertsson 50,0
50 m skriðsund meyja 10 ára og yngri
1. Elsa Guðmundsdóttir 43,0
2. Bima Bjömsdóttir 47,3
3.-4. Halla Jónsdóttir 56,3
3.-4. Aðalheiður Sigursveinsd. 56,3
50 m skriðsund meyja
1. Silja Ómarsdóttir 39,8
2. Sandra Jóhannesdóttir 48,3
3. Linda Óladóttir 49,5
50 m skriðsund sveina 10 ára og yngri
1. Gunnar Ellertsson 42,5
2. Snorri Óttarsson 43,4
3. Ingiþór Ingólfsson 56,2
50 m skriðsund sveina
1. Svavar Þ. Guðmundsson 32,4
2. Magnús Þ. Amarson 36,7
3. Sigurbjöm Þorgeirsson 36,9
100 m bringusund karia
1. Svavar Þ. Guðmundsson 1:32,3
2. Sveinn Sigryggsson 1:33,1
3. -4. Magnús Þ. Arnarson 1:43,0
3.-4. Sigurbjöm Þorgeirsson 1:43,0
1500 m skriðsund. mín.
1. Geir Baldursson 20:48,6
2. Svavar Þ. Guðmundsson 23:01,9
3. Sveinn Sigtryggsson 26:37,5
800 m skriðsund karla.
1. Geir Baldursson 10:51,9
2. Svavar Þ. Guðmundsson 12:22,3
3. Sveinn Sigtryggsson
800 m skriðsund kvenna.
1. Silja Ómarsdóttir 15:00,0
400 m skriðsund karla.
1. Geir Baldursson 4:56,8
2. Svavar Guðmundsson 5:40,1
3. Sveinn Sigtryggsson 6:25,7
400 m skriðsund kvenna.
1. Silja Ómarsdóttir 7:01,2
100 m skriðsund drengja.
1. Svavar Þór Guðmundsson 1:12,4
2. Sveinn Sigtryggsson 1:20,5
3. Otto K. Tuliníus 1:25,5
50 m. bringusund meyja 10 ára og yngri.
1. Bima Bjömsdóttir 48,6
2. Elsa Guðmundsdóttir 50,6
3. íris Thorleifsdóttir 53,9
50 m bringusund meyja.
1. Silja Ómarsdóttir 48,4
2. Guðbjörg Ragnarsdóttir 48,8
3. Linda Óladóttir 54,4
50 m bringusund sveina 10 ára og yngri.
1. Snorri Óttarsson 55,5
2. Ingiþór Ingólfsson 55,6
3. Gunnar Ellertsson 56,6
50 m bringusund sveina.
1. Magnús Amarson 44,1
2. Otto K. Tuliníus 47,5
3. Sigurbjöm Þorgeirsson 48,0
200 m baksund.
1. Svavar Þór Guðmundsson 2:58,6
100 m baksund.
1. Silja Ómarsdóttir 1:45,9
50 m baksund meyja.
1. Silja Ómarsdóttir 47,3
2. Birna Bjömsdóttir 53,2
3. Guðrún Svanbjömsdóttir 58,3
50 m baksund sveina.
1. Magnús Amarson 47,4
2. Otto K. Tuhníus 50,0
3. Gunnar Ellertsson 52,0
200 m skriðsund drengja.
1. Svavar Þór Guðmundsson 2:37,2
2. Sveinn Sigtryggsson 3:00,7
3.-4. Magnús Amarson 3:06,8
3.-4. Otto K. Tuliníus 3:06,8
Kjarnaskógur:
Skíðagöngu-
menn fá aðstoð
Það sem af er þessum vetri
hefur verið óvenjugott og stöð-
ugt skíðafæri í Kjarnaskógi.
Aðsókn að upplýstri skíða-
göngubraut á svæðinu er vax-
andi og brautin er troðin og
sporuð daglega þegar aðstæð-
ur leyfa.
Skíðatrimmnefnd Skíðaráðs
Akureyrar mun gangast fyrir
leiðbeiningum í skíðagöngu og
ráðgjöf um smurningu göngu-
skíða í Kjarna þegar aðstæður
leyfa. Er ákveðið að þessi þjón-
usta hefjist annað kvöld kl. 20 og
verði eftirleiðis á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 20-22 og á
sunnudögum kl. 14-16. Upplýs-
ingar um skíðafæri í Kjarnaskógi
eru veittar í síma 24047 daglega.
1—X—2
Baldvin Ólafsson.
„Bikarleikirnir eru alltaf erf-
iðir að spá um, en eitt er al-
veg pottþétt. Það er sigur
Nottingham Forest gegn
Southampton, við ætlum að
þurrka út þetta leiðinlega
BBC bros á framkvæmda-
stjóra Southampton,“ sagði
Baldvin Ólafsson „getrauna-
kóngur“ og aðdáandi Nott-
ingham Forest sem spáir fyrir
okkur þessa vikuna.
Þeir sem fylgjast með vita
að Baldvin hefur verið sigur-
sæll í getraunum og oftsinnis
hlotið þar mjög góða vinn-
inga. Hann fór létt með að
spá fyrir okkur um úrslitin á
næsta seðli, hristi merkin
fyrir aftan leikina úr erminni
á svipstundu og nú er bara að
sjá hver útkoman verður.
Spá Baldvins er þessi:
A.VilIa-Norwich 1
Blackbum-Chelsea X
Cardiff-Ipswich 1
Coventry-Wolves 1
C.Palace-Leicester X
Fulham-Tottenham X
Huddersfield-QPR 2
Luton-Watford 1
Middlesb.-Arsenal 1
Nott.For.-Southampton 1
Portsmouth-Grimsby 1
Stoke-Everton X
Baldvin spáir því 7 heima-
sigrum, fjórum jafnteflum og
aðeins einum útisigri, því að
QPR vinni Huddersfield á
útivelli.
Elmar
með 4
rétta
Þegar Elmar Geirsson spáði
fyrir okkur um úrslit leikja á
getraunaseðlinum 17. des-
ember óttaðist hann að hann
myndi ekki fá marga rétta.
Hann er þó í hærri kantinum
af þeim sem hafa spreytt sig
til þessa, því 4 réttir nægja í
3.-4. sætið. Aðeins Tryggvi
Gíslason (7) og Pálmi Matt-
híasson (6) eru ofar og þeir
Elmar og Þorsteinn Þor-
steinsson koma næstir með 4
hvor.
Nú hefjum við getrauna-
leikinn að nýju og eiga 8
spámenn eftir að koma fram.
Áð því loknu eða í byrjun
mars mæta síðan 4 efstu til
leiks og spá í nokkrar vikur.
Sá sem fær besta útkomu þá
telst svo sigurvegari í get-
raunaleiknum hjá Degi
1983-1984.
1-X-2