Dagur - 23.01.1984, Qupperneq 7
23. janúar 1984 - DAGUR - 7
KA
sigraði
KA
Það var leikur a-Iiðsins að b-
iiðinu þegar KA-a og KA-b
mættust í annari deildinni í
blaki um helgina. Fór leikur-
inn 3:0 fyrir KA-a og fékk b-
liðið aldrei rönd við reist.
A-liðið gaf tóninn þegar í
fyrstu hrinunni. Vann öruggt
15:0 en í þeirri næstu náði b-liðið
sér aðeins á strik en mátti þola
tap 15:9. í síðustu hrinunni vann
KA-a svo 15:4 og öruggur og
sanngjarn sigur því í höfn.
Leik Skautafélagsins og Reyni-
víkur var frestað og hefur nú
þrem leikjum Reynivíkur, m.a.
einum gegn KA verið frestað.
Staðan í riðlinum er því nokkuð
óljós en KA-a er efst að stigum,
hefur tapað tveim stigum gegn
Reynivík en Reynivík hefur
einnig tapað einum leik gegn
KA-a. Það er því ljóst að barátt-
an í riðlinum stendur á milli þess-
ara tveggja liða og þó að KA-a
standi kannski örlítið betur að
vígi nú, þá verður örugglega hart
barist, enda mikið í húfi. - ESE
Dagur Norðurlands á íslandsmótinu
í innanhússknattspyrnu:
KA og Pór
upp í 1- deild
• einnig HSÞ-b • Reynir í 3. deild
Það var svo sannarlega dagur
Norðurlands á íslandsmótinu í
innanhússknattspymu sem
fram fór í Laugardalshöll um
helgina. Keppt var í 2. deild og
4. deild og er skemmst frá því
að segja að þrjú lið af Norður-
landi unnu sig upp í 1. deild,
KA, Þór og HSÞ-b og Reynir
Árskógsströnd vann sig upp í
þriðju deild.
Þórsarar unnu einna léttastan
sigur í sínum riðli á mótinu. Fyrst
unnu þeir stórsigur á Magna
11:5, síðan unnu þeir Hauka 5:2
og loks Árroðinn 7:3. Fyrstu
deildarsætið var þar með tryggt
en síðan tryggði Árroðinn 2.
deildarsætið með því að sigra
Magna frá Grenivík með 7:6.
Magni fellur því í þriðju deild.
KA vann sinn riðil nokkuð ör-
ugglega. Fyrst leikinn gegn
Grindavík 5:3, síðan lentu þeir í
kröppum dansi gegn Aftureld-
ingu en höfðu þó að lokum sigur
5:4 og loks sigruðu KA-menn
Stjörnuna 5:4 og þar með var KA
búið að hreppa 1. deildarsæti.
Þriðja norðanliðið til að leika
þennan leik var HSÞ-b en því
miður þurfti það að vera á kostn-
að Leifturs frá Ólafsfirði. HSÞ-b
vann úrslitaleikinn með minnsta
mun og í lokin munaði aðeins
einu marki á liðunum. Að sögn
viðstaddra sýndu Ólafsfirðingar
einn besta leik mótsins er þeir
gjörsigruðu lið Ármanns í síðasta
leik 7:1 en það dugði þeim sem
sagt ekki til sigurs.
Fjórða liðið til að tryggja sér
sæti í fyrstu deild að ári var Víðir
úr Garði.
í fjórðu deild sigruðu Reynir
frá Árskógsströnd örugglega í
sínum riðli og Ieika þeir því í
þriðju deild að ári. Aðrir sigur-
vegarar í riðlum fjórðu deildar
voru Árvakur (RVK), Neisti
(RVK) og Valur frá Reyðarfirði.
- ESE
Fjórði flokkur í hrakningum
Fjórði flokkur Þórs í körfu-
knattleik lenti í miklum hrakn-
ingum í gær á leið frá „turner-
ingu“ í Sandgerði. Voru strák-
arnir eina sjö tíma á leiðinni til
Reykjavíkur í ófærðinni en
þessi leið er venjulega ekin á
tæpum klukkutíma.
Er veður versnaði í Reykjavík
ákváðu forráðamenn Þórs að
drífa strákana heim á hótel og
urðu af þeim sökum að gefa síð-
asta leikinn gegn KR í mótinu.
Áður höfðu Þórsarar unnið
Reyni og Grindavík en tapað
gegn Tindastóli. Ferðin gekk svo
sem áður segir og í gærkvöld ætl-
uðu forráðamenn Þórs að reyna
að brjótast á jeppum að Umferð-
armiðstöðinni til þess að ná í
strákana. - ESE
ÆKAfíHU
GONGUSKIDI
Sporthú^id,
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
Hulda Svanbergsdóttir á fullri ferð í fyrri umferð.
Stórsvigmót KA
■ ■ ■
Mvnd: KGA
Björn Víkingsson, Þór kom
nokkuð á óvart um helgina er
hann vann sigur í karlaflokki á
stórsvigmóti KA í Hh'ðar-
fjalli. Björn hefur ekki æft
mikið í vetur en það er greini-
legt að hann ætlar sér stóra
hluti á stórmótum ársins.
Tími Björns var 106.01 en í
öðru sæti varð Eggert Bragason
KA á 106.70. Þriðji varð Rúnar
I. Kristjánsson KA á 109.78.
Ekkert var keppt í kvenna-
flokki vegna meiðsla og prófanna
en í stúlknaflokki 15-16 ára
sigraði Guðrún H. Kristjánsdóttir
KA á 116.34. Helga Sigurjóns-
dóttir Þór fékk tímann 125.90 og
Erla Björnsdóttir Þór varð þriðja
á 126.71. f flokki 15-16 ára pilta
sigraði Björn B. Gíslason KÁ og
var þetta hans annar sigur í röð á
skíðamótum ársins. Björn fékk
tímann 112.22 en annar varð
Hilmar Valsson Þór á 113.96 og
þriðji varð Smári Kristinsson KA
á 121.49.
í flokki 13-14 ára drengja sigr-
aði Valdimar Valdimarsson KA
á 104.07, Kristinn Svanbergsson
KA varð annar á 104.27 og
Bjarni Freysteinsson KA varð
þriðji á 107.51.
í flokki 13-14 ára stúlkna sigr-
aði Hulda Svanbergsdóttir KA á
112.88. Önnur varð Kristín Jó-
hannesdóttir á 113.92 og þriðja
Jórunn Jóhannesdóttir á 114.79.
Um næstu helgi verður KA
mót í stórsvigi fyrir 12 ára og
yngri á dagskrá en þá fer jafn-
framt frarn Janúarmót í skt'ða-
göngu (allir flokkar) í Hlíðar-
fjalli. - ESE
Kristfn Jóhannesdóttir varð önnur í stúlknaflokki 13-14 ára.
Og Jórunn hreppti þriðja sætið.
SHH
skíðaáburður
fyrir göngu og svig í úrvali