Dagur - 10.02.1984, Síða 3
10. febrúar 1984 - DAGUR - 3
Verktakar með
vafasamt siðgœði!
Það ku hafa færst talsvert í
vöxt á undanförnum misserum
að þeir sem gera tilboð í hin
ýmsu verk eru með mun lægra
tilboð en kostnaðaráætlun hef-
ur hljóðað upp á. Að sjálf-
sögðu eru undirboð af þessu
tagi ef hægt er að kalla þau það,
fylgifiskur minnkandi atvinnu,
en undirboð eru ekki ný af nál-
inni.
Það sjáum við mjög vel ef við
lítum á bréf yfirmanns frönsku
virkjanna hr. Vauban, en bréfið
skrifaði hann ráðherra sínum hr.
Louvois. Bréfið er ekki alveg
nýtt af nálinni, heldur er það
skrifað 17. júlí það herrans ár
1683 (ekki prentvilla). En það
gæti alveg hafa verið skrifað á
okkar tímum.
Til Louvois.
Herra minn!
Á síðustu árum er allmikill fjöldi
tilboðsverka sem ekki hefur verið
lokið við og líklega verður aldrei
lokið við. Það orsakast, kæri
herra, af því að hið allt of lága
verð sem til hafa orðið við útboð
yðar, hefur virkað siðspillandi.
Það er alveg víst að hin tíðu
samningsbrot, svik á loforðum og
endurútboð verka hafa valdið
því að þér hafið dregið að verk-
taka með vafasamt siðgæði og
verktaka sem ekki hafa getu til
starfsins, en þeir verktakar sem
með vilja og dugnaði geta stjórn-
að verkum sínum, haida sig víðs-
fjarri.
Ég vil jafnframt benda á að allt
þetta seinkar og eykur kostnað
við verkin í ríkum mæli. Það er
því slæm áætlun að sækjast eftir
slíku undirboðsverði, sem er
blekking, því verktaki sem tapar
á verki er eins og drukknandi
maður sem grípur dauðahaldi í
allt sem til næst, það er að segja,
slíkur verktaki greiðir ekki við-
skiptaaðilum sínum og fær því
verri vörur og þjónustu, hann
svindlar þar sem hann mögulega
getur og kemst upp með, hann
undirborgar starfsmönnum og
hefur því lélegasta starfsfólkinu
á að skipa, og hann „æpir“ á
miskunn við hvert tækifæri.
Þetta ætti, herra minn, að op-
inbera yður að þessi vinnubrögð
eru óheppileg, hættið því við þau
og fyrir alla muni: Éndurreisið
heiðarleikann, greiðið fyrir vinn-
una á sannvirði og sjáið fyrir
sómasamlegum greiðslum til
verktaka er uppfyllir skyldur
sínar, það mun alltaf verða besti
samningur sem þér getið gert.
Vauban.
GREINILEGUR
VEKMWNUR!
Samkvæmt verðlista frá Verðlagsstofnun Akureyrar eru
öl og gosdrykkir mun ódýrari frá SANA-SANITAS H/F
en frá keppinautunum.
Hinn mikli mismunur er fólginn í flutningsgjaldi
sem leggst ekki á vörur frá SANA-SANITAS H/F
vegna starfsrækslu eigin verksmiðju á Akureyri.
Eftirfarandi tafla sýnir mismuninn í krónum.
MISMUNUR:
Akureyri Ólafs- fjörður Siglu- fjörður Húsavík
Sana (Sanitas)/ Vífilfell, gosdr. -11,20 -10,10 -5,10 -8,80
Sana (Sanitas)/ Ölgerðin, gosdr. -14,10 -13,10 -7,90 -11,85
Sana (Sanitas)/ Ölgerðin, pilsner -5,25 -4,10 -2,90 -4,25
VERÐSAMANBURÐUR Á ÖL- OG GOSDRYKKJUM Á NORÐURLANDI 29.11. 1983
Akureyri Ólafsfjörður Siglufjörður Húsavík
SANA/SANITAS: Pepsi/Diet/7-Up/ Appelsín Pilsner/Malt 36,50 17,00 38.50 18.50 42,90 19,45 41,35 18.85
VÍFILFELL: Coke/Tab/Sprite/ Fanta 47,70 48,60 48,00 50,15
ÖLGERÐIN: Spur/Sinalco/ Hi-Spot/Appelsín Pilsner/Malt 50,60 22,25 51.60 22.60 53,20 22,35 50,80 23,10
1) Á gosdrykkjum er m.v. verö per litra en per flösku á Pilsner/Malt.
Rymingarsala
Vegna mikillar aðsóknar að
rýmingarsölunni verður hún
framlengd næstu viku.
Bætum við Kappklæðum,
kuldaúlpum, stígvélum, regnfötum
og ýmsu fleiru.
Mikill afsláttur
Látið ekki happ úr henúi sleppa.
Opið á laugardag.
IMl Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 sími 22275.
Frá Súlnabergi:
Fjölskyldutilboð
sunnudaginn 12. febrúar.
Hadegis- og kvöldverður.
Fylltur kjúklingur með hrásalati.
Blómkálssúpa eða trifflé.
Kr. 225,-
Hálft gjald fyrir börn 8-12 ára og ókeypis fyrir yngri
í fylgd með foreldrum.
Nú fer hver að verða síðastur
að bragða okkar frábæra þorramat.
Dansleikur fellur niður laugardaginn 11. feb.
vegna einkasamkvæmis.
Ungir Akureyringar
Nú stofnum við æskulýðsfylkingu Al-
þýðubandalagsins á Akureyri. Stofnfund-
ur verður 11. febrúar kl. 15.00 í Lárusar-
húsi Eiðsvallagötu 18.
Á fundinn mæta Guðbjörg Sigurðardóttir og Óttar
Magni Jóhannsson úr stjóm æskulýðsfylkingarinnar
og Steingrímur Sigfússon alþingismaður. Þau munu
kynna æskulýðsfylkinguna, starf, stefnu og mark.
Allir ungir sósíalistar velkomnir.
Viðskiptavinir
athugið
Ritstjórnarskrifstofur okkar, auglýsingamóttaka og
afgreiðsia verða lokaðar eftir hádegi í dag
10. febrúar vegna jarðarfarar Sigurðar Ola Brynj-
ólfssonar.
Dagur-Dagsprent hf.
Strandgötu 31, Akureyri.