Dagur - 24.02.1984, Page 11

Dagur - 24.02.1984, Page 11
24. febrúar 1984 - DAGUR -11 Jóhannes Geir á Öngulsstöðum og Leifur Guðmundsson í Klauf tóku sig vel út í hlutvcrkum friðsamra eyfirskra kvenna. Hér eru hjónin í Ytra-Laugalandi, Vilborg Þórðardóttir og Hjörleifur Tryggvason, fyrir miðri mynd og fleiri mektarbændur á næstu grösum. Dansinn var stiginn af miklu fjöri fram til morguns. Hér eru hjónin í Kommu, Kristín Sigvaldadóttir og Vilberg Jónsson í fararbroddi. ✓ A helgum degí Tcxíi, Mark 4,26-29 Máttugt orö Þegar Guðs orð hljómar og fær jarðveg að vaxa í, þá gerist alltaf eitthvað sjálfkrafa, því það er eins og sáðkorn, það hefur lífið í sér. Orð Guðs er ekki eins og orð manna. Orð okkar mann- anna eru um eitthvað en orð Guðs gerir eitthvað. Orð Guðs gerir mann kristinn, það frelsar, skapar trúna í hjört- unum, gefur sigur í freisting- um, leiðir út úr rnyrkri og þjáningu, uppbyggir, hug- hreystir, varðveitir og gefur fögnuð og frið. Orð Guðs er meir en orð. Það er Guð sjálfur. Með orð- inu hrekur hann burt hið illa, sem eyðileggur lífið og gefur það sem er til blessunar. „Orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda.“ Biblían er Guðs orð til þín. Lestu hana og hlustaðu á boðskap hennar og sjá, hann mun þér til blessunar verða. Sóló-húsgögn Sterk og stflhrein Eldhúsgögn, borð, stólar, kollar Einnig tilvalið í kaffistofur, veitinga- og samkomuhús Borð og stólar í öllum stærðum og gerðum I dag opnar Alþýðubankinn útibú á Akureyri AÐ RAÐHUSTORGI 5 Viðskiptavlnir athugið að afgreiðslutími okkar er, kl. 9.15-16.00 auk þess er opið á fimmtudögum milli kl. 17.00 og 18.00 Lokað milli 13.00 og 14.00 A.TH! OPIÐ í HÁDEGINU I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.