Dagur - 29.02.1984, Page 11
29. febrúar 1984 - DAGUR -11
Starfsemi Norður-
landsdeildar Veiði-
málastofnunar 1983
Silunganetaslöngur
og teinar
í byrjun september 1983 var skip-
að í stöðu fiskifræðings Norður-
landsdeildar Veiðimálastofnun-
arinnar. Verksvið þeirrar deildar
er að sjá um ráðgefandi þjónustu
og rannsóknir varðandi nýtingu
laxfiska í ám og vötnum. Um-
dæmi deildarinnar er frá Hrúta-
fjarðará að vestan til Jökulsár á
Fjöllum að austan. Aðsetur
Norðurlandsdeildarinnar, frá
byrjun nóvember 1983, er að
Hólum í Hjaltadal og er skrifstof-
an í húsi bændaskólans þar.
í september og október var
einkum fengist við undirbúning.
Teknar voru saman helstu upp-
lýsingar sem fyrir lágu á Veiði-
málastofnun í Reykjavík varð-
andi öll árkerfi umdæmisins.
Einnig var aflað tækja til rann-
sókna, svo og útbúnaður fyrir
skrifstofu, eftir því sem aðstæður
leyfðu. Veiðifélag Víðidalsár
Rækjuverk-
smiðjan á
Grenivík
Vegna misskilnings sem orðið
hefur vart við vegna fréttar Dags
um rækjuverksmiðju á Grenivík
er rétt að taka það fram að þegar
haft er eftir Stefáni Þórðarsyni
sveitarstjóra að hægt verði að
safna nægilegu fé til að koma
verksmiðjunni á laggirnar, þá er
ekki átt við að viðkomandi aðilar
hyggist ekki leita til fjárfestingar-
sjóðanna. Þá er einnig rétt að
taka fram að síðasta málsgrein
fréttarinnar er ekki höfð eftir
Stefáni, heldur er hér vitnað til
ummæla Kristleifs Meldals hjá
frystihúsinu Kaldbak á Grenivík.
lagði deildinni til afnot af góðri
víðsjá og Laxárfélagið, sem er
félag stangveiðimanna við Laxá í
Aðaldal, lagði til hreisturpressu.
Má segja að um áramót hafi bún-
aður deildarinnar verið orðinn
sæmilega góður, þótt enn megi
bæta um betur.
í nóvember og desember var
deildin kynnt veiðifélögum í um-
dæminu og í samráði við þau var
mörkuð sú stefna að starfsemi
næstu ára skyldi fyrst og fremst
beint að:
1) Könnun á þáttum sem orsaka
sveiflur í laxgengd og aðgerðir
sem gætu aukið og jafnað
göngur fullorðinna laxa úr
sjó.
2) Laxarækt í köldum ám.
3) Nýting silungshlunninda í ám
og stöðuvötnum.
í samræmi við ofangreind
markmið var gerður stuttur rann-
sóknarleiðangur í Laxá í Aðaldal
og hafin var úrvinnsla gagna það-
an frá árunum 1945-1960. Er
ráðgert að halda því starfi áfram
á næstu árum. Þá var gerð lausleg
könnun á lífríki Hjaltadalsár og
eldri gögn og skýrslur þaðan at-
hugaðar. Þessi á er dæmigerð fyr-
ir köldu árnar norðanlands og var
hafin gerð laxræktunar- og rann-
sóknaráætlunar fyrir ána. Loks
var farið í Mývatn, veitt í gegn-
um ís og rætt við bændur. Vegna
mikilvægi veiðihlunninda þar er
fyrirhugað að veita Mývatni sér-
staka athygli í framtíðinni, í ná-
inni samvinnu við aðra fiskifræð-
inga Veiðimálastofnunarinnar.
Mývatn er mjög sérstætt og því
verður að leitast við að hefja
langtímarannsóknir í öðru dæmi-
gerðu silungsvatni á þessu ári.
Á komandi árum er ráðgert að
mest áhersla verði lögð á lang-
tíma verkefni þar sem fylgst
verður með breytingum fiski-
stofna í ljósi tíðarfars, veiðiálags
og fiskræktaraðgerða. Niður-
stöður slíkra rannsókna ættu að
styrkja mjög almennt ráðgjafa-
starf, þótt slíkt kalli ævinlega
einnig á minniháttar gagnasöfnun
í viðkomandi ám eða vötnum. Á
árinu 1983 var gerð ein smærri
könnun á seiðastofnum Fljótaár
í Skagafirði og munu niðurstöður
þaðan liggja fyrir á næstunni.
Þó deild Veiðimálastofnunar
fyrir Norðurland sé enn í burðar-
liðnum hefur þegar komið fram
talsverður áhugi og stuðningur
við starf hennar frá veiðifélögum
og öðrum hagsmunaaðilum í um-
dæminu. Ég er þessum aðilum
þakklátur, en bendi á að áfram-
haldandi stuðningur er forsenda
þess að starf deildarinnar verði
veiðimálum á svæðinu til fram-
dráttar.
Tumi Tómasson, fiskifræðingur.
Ungmennafélag Skriðuhrepps
Aðalfundur
félagsins verður haldinn að Melum laugardaginn
3. mars kl. 13.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum öll vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Frá kjörbúðum KEA
Góð matarkaup
Stóriækkað verð á öllu
svínakjöti
Nú er hagkvæmt að kaupa
svínakjöt í helgarmatinn
Eldridansaklúbburinn!
Dansleikur verður í Alþýðuhúsinu laugardaginn 3.
mars 1984. Húsið verður opnað kl. 21.
Miðasala við innganginn.
Allir velkomnir. Stjórnin.
■■
A SOLUSKRA:
Tveggja herbergja íbúðir:
Kjalarsíða: Önnur hæð, svala inngangur, laus í júní.
Lækjargata: Fyrsta hæð, ódýr íbúð.
Skarðshlíð: Stór íbúð.
Smárahlíð: Einstaklingsíbúð á 3. hæð.
Hrísalundur: 2. hæð, laus strax.
Þriggja herbergja íbúðir:
Tjarnarlundur: Fjórða hæð, afhending samkomu-
■ 'ag-
Seljahlíð: Raðhúsaíbúð.
Norðurgata: Neðri hæð í tvíbýli.
Eiðsvallagata: Risíbúð, mikið endurnýjuð.
Oddeyrargata: íbúð í parhúsi.
Norðurgata: 3. hæð, afhending samkomulag.
Þingvallastræti: íbúð í parhúsi.
Víðilundur: 2 hæð.
Fjögurra herbergja íbúðir:
Norðurgata: 1. hæð.
Hjallalundur: 1. hæð. íbúðin þarfnast lagfæringar.
Tjarnarlundur: 2. hæð. Laus strax.
Oddeyrargata: íbúð í parhúsi. Afhending eftir sam-
komulagi.
Fjólugata: Einbýlishús, mjög mikið endurnýjað. Af-
hending samkomulag.
Fimm herbergja íbúðir:
Stapasíða: Einbýlishús, ekki fullbúið.
Vestursíða: Fokhelt raðhús m/bílskúr. Skipti mögu-
leg á ódýrara.
Verslun í Miðbænum: Innréttingar, lager og við-
skiptasambönd.
Einnig til sölu: Verslunarhúsnæði.
Hafnarstræti: 80 fm húsnæði hentugt fyrir trésmíða
verkstæði eða bifreiðaverkstæði.
Vantar íbúðir á söluskrá.
Simsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf Opið frá
Gránufélagsgötu 4, .. _ _
efri hæð, sími 21878 Kl- >~7 e.h.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Johannsson, viöskiptafræöingur
Hermann R. Jónsson, sölumaöur
Fóðurstöð loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar
auglýsir -
Stöðvarstjóri óskast
Staða stöðvarstjóra er laus til umsóknar við
væntanlega fóðurstöð loðdýraræktarfélags Eyja-
fjarðar, sem staðsett verður á Dalvík.
Umsóknirskulu berast skriflegar fyrir 10. mars nk.
til Þorsteins Aðalsteinssonar Mímisvegi 17, Dal-
vík símar 61393 og 61467 sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar.
Loðdýraræktarfélag Eyjafjarðar.