Dagur


Dagur - 21.03.1984, Qupperneq 4

Dagur - 21.03.1984, Qupperneq 4
4-DAGUR-21. mars 1984 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 18 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Ófremdarástand hjá dreifbýlisskólunum Enn á ný eru dreifbýlisskólarnir í erfiðleikum vegna vanskila á lögbundnum greiðslum frá ríkinu. Fyrr í vetur hefur komið til þess að skólar hafa þurft að loka og enn á ný blasir sama staðan við ef ekki fást úrbætur. Það grátlegasta við málið er þó það, að lítið sem ekkert mál er að kippa því í liðinn. Það er fyrst og fremst kerfistregða sem veldur því að dreifbýlisskólarnir lenda í vandræðum ár eftir ár. Vegna þess að hluti af launagreiðslum til sumra starfsmanna grunnskólanna úti um land fer í gegn um sveitarfélögin og er síðan endurgreiddur af ríkinu, lenda greiðslur til þessara starfsmanna aftur fyrir í þeirri for- gangsröð sem viðhöfð er með greiðslur til skólahalds. Starfsmenn þéttbýlisskólanna fá sín laun greidd frá launadeild fjármálaráðu- neytisins strax að loknu greiðslutímabilinu. Þá er eftir að greiða laun fyrir t.d. yfirvinnu kennara í dreifbýlisskólum og heimavistar- gæslu, skólaakstur og mötuneyti. Þetta eru ekki réttminni laun en til þeirra sem búa á þéttbýlisstöðunum. En þar sem litlu sveitar- félögin þurfa að standa undir þessum greiðslum, sem síðan fást seint og illa endur- greiddar af ríkinu, kemur sífellt til þess að ekki er hægt að greiða þessu starfsfólki laun. Á fundum skólastjóra og yfirkennara á Norðurlandi eystra, sem haldnir voru á Akur- eyri og Húsavík nýlega, var vakin athygli á því ófremdarástandi sem enn einu sinni hefur skapast hjá heimavistar- og heimanaksturs- skólum vegna vanskila ríkissjóðs á lögboðn- um greiðslum á skólakostnaði. Þá var á sam- eiginlegum fundi fræðsluráða Norðurlands eystra og Norðurlands vestra samþykkt ályktun þar sem segir, að rekstrarvandi dreif- býlisskólanna hafi ekki enn verið leystur til frambúðar og ekki sé kunnugt um að neinar viðræður eigi sér stað til lausnar vandanum. Fræðsluráðin hafa þungar áhyggjur af þessu og telja að ríkissjóði beri að standa við ský- lausa lagaskyldu sína samkvæmt grunnskóla- lögum og reglugerð um reksturskostnað grunnskóla um skilvísar greiðslur áfallins kostnaðar. Það er ófært að skólum í þéttbýli og dreif- býli sé mismunað með þessum hætti. íslend- ingar hafa hreykt sér af almennri menntun allra landsmanna og jafnri aðstöðu til náms. Ætla mætti að stefnubreyting sé að verða á í þessum efnum í menntamálaráðuneytinu. Sökum þess að það eru ekki sömu gjaldker- arnir sem greiða starfsmönnum skóla laun, eftir því hvort þeir eru í dreifbýli eða þéttbýli, skapast óþolandi misrétti sem verður að lag- færa. Opið bréf til ritstjóra Hr. ritstjóri! Þú gerir athugasemd við grein mína í 31. tbl. Dags, sem út kom 12. mars síðastliðinn. Mér kom i hug máltækið „sök bítur sekan“, þegar ég las þessa athugasemd þína. Ég var nokkuð lengi að taka ákvörðun um það hvort ég ætti að gera athugasemd við þessa at- hugasemd þína. Mér sýndist í fyrstu að það væri óþarfi, þar sem þú undirstrikar réttmæti þeirrar gagnrýni sem ég setti fram í grein minni. En það hefur komið í ljós, að ýmsir hafa álitið að þú færir með rétt mál varðandi mig persónu- lega í fyrrnefndri athugasemd, og þess vegna sé ég mig knúinn til að leiðrétta rangfærslur þínar. Þú segir: „Umræddur lista- maður gæti verið hann sjálfur og það eina sem ég minnist varðandi mynd eftir R.Lár á forsíðum Dags var svolítið Bogga-leg mynd af Gísla á Uppsölum, en sú mynd tengdist grein eftir R.Lár inni í blaðinu, sem hann fékk að sjálfsögðu greitt fyrir.“ I fyrsta lagi er þér vel kunnugt um það, að umræddur listamaður er ekki ég. Það er því síður en svo heiðarlegt af þér að læða þeirri hugmynd að lesendum þess blaðs sem þú ritstýrir. Sú teikn- ing sem birtist á forsíðu Dags af Gísla á Uppsölum og var að þínu mati „svolítið Bogga-leg“, var til- vísun í efni inni í blaðinu og var sett á forsíðuna sem slík og kom ég þar hvergi nærri. Þetta ættir þú að vita og veist reyndar. Ég hef ekki kvartað undan því að hafa ekki fengið greitt „sam- kvæmt reikningi", fyrir þau verk- efni sem ég hef unnið fyrir Dag. Hins vegar vil ég benda þér á það, vegna þess sem á eftir kemur, að ég hef gert nokkrar teikningar samkvæmt beiðni blaðamanna Dags, til birtingar í blaðinu, án þess að krefjast greiðsiu fyrir, enda er mér vel til blaðsins og starfsmanna þess. í fljótfærnislega skrifaðri athuga- semd þinni gefur þú í skyn, að ég hafi fengið greidd hálf mánaðar- laun verkamanns fyrir að hanna nýjan Helgar-haus og „nokkrar" myndir fyrir veðurdálkinn á bak- síðu. Ef þér finnst þessi verkefni hafa verið ofborguð, þá skora ég á þig að færa rök fyrir því. í leið- inni gætir þú kannað hvor okkar hefur margfaldari verkamanna- laun og gleymdu ekki aukavinn- unni sem þú vinnur í vinnutíma þínum sem ritstjóri. Þú segir undir lok athugasemd- ar þinnar: „Það er hins vegar rétt að Dagur hefur notið velvildar annarra, (leturbr. mín, R.Lár.), listamanna í bænum, sem hafa gert heilar forsíðumyndir án greiðslu." Með þessum orðum undirstrik- ar þú einmitt það sem ég var að benda á í grein minni, þ.e.a.s. það sjónarmið þitt, (og því miður ertu ekki einn um það), að það sé ekkert athugavert við það að „skreyta sig ókeypis fjöðrum listamanna", selja vöru, (t.d. Dag), fyrir þeirra tilstilli meðal annars, en þeir skuli sitja á hak- anum hvað greiðslur snertir. í grein minni var ég að reyna að vekja umræður um hlutskipti listamanna og annarra hönnuða, sjónarmið sumra samborgara gagnvart þeim og fordóma manna eins og þín í þeirra garð. í athugasemd þinni reynir þú að sverta mig persónulega, í stað þess að svara málefnalega. Ef þú finnur þig knúinn til að gera „athugasemd" við þetta opna bréf mitt til þín, þá bið ég þig lengstra orða að hugsa áður en þú framkvæmir og fara með rétt mál. Megi Dagur hver fegurð þér færa. Ragnar Lár. Athugasemd: Eftir örstutta um- hugsun ákvað ég að svara þér í engu, nema hvað ég held að þú hljótir að vera einn um þá skoðun að ég hafi fordóma gagn- vart listamönnum og hönnuðum. Efnisleg atriði greinar þinnar voru ágæt, en síðasti hlutinn og þetta sem hér birtist er nöldur, sem ég held að þú gerir lista- mönnum engan greiða með. HS Austur-Húnavatnssýsla: Mikið um að vera í félags- og menningarmálum Margt hefur verið að gerast í félags- og menningarmálum í Austur-Húnavatnssýslu frá áramótum. Hin hefðbundnu þorrablót voru haldin og mikið hefur verið um heimsóknir leikfélaga úr ná- grannabyggðum t.d. Leikfélag Ólafsfjarðar með „Músagildr- una“, Leikfélag Hofsóss með „Saklausa svallarann" og Leik- félag Hvammstanga með „Gullna hliðið“. Aðsókn var mjög góð á allar sýningarnar. Myndlist hefur fengið sinn skerf, en Örn Ingi myndlistarmaður frá Akureyri var með sýningu á Hótel Blönduós helgina 2.-4. mars. Ferðafélögin Útsýn og Samvinnuferðir/Land- sýn hafa verið með kynningar- kvöld og boðið upp á margs kon- ar skemmtiatriði og veislumat. Ungmennasamband Austur- Húnvetninga hefur verið með spurningakeppni „sveitarfélögin svara“ í gangi og hefur verið keppt á tveimur stöðum í sýsl- unni en eftir er að halda keppn- inni áfram í þrjú kvöld til að úr- slit fáist. Tónlistarfélag sýslunnar stóð fyrir tónleikum með Eddu Er- lendsdóttur píanóleikara, en fyrr um daginn voru tónleikar fyrir nemendur Grunnskóla Blöndu- óss. Einnig hefur Pétur Jónasson gítarleikari heimsótt Blönduós og verið með tónleika. Öldungadeild-kvöldskóli hefur verið starfandi á vorönn á Blöndu- iósi og_er boðið upp á 9 nám- Frá Blönduósi. skeið í 7 námsgreinum. Yfir 70 þátttakendur hafa innritast í námskeiðin. í vetur hefur full- orðinsfræðsla verið á Skaga- strönd og hefur þátttaka verið góð. Ekki verður neitt lát á í Aust- ur-Húnavatnssýslu er varðar skemmtanahald því á næátunni mun Leikfélag Blönduóss frum- sýna leikritið „Spanskflugan“ eft- ir þá Arnold og Bach undir leik- stjórn Eyþórs Arnasonar. Undirbúningur undir Húna- vöku ’84 er í fullum gangi og verður þar margt á döfinni m.a. sýning á teikningum eftir Sig- mund og á Húsbændavöku verð- ur Helgi Seljan alþingismaður ræðumaður. Á pálmasunnudag verður kórsöngur, en þá mun Samkórinn Björk flytja söng- verkið Gloría eftir Vivaldi. Sam- kórinn Björk samanstendur af áhugafólki um söng frá Blöndu- ósi og nágrannasveitum Blöndu- óss. Stjórnandi er Svein Arne Korshamn. Hljómsveitin Topp- menn mun sjá um fjörið á Húna- vöku ’84. Björn Sigurbjörnsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.