Dagur


Dagur - 11.04.1984, Qupperneq 2

Dagur - 11.04.1984, Qupperneq 2
2 - DAGUR -11. apríl 1984 33 ók besta íc vormn - Rætt við Gylfa Þórhallsson nýbakaðan skákmeistara Norðlendinga Vonastu eftir páskahreti? Maríanna Traustadóttir: Já endilega, ég þarf að vinna ritgerð og þá er betra að hafa vont veður. Elías Björnsson: Nei, ég hef engan áhuga á páskahreti. Hinrik Þórhallsson: Já, það þarf endilega að ljúka vonda veðrinu af. Kristján Óskarsson: Nei, tíðin hefur verið góð og mætti halda áfram þannig. Guðmundur Jökulsson: Alls ekki. - Ég býst nú við því að minn toppur sem skákmaður sé nú liðinn og ég er því meira á því að helga mig félagsmálunum innan skákhreyfingarinnar og unglingastarfinu, sagði Gylfi Þórhallsson nýbakaður skák- meistari Norðurlands er blaða- maður Dags ræddi við hann að afloknu Skákþingi Norðlend- inga á dögunum. Gylfi sem jafnframt er formaður Skákfé- lags Akureyrar og Skáksam- bands Norðurlands vann ör- uggan sigur á mótinu, hlaut 6 vinninga af 7 mögulegum og það var ekki að sjá á tafl- mennsku hans að tekið væri að halla undan fæti. - Ég var ekki nema fimm eða sex ára þegar ég lærði manngang- inn en framan af tefldi ég mest við strákana í Innbænum þar sem ég bjó. Ég tefldi síðan nokkuð í skóla og þar varð ég m.a. skóla- meistari í Gagnfræðaskóla Akur- eyrar tvö ár í röð. Eftir það var lagt hart að mér af mörgum, þar á meðal Júlíusi heitnum Boga- syni, sem leiðbeindi okkur, að ganga í skákfélagið. Júlíus var mjög góður leiðbeinandi og við fengum mjög góða tilsögn frá hans hendi sem við búum að enn þann dag í dag. - Hvenær tefldir þú fyrst á móti? - Það mun hafa verið á haust- móti Skákfélags Akureyrar 1970. Ég var þá 16 ára og tefldi strax í fullorðinsflokki þar sem enginn unglingaflokkur var til þá. Ég tefldi síðan fljótlega á Akureyr- armótum og á fyrsta mótinu varð ég efstur í 2. flokki og síðan efst- ur í 1. flokki árið eftir. - Hvaða mót er þér eftirminni- legast? - Þær eru nú orðnar ansi margar skákirnar um ævina en líklega er mér minnisstæðast mótið þegar ég vann minn fyrsta Akureyrartitil. Það var á Skák- þingi Akureyrar 1976 en síðan hef ég orðið Akureyrarmeistari tvisvar sinnum til viðbótar og Norðurlandsmeistari hef ég orðið tvívegis. Skákþing Norðurlands 1976 var líka mjög eftirminnilegt en þar varð ég í öðru sæti. Sigur- vegarinn gat síðan ekki tekið sæti í landsliðsflokki á Skákþingi ís- lands þannig að ég fékk rétt til þátttöku þar. - Hvernig gekk? - Það gekk ekki enda við ramman reip að draga. Ég varð 12. og síðastur en reynsluleysi háði mér mjög á þessu fyrsta stórmóti mínu. - Nú tefldir þú á Alþjóða- Reykjavíkurskákmótinu. Hvern- ig var það? - Það var mjög skemmtilegt og ánægjulegt mót. Við Pálmi R. Pétursson tefldum þar fyrir hönd Skákfélags Akureyrar en þetta var í annað sinn sem Akureyring- Já það er út af þessum kjarn- orkusprengjum og öllu því leið- inda dóti. Fyrri partinn í vetur var alltaf verið að sýna okkur í sjónvarpinu hópa af fólki úti í löndum sem safnaðist saman á ýmsum stöðum. Sagt var að þetta fólk væri að mótmæla uppsetn- ingu á sprengjum. Sumt af þessu ar taka þátt í þessu móti. Pálmi stóð sig með mikilli prýði á mót- inu. Náði 5,5 vinningum af 11 mögulegum og skaut mörgum sterkum skákmeisturum ref fyrir rass. Þetta er langsterkasta mót sem ég hef teflt á en ég fann mig ekki á þessu móti og árangurinn því ekkert sérstakur. - Hvernig hefur þér gengið á íslandsmótunum? - Það hefur gengið upp og ofan en ég stóð mig þó með ágæt- um á mótinu í fyrra. Var þá í toppbaráttu út allt mótið en slæmur endasprettur varð þess valdandi að ég hafnaði í sjötta sæti í landsliðsflokki. - Hver er erfiðasti andstæð- ingurinn sem þú hefur mætt? - Ég hef tekið þátt í öllum deildakeppnum Skáksambands- ins síðan 1974 og hef því fengið fólki lét bera sig burt af götum og mannvirkjum, einnig var sagt að þessir hópar kenndu sig við frið og væru þess vegna að þessu sam- komuhaldi. Á nýbyrjuðu ári komu fréttir utan úr heimi um að nokkru aust- ar við áðurnefndar sprengjur tækifæri til að keppa við flesta af sterkustu skákmönnum þjóðar- innar. Alþjóðameistararnir ungu, s.s. Helgi Ólafsson, Jón L., Margeir og Jóhann eru mjög erfiðir en ég hef þó alltaf fengið punkta gegn þeim og eitt skiptið vann ég Helga. Af skákmönnum hér á Akureyri hefur mér gengið einna verst með Áskel Örn Kára- son og það eru alltaf miklar bar- áttuskákir þegar við teflum saman. - Hvernig skákmaður ert þú? - Ég verð að teljast sóknar- skákmaður. Það á ekki við mig að leggjast í vörn en ég get hins vegar tekið heils hugar undir það að sókn sé besta vörnin. Það á svo sannarlega vel við um skák- ina. - Hvaða mót eru nú framund- an hjá þér? væri verið að raða upp svipuðu sprengjurusli yfir mörg lönd. En nú kveður svo við að það virðast engin mótmæli vera viðhöfð um sprengjur eða aðrar óskir um frið a.m.k. engar myndir í sjónvarp- inu um það. Nú langar mig að spyrja hvort - Skákþing íslands átti að vera nú um páskana en vegna utanfar- ar alþjóðameistaranna þá var keppni í landsliðsflokki frestað fram til hausts. Alþjóðameistar- arnir ætla sér að taka þátt f skák- móti í New York á sama tíma og hafa fengið íslandsmótinu frestað vegna þess. Skákmenn á Norðurlandi og skákmenn al- mennt eru mjög óánægðir með þessi málalok og t.a.m. sam- þykktum við formenn skákfélag- anna á Norðurlandi ályktun á síðasta Skákþingi Norðlendinga, þar sem þessari ákvörðun er harðlega mótmælt. Við lítum svo á að með ákvörðun sinni sé stjórn Skáksambands íslands að brjóta eigin lög því það er skýrt tekið fram í lögum sambandsins að ekki sé hægt að breyta dagsetn- ingum skákþingsins nema á aðal- fundi. Það var ekki gert heldur var þetta einhliða ákvörðun stjórnarinnar. Þá erum við líka mjög ósáttir við að alþjóðameist- ararnir skuli hunsa skákþingið á þennan hátt. Það er nóg af mótum erlendis sem þeir geta tekið þátt í og okkur finnst það virðingarleysi við Skákþing ís- lands að taka erlend skákmót fram yfir það. - Hvað er á döfinni hjá skák- mönnum á Norðurlandi? - Það er helst að nefna að við höfum ákveðið að halda sérstök landsfjórðungshelgarskákmót og verður hið fyrsta þeirra haldið á Húsavík á næsta ári. Við erum óánægðir með það hvernig Jó- hann Þórir hefur staðið að helg- armótum sínum en þessi mót hafa haft það í för með sér að skákfélög á Norðurlandi og lfk- lega víðar hafa beðið fjárhagslegt tjón af. Við ætlum því að halda okkar eigin mót og bjóða til þeirra skákmönnum af öllu land- inu utan Reykjavíkursvæðisins og snúa þannig við þeirri þróun sem átt hefur sér stað að aðeins skák- mönnum frá Reykjavík sé boðið til helgarskákmóta, auk heima- manna. - Hvernig líst þér á framtíð skáklistarinnar á Norðurlandi? - Mér líst nokkuð vel á hana. Skákáhugi hefur vaxið mikið og sterkir ungir skákmenn eru að koma upp t.d. hér á Akureyri. Þar veldur kannski mestu að öll aðstaða hefur batnað mikið og við getum t.a.m. boðið upp á eig- ið húsnæði til æfinga. Þetta er skákheimilið við Strandgötu sem við missum þó í sumar vegna skipulagsbreytinga í Glerárgötu en við höfum hins vegar góða von um að fá annað húsnæði í haust. Það er annars full ástæða til að hvetja skákáhugamenn í bænum til að koma í skákheimilið og taka nokkrar skákir. Það er alltaf opið hús á fimmtudagskvöldum og nýir félagar eru alltaf vel- komnir, sagði Gylfi Þórhallsson. - ESE. Dagur getur frætt mig um það hvort öll friðarhugsjón sé fokin út í veður og vind hjá sjónvarp- inu og öðrum svokölluðum frið- arsinnum, eða hvort ekki sé sama á hvaða hól sprengjur standa eða hverjir setja þær upp. Hvað veldur? S. Kjarnorkusprengjur og allt það leiðindadót

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.